Alþýðublaðið - 26.03.1959, Page 4
I
tltgefandi: AlþýSuflokkurinn. Eitstjórar: Benedikt Gröndal, Gisli J. Ást-
þórsson og Helgi Sæmundsson (áb). Fulltrúi ritstjóraar: Sigvaldi Hjálmars-
®on. Fréttastjóri: Björgvin GuSmundsson. Auglýsingastjóri Pétur Péturs-
*on. Ritstjórnarsímar: 14001 og 14902. Auglýsingasími: 14906. AfgreiSslu-
eími: 14900. ASsetur: Alþýðuhúsið, Prentsmiðja Alþýðubl. Hveríisg. 8—10.
Lengsta lielgi ársins
MJÖG hefur verið veðrasamt hér á landi það,
6em af er þessu ári, íslendingar orðið fyrir tilíinn-
anlegu manntjóni í hörmulegum sjóslysum og vetr
arvertíð brugðizt að 'kálla vegna stöðugra ógæfta.
Þetta eru ill tíðindi fyrir þjóð, sem byggir afkomu
ts'íaa að verulegu leyti á sjávarútvegi. Auðvitað
standa vonir til, 'að úr rætist, þó að langt sé liðið
á vertíð. En miklu skiptir, hversu aprílmánuði.ir
reynist oft drjúgur vegna netaveiðanna á fiskimið-
vr.um við Suðurland. Gg hann er enn í bakhönd-
irmi.
Áhyggjur vetrarins víkja nú úr hugum manna.
Ilomið er að páskum og vorið í nánd. Hvergi
mun þeim tímamótum meira fagnað en einmitt á
feíandi. Veturinn er hér langur og dimmur og þess
vegna mikið fagnaðarefni, þegar skammdegið þok-
&v fyrir ha^kkandi sól og nálægð vorsins segir til
Bín. Og páskarnir boða þessa breytingu jafnframt
því, sem þeir eru lengsta helgi íslendinga. Margir
kveðja veturinn með því að njóta útivistar við í-
þróttir þær, sem við hann eru kenndar. Fólkið leit
•<ar úr bæjunum út á 'land og sér í lagi upp til fjalla.
íslendingar leggja æ meiri stund á ferðalög heima
til að njóta hinnar fögru náttúru ættlandsins og
ÍLáta útivistina hressa líkama og sá'l. Þetta er eitt
megineinkenni páskahelgarinnar. En flestum er þó
eðalatriði sú lífsbarátta, ,sem háð hefur verið á vet-
uinum og við tekur, þegar hátíðin er.gengin um
garð. Allir vona, að úr rætist um veðurfar og aíla.
í ,því efni geta mennirnir ekki annað en vonað..
Háttúruöflin eru enn allsráðandi, þrátt fyrir tækn-
ioa á öld hugvitsíns og framfaranna. Og íslending-
um verður áreiðanlega hugsað til sjómannanna,
uem þreytt hafa styrr við storma og stórsjói úti á
kafinu í harðfengilegustu lífsbaráttu þessa hrjóstr-
raga lands, sem á rnestan auð sinn fólginn í söltum
bárum og þeim jarðargróða, er vaknar til lífs og
þroska með sól og vori.
Alþýðublaðið óskar lesendum sínum gleðilegr
er páskahátíðar og öllum Íslendingum farsældar
oghamingju með hækkandi sól og batnandi veður-
fari.
PÁLL KRISTJÁN6S0N
busasmíðameistari frá Stapa-
dal í Árnarfirði verður sjötug-
ur á morgun.
Hann er fæddur í Stapadal
27. marz 1889. Foreldrar hans
voru Kristján hreppstjóri Krist
jánsson frá Borg og Símonía
Pálsdóttir, Símonarsonar, á
Dvnjanda. Arnarfjörðurinn var
frá landnámstíð og fram á.þessa
öld hérað, sem hafði upp á að
bjóða miargvíslegt fojargræði.
Fiskigengd var þar mikil og
fjölfiski að sama skapi fimm
mánuði órsins, og á vetrum
gekk í fjörðinn taákarl, bæði
stór og smár. Á öldinni sem leið
voru og selavöður miklar á firð
inum á útmánuðumi, og hval-
reyðar komu þangað inn með
kálfa sína. Arnfirðingar voru
duglegir og iharðfengir sjómenn
og veiðimenn svo slyngir á hval
og sel, að úr varð íþrótt. Þar
sem ísalög voru mjög fátíð á
Arnarf. ög sjaldan bagi að hafís
var þar oftast einhver björg, þó
að matföng skorti annars stað-
ar, jafnvel í sumum sveitum á
Vestfjörðum. Og þá er ég man
eftir mér, var þar furðu mafgt
óvenjulegra mianna að afli, á-
huga og dugnaði, og höfðu þess-
ir eiginleikar orðið kynfastir í
sumum ættum þarna við fjörð-
inn. Af s'líkum, ættum voru þau
bæði komin, foreldrar Páls
Kristjánssonar, og faðir hans
var afrenndur að afli — og harð
fylgi hans og fjör var að sama
skapi. Hann var og sjálfstæður
maður í sboðunum og skraf-
hreifinn og skemmtilegur í við-
í-æðum, þegar hann gaf sér tóm
til að sinna slíku. Það er aðeins
klukkutímiagangur m-illi Lokin-
hamra og Stapadals og vinátta
var traust á milli heimilanna.
Einu sinni á ári 'kom Kristján
’hreppstjóri og sat tvo til þrjá
daga um kyrrt. Þá viku þau
vart frá honum, foreldrar mín-
ir, og var margt talað og hátt
hlegið, og gerði ég samninga
um, að mér væri hlíft við verk-
um og Hámi og leyft að hlusta.
Frá Kristjáni í Stapadal er sagt
í -Eg vejt ekki betur-
Þau Stapadalshjón eignuðust
fimmtán börn, og lifðú átta af
þessum hóp, sex synir og tvær
dætur. Elztur sonanna vkr Páll.
Þá er hann var ellefu ára, lézt
móðir hans af barnsförum. Hún
var ágset kona og móðir, og má
nærri geta, hver sjónarsviptir
hefur að henni orðið. En slíkar
voru vinsældir þeirra Stapadals
hjóna, að sveitungar sóttu- þrjú
yngstu börnin, og var það móð-
ir mín, sem hvítvoðunginn sótti.
Vorið eftir að þetta gerðist —
eða þegar Páll var tólf ára —
var það dag einn, að faðir hans
sagði við hann: „Ég sá þig taka
upp það stóran stein í gær, að
Páll Kristjánsson
ég hugsa helzt þú getir orðið
fjórði maður á bátn-um héðan
af.“ Páli þótti lofið gott, en.þó
var hann smeykur. Hann vissi,
að sjósóknin á Stapada'lsbátn-
um var enginn barnaleiikur. En
næstu þrjú á'rin var hann háseti
föður síns og var á borð með
honumi. Hallaði ekki á þó feðga,
þótt barninguj. væri, því að þó
að tveir gildir mienn væru á
hitt borðið, skorti Kristján aldr
ei afl til að hald'a réttu horfi.
Hann gat jafnvel skrafað og
hlegið í hör.kuandróðri, ].eit þá
kannski til þóttubróður síns og
sagði: „Ekki látið þið þá skömm
um ykkur spyrjast, fcveir fílefld
ir -karlmenn, að upp á ykkur
hggi með mig og drenginn. á
hitt borðið.“
Eftir ferminguna var Pall á
skútum í tvö vor og sumur, en:
vorið, sem hann varð sextán
ára, lét Kristján tengdason
sinn, Bjarna Ásgeirsson frá
Álftamýri, taka við búsforráð-
um. Þá sagði hann við Pól: „Nú
þætti miér vænlegast fyrir þig
að fara þinna eigin ferða. Ég
held þú sért efnilegur sjómaður
og ættir að fara í sjómannaskól
ann, þegar þú íhefur aldur til.“
Kristján hafði sjáífur verið
skútuskipstjóri á yngri áxum
sínum, eins og títt var um unga
framtaksmenn þar vestra. Páll
lét sér þau ráð föður síns vel
líka, að hann færi að eiga með
sig sjálfur, en ræddi hins vegar
ekki, til Ihvers hugur hans
stæði. En undanfarna vetur
hafði hann mikið föndrað við
sraíðar. Hann réð sig nú á veið-
ar rn-eð Jóni Pálssyni móður-
bróður sínum, semiátti 'heima á
ísafirði og stjórnaði þar stóru
hákarlaskipi. Síðari hluta ver-
tíðar veiktist stýrimað.ur Jóns,
og var Páll stýrimaður það sena
eftir var úthaldsins.
'En nú réðst hann smíðaneml
á ísafirði. og stumdaði þar nóm í
kvöldskóla iðnaðarmanna. Lauk
hann námi 1910. Á námsáruna
sínum lagði hann stund á iþrótt
ir og þá einkum íslenzka og
grísk-rcrniverska glímu og gat
sér góðan orðstír endá skorti
hann ekki þrek, fjör eða kapp á
við hvern annan.
Árið 1912 kvæntist hann
Málfríði Sumarliðadóttur,
bónda á S'kjaldvararfossi' í Arn-
arfirði. Hún var góð kona, um-
hyggjusöm húsfreyja og á'gæt
móðir, vel greind eins og faðir
hennar, hlédræg út á við, en
alúðin sjiálf, þegar gest bar að
garði. Hún lézt árið 1955. Börn
þeirra hjóna eru Ása, gift kona
í Reykjavfk, Gunnlaugur arki-
tekt, Jón húsasmíðamieistari og
Haraldur sjómiaður —• allir
kvæntir og búsettir í höfuð-
staðnum.
Framan af vann Páll nokk-
urn veginn jöínum höndum að
húsasmíði, skipaviðgerðumi og
bátasmíði, en tvo seinustu ára-
tugina, sem hann var á ísafirði,
fékkst hann eingöngu við húSa-
gerð og var þá einna athafna-
samastur 'allra stéttarbræðra
sinna í bænum, og með dugn-
aði sínum, framtáki og lipurð
átti hann manna mestan þátt í
að örva framkvæmdir um húsa-
gerð og húsabætur.Hann fékkst
og við útgerð og átti sinn hlut í
stofnun togara'félags eftir hrun
b'átaútgerðarinnar upp úr 1920.
í samtökumi iðnaðarmanna
starfaði hann ai' miklum dugn-
aði, var lengi í stjórn iðnaðar-
mannafélagsins og formaður
-þess stundum, var formaður iðn
ráðs og sat á iðnþingum, var
löngum í skólanefnd iðnskólans
0g.gjald'keri hans og vann mik
ið að vexti 'hans og viðigangi á
erfiðum tímumi. Þá var hann og
formaður félags ihúsasmiða,
starfaði að bindindismálum1 og
sat í bæjarstjórn sem fulltrúi
Alþýðuflokksins.
Árið 1939 — eða í lok krepp-
unnar - fluttist Páll til Reykja
Framhald á 10. síðu.
Þessi 5—6 tonna dieselbifreið hefur vakið mikla athygli vöritbíl
etvóra hér á landi, Bendum sérst aklega á 3 höfuðkosti hennar:
★ Mótorbremsur
★ Hálfautomatisk skipting milli gíra
★ Læsanlegt drif
VerS um kr. 136..000,00 með tengikassa fyrir sturtur)
Afgreiðslutími: apríi — ef pantað er strax.
Aðstoðum vig að útfvlla umsóknir um gjaldeyris- og inn-
flutningsleyfi. Allar nánarj upplýsingar veitar:
| Tékknsska blireiðaumboðið h.i.
í Laugavegi 176 — Sími 17181
4 26. marz 1959 — Alþýðublaðið