Alþýðublaðið - 26.03.1959, Síða 12
BrúSuleikhnsið annan í páskum
Barninu ekki
ÆSKULÝÐSRÁB Revkjav'íkui' efnir til leikbrúöíi-
sýningar fyrir börn, í skátaheimilinu við Snorrabraut,
annan páskadag kl. 1,30 e. h. Aðgöngumiðar á 5 krónur
vei'ða seklir við inngamginn. Þetta sinn verða sýnd ævin-
týrin Hans og Gréta, og Eldfærin. Leikbrúðugerð og sýn-
imgar hafa náð hyllj víða um lönd og eru talin til sjá!f_
sagðfa jiátta í lífi fejóðanna. Hér á landi er þetta ung list-
■grein sem á sífellt vaxandi vinsældum að fagna. Æskulýðs
ráS Beykjavíkur hefur gengist fyrir námskeiðum í leik-
iMÚðugerð og sýningum. í samvinnu við Jón E. Guðmunds
son, stofnanda Hins íslenzka brúðuleikhúss.
STRÆTISVAGNAK Reykja-
víkiur aka um páskahátíðina
senffl hér segir:
Á skírdag verður eki'ð frá
ikl. 9 til 24, föstudaginn langa
ifrá 'kl. 14 til kl. 24, lau'gardag
fyrir páska verður hinsvegar
éki® ffá kl. 7—17,30 á öllum
Jleiðuwi.
Eftir kl. 17,30 verður aðeins
okið á eftirtöldum leiðum til
Ikl. 24:
JLeið 1. — Njálsg.-Gunnars-
feraut á heilum o« hálfum tíma.
Le>S 1. — Sólvellir 15 mín.
íyrir og yfir beilan tímia.
Leið 2. — Seltjarnarnes 2
#niín. yfir hvern hálfan tíma.
Leið 5. — Skerjafjörður á
lieila tímanum.
JLeið 6. — Rafstöð á jheila
’tímahum með viðkomu í Blesu-
gró£ í bakaleið.
Leið 9. — Háteigsv.-Iflíð'ahv.,
óií^reyttur tími.
Leið 13. — Hraðferð Kleppur,
á'breyttur tími.
SAFNAZT hafa nú 3 millj
og 230 þús. kr. til aðstand-
enda þeirra, er fórust með
Jwlí og Hermóði. Er söfnun-
imii enn ekki lokið. Alþýðö-
felaðinu hafa borizt 58.275 kr.
Leið 15. - Hraðferð Vogar ó-
breyttur tími.
Leið 17. — Hraðferð Aust-
Vest. óbreyttur tírni.
Leið 18. — Hraðiferð Bústaða-
'hverfi, óbreyttur tími.
Leið 12. — Lækjarbotnar, —
síðasta ferð kl. 21,15, á páska-
dag hefst akstur kl. 14 og lýkur
kl. 1 eftir mdðnætti. Annan í
p'áskum hefst akstur kl. 9 og
lýkur kl. 24.
Framhald af l.'síðu.
fullu upplýst. Jafnframt var
þess farið á leit við sakadóm-
ara, að hann tæki málið til op-
ihberrar rannsóknar. Að rann-
sókn lokinni voru málskjölin
send dómsmálaráðuneytinu til
fyrirsagnar og hefur ráðuneyt-
ið tilkynnt sakadómara með
bréfi, dags. 23. þ. m., að það
fyrirskipi ekki frekari aðgerðir
í málinu.
Við rannsókn þessa hefur
ekkert komið í Ijós um það, að
fullyrðingar þær og getsakir,
er fram hafa verið bornar um
misþyrmingu á umi'æddu bami
hafi við rök að styðjast“.
Ennfremur segir:
„í vottorði, er Björn Guð-
brandsson læknir hefur gefið
rannsóknarlögreglunni um á-
stand drengsins, er hann kom í
sjúkrahúsið, segir hann 'gsaag-
inn hafa verið með lungna-
bólgu vinstra megin, hann hafi
verið magur og illa útlítandi.
Dreifðir marblettir hafi verið
um kroppinn og sár, fremur lít-
il en samfelld' fyrir neðan nef
og út á kinnar. Drengurinn
hafi verið mjög hræddur og
aumur. Síðan segir orðrétt í
vottorði læknisins: „Ekkert er
hægt að segja af hvaða orsök-
um þessir marblettir komu eða
sárin í andliti. Engin einkenni
voru á höndum eða fótum, sem
benda á, að drengurinn hafi
verið bundinn. Ekkert ákveðið
er hægt að segja um hvort sár-
in í andliti stafi af meiðslum
eða sár, sem oft myndast af
langvarandi kvefi, þar eð kaun
in voru gömul og hrúðruð. Mar
blettirnir gætu eins stafað af
vítamínskorti eins og' áverka
eða hvort tveggja.“
Ennfremur lágu fyrir við
rannsókn málsins vottorð lækn
anna Eggerts Steinþórssonar og
Esra Péturssonar, sem er heim-
ilislæknir móðurinnar11.
Að lokum segir:
„Enda þótt rannsókn máls-
ins hafi, eins og áður segir, ekki
leitt til þess, að fyrirskipaðar
séu frekari aðgerðir í því af
opinberri hálfu, mun barna-
verndarnefndin hafa eftirlit
með aðbúnaði barnsins eftir að
það kemur heim af sjúkrahús-
inu, enda hefur móðir þess ósk-
að eftir því að svo yrði“.
ŒQgSSuí)
40. árg. — Fimmtudagur 26. marz 1959 — 71. tbl.
Margir nota páskahelgina
tíl ferðataga um landið
MARGIB munu leggja land*-
undir fót um páskahelgina, — I
enda hefst í dag fimm daga frí
hjá ýmsum, þar sem víða er
ekkert unnið á laugardaginn.
Skíðaferðir hafa' löngum verið
vinsælar um þetta leyti, en nú
er lítill snjór o;r búizt við minni
þátttöku í skíðaferðum.
Alla dagana fimm verður ein
ferð frá BSR, sem annast ferð-
irnar fyrir hönd skíðafélaga í
Reykjavík. Farið verður bæði á
Helisheiði og Mosfellsheiði. —
Ekki er tekið við pöntunum og
því ekki vitað um fjöldann.
Páll Arason efnir til Öræfa-
ferðar á sjö bílum og eru far-
þegar 121 að tölu. Ekki mun
vera mikið í vötnunum og frem
ur greiðfært austur. Hefur ver
ið rutt við Skeiðaná og Sand-
gígskvísl. Um 200 manns skráðu
sig, en ekki var hægt að ta'ka
fleiri. Þetta er 3. páskaferð
Páls. í hitteðfyrra voru 44 þátt-
takendur, 62 í fyrra og svo 121
nú.
Ferðafélag íslands fer á Þórs
mörk með 40 mianns. í morgun
fóru 25, en 15 fara á laugar-
dag. Hætt var við fyriúhugaða
ferð að Hafravatni sökum aur-
bleytu á þeirri leið.
Þá fór strand'ferðaskipið
„Hekla“ vestur og norður um
land með 270 farþega eða u. þ-
b. Mikill mannfjöldi mun ferð-
ast með vélum Flugfélags ís-
lands þessa dagana og loks má
geta þess, að „Sólfaxi11 fór í
gærkvöldi til Mallorca með 60
farþega, sem diveljast þar um
páskahelgina.
Áki Jakobsson
Flokkskaffið í dag
EINS og' áður hefur veriS'
skýrt frá verður Flokkskaffið
í fyrsta sinn í dag kl. 5 í Ingólfs
Café við Hverfisgötu. Mun
Áki Jakobsson alþingismaður
flytja þar ávarp um Alþýðu-
blaðið, vöxt þess, viðgang og
framtíðarhorfur en að því loknu
munu menn spjalla saman unt
máiið um leið og þeir drekka
kaffið.
Þess er vænzt að alþýðu-
flokksmenn í Reykjavík og ná-
grenni (Kópavogi, Hafnarfirði,
o .s. frv.) fjölmenni — líti inrt
og spjalli um flokksins gagn og
nauðsynjar yfir kaffibollanum,.
Yerlnf það Hermann de Ga ulle eða Eysteinn de Gaulle!
riPunnudags
iÍBLADiÐ
fylgájr Alþýðublaðinu í lausa-
4.öI\h í dag og verður það svo
fb-ér eftir.
D E GAULLE
HVENÆR fær fsland sinn
de Gaulle? spyr Tíminn í fyri’a
dag í grein, þar senr hinn
franski forseti er hafinn til skýj
anna, — en forsætisráðherra
íslendinga, Emil Jónsson, jöfn-
um höndum rægður niður. —
Alþýðublaðið getur ekki svar-
að þeirri spurningu Tímans, —
hvenær okkar de Gaulle korni,
en varla verður það Hermann
de Gaulle cða Eysteinn de
Gaulle, því þeir höfðu tæki-
færið á þriðja ár og hlupu frá
öllu í reiðileysi í byrjun des-
ember.
De Gaulle hefur vissulega
unnið stjórnmáiaþrekvirki, sem
byggist á persónu hans og til-
trú á frönsku þjóðarinnar. Það
er hins vegíal' athyglisverðui')
dómur um stjórnarforustu fram
sóknarmíaiina á þriðja ár, að
Tíminn skuli nú þrá mest ís-
lenzkan de Gaulle.
En veit Tíminn að öðru leyti
hvað hann er að biðja um? —
Veit Tíminn, að de Gaulle af-
nam þingræðið í tæplega ár?
Vill Tíminn, að alþingi verði
afnumið?
Veit Tíminn, hver var stefna
de Gaulles í efnahagsmálum?
Hún var gengislækkun frank-
ans, seðlaskipti, miklar verð-
hækkanir, miklar skattahækk-
anir og fleira í þeinu dúr? Er
þetta það, sem Tíminn vill fá
íslenzkan de Gaulle til að gera?
Veit Tíminn, að árangurinn
af kosningaskipun de Gaulles
var að þurrka út vinstriflokk-
ana að miklu Ieyti á þingi, en
skapa stói'an meirihluta fyrir
svartasta afturhald landsins?
Veit Tíminn ekki, að sjálfum
de Gaulle þótti nóg um? Veit
blaðið ekki, að bæjarstjórnar-
kosningar um síðustu helgi
sýndu, að einnig frönsku þjóð-
inni þótti nóg um?
Það er von, að þá Tímamenn
dreymi umi íslenzkan de Gaulle.
TIME kaus de Gaulle fyrir
mann ársins. Hermann Jónas-
son var forsætisráðherra á ís-
landi 355 daga af síðasta ári,
en engum datt í hug að til-
nefna hann mann ársins. Og
hað, sem Tímanum sárnar mest:
Emil Jónsson var forsætisráð-
herra aðeins 9 daga sama árs —
og var strax nefndur!
Frakkar gáfust upp á stjórn
EMIL
lands síns — og köllúðu á de
Gaulle. Framsókn gafst upp —
og dreymir umi „íslenzkan de
Gaulle“. En íslenzka þjóðin á
ýms önnur úrræði o-g því hafn-
ar hún de GaúHe-draumum
Framsóknar.