Alþýðublaðið - 02.04.1959, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 02.04.1959, Qupperneq 12
Spjallað við skipslækninn. ÞÝZKA eftirlitsskipiS Posei- don kom iiingað til Reykjavík- «r í gær. Það var einmitt um liorS í Poseidon, semsjómaSur- fiim- af brezka togaranum Cov- entry City var skorinn upp við ■fcráðri botnlangabólgn. Alþýðu fclaðið náði í gær tali af skips- lækninum dr. Fischer og enn- 'frémur af brezka togarasjó- manninum.' Ðr.. Fischer sagði, að Posei- öon aðstoðaði þýzka sjómerm og ferðamenn og öll þau-skip, «em kalla á hjálp. Sagði hann, ;a‘ö mj«ög mikið hefði veri-ð að g.era í þessari ferð og hefðu vf||ir veitt aðstoð um 120 sjúk- ‘j.ingum frá togurum og öðrum sfcipum. RÍKISÚTVARPIÐ flutti í gær- íkvöldi fréttaauka frá hraðskák tnótinu í Breiðfirðingabúð og sagði frá 14 ára gömlum skák- manni úr Grímsey, sem sigraði hvern skáksnillinginn á fætur öðrum. Var þessi undraskák- anaður. nefndur Pétur Vigfús- gon. Skömmu eftir að frétta- «aukinn hafði verið fiuttur hiingdi stúlka til útvarpsins ,og sagði, að fréttin væri ekki al- ,veg rétt. Hann Pétur væri Sig- rf-ússón. Kvaðst hún sjálf vera úr Grímsey og þekkja mann- inn mjög vel. Margir gerðu sér ferð niður £ Breiðfirðingabúð í gærkvöldi til þess að horfa á þennan nýja skáksnilling, en laumuðust sneyptir heim, því að hér var um aprílgabb út- varpsins að ræða, HAFA KOMIÐ UPP LOFTSKEYTAKEKFI. Þar sem ekki er hægt að senda lækninn ,frá Poseidon til allra skipanna á hafsvæðinu umhverfis ísland, Grænland og Labrador eða koma sjúkling- unum um borð í Poseidon, er oft veitt aðstoð í sjúkratilfell- um í gegnum íoftskeyti. Hafa þjóðverjar komið sér upp kerfi bannig, að skip suðvestur af íslandi, við Grænland og við Labrador kaila Poseidon upp fyrir skip, sem lengra eru í burtu, og flytja svo aftur. ráð læknisins um borð í Poseidon. Þannig er tryggt, að Poseidon getur veitt aðstoð á miklu haf- svæði. Hafa'þeir hjálpað þann- ig t.d. skipum við 'Sbitzbergén. Reynt er þó, að staðsetja skip- ið þannig, að læknirinn geti uáð beint til sem flestra skipa. VEL ÚTBIJINN SPÍTALI. Dr. Fischer sagði, að mjög erfitt væri oft að flytja sjúk- linga um borð í vondum veðr- um. Sagði hann, að spítalinn gæti tekið á móti 17 sjúkling- um í einu, og auk þess væri bægt að taka á móti 4 í viðbót í neyðartilfellum. BREZKI SJÚKLINGURINN SKORINN UPP. Dr. Fischer saeði, að brezkt herskip hefði kallað Poséidon upp sl. laugardag og beðið þá að veita aðstoð vegna togara- sjómanns, sem væri mjög veik- ,ur af botnlangabólgu. Höfðu Bretarnir engin skilyrði til bess að skera hann upp. Er betta gerðist voru ''skipin um 100 mílur hvort frá öðru og sigldu þau síðan á fullri ferð í áttina hvort til annars. Dr. Fischer skar síðan sjúklinginn Þessi mynd var tekin af Peter Lyng um borð £ Poseidon í gær Dr. Fischer upp og aðstoðaði læknir frá brezka herskipinu, KOMA VIÐ f ENGLANDI MEÐ SJÓMANNINN. Sjúklingnum líður nú vel og þar sem Poseidon fer til Þýzka lands í næstu viku, verður hann fluttur í höfn á Englandi. Var honum leyft að fara fram úr rúminú £ fimm mínútur í morgun. Framliald á 2. síðu. ra • a • ■ ■ ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ 120 króna I : Hefurðu athugað, að: ■þú getur tekið þátt í 20: ■ • • ■ jkróna veltu .Alþýðu-j jfidkjssins með einnij :símahringingu? : j Flokknum ríður á því, ■ jað þú rjúfir ekki keðj-j juna, ef þú færð áskor-j :un. . . ■ j Þu mátt .ekki .látaj jundir höfuð leggjast aðj i skora á þrjá aðra. j j Veldu þá og hringdu: h . ■ 'jf eitthvert þessaraj inúmera: 15020, 16724,: =14900. . ! ■ ■ j Þá verða áskoranirn-i 9 r " :ar sottar. j 40 árg, — Fimmtudagur 2. apríl 1959 — 73. tbl. Endanlega afráðið, að íslenzkt sement verði nofað í nýju virkjunina. ÍSLENZKT HRAÐSEMENT, svokallað, þ.e. fljótharðnandi sement, er nú komið á mark- aðinn og líkar nijög vel. Er eftirspurnin mikil og vaxandi eftir því. Fullharnar það á 4 sólarhringum. Fyrstu pokarnir af þessu nýja sementi kom á Reykja- víkurmarkaðinn 11. marz sl. HARÐNAR FYRR EN ÚTLENT HRAÐSEMENT. Erlent hraðsement hefur stundum verið flutt inn. En ekki er það þó eins gott og hið íslenzka. Hefur það verið 7—9 sólarhringa að fullharðna. En venjulegt sement er 28 sólar- hringa að fullharðna. Hrað- sementspokinn kostar 41.76 kr. en venjulegt sement kostar kr. 37.75. AFRÁÐIÐ MEÐ SEMENT í NÝJU VIRKJUNINA. Alþýðublaðið skýrði frá því Áminning vegna gallaðrar vöru. HEILBRIGDISNEFND Rvk hefur uýlega veitt eigendum ísborgar h.f., EskiMíð A við Reykjanesbraut, og Stjörnu- kaffis, Laugavegi 86, alvarlega áminningu vegna sölu gallaðrar vöru. • Á saraa fundi nefndarinnar var lagt fyrir eigendur Hress- ingarskláilans, Austurstræti 20, að bæta nú þegar uppþvott á Framhald á 2. ctðu. fyrir nokkru, að Sementsverk- smiðja ríkisins hefði sent lægsta tilboð í sementssölu til nýju virkjunarinnar. Hefur blaðið, nú fregnað að því til- boði hafi verið tekið og Sem- entsverksmiðja ríkisins muni útvega þau 4000 tonn sem talið er þurfa í virkjunina. RANNSÓKNARLÖGREGL- AN hefur lýst eftir tuttugu og fimm ára gömlum sjómanni, Gesti Gestssyni, til heimilis að Þingholti í Sandgerði. Hans var síðast vart um borð í skipi sínu m/b Vísundi á páskadag. Var skipið þá statt hér í Reykjavík. Gestur mun hafa haft orð á því, að fara heim til sín til Sandgerðis þann dag, en hann kom þangað ekki, Skyldfólk hans í Reykjavík og Sandgerði hefur ekki orðið hans vart. Gestur er hár maður, grann- ur, dökkhærður og toginleitur. Talið er, að hann hafi verið klæddur dökkbláum fötum og verið berhöfðaður. Þeir sem hafa orðið hans varir frá því á hádegi á páska- dag, eru vinsamlega beðnir að gera rannsóknarlögreglunni aðvart. Social-Demokrafen hefur skipf um nafn og rsfsfjéra í GÆR breytti elzta blað jafnaðarmanna í veröldinni um nafn. Er það „Social-Demokrat en“ sem gefið er út í Kaup- mannaíhöfn og er helzta mál- gagn danskra jafnaðarmanna. Hið nýja nafn blaðsins er „Aktuelt“, Jafnframt nafna- breytingunni hafa verið gerð- ar breytingar á ritstjórn blaðs- ins. Hinn nýji aðalritstjóri er Arne Ejbye-Ernest, sem: er að- eins 31 árs gamall. Hann var áð- ur ritstjóri blaðsins „Ny Tid“ í Álaborg, en það er mélgagn jafnaðarmanna á norður Jót- landi. „Aktuelt" verður einnig mál- gagn danskra j afnaðarmanna og verkalýðsihreyfingarinnar, en .ætlunin er að ritstjórnin hafi frjálsari hendur með efnis val og verði ekki eins bundið við stjórnmál og áður. ■■■■■■■■■■■■■■i ■■■■■■■■■■■■■■■•■■ SELFOSSI í gær. Magn- ús í Lingási og annar maður hér í kauptúninu sáu hérna 10 lóur á ann- an dag páska. J.K.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.