Alþýðublaðið - 14.04.1959, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 14.04.1959, Blaðsíða 5
ER heilbrigðis- og félagsmálanefnd neðri deildar al- þingis fjallaði um frumvarpið um sameign fjölbýlishúsa, sem nú er orðið að lögum, fékk hún greinargerð um skiptingu hitakostnaðar í fjölbýlishúsum frá hitaskipta- nefnd Verkfræðingafélags íslands. En hana skina: Sig- urður Thoroddsen formaður, Jón Sigurðsson, Jóhannes Zoega, Ólafur Jensson, Einar H. Árnason. Álit nefndar- innar birtist hér með. ÉR HAF'IÐ sent okkur til umsagnar frumvarp til laga um sameign fjölbýlis- Msa. Telur nefndin löggjöf um þau mál, er frumvarpið fjall- ar um, sjálfsagða og mælir með því, að slíkt frumvarp verði gert að lögum. Nefndin hefur ekki farið ýtarlega í frumvarpið sem heild, heldur svo til eingöngu rætt og athugað 15. grein þess, er fjallar um skiptingu á hitakostnaði í fjölbýlishús- um, enda er það einmitt bað verkefni, er henni er ætlað af félagi okkar. Er það niðurstaða nefndar- innar, að hún vill mæla með þeirri skiptingu á hitakostn- aði sem aðalreglu, er frum- varpið gerir ráð fyrir, sem sé að skiptingin fari fram eftir rúmmáli íbúðanna, betur .en gert er í frumvarpinu, bæði að því er varðar skiptingu hitakostnaðar og eins skipt- ingu sjálfrar sameignarinnar, fjölbýlishússins, og má gera ráð fyrir, að þessi skipting eigi ekki að vera hin sama í báðum tilfellum. Bendir nefnd in á, að þetta atriði sé rétt að ákveða nánar í reglugerð. Jafnframt bendir nefndin á, að í sömu reglugerð sé einnig nauðsj/nlegt að skil- greina nánar heildarupphit- unarkostnað þann, er skipta skal. NeFNDIN telur ré+t, að rökstuðningur fylgi áliti henn ar: Hitanotkun íbúðar er mjög háð legu hennar í húsinu, gagnvart áttum og fleiru. Þannig eru til dæmis kjall- ara- og þakíbúðir mun hita- frekari en íbúðir á millihæð- um. íbúðir, er vita í norður- átt, eru kaldari en suðuríbúð- ir. Ekki mun þess gætt, að þessar íbúðir þyrfti að hita- einangra betur en hinar. Að öllum jafnaði eru þær lakari, þótt yfirleitt sé ekki tekið til- lit til þess við verðlagningu þeirra. Telur nefndin ekki rétt að láta íbúa þessara í- búða gjalda hinnar slæmu legu íbúðarinnar í húsinu með því að ætla þeim að greiða meira en hinum í hit- unarkostnað. Skiptingaraðferð sú, er frumvarpið gerir ráð fyrir, felur í sér, að íbúðum, sem eru í eðli sínu hitafrekar, er ívilnað á kosntað annarra, og um leið, að rétt mat á verð- mæti íbúðanna, þ.e. í sam- ræmi við hitakostnað þeirra, er auðveldað. Lítur nefndin svo á, að sú skipting, sem þó víða hefur tíðkazt, að skipta hitanum í hlutfalli við fermetrafjölda ofna íbúðanna, sé óréttlát og mælir ekki með henni. Ástæð an er sú, að nokkur hluti af hitanotkun íbúðanna, krana- vatnsnotkun og ýmis fastur kostnaður, er óháður legu þeirra, en mundi samt með þessari aðferð leggjast sjálf- krafa á þær í sama hlutfalli sem á við hinn hlutann, sem er háður legunni. Þannig yrði þeim íbúum, sem hafa óhag- stæða legu, íþyngt meira 4n nokkur efni gætu staðið til. SöMULEIÐIS lítur nefnd- in svo á, ,að notkun varma- mæla, eins og hún hefur sums staðar tíðkazt, svo nefndra uppgufunarmæla, sé hæpin, þar eð hún gerir þeim, er búa við óhagstæða legu, að greiða tiltölulega meira en hinum. Þessari aðferð mætti ef til vill mæla bót út frá því sjónar- miði, að sparnaðarviðleitni í- búanna mundi minnka upp- hitunarkostnað, og er slíkt frá þjóðhagslegu tilliti kost- ur. En því verður ekki neitað, að fólk sparar hitann mis- jafnt og að þeir, sem spara, taka frá hinum, er minna halda í við sig, því að hita- flutningur milli íbúða á sér oftast stað. Það sama á sér auðvitað stað, þó að hver íbúð hafi sér upphitun. Þar verða þak- og kjallaraíbúðir hlutfallslega langverst úti. Telur nefndin, að slík sérupphitun íbúða sé ekki til fyrirmyndar, hvorki frá þjóðhagslegu sjónarmiði, því að slíkar lagnir eru miklu dýrari en sameiginlegar lagn- ir, né út frá því atriði, er varð ar skiptingu hitakostnaðar, er verður ranglát, nema mat á verðmæti íbúða sé í sam- ræmi við hitakostnaðinn, en slíku er yfirleitt ekki til að dreifa. Er viðbúið, að í þeim húsum telji hver og einn ann- að en það, er hann eyðir sjálf ur, sér óviðkomandi, jafnvel þó að aðrir eyði tiltölulega meiru. Er því að vænta, að erfitt reynist að koma rúm- málsreglunni við þar og að það mæti andspyrnu sumra í- búanna. Kranavatnsnotkun í íbúðum er ærið misjöfn, fer hún frekar eftir íbúafiölda en íbúðarstærð, en þetta tvennt fylgist alltaf að. Kostn aður við kranavatnið mun nema um 30% af hitakostn- aði í fjölbýlishúsum að með- altali. Hlutfallslega verður hann mestur, þegar um litlar íbúðir er að ræða með mörg- um íbúum, en minnstur er hann í stórum íbúðum. Er tal- Framhald á 10. síðu. Til sjés C | og Isnds J ER EKKI mælirinn fullur? er hægt að láta fleiri saklausa menn drukkna í höfninni án þess að hreyft sé hendi til að bæta aðstöðuna við að kom- ast á milli skips og bryggju? Mönnum hrís hugur við sí-. felldum endurtekningum á þessum vöða. Slysavarnafé- lagið, Sjómannafélagið og önn ur félagssamtök, sem þarna eiga hlut að máli, verða að leggjast á eitt um að fá ráða- menn Reykjavíkurbæjar til að taka þessi mál föstum og alvarlegum tökum því að við svo búið má ekki lengur standa. Það verður að hefjast ihanda um nauðsynlegarúrbæt ur þegar í stað. Það verður að teljast algjört fyrirhvggju- leysi hafnaryfirvalda að ekki skuli vera séð fyrir því hvern ig komast megi milli skips og bryggju, þegar byggðar eru bryggjur sem sérstaklega eru ætlaðar fiskibátum, því eins ©g þeir vita er til þekkja, þá er ekki hægt um vik að hafa stóra stiga eða landganga með ferðis á litlum bátum. Það hafa nú þegar drukknað marg ir menn undir þeim. kringum- stæðum að vera að fara að eða frá borði hér í höfninni og enn fleiri hafa fallið í hö.fnina, en komizt upp úr af eigin rammleik eða með að- stoð annarra, Það er engin af- sökun að segja að þessi eða hinn maðurinn hafi verið undir áhrifum víns, enda ekki dauðasök, það getur nefnilega orðið fullerfitt allsgáðum mönnum að komast á milli báts og bryggju hér í höfn- inni undir vissum kringum- stæðum. á að gera? Eins og þeir vita, sem , til þekkja, þá hagar þannig til við höfnina, að togurum og flutningaskipum er lagt í aust urhöfninni, miðhöfninni og við Ægisgarð, en fiskibátum við gömlu og nýju Verbúðar- ’ bryggjurnar. Trillur eiga aft- ur á móti engan samastað og verða að hengjast utan á önn- ur skip og báta hvar sem við verður komið. í togurunum og flutningaskipum eru svo vaktmenn, sem fylgjast með mannaferðum til og frá skipi ásamt öðru er tilheyrir þeirra starfi. Þessu er ekki til að dreifa með fiskibátana. Á- hafnir þeirra búa oft að meira eða minna leyti í landi en sumir sofa þó um borð. Þegar þessir menn þurfa svo að fara á milli báts og bryggju að nóttu til, eru þeir stundum einir síns liðs og þurfa að draga ekki aðeins einn bát að bryggjunni, held- ur heila syrpu af bátum, sem utaná liggja. Er slíkt oftast ofraun einum manni, þegar vindur stendur af brvggjunni. Undir þessum kringumstæð- um og fleiri slíkum er oft Framhald á 10. síðu. YFIRLIT VIKUNA 5,— 12. apríl. — Veðurfar hef- ur verið nokkuð hagstætt víð'ast hvar, bæði fyrir tog ara og báta með net og línu. Þessi vika er senni- lega sú bezta með veiði á vertíðinni, þegar allar veiðiaðferðir eru teknar með. Þó er mjög misjöfn útkoma í hinum einstöku verstöðv.um eftir vikuna, Aflamagn er nú að nálg- ast mjög að vera svipað og í fyrra og sýnilegt er, • að þessi vertíð verður ekki með meira en meðalafla. Það, sem nokkuð bætir úr lélegum afla er, að flestir bátarnir hafa farið mun færri róðra nú en undan- farnar vertíðar. Meðalafl- inn á þessari vertíð er miklu betri en verið hefur undanfarnar vertíðir. TOGARARNIR: Meiri- hluti þeirra er á heima- miðum, einkum sunnan og suðvestanlands. Nokkrir hafa farið á miðin við Austur-Grænland og Vött- ur fór á Nýfundnalands- miðin og fékk þar ágætan afla, en varð að víkja fyr- ir ísreki. Afli hefur verið allgóður hjá sumum, en er annars fremur rýr. Reykjavík: Gæftir voru góðar í vikunni og stutt sótt, eða yfirleitt hérna í Bugtina. Afli var mjög misjafn í netin og allgóð- ur hjá nokkrum bátum, um 20 tonn í umvitjan. Minni bátarnir voru með jafnari og betri afla. Seinni part vikunnar gerði hvassa norðanátt og dró þá mikið úr afla. Hafnarfjörður: Þaðan hefur verið róið daglega og afli nokkuð sæmilegur, einstaka bátar fengið ágæt ar umvitjanir. Heildarafl- inn um s. 1. mánaðamót var orðinn 4569 tonn hjá 23 bátum (í fyrra á sama tíma 4947 tonn). Hæstu bátar eru: Faxaborg með 468 torm slægt og óslægt í 44 róðrum, Fákur 406 tonn sl. og ósl. í 43 r., Dóra 290 tonn ósl. í 24 r., IJaförn 260 tonn sl. og ósl. í 31 r. Keflavík: Þar var róið alla vikuna. Afli var mjög misjafn og yfirleitt rýr. Sumir bátanna fengu sára- lítið stundum, en aðrir náðu ágætum róðrum. Einn bátur fær með Hnu og aflaði vel í vikunni. Guðmundur Þórðarson hættj á netunum og tók línuna aftur og getur svo farið, að fleiri geri slíkt hið sama, þar sem vart má vænta uppgripa í netin hér eftir. Sandgerði. Þaðan var I róið alla vikuna af flest- j um bátunum. Afli í netin ; in var yfirleitt lítill og * allt upp í um 20 tonn, en • bá tvegg.ja nátta fiskur, 3 Hins vegar var ágætis afii ; hjá þeim þremur bátum, j sem eru með línu eða frá » 10—18 tonn daglega. Tveir í bátar, sem voru með net ; hafa nú skipt yfir og tekiS • línuna aftur. Aflahæstir » bátar eru: Yíðir II. með ; um 600 tonn óslægt, .Guð- ■ björg GK með um 595 » tomi óslægt, Helga TH j með um 580 tonn óslægt. ; Aflinn hjá Víðj II. er á « línu og net, en hinna að- 3 eins á línu. ; « Vestmannaeyjar. Alla í þessa viku hafa gæftir ; verið góðar og almennt ■ róið. Afli hefur verið á- » gætur og tvo daga vik- ; unnár topp-afladagar. Oft- ; ast hafa bátarnir verið » með 15—20 tonn í róðri, ; en nokkrir fengið míklurn ; mun meira. Aflamagn á » Eyjum er nú að verða S mjög svipað og á sama ; tíma og í fyrra. Hæstu » bátar eru: Gullborg með ll 758 tonn. Stígandi með ; 662 t. Hannes lóðs me| » 605 t. Kári 594 t. Krist- » björg 582 t. ; n ■i » n Það hefur nú kornið í » Ijós, svo að ekki verður ; um villst, að netin eru ekkl ; einhlýt til veiði, hvernig » sem viðrar. Aldrei hefur 3 verið meira um notkun á ; netum en á þessari vertíð. » Aldrei verið kostað eins » miklu til við þorskveiðar. ; Aldrei átt að veiða eins « mikið af fiski eins og í » vetur. En því miður haml- ; aði veður og fiskurínn » ve.ddist ekki, en netin » þvældust, slitnuðu og ey.ði ; lögðust í storminum. ; Umframeyðsla veiðar- S færa hjá bátaflotanum S vegna netaveiði er áreið- ; anlega ekki minni en 30— « 40 millj. og til þess að 3 jafna þessa eyðslu þarf ; aflamagn, sem ekki er 3 undir 20.000 tonnum af 3 fiski í viðbót við það, sem 3 aflast á línuna. ; Nú getur auðvitað hag- | að svo til, að rýr afli sé á « línuna en mikill í netin. f Þá má vænta þess að | þetta magn vinnist upp, í þótt mikið sé. En þegar svo stendur á sem á þess- 3 arri vertíð, sem nú er senn 3. á enda, þá er útilokað, að £ viðbótarafli netanna geti 3 brúað hina auknu eyðslu. j! Útkoman er því óþarfa tap, £ vegna óskynsamlegrar « veiðiaðferðar og rangrar 3 notkunar veiðarfæra. Hvað ; þetta tap er mikið getur « enginn sagt um, en öllum «' má vera það ljóst, að vegna ; núverandi skipta- og ráðn- S ingarfyrirkomulags hjá » bátaflotanum, nemur tap ? útgerðarinnar rnörgum. >j milljónum, sem hefði ver- « ið hægt að forða, ef raun- [■ hæf skynsemi sæti í fyrir- ■; rúmi. ; Nýlega var skipuð samn :! ingáríefnd, samkv. ákvæð- » um samþykktanna í vetur 3 um rekstrargrundvöll báta I útvegsins. Þessari nefnd « er ætlað að vinna að und- 3 Franiihald á 11. síðu, ; rt rt • iiiiMinniiiiiiiinmiiMtíiin Alþýðublaðið — 14. apríi 195S

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.