Alþýðublaðið - 14.04.1959, Síða 9
( ÍÞréWlr"')
Fundur íþróttafréttamanna og knattspyrnuleiðtoga: ..
Mörg mál bar á górna, yrnræður jákvæðar
SAMTÖK íþróttafréttaritara
efndu á sunnudaginn var til
fundar með forráðamönnum
knattspyrnuihreyfingarinnar. —
Þeir, sem á fund þenna komu,
voru stjórn og varastjórn KSÍ,
formaður og varaformaður
KRR, formaður landsliðsnefnd-
ar og þjálfari KSÍ.
Atli Steinarsson, formaður
Samtaka íþróttafréttaritara,
setti og stjórnaði fundinum og
í ávarpi, sem hann flutti í fund
arbyrjun, bauð hann oddvita
knattsp'yrnuhreyfingarinnar
velkomna og þakkaði þeim fyr-
ir hversu vel þeir hefðu brugð-
izt við að koma til þessa um-
ræðufundar, þegar þess hefði
verið farið á leit við þá. En til-
-gangurinn með slíkum fundum
sem þessurn væri sá, að efla og
styrkja samistarf þessara aðila,
m,eð því að skiptast á skoðunum
og.ræða sameiginleg atriði, sem
þess.a vinsælu íþrótt, knatt-
spyrnuni, varðaði og verða
mættu henni til enn aukinnar
eflingar og gengis hérlendis.
Fimmi meginatriða gat formað-
ur í þessu sambandi, sem Saim-
tök íþróttafréttaritara vildu
hér ræða við þetta tækifæri, en
þau væru: Þjálfun knattspyrnu
manna, Aðstaða knattspyrnu-
manna til æfinga, Knattspyrnu
mótin, Viðskiptin við útlönd og
Samstarfið við félögin úti á
landi. Kvað hann Frímann
Helgason vera kjörinn fram-
sögumann fyrir fundarboðend-
ur.
Flutti Frimann Helgason síð-
an ýtarlega framsögiu’æðu um
þessi fimmi atriði. Hóf hann
mál sitt með því að segja, að
Þjálfun iknattspyrnumanna
væri bæði of lítil og skipulags-
iaus, eins og nú háttar. Kvað,
hann það vera verkefni starfs-
manns KSÍ, sero er hinn kunni
knattspyrnulþjálfari Karl Guð-
mundsson, að gera alvarlega
tilr.aun til að bæta hér úr, með-
al annars með því að koma á
leiðbeiningarnámskeiðum fyrir
þá, sem tækju að sér að kenna
og. sjá um. þjálfun hinna ýmsu
knattspyrnuflofcka1 bæði hér og
annars staðar í landinu. Áhug-
inn fyrir knattspyrnuíþróttinni
er alls staðar. vaxandi hér á
landi, en það vantar jafnframt
víða menn til ,að beizla þann á-
huga og beina honum inn á rétt
ar brautir. Hér verður yfir-
stjórn þessara mála að koma til
og rétta fraim höndina til að-
stoðar. Stutt námskeið myndu
koma að miklu gagni í þessu
skyni. Þá minntist framsögu-
maður á nauðsyn Þess að efla
semmest áhugann fyrir því að
knattþrautum KSÍ væri meiri
sómi sýndur en hingað til, og
þær ræktar af meiri alvöru en
oft hefði verið. Knattþrautim-
ar og sú æfing, sem í þeim fæl-
ist, væri einn merkilegasti þátt-
urinn í ,að skapa góða knatt- ^
spyrnumenn, og þeir unglingar,
sem hefðu stundað þær af al-
vöru, sköruðu framúr í leikn-
um. Þá gat framsögumaður um
að erlendis hefði verið tekin
upp kennsla í knattspyrnu með
bréfaskóla, og væri sjálfsagt að
fylgjast með hvernig þeirri til-
raun reiddi af utanlands og
taka þá slíkt upp hérlendis ef
ástæða væri til. Loks gat fram-
sögumaður erindis, sem Bene-
dikt Jakobsson íþróttakennari
flutti umi þjálfun á vegum KSÍ,
semi hann sagði að væri eitt af
því bezta, sem sagt hefði verið
um þetta efni og fram sett á
mjög aðgengilegan hátt. Vildi
hann láta sérprenta erindi þetta
og gefa út, því það ætti að vera
í vörzlu hvers einasta íþrótta-
manns.
Um aðstöðuna til æfingai að
minnsta kosti hér í Reykjavík
kvað framsögumaður vera
orðna það góða, að ekki gætu
knattspyrnumenn brugðið því
við lengur eða afsakað sig með
því að skilyrðin hömluðu æf-
ingamöguleikum. Út á landi þar
sem áhugi væri fyrir hendi, en
skilyrði héldust ekki í hendur
við áhugann, vildi hann að KSÍ
beitti sér fyrir því við ráða-
rnenn slíkr.a staða að úr yrði
bætt, og taldi að KSÍ gæti á-
orkað þar einhverju.
Viðvíkjandi knattspyrnumót-
unum og skipulagi þeirra benti
framsögumaður á, að aðalmóti
knattspyrnunnar, íslandsmót-
inu, yrði að sýna meiri sóma en
gert hefði verið oft á tíðum og
væri það ekki vans.alaust að
láta þetta mót vera á hrakhól-
um, eins og oft hefði komið fyr
ir, með því væri knattspyrnu-
íþróttinn í landinu mikil óvirð-
ing gjör. Móti þessu á að sýna
alla þá virðingu, sem unnt er,
og láta það fara fram svo há-
tíðlega sem- kostur er, Því það
er hámark knattspyrnunnar á
hver.jum tíma, kjarni sjálfrar
knattspyrnuhreyfingarinnar í
landinu. Nú væri tvöföld um-
ferð tekin upp í þessu móti, og
það gæfist eins vel og vonir
standa tii, ætti einnig að taka
upp þá aðferð í öðrum mótum.
Þá vildi framsögumaður að KSÍ
reyndi að hafa áhrif á gang og
skipulag ihéraðsmótanna á
'hverjum stað. Heildarskipulag
knattspyrnunnar í lasndinu er í
höndum KSÍ, sagði ræðumaður
að lokum, og hversu tiltekst um
framkvæmd þess orkar á allan
framgang íþróttarinnar með
þjóðinni.
Um viðskiptin við útlönd og
heimsóknir erlendra flokka
kvað ræðumaður að hæfilekt
væri að hafa á ári landsleik
heimia og heiman, ef þess væri
kostur. Heimsóknir erlendra
liða ti'l félaga mættu ekki vera
of tíðar árlega, mótin innan-
lands biðu tjón af siíku. Hins
vegar væri hér um ,að ræða all-
slungið mál, ekki aðeins knatt-
spyrnulega heidur og fjárhags-
lega, því oft væri nokkur fjár-
von fyrir það félag, sem heim-
sókn fengi, og alitaf væri fjár-
þörfin mikil hjá félögunum.
Sarastarfið við knattspyrnu-
félögin úti á landi kvað fram-
sögumaður mikla nauðsyn á að
efla sem bezt og eftir Því sem
kostur er á á hverjum tíma, og
þar sem íþróttin ætti í erfiðleik
um, bæri sérstaklega að rétta
hjálparhönd og það yrði bezt
gert með. því að KSI sendi er-
indreka sinn á viðkomandi
staði.
Björgvin Sdhram, formaður
KSÍ, tók næstur til máls. Þakk-
aði hann boðið og kv.aðst fagna
þeirri auknu samvinnu við í-
þróttafréttamenn, sem þessi
fundur væri órækt tákn um.
Skýrði hann fyrst frá nýlegum
viðskiptum sínum við erlendan
Framhald á 2. aitSu.
- Skofland
ENGLENDINGAR sigruðu
Skota í landsleiknum á laug-
ardaginn með 1 marki gegn 0,
Það var Charlton, sem skoraði
markið á 14 mín. síðari hálf-
leiks. Lið Skotlands var mjög
lélegt og það sama má segja
um Englendingana, nema
Wright og framverðina.
Svanberg Þórðarson.
Svanberg Þórðarson Rvíkur*
eisfari í sfórsviii
STÓRSVIGSKEPPNI meist-
aramóts Reykjavíkur fór fram
við Skálafell á sunnudaginn í
blíðskaparveðri. Keppnin var
mjög skemmtileg og jöfn, en
brautin í styttra lagi.
Reykjavíkurmeistari varð
Svanberg Þórðarson, ÍR, 45,2
Stefán Kristjánsson, Á, 45,9
Úlfar Skæringsson, ÍR, 46,6
Valdimar Örnólfsson, ÍR, 46,7
Ólafur Nilsson, KR, 46,7
C-flokkur:
Ágúst Björnsson, ÍR, 45,6 sek.
Þórir Lárusson, ÍR, 45,7 sek.
Hreiðar Ársælsson, KR, 46,9.
Drengjaflokkur:
Troel Bendtsen, KR, Hörður
Ölafsson, KR, Davið Guðm.,
KR.
í B-flokki mætti aðeins einn
keppandi til leiks og var svo
dæmdur úr. Kvennakeppnin
féll niður vegna þátttökuleysis.
Stefánsmóti KR-inga lauk á
laugardaginn og var keppt í A-
flokki karla í svigi. Brautin var
nokkuð stutt, eða rúmlega 30
hlið.
A-flokkur:
Svanb. Þórðarson, ÍR. 64.4 sek.
Stefán Kristjánss., Á, 66,9 sek.
Guðni Sigfússon, ÍR, 68,0 sek.
Ásgeir Eyjólfsson, Á,
Ólafur Nilsson, KR,
Aðeins einn keppandi mætti
í B-flokki, Björn Steffensen,
KR, en kvennakeppni féll nið-
ur.
IR - IS í
í KVÖLD heldur körfuknatt
leiksmótið áfram. Þá fer fram
úrslitaleikurinn í meistara-
flokki karla milli ÍR og ÍS.
Getur leikurinn orðið mjög
spennandi og ómögulegt að
segja hvernig hann fer. Reikna
má með fyrsta flofcks körfu-
knattleik að Hálogalandi í
kvöld. Einnig lcika KR og ÍR
í meistaraflokki kvenna.
Enska knatlspyrnan
ENSKA deildarkeppnln er
nú orðin mjög spennandi í öll-
um deildum, Úlfarnir og Man-
chester Utd eru efst í I. deildl
með 53 stig, en þeir fyrrnefndú.
eiga eftir 4 leiki en M.U. 2, svo
að Úlfarnir eru líklegri sigur-
vegarar. Telja má nokkurn
veginn öruggt, að Portsmouth
sé fallið, hefur 21 stig, A. Villa
(27), Leicester og Manchester
City (bæði 28) eru öll í fall-
hættu, en tvö lið falla niður.
Fullham og Sheffield Wed.
eru eiginlega örugg um að leika
í I. deild næsta tímabil, en fall-
hættan vofir yfir fimm liðum,
þ.e. Barnsley, Rotherham,
Grimsby, Loncoln og Leyton
Orient.
í 3. deild eru Plymouth og
Hull City vel fyrst og munu
sennilega leika í 2. deild í
haust. Þess má geta, að liðin,
sem féllu niður £ 3. deild í
fyrra, Doncaster og Notts
County, eru á góðri leið með
að falla niður í 4. deild nú. Það
eru 4 lið, sem árlega fara upp
í 3. deild, og að þessum sinni
verða það að öllum líkindum
Port Vale, York City, Coventry
og Exeter. Nánar verður skýrt
frá ensku knattspyrnunni á í-
þróttasíðunni á morgun.
Okkar nýtízku skrifborð eru kærkomin
fermingargjöf.
Fást í eftirtöldum húsgagnaverzlunum
Árna Jónssyni
Laugaveg' 70
Karli Sörheller
Laugaveg 36
Húsgagnaverzlun
Reykjavíkur,
Brautarholti 2
Axeli Eyjólfssyni
Skipholti 7
Trjástofninn h.f,
Alþýðublaðið — 14. apríl 1959 0