Alþýðublaðið - 17.04.1959, Side 3

Alþýðublaðið - 17.04.1959, Side 3
Kínverskir kommúnistar taka myndir og fingraför af öllum íbúum Lhasa. KALIMPONG, 16. apríl. — (NTB—OREUTER.) Tíbetskir uppreisnarmenn og kínverskir kommúnistar eiga nú í börðum bardögum nálægt Nangar-Tse, sem er sterkasta vígi uppreisn- armanna í vesturliluta Tíbet, segja sjónarvottar, er komu til Kalimpong í dag. Segja sjónar- vottar, að bardagar hafi brotizt út í byrjun apríl, er mikið lið kommúnista reyndi að taka með áhlaupi Nangar-Tse-Ozong, er uppreisnarmenn náðu í sínar hendur fyrir sex mánuðum. Liggur kastali þessi 240 km fyi’ ir suðaustan Lhasa við hinn fræga verzlunarveg, er liggur milli Lhasa og Gyantse. í byrjun apríl sendu komm- únistar mikið lið til styrktar liði sínu á Gyantse-svæðinu og undirbjuggu árás á aðalstöðvar uppreisnarmanna. Segja sjón- arvottar, að margir vörubílar, hlaðnir særðum, kínverskum hermönnumi, hafi 10. apríl kom ið aftur til Gyantse. Er talið, að uppreisnarmenn hafi gert þeim fyrirsát og ráðizt á þá, áður en þeir komust til virkisins. Ekki hafa borizt neinar fréttir af bar dögunum síðan að morgni 11. apríl. Geta bínverskir komm- únistar ekki komið við neinni meiriháttar sókn gegn uppreisn armönnum í Gyantse-'héraði fyrr en þeir hafa náð Nang-Tse virkinu. í Tezpur í Indlandi er skýrt frá því, að ástandið í Lhasa sé skortur í borginni og hafa kom múnistar gert fjölda nýrr-a ör- yggisráðstafana til að hindra skemmdarverk af hálfu lands- búa. Hafa verið teknar myndir og fingraför af öllum borgar- búum. Útgöngubann gildir enn. enn hlaðið spennu. Er matvæla Enn deiíf um fiug til Berlínar. BONN, 16. apríl (NTB— REUTER.) Sovézkar orustuþot ur höfðu í frammi mjög hættu- legt flug umhverfis amerísku flugvélina, sem flaug til og frá Berlín í gær í yfir 3000 metra hæð í loftbrúnni yfir Austur- Þýzkaland, segja opinberir að- ilar, ameriskir, í Bonn í dag. Stafaði flugvélinni hætta af flugi Rússanua. Talsmaður r.ússneska sendi- ráðsins í Bonn sagði í dag, að Bandaríkjamönnum bæri að hætta flugi í svo mikilli hæð þarna, þvá að það eitraði and- rúmslöftið fyrir utanríkisráð- herrafundinn í Genf. Góðar brezkar heimildir leggja áherzlu á, að brezka stjórnin sé andvíg flugi Banda- ríkjamanna yfir 3000 metra markinu og er ekki dregin dul á, að Bretar álíti flug þetta egnandi og hættulegt. í Wash- ington er tilkynnt, að slíku flugi verði haldið áfram. Hefur Mao Tse-fung hætf vii að segja af sér sem forsef i! Annað þing knverskra kommúnista byrjar fundi í Peking á laugardaginn. PEKING, 16. apríl, (NTB— REUTER). Meðal vestrænna manna, er fylgjast með málum hér, ríkir nú mikil spenna vegna setningar kínverska þingsins á laugardag, annars þingsins, sem haldið er, síðan kommúnistar tóku völdin. Er búizt við, að þingið sitji 10 daga og á það m.a. að kjósa nýjan forseta í stað Mao Tse- Tungs. Þá er og búizt við, að ástandið í Tíbet verði eitt af aðalúmræðuefnunum, jafnvel þótt málið sé ekki á liinni op- inberu dagskrá þingsins- Þeir 1200 fulltrúar, er sitja eiga þingið, eru þegar komnir til Peking og verða á morgun háldnir margir undirbúnings- fundir. Á morgun koma 1071 aðrir fulltrúar frá öllum hlutum Kína saman til mikillar, póli- tískrar ráðstefnu, er stendur jafnlengi og þingið. Er hið op- inbera nafn ráðstefnunnar „fyrsti fundur þriðju þjóð- nefndar hinnar pólitísk-ráðgef andi ráðstefnu hinnar kín- versku þjóðar“. Er ráðstefnan nátengd þinginu og verða haldn ir nokkrir sameiginlegir fund- ir. Sennilega hefur hinn nýi forseti Kína verið útnefndur af miðstjórn kommúnista- flokksins, er hún kom saraan til fundar í Shanghai fyrir tveim vikum, en ekki hefur síj- azt út eitt orð um það, hvern miðstjórnin hefur útnefnt til að taka við af Mao. Er gert ráð fyrir, að þingið samþykki á- kvörðun miðstjórnarinnar. — Hins vegar telja vestrænir menn í Peking, að margt bendi til, að Mao hafi endurskoðað þá ákvörðun sína að láta af embætti forseta. MONTREAL: Fyrstu skipin munu fara um St. Lawrence siglingaleiðina inn til stóru vatnanna 25. apríl, tilkynnti flutningamiálaráðuneytið í dag. Búizt er við, að um 60 skip, vatnaskip og hafskip, fari leið- ina, þegar opnað verður. PANMUNJOM: Vopnahlés- nefnd Sameinuðu þjóðanna sak aði kommúnista í Norður-Kór- eu í dag um að senda „stöðugan straum njósnara“ inn í Suður- Kóreu. AUGUSTA: Adolfo Lopez Mateos, forseti Mexíkó, mun heimsækja Bandaríkin næsta haust. PARÍS: Franska innanrikis- ráðuneytið lét í dag gera upp- tækt upplag vikublaðsins Fran- ce-Observateur, er átti að koma út í dag. Verkfalli lokið 'R*" í Færeyjum. ÞÓRSHÖFN, 16. apríl (NTB- RB). Á morgun éða laugardag siglir stór floti fiskibáta frá Færeyjum til sumarfiskveiða við Grænland. Var flotinn til- búinn að sigla, er fiskimanna- verkfall skall á 3. apríl sl. og hafa rúmlega 800 menn verið í verkfalli síðan. í gærkvöldi var svo verkfallinu aflétt. Verkfall þetta var óvanalegt að því leyti, að því var ekki beint gegn Vinnuveitendum, helduT gegn lögþinginu. Hafði lögþingið samþykkt að veita eina milljón króna á ári í tvö ár til leyfislauna handa fiskimönn urn, en gegn því skilyrði, að út- gerðarmenn og fiskimenn gerðu með sér samning um vinnufrið í tvö ár. Við þetta skilyrði vildu fiskimenn ekki una. Lögþingið hefur ekki viljað láta undan, en í gærkvöldi ákváðu útgerðar- menn að samþykkja skilyrði lög þingsins Þannig, að framlag þingsins til leyfislauna skyldi falla niður, ef til vinnudeilu bomi, áður en tvö ár eru liðin. Þar með var verkfallinu. hægt að aflýsa Barsmíð lögreglumanns vííaverð en varla refsiverð fyrir dómi Niðurstaða málinu. rannsóknar i Thurso- LONDON 16. apríl (REUTER). Sérstakur rannsóknarréttur komst í dag að þeirri niður- stöðu, að reiður lögregluþjónn hefði lamið 16 ára pilt í húsa- sundi fyrir 16 mánuðum. Hef- ur mál þetta vakið miklar deil- ur meðal manna og komið til umræðu á þingi. Sagði hinn stjórnskipaði réttur, sem í dag gaf út niðurstöðu sína, að eng- inn' vafi léki á því, að verknað- ur lögreglumannsins hefði vrer- ið rangur og bæri að fordæma hann. Bætti rétturinn því svo við, að lögreglumaðurinn hefði verið egndur og ónógar sann- anir væru til sakfellingar í venjulegum rétti. Ríkisstjórnin skipaði þennan þHggja manna rannsóknarrétt í febrúar s.l. eftir að einn þing- maður hafði hvað eftir annað minnt á málið í þinginu, en kjarni þess var, að 16 ára sendi sveinn, John Waters, hefði ver- ið laminn af lögreglumanni í skozka bænum Thurso um mið nætti 7. desember 1957. Enn- fremur höfðu stórblöðin heimt áð rannsókn, þar eð hið góða orð lögreglunnar væri í veði, en það væri sérlega veigamik- ið í svm þéttbýlu landj sem Bretlandi. AUGUSTA, 16. apríl. (NTB- REUTER.) Eisenhower forsetí ræddi í dag við John Foster Dulles utanríkisráðiherra í síma og munu Þeir hafa rætt um, hver skuli taka við af Dulles sem utanríkisráðherra. RÓM, 16. apríl. — (NTB— REUTER.) Öldungadeild ítalsba þingsins samþykkti í kvöld með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða tillögu ríkisstjórnar- innar um að leyfa Bandaríkja- mönnum að koma upp eldflauga stöðvum á Italíu. míssl h í flóðunum Mestu flóð, sem um getur í La Platá ánni. Ná til þriggja ríkja. BUENOS AIRES, 16. apríl. (NTB—REUTER.) Stormur og skýföll hafa valdið flóðum, sem ekki eiga sinn líka í Argentínu, Uruguay og Brasilíu, hera frétt ir frá ýmsum stöðum í löndum þessum, er liggja að La Plata- fljótinu, með sér. Vatnið held- Uf áfram að stíga við hina breiðu ósa La Plata og þriðja daginn í röð er höfnin í Buenos Aires lokuð fyrir allvi umferð. Öll skip, er liggja þar, hafa tvö- faldað og þrefaldað vistabirgðir sínar, en tugir þúsunda manna, er húa á láglendinu við fljótið, hafa orðið að yfirgefa lieimili sín. Hafa yfirvöldi opnað lögreglu stöðvar, herstöðvar, birgðastöðv ar og stórverzlanir fyrir hin- um heimilislausu og hafa lækna stúdentar verið sendir til flóða svæðanna til að bólusetja við taugaveiki. Frá bænum Goncordia hafa Frönsk leynihreyfing, „Rauða höndin“ talin standa að morði og morðtilraun í V-ÞýzkaL tugir þúsunda mianna verið fluttar, en fimm þúsundir manna eru einangraðar á skrið hrygg, þar sem þær höfðu leit- að hælis. í Uruguay hafa þrír fjórðu hlutar landsins orðið fyrir flóð unum eða er ógnað af þeim. Þar hafa þúsundir einnig orðið að yfirgefa heimili sín og geysilegt tjón orðið á hiásekrum. Umferð um vegi er næstum alveg stöðv uð og flugumferð sömuleiðis. 1 Rio Grande í Brasilíu eru 300 000 heimilislausar og um 60% uppskerunnar ónýt. ítalskir kommar æfir út í FRANKFURT, 16. apríl. — (REUTER.) Frönsk hreyfing, sett upp til gagnráðstafana gegn algierskiun þjóðernis- sinnum, var í dag nefnd hér í samhandí við morð á Vestur- Þjóðverja fyrir sex vikum. Sagði aðalsaksóknarinn í Frankfurt, Heinz Wolf, við blaðamenn í dag, að franska hreyfingin „Rauða höndin“ hefði „komið inn í málið“ í samhandi við morðið. Hann sagði, að „miklar líkur“ væru á þvi, að hreyfingin starfaði í samvinnu við leyniþjónustu franska hersins. Vestur-Þjóðverjinn, Georg Puchert, lézt, er sprengja sprakk í híl hans 3. marz sl. Hann háfði húið sl. 10 ár í Tangiers í Marokkó. Sagði Wolf, að morðadeild lögreglunnar í Frankfurt vildi ná tali af fyrrverandi foringja í frönsku lögreglunni og tveim öðrum mönnum í samhandi við sprenginguna. Hefðu rannsóknir leitt í ljós samband á milli þessarar árás ar og tveggja tilrauna til að drepa vopnasala í Hamborg, Otto Scliliiter að nafni, RÓM, 16. apríl (REUTER). ítalskir kommúnistar mót- mæltu í dag harðlega „afskipt- um“ Vatíkansins af inmanlands málum Ítalíu. Hvatti Togliatti, leiðtogi þeirra, Segni, forsætis- ráðherra til að mótmæla við Vatíknið ný.útgefinni aðvörun þess um, að kaþólskir menn skuli ekki í kosningum! greiða atkvæði flokkum eða framibjóð endum, sem með gjörðum. sín- um styrki málstað kommúnista. Halda kommiúnistar því fram, ,að aðvörnu Vatíkansins sé gef- in út vegna kosninga til þings Sikileyjar 7. júní og sveita- stjórnakosninga í landinu 28. júní. Alþýðublaðið — 17. apríl 1959 3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.