Alþýðublaðið - 17.04.1959, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 17.04.1959, Blaðsíða 11
FlugVéiarnar; Flugfélag íslands. Millilandaflug: Millilanda- flugvélin Gullfaxi fer til Glas gow og Kaupmannahafnar kl. 9.30 í dag. Væntanleg aftur til Rvíkur kl. 23.45 í kvöld. Flug vélin fer til Oslóar, Kaup- mannahafnar og Hamborgar kl. 9.30 í fyrramálið. Innan- landsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akreyrar, Fagur- hólsmýrar, Hólmavíkur, Hornafjarðar, ísafjarðar, Kirkjubæjarklausturs, Vest- mannaeyja og Þórshafnar. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, Blönduóss, Egils- staða ísafjarðar, Sauðárkróks og Vestmannaeyja. Loftleiðir. Hekla er væntanleg frá New York kl. 8 í fyrramálið. Hún lieldur áleiðis til Oslóar, Kaupmannahafnar og Ham- borgar kl. 9.30. Saga er yænt anleg frá Kaupmannahöfn, Gautaborg og Stafangri kl. 19.30 á morgun. Hún heldur áleiðis til New York kl, 21. Sklplns Ríkisskip. Hekla er væntanleg til Reykjavíkur í dag að austan úr hringferð. Esja fer frá Reykjavík kl. 18.30 til Akra- ness og þaðan vestur um land til Akureyrar. Herðubreið er á leið frá Austfjörðum til Reykjavíkur. Skjaldbreið ér í Reykjavík. Þyrill fór frá Reykjavík í gærkvöldi til Vestur- og Norðurlandshafna. Helgi Helgason fer frá Rvík í dag til Vestmannaeyja. Skipadeild SÍS. Hvassafell er í Þorláks- - höfn. Arnarfell er væntanlegt til Reykjavíkur í dag. Jökul- feli er í. L.ondon. Dísarfell er væntanlegt til Akraness.í dag, Litlafell er í olíuflutningum í Faxaflóa. Helgafell er í Stykkishólmi. Hamrafell fer í dag frá Reykjavík áleiðis til Batum. Eimskip. Dettifoss kom • til Riga 15/4, fer þaðan til Helsing- fors, Ventspils og Kaup- mannahafnar. Fjallfoss fór frá Vestmannaeyjum 15/4 til London, Hamborgar og Rott- erdam. Goðafoss fór frá New York 7/4, væntanlegur til Reykjavíkur síðdegis í dag. Gullfoss er í Kaupmanna- liöfn. Lagarfoss fer frá New York 22/4 til Reykjavíkur. Reykjafoss' fer frá Hamborg 21/4 til Hull og Reykjavík- ur. Selfoss kom til Reykja- víkur 13/4 frá Hamborg. Tröllafoss fór frá Kaup- mannahöfn í gærmorgun til Leith og Reykjavíkur. Tungu foss fór frá Keflavík í gær- kvöl.di til Akraness og Hafn- arfjarðar. Katla fór frá Sauð- árkróki í gærkvöldi til Siglu- fjarðar, Dalvíkur, Akúreyrar og Húsavíkur. Félagslíl Ferðafélag íslands fer göngu og skíðaferð á Skarðsheiði á sunnudaginn. Lagt af stað kl. 9 um morg uninn frá Austui’velli og ek ið fyrir Hvalfjörð að Laxá í Líeirársveit, gengið þaðan á fjallið. Farmiðar seldir við bíl ana. hegna henni fyrir framkomu hennar við sig. Hann bjóst við að Senor Zorro vær kominn víðs fjarri, en þar skjátlaðist honum. Því Bölvun Capistrano leins og hermennirnir kölluðu hann, hafði ekki flýtt sér brott þeg ar hann yfirgaf hús Don Diego Vega 15. Senor Zorro hafði gengið smáspöl, að kofa innfædds manns, en þar hafði hann bundið hest sinn og þar stóð hann og hugsaði um ástina, sem harm hafði nú í fyrsta sinn fundið til. Hann hl'ó lágt eins og-hann væri mjög ánægður með lífið, steig á bak og reið hægt eftir slóðinni til virkisins. Senor Zorro þekkti vel til alls -í virkinu, hann vissi upp á mann, hve margir hermenn voru þar. að fjórir voru með hitasótt og það var aðeins einn heilbrigðu-r maður í virk inu auk kapteinsins, hinn heilbrigði hermaður hafði ver ið sendur á brott. Hann hló aftur og lét hest sinn lötra upp brekkuna til að sem minnst heyrðist til hans. Þegar hann var kom- inn að d-yrum viVkisins, sté hann af baki og lét beizlis taumana liggja lausa, hann vissi að hesturinn myndi bíða ihans. Hann skreið í myrkrinu að veggnum og þreifaðí eftix hon um unz hann fann móta fyrir glugga. Hann hlóð upp nokkr um steinum og sté upp.á.þá og leit inn. Hann sá inn í skrifstofu Ramons kapteins. Hann sá kapteinmn sitja við borð og lesa bréf, sem hann virtist hafa nýlokið við að skrifa. R.amon kapteinn talaði við sjálfan sig, en það gera mörg illmenni „Þetta kemur sér illa fyrír senorituna fögru“, ' . sagði hann. „Þetta kennir henni að hæðast ekki að hermanni hans hágöfugi. Þegar faðir hennar hefur verið settur inn fyrir landráð og allar eignir hans hafa verið teknar af honum, verður hún að hlýða á orð mín.“ Senor Zorro átti lekki erfitt með að sMlja orð kapfeins- ins. Hann skildi strax, að kap teinninn hefði ákveðið að hefna sín og að hann vildi Pulido fjölskyldunni ijlt. Andlit Senor Zorro yarð svart af reiði bak við grímuna. Hann steig niður af steina hrúgunni og læddist meðfram veggnum unz hann kom að horni virkisins. í veggskoti Við dyrnar logaði á kyndþ og eini heilbrigði maður virkis- ins -gekk fram og af-tur fyr- ir framan dyrnar, byssa var íjbelti hans og sv-erð við hlið. Senor Zorro setti vandlega á sig skrefin, sem hermaður- inn tók í hvert skipti. Hann mældi fjarlægðina út og um leið og maðurinn sneri að hon- um baki til að ganga á hinn veg inn, stökk stigamaður-inn. Hann greip um háls het- mannsins og sparkaði um leið í b.ak hans. Þeir féllu á jörðina og hinn undrandi her rnaður gerði sitt bezta til að berjast. En Senor Zorro víssi að minnsti hávaði gæti haft jörlagarík áhrif fyrir hann, svo hann þaggaði niður í mannin- um með höggi á gagnaugiin með byssuskreftinu. Hann dró meðvitundarlaus an her-manninn inn í skugg- ann af virkinu og kefldi hann með stykki sem hann reif af hálsklút sínum og batt hendur hans og fætur með öðrum stykkjum. Þá vafði hann kápu hans utan um hann, leit á byssu sína og hlustaði um stund til að vera viss um að -enginn í byggingunni hefði orðið var við ryskingarnar, síðan gekk hann inn um dyrn ar. Han-n var kominn inn eftir augnablik. Framundan var stóra setustofan með hörðu moldargólfi. Hér voru löng foarð og foekkir og vínkrúsir og reiðtygi og hnakkar og foeizli. Senor Zorro leit yfir það til að vera viss um að eng inn rnaður leyndist þar, síð- 20 eftir Johnston McCulley an geklc hann hratt og því nær hljóðlaust að dyrunum sem lágu inn í skrifstofu kapteins ins. Hann sá um að byssa hans væri hlaðin og opnaði svo -dyrnar. Ramon kapteinn snéri baki í dyirnar, en hann snéri sér í stólnum og ókvæð- isorðin brunnu á vörum hans, því hann hélt að einn af mönnum hans hefði komið inn án þess að berja og hann var ákveðinn f að ávíta mann inn. „Þiegið þér, senor“, sagði stigamaðurinn. „Þér deyið ef þér gefið hljóð frá yður“. Hann starði á kapteininn, lokaði dyrunum að baki sér og gekk inn í herfoergið. Hann gekk hægt fram án þess að segja eitt orð og hélt byss- unni fyrir sér. Kapteinn Ram on hafði lagt hendurnar á foorðið og hann var náfölur. „Þér neydduð mig til að heimsækja yður, senor“, sagðj Senor Zorro. „Ég kom ekki hingað vegna þess ég dáðist að fegurð yðar“. ,Hvað eruð þér að gera hér?c spurði kapteinninn og óhlýðn aðist skipuninni um þögn, en hann hvíslaði. „Mér varð litið inn um gluggann, senor. Ég sá skjalið á barðinu og heyrði hvað þér sögðuð. Það er lekki gott að tala við sjálfan sig, kapteinn. Hefðuð þér þagað hefði ég ef til vill farið mína leið. Eins og nú er— „Hvað þá, senor?“ sagði kapteinninn og sýndi vott af sínu gamla stolti. „Mig langar til að lesa skjal ið“. „Hafið þér svo mikinn á- huga á hernaðarmálum?" „Við skulum -ekki ræða það hér, senor. Takið hend- urnar af borðinu, en seilist ekki eftir byssunni við hlið yðar nema yður langi til að deyja. Ég myndi ekki hryggj ast við að sjá sál yðar hverfa inn í eilífðina“. Kapteinninn gerði eins og fyrir hann var lagt og Senor Zorro gekk varlega fram og tók bréfið upp. Svo hörfaði hann nokkur skref og horfði á manninn, s-em sat fyrir fram an hann. „Ég mun lesa þetta“, sagði hann, „en ég vara yður við, ég fylgist með yður líka. Reynið ekki að hreyfa yður, senor, nema yður langi til að hitta forfeður yðar“. Hann las hratt og þegar hann hafði lokið lestrinum leit hann á kapteininn án þess að segja eitt orð og augu hans hans leiftruðu bak við g-rím- una. Kapteininum leið illa. Senor Zorro gekk að borð- inu, en hann Ieit ekki af hin um manninum og hann hélt foréfinu yfir kertisloganum. Það kviknaðí í því, fuðraði upp og féll á gólfið sem aska. Sienor Zorro steig ofan á ösk- una. „Þetta foréf verður ekki sent“, sagði hann. „Þér berj- ist þá við konur, senor. Og kallið yður hraustan her mann og liðsforingja í herliði hans hágöfgis! Ég efast ekki um að hann rnyndi hækka yð ur í tign, ef hann vissi það. Þér móðgið senori-tu vegna þess að faðir hennar er ekki sem stendur í náð hjá ráða- mönnum landsins, og vegna þess að hún hafnar yður eins og þér eigið skilið, reynið þér að hefna yður á fjöls-kyldu hennar. Þetta má kalla hetju dáð!“ Hann geklc nser og hallaði sér fram og foeindi foyssunni að kapteininum. „Ég vil ekki frétta, að ann að bréf þessu líkt hafi verið sent“, sagði -hann. „Mér finnst það verst að sem stendur get ið þér ekki skilmst við mig. Það myndi vera móðgun við sverð mitt aS stinga yður á hol en ég myndi gera það til að losa hfeiminn við slíkt þrælmenni". „Þér talið djarflega við særðan mann“. „Sár yðar læknast, senor. Og ég -mun fylgjast með því. Og þegar þér eruð heilbrigður mun ég leita yður uppi og láta yður sæta áfoyrgð þess, sem þér reynduð að gera í kvöld. S-kiljið þér það?“ Augu þeirra leiftruðu aftur og Senor Zorro dró kápu sína þétt að sér. Þeir heyrðu ^lamra í reiðtýgjum, hófa- MiSsfiirar ofitar Rör og fittings Svart og galv. ! Skolprör Skolpfittings fyrirliggjandi. ': Sighvafur Einarsion 4 Co. Skipholti 15 íSímar 24133 — 24137 Keflavíkurjiðlan Framhald af 1. síðll. síðan gaus upp mikil vatnssúla og flugvélin þeyttist í loft upp. Virtist hún síðan splundrast £ sundur. Segir Sigurbergur, að það eina, sem sást hafi af þot- unni, hefðu verið tvö eða þrjú stykki á floti. Gerði Sigurbergur 'Slysa- varnafélaginu þegar aðvart og einnig björgunarsveitinni á staðnum. Sendi fojörgunardeildin út bát, en ekki fannst neitt nema brak úr þotunni. Varð Sigurbergur ekki var við, að flugmennirnir höfða bjargazt út þotunni áður en hún skall í sjóinn. Kapteinn þotunnar heitir Hunt, en hinn flugmaðurinn Lamar. Aðalfondur Styrktarfélags vangefimta. AÐALFUNDUR Styrktarfé- lags vangefinna var haldinn fyrir nokkru. Hjálmar Vil- hjálmsson, ráðuneytisstjóri, var endurkjörinn formaður fé-? lagsins. Meðlimir eru nú 430 að tölu. Félagið hyggst efna til happdrættis um Volkswag- en-bifreið í fjáröflunarskyni. 1IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII1III1IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUI2IIIII1IB Copyrighf P. I. B. Box 6 Copenhagen 6IANNABNI1 — Eg' ætla bara að taka eina mynd af honum pa-bba. Honam nmist svo gaman að svona myndum. Alþýðublaðið — 17. apríl 1959

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.