Alþýðublaðið - 10.05.1959, Qupperneq 3
"iiiiiiiiiiiiiiiHiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiNiiiiiiiimiiiiiMiiiiiiiiimiiniiiiimiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiuiiiiiiiiiiuuiuiiuiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
\
HVERS VEGNA ERU KONUR
LANGLÍFARIEN KARLMENN?
VÍNARBORG — Austurrísk
ur uppfinningamaður segist
hafa fundið upp tónlistar-
óma framtíðarinnar með raf
magni.
Uppfinningamaðurinn er
Bruno Herberger og var
hann fyrrum píanóleikari.
Hljóðfærið, sem hann hefur
smíðað, nefnir hann helió-
fón. Kveður hann það búa
yfir áður allsendis óþekktum
tónum.
Hljóðfærið er líkt og orgel
að útliti, en það gengur al-
gerlega fyrir rafmagni. Raf-
magn framleiðir nóturnar,
en síðan er þeim breitt í tón
með gjallarhorni.
„Ég hef unnið að þessum
heliófón í 31 ár, segir upp-
finningamaðurinn. Hann er
nú 75 ára. — Og ég trúi því,
að þetta sé hljóðfæri fram-
tíðarinnar. Rafmagnshljóð-
færi eru til þegar, bæði Ha-
vaii gítar og Hammondorgel,
en þau ganga ekki að öllu
leyti fyrir rafínagni.“
Helberger á heima í
skemmtilegu timburhúsi í
skógum norður af borginni.
Hann segir, að mjög erfitt sé
að lýsa hljómum hins nýja
hljóðfæris. Það sé engan
samanburð hægt að gera við
óma þeirra hljóðfæra, sem
enn eru þlkkt.
Vegna þess hve hljómar
hljóðfærisins eru óvenjuleg-
ir, hafa lög leikin á heliófón
verið reynd við geðlækning-
ar á sjúkrahúsum í Vín. Þá
segir Helberger að hljómar
þess geti vel komið í staðinn
fyrir svefntöflur.
Heliófónninn hefur verið
nú þegar notaður við kvik-
myndatöku, en Helberger
langar til að koma því til
framleiðslu fyrir heimsmark
aðinn.
Árið 1937 fór Helberger
til Bandarílcjanna til að
koma málinu áleiðis hjá
bandarískum fyrirtækjum,
en þeim Ieizt ekki á málið.
Nú eru Rússar á liöttunum
eftir framleiðsluleyfi. Þeir
hófu viðræður við Helberg-
er 1956 og síðan hefur þeim
verið haldið áfram.
aiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111n111111111111n 1111111111111111111111111111117
WASHINGTON. — Rannsókn
ir á áhrifum geislavirkni í
sambandi við ellina hafa orð-
ið tilefni til furðulegra kenn-
inga um það, hvers vegna og
hvernig fólk verður gamalt
og hvers vegna konur lifa
lengur en karlar.
ElN ÞESSARA kenninga er
einungis byggð á útreikning-
um, og er höfundur hennar
dr. Leo Szilard, sem starfar
við kjarnarannsóknir við Chi-
cagoháskóla, en hann vann á-
samt fleirum að því að búa
til vetnissprengjuna.
Hann hyggur, að konur lifi
almennt lengur beinlínis af
því, að í frumum konulíkam-
ans sé meira af genum, og fyr-
ir þær sakir séu meiri líkur
til, að þær standist geislun og
önnur eyðandi áhrif.
Önnur kenning á þessu
sviði kemur með þá tilgátu,
að ef maður gæti sloppið við
eðlilega geislun, sem stafað
hefur frá jörðinni frá því í
árdögun, væri ef til vill mögu
legt að lengja mannsævina
um 25 hundraðshluta.
•
KeNNING dr. Szilards er
upp fundin til að leitast við
að svara þeirri spurningu,
hvers vegna konur ná 73,6 ára
meðalaldri, en meðalaldur
karla er aðeins 67,3 ár. Allar
algengar kenningar um þetta
efni hafa fallið um sjálfa sig.
Það hefur nú verið safnað
tryggum upplýsingum um það
við rannsóknir á ævilengd
músa, að meðalaldur karldýr-
anna er jafnvel hlutfallslega
enn styttri miðað við aldur
kvendýranna heldur en með-
al manna. Munurinn hjá
mönnum er um 8 hundraðs-
hlutar, en 15—20 hundraðs-
hlutar nagdýra.
Þar eð karl-nagdýrið hefur
ekkert tækifæri til þess að
hella í sig brennivíni og spila
póker fram á nætur, þykir
varla koma til greina, að lifn-
aðarhættir karldýranna al-
mennt valdi skemmra ævi-
skeiði.
Það þykir tryggt, að ævi-
skeið karldýrsins sé yfirleitt
skemmra.
Dr. SZILARD tekur málið'
til meðferðar á þann hátt, sem
vænta mátti af vísindamanni,
sem vanur er að fást við
smæstu eindir efnisins.
Fyrst bendir hann á það, að
hver fruma í manninum hafi
a.m.k. 44 litninga, sem mynda
eins konar framkvæmdastjórn
með allt að 15 000 gen, sem
eru undir þeirra stjórn.
En aðeins kvenveran getur
haft fullkomlega 15 000 gen.
Þetta gildir ekki einasta um
kynsellur, heldur allar frum-
ur líkamans. Munurinn liggur
í því, að kvenveran hefur auka
X litninga, en karlinn óvirka
Y-litninga. Niðurstaðan er
nokkrum hundruðum færri
gen í hverri karlfrumu.
Szillard gizkar á, að frum-
an deyi af því að genin verði
fyrir skemmdum. Og maður-
inn deyi „eðlilegum“ dauða,
þegar starfandi frumum hefur
fækkað um tvo þriðju eða
meira.
Allt getur litið fallega út á
pappírnum. Raunvísinda-
menn kalla allt slíkt hugsun
í hægindastólum. En vert er
að minnast þess að sjálfur Al-
bert Einstein stundaði engar
vísindalegar tilraunir.
ElN AF kenningum dr.
Szilards er sú, að fjórði eða
fimmti hluti af frumskemmd-
um stafi af geislun. Þá er auð-
velt að reikna út, að lífið leng
ist í sama hlutfalli, ef unnt sé
að útiloka geislunina. Slík
lenging ævinnar er annars
eðlis en sú, sem ýmsar þjóðir
hafa getað gumað af á síðustu
tímum. Maður, sem náð hefur
65 ára aldri gæti búizt við að
verða 100 ára. En nú er það
35. aðalfundur Barnavina-
féfagsins „Sumargiafar"
BARNAVINAFÉLAGIÐ Sum-
argjöf hélt 35. aðalfund sinn
sunnudaginn 26. apríl. Formað-
ur félagsins, Páll S. Pálsson,
flutti skýrslu stjórnarinnar.
Minntist hann - m. a. á nýjan
leikskóla, sem stofnaður hafði
verið á árinu, og væri til húsa
í félagsheimili Óháða safnað-
arins í Reykjavík.
Hann gat um hina nýju
byggingu, sem væri að rísa við
Fornhaga, og vonir stæðu til
að lvki snemma á árinu 1960,
ef ekki stæði á fjárfestingar-
leyfum. Bogi Sigurðsson las og
skýrði reikninga félagsins.
Nokkrar umræður urðu um
reikninga og skýrslu formanns.
Eftirfarandi tillögur voru lagð-
ar fram á fundinum, bornar
undir atkvæði og allar sam-
þykktar í einu hljóði:
I. „Aðalfundur Barnavina-
félagsins Sumargjafar 1959 í-
trekar áskoranir félagsins til
ríkisstjórnar og alþingis um að
framlag ríklssjóðs til félagsins
vegna rekstur barnaheimila og
fóstruskóla verði hækkað í
krónutölu og hlutfallslega lát-
ið halda í horfinu við framlag
Reykjavíkurbæjar til þessarar
starfsemi“.
II. „Aðalfundur Sumargjaf
ar 1959 beinir eindreginni á-
skorun til Reykjavíkurbæjar
um aðstoð til þess að endur-
reisa hús barnaheimilisins Vest
urborgar, svo að unnt verði að
halda áfram rekstri barnaheim
ilis þar, við húsnæðisskilyrði,
er viðunandi megi teljast.“
III. „Aðal’fundur Sumar-
gjafar 1959 samþykkir að fela
stjórn félagsins að vinna að
því að koma á fót fleiri barna-
heimilum en nú eru fyrir 2—6
ára börn, og einnig, ef unnt
reynist, að setja á stofn og
reka nýjar dagvöggustofur.
Einnig telur fundurinn rétt,
að félagsstjórn láti fara fram
athugun á fyrirgreiðslu til dag
legs athvarft fyrir 6—8 ára
börn, sem eiga við erfiðar heim
ilisástæður að búa“.
Félag byggingar-
iðnaðarmanna í
r
Arnessýslu
FÉLAG byggingariðnaðar-
manna Árnessýslu var stofnað
á Selfossi mánud. 20. apríl. —■
í stjórn voru kosnir: Jón Krist
insson, formaður. Sigurður
Guðmundsson, ritari. Friðrik
Sæmundsson, gjaldkeri, Guð-
mundur Guðnason, varaform.
Sæmundur Bæringsson, með-
stjórnandi. — Varastjórn: Sig-
urður Ingimundarson, Harald-
ur Diðriksson og Guðmundur
Helgason.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiD
10 dvalarflokkar í
Vatnaskógi í sumar
SUMARÁÆTLUN Skógar-
manna K.F.U.M. um sumar-
starfið í Vatnaskógi er komin
út. Margir drengir og ungling-
ar hafa eflaust beðið hennar
með óþreyju, því að liún er ó-
venju síðbúin að þessu sinni.
Þeir eru orðnir margir piltarn-
ir, sem dvalizt hafa í sumar-
búðunum í Lindarrjóðri þau
36 ár, sem liðin eru síðan fyrsti
flokkur pilta fór í Vatnaskóg.
Síðustu árin hafa dvalizt þar
milli 400—500 drengir á sumri
hverju, eina eða fleiri vikur
hver.
í sumar munu verða í Vatna-
skógi 10 dvalarflokkar, hver
flokkur eina viku nema flokk-
ur fullorðinna, 5 daga. Þrír
fyrstu flokkarnir eru fyrir
drengi 10—12 ára á tímabil-
inu 12. júní til 3; júlí. Flokka-
skipti verða á föstudögum, eins
og undanfarin sumur. Næstu
tveir flokkar verða fyrir pilta
♦------------------------------
svo, að maður sem náð hefur
65 ára aldri, hefur aðeins
þremur árum meiri lífslíkur
en um síðustu aldamót.
En þrátt fyrir allt hefur
enginn gert tillögur um það,
hvernig fara ætti að því að
gera öllum jarðarbúum fært
að losa sig við öll geislunar-
áhrif. Sennilega yrðu þeir að
finna sér einhverja aðra plán
etu ellegar gera sér blýhús á
hafsbotni og líta aldrei út fyr-
ir hússins dyr.
á aldrinum 12—17 ára, og 6.
flokkur fyrir unglinga 14—18
ára. Er sérstök ástæða til þess
að vekja athygli unglinga og
ungra manna á þessum flokki,
sem fer 17. júlí og verður til
24. júlí. Unglingar á þeim
aldri eiga að jafnaði ekki sam-
leið með þeim yngstu í hinum
flokkunum.
Tímabilið frá 24. júlí til 7.
ágúst er ætlað drengjum og
piltum á ýmsum aldri frá 9 ára.
Flokkur fullorðinna verður 12.
ágúst til 16. ágúst, að Ioknum
móti og kristniboðsþingi. sem
áformað er að verði í Vatna-
skógi 8. til 11. ágúst. Síðasti
flokkurinn, frá 16. ágúst til 23.
ágúst, er ætlaður drengjum og
piltum frá 9 ára. Umsóknir eru
þegar farnar að berast, og bend
ir margt til mikillar þátttöku,
eins og endranær.
INNRITUN.
Innritun fer fram í húsi
K.F.U.M., Amtmannsstíg 2 B,
kl. 5,15 til 7 e. h. alla virka
daga nema laugardaga. Innrit-
unargjald er kr. 20,00. Sumar-
áætlunin er fáanleg á skrif-
stofunni á ofangreindum tíma
og auk þess allar upplýsingar
viðvíkjandi starfinu.
Þátttökugjald verður ekki
hærra en í fyrra, nema veru-
legar verðhækkanir verði á
starfstímanum. Vikudvöl með
ferðum kostar fyrir drengi 9—
11 ára kr. 325,00 og kr. 366,00
fyrir pilta eldri en 12 ára.
Alþýðublaðið — 10. maí 1959 3