Alþýðublaðið - 10.05.1959, Page 4
§
Jtgelandi: AlþýSufloickurinn. Ritstjórar: Benedikt Gröndal, Gisll J. Ást-
þórsson og Helgi Særaundsson (áb). Fulltrúi ritstjórnar: Sigvaldi I-Ijálmars-
son. Fréttastjóri: Björgvin GuSmundsson. Auglýsingastjóri Pétur Péturs-
*on. Ritstjórnarsímar: 14901 og 14902. Auglýsingasími: 14906. AígreiSslu-
Hmi: 14900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. prentsmiðja Alþýðubl. Hveriisg. 8 10
Smáflokkar og kjördœmi
KJÖRDÆMAMÁLIÐ er nú á lokastigi. Þar
með hefur þjóðin stigið veigamikið skref í áttina
til aukins réttlætis milli borgaranna og skapað
grundvöll fyrir heilbrigðari stjórnmálum í framtíð
inni. Alþýðuflokkurinn fagnar þessum atburðum
og trúir því, að þeir muni verða þjóðinni til mikill-
ar blessunar.
Fá mál hafa verið meira rædd í meðferð al-
þingis, og hafa andstæðingar þess tínt-til æriðmarg
víslegar mótbárur, án þess að koma fram með nokkr
ar svo veigamiklar röksemdir, að breytt hafi gangi
málsins. Hitt mun sönnu nær, að Framsóknar-
inönnum hafi þótt minnka byr í seglum sínum, þeg
&r þjóðin fekk að sjá frumvarpið fullgert og heyra
röksemdir þeirra þriggja flokka, sem að því
standa.
Því er haldið mjög fram, að þetta sé aðeins
skref á lengri leið og sé ætlunin að gera landið
síðar að einu kjördæmi. Enginn skyldi spá fyrir
um það í dag, hvaða breytingar þarf að gera í
framtíðinni vegna fjölgunar þjóðarinnar og hugs
anlegra breytinga á byggð landsins. Hitt er ó-
hætt að fullyrða, að engin áform eru uppi í dag
um að gera landið að einu kjördæmi og það er
mjög ólíklegt að þróunin stefni í þá átt í fram-
tíðinni.
Alþýðuflokkurinn hefur algerlega sagt skilið
við hugmyndina um eitt kjördæmi, og tekið upp
hina gömlu varatillögu Jóns Baldvinssonar og ann
arra forystumanna flokksins, sem nú er verið að
tlögleiða á alþingi. Fyrir þessu eru gildar ástæður.
Það er ekkert launungarmái, að flokkarnir þrír,
eem undirbjuggu kjördæmamálið og flytja það,
rannsökuðu ítarlega þá hættu, sem kann að vera á
ceðlilegri fjölgun smáflokka. Þeir ræddu en
liurfu frá að hafa um þetta sérstök ákvæði, eins og
tiðkast í Þýzkalandi, enda felst í hinni nýju kjör-
eæmaskipun okkar mikil takmörkun á smá-
fCokkum'. Nýr fiokkur verður að fá 15—20% at-
I-tvæða. Þetta er í sjálfu sér mjög mikil takmörkun.
X-æri landið hins vegar eitt kjördæmi, þyrfti sem
næst sextugasta hluta kjósenda, eða samtals um
1500 atkvæði á-öllu landinu til að koma manni á
þing. Það er allt annað mál og skapar meiri freist-
ingu til framboða flokksbrota.
Þetta er ein af mörgum ástæðum til þess, að nú
■er enginn áhugi á að gera landið eitt kjördæmi. Hin
mýju, stóru kjördæmi mundu reynast lyftistöng
hvert fyrir sinn landshluta, fólkið mun sjálft velja
þingmannsefnin og það mun skapast heilbrigður
jrnetnaður milli kjördæmanna. Hér er fundin far-
■sæl lausn, sém ætti í aðalatriðum að duga þjóðinni
lengi og vel.
Málverkasýniiig
IX. kynslóðir amerískrar myndlistar.
Yfirliíssýning- á amerískri myndlist í Listasafni rík-
_ isins viS Hringbraut.
Opin frá kl. 10—10.
Aðgangur ókeypis.
GUÐSPJÖLLIN skýra svo
frá, að um fjörutíu daga tíma-
bil hafi hinn upprisni Drott-
inn haft samneyti við læri-
sveina sína. Þá er það eitt
sinn, að hann hverfur þeim í
skýi, Postulasagan kemst
þannig að orði, að hann hafi
verið uppnuminn til himins
að þeim ásjáandi. Að vísu má
ekki skilja þetta svo, að Jesús
hafi hvorki viljað né getað
birzt mönnum síðan hann „sté
upp til himna“, því að hann
birtist t.d. postulanum Páli
utan við hlið Damaskusborg-
ar. Á öllum öldum hafa verið
til menn, sem trúðu því, að
Kristur hefði vitrazt þeim í
sýn. En uppstigningardagur-
urinn markar samt tímamót,
því að fram að þeim degi virð-
ist Kristur hafa dvalið með
lærisveinum sínum eða komið
til þeirra dag eftir dag, ekki
aðeins sýnilegur, heldur einn-
ig áþreifanlegur.
Hinir fjörutíu dagar eftir
upprisuna eru eins konar á-
framhald af jarðvist Jesú í
holdinu, en eftir upprisuna
hefur hann tekið það sæti,
sem hann hefur til daganna
enda. Pétur postuli orðar
þetta þannig: „Uþpstiginn til
himna situr hann Guði á
hægri hönd, en englar, völd
og kraftar eru undir hann
Iagðir.“ (I.Pét.3.22.)
í jarðvist sinni er Jesús háð
ur margs konar takmörkun-
um. Mannleg tilvera hans er
niðurlægingartímabil, sem
endar á auðmýkingu krossfest
ingarinnar. Eftir upprisu og
uppstigningu er hann hafinn
upp til sinnar sönnu tignar.
Honum er gefið allt vald á
himni og jörðu. Hann starfar
ekki lengur í sérstöku landi
eða meðal sérstakrar þjóðar
á jörðunni, heldur er hann
alls staðar nærri í guðdóms-
valdi sínu, og öllum ofar, bæði
mönnum og englum.
Trúin á Krist sem upprisinn
og uppstiginn Drottin hefur
áhrif á skoðanir kristinna
manna á baráttu kristninnar
á jörðunni, og skoðanir beirra
á mannkvnssögunni yfirleitt.
Guðsríkið á jörðunni er ekki
undir stjórn manna, heldur
Dro'tins. Sigur guðsríkisins
os sigur fagnaðarerindisins er
ekki háður veiku mannlegu
valdi. heldur guðdómsvaldi,
sem hlýtur að sigra að lokum.
Hinn sanni foringi kristinnar
kirkju er hvorki náfi né bisk-
upar né konungar á jörðunni,
heldur hinn himneski Drott-
inn. Margar hreyfingar og
flokkar hafa komið fram í
sögunni, og er minning stofn-
endanna höfð { heiðri, en siálf
ir eru beir horfnir og liðnir
undir lok. En stofnandi kristn
innar er ekki dáinn maður,
heldur lifandi Drottinn, sem
ávallt heldur áfram að starfa.
Heimsnekingar og sagnfræð
ingar skýra gang mannkyns-
sögunnar með ýmsu móti.
Sumir +elia, að barátta stétta
og hagkerfa sé mestu ráðandi
um framvindu sögunnar. Aðr-
ir segia, að mannkynssagan
verði bezt skýrð með efnisleg-
um náttúrulögmálum. Enn
aðrir skýra mannkynssöguna
sem bardagasögu milli ein-
stakra þjóðhöfðingja o.s.frv.
a n nes
á h o r n i n
★ Ef stíflan er rofin steyp- !
ist flaumurinn yfir okk-
ur.
★ Réttlæta ekki kaup-
streitupólitík.
★ Hvað er að marka fregn
irnar?
★ Traust, sem farið er veg
allrar veraldar.
SÚ STÉTT, sem nú réðist í
kaupstreitupólitík, væri að gera
tilraun til að brjóta niður stíflu,
svo að flaumurinn flæddi yfir
byggðina og færði allt í kaf. —
Ef slík tilraun tækist yrði dýr-
tíðarflóðinu skellt yfir okkur og
þá yrði það algerlega óstöðv-
andi. Þetta er augsýnileg stað-
reynd hverjum einasta manni,
sem hefur augun opin — og
menn verða að viðurkenna hana
hvort sem þeim líkar hetur eða
verr.
TVÆB VÖRUTEGUNDIR
hafa hækkað í verði: benzín og
egg. Hvorutveggja eru þessar
neyzluvörúr nauðsynlegar, en
hvorug er þó svo nauðsynleg að
hækkanir á þeim eigi að raska
þeim grundvelli, sem lagður hef
ur verið. — Ég tel ekki hækkan-
ir á brennivíni og tóbaki, því að
hvorttveggja geta menn sparað
sér að skaðlausu, að minnsta
kosti þvi sem hækkuninni nem-
AÐRAR VÖRUR hafa ekki
hækkað, og hækkanirnar, sem
orðið hafa á benzíninu, sem var
okkur sjálfum algerlega óviðráð
anlegt, hvað svo sem segja má
um eggin, sem ég álít að hefði
heldur átt að hætta að framleiða
en að leyfa hækkun á, því að
annað gildir ekki í þeirri næst-
um því örvæntingarfullu bar-
áttu, sem háð er við dýrtíðar-
flóðið, — þessar hækkanir rétt-
læta ekki uppsögn kjarasamn-
inga eða endurnýjaða kaup-
streitu.
í FYRSTA SINNI beitir stór-
veldi okkur ekki aðeins ofbeldi,
heldur áróðurslygum. Það er
slæmt, en um leið er það lær-
dómsríkt. Af fregnum brezka út-
varpsins u mviðskipti Breta við
okkur hér við strendur landsins
getum við séð hvað mikið er að
marka opinberar frásagnir Breta
úr löndum þar sem þeir hafa ráð
Kristinn maður trúir því, a3
mannkynssagan sé fyrst og
fremst barátta guðsríkis til
sigurs gegn hinu illa, og sag-
an muni enda á sigri Krists.
Heimurinn sé þess vegna
þrátt fyrir allt á framfaraleið,
— ekki af tilviljun eða fyrir
vélgenga þróun, — heldur fyr
ir kraft Krists.
En hvernig á þá að skýra
það, að hið illa er enn svo
mikils ráðandi. Glæpir eru
framdir í öllum löndum, jafn-
vel styrjaldir eiga sé stað, háð
ar með svikum, undirferli og
grimmd. Meira að segja með-
al kristinna níanna sjálfra, og
hið innra með sérhverjum
manni eru vondar hugs-
anir og vondar hvatir áber-
andi. Hvernig er þá hægt að
trúa því, að Jsús Kristur sé
sigurvegari?
Merkur guðfræðingur hef-
ur svarað þessari spurningu
með samlíkingu, sem er á
þessa leið:
Hugsið yður land, sem er
hernumið af óvinaþjóð. Fjand
mennirnir virðast hafa öll ráð
í hendi sér. Þá tekst vinveitt-
um her að komast inn í land-
ið, til þess að frelsa þjóðina
úr ánauðinni. Orustur eru
háðar, og úrslitabardaginn
endar með því, að hið vin-
veitta lið hefur be+ur. Foringi
þess er þegar orðinn sigur-
vegari. Óvinaherinn fer hall-
oka, en á undanhalainu reynir
hann enn að berjast, þótt ekki
sé nema með skæruhernaði.
Bardagar, upph.laup og blóðs-
Úthellingar eiga sér enn stað
í landinu. En einhvern tíma
fyrr eða síðar kemur það í
ljós, að óvinirnir eru búnir aö
tapa og frelsari bióðarinnar
er sisurvegari að fullu og öllu.
— Kristur er slíkur sigurveg-
ari. Mannkynssagan sýnir, að
baráúan milli góðs og ills er
enn ekki á enda, en þeir sem
trúa á Krist og treysta hon-
um, eru ekki í vafa um, að
við endi heims muni það koma
í ljós, að hann er sigurvegar-
inn.
Framhald á 10. síðu.
ið eða ráða nokkru. Við gerum
að sjálfsögðu ráð fjrrir, að Bret-
ar beiti nákvæmlega sömu ósann
indum gagnvart okkur og þeir
beita þegar þeir segja fréttir frá
Kýpur, Nyasalandi, frá Mau
Mau og þar fram eftir götunum.
UM LEIÐ opnast augu
okkar fyrir því, hvað hafi verið
satt og hvað logið í fregnum
þessarar yfirdrottnunarþjóðar af
viðskiptum hennar við Indverja
svo að nokkuð sé nefnt frá þeirri
tíð. — Ég er aðeins að vekja at-
hygli á staðreynd. Þetta er rot-
högg á það traust, sem íslend-
ingar liatfa um langan aldur bor-
ið til Breta. Og ég veit, að hvað
svo sem skeður í fiskveiðadeil-
unni, þá mun aldrei hægt að
vekja traustið að nýju, einfald-
lega vegna þess, að brezk stjórn
arvöld hafa sjálf gengið af því
dauðu.
ANNARS ER ÞAÐ bersýni-
legt, að Bretar eru að egna okk-
ur til óhappaverka. Það er sama
aðferðin og þeir hafa beitt gagn-
I vart öllum þeim smáþjóðum,
sem þeir hafa verið að eltast við
undanfarna áratugi — og allar
hafa sigrað þá að lokum eins og
dæmin sanna. Það er líka ekki
annað sjáanlegt en að þeir með
lygum sínum séu að undirbúa
fólskuverk. Þetta verður okkur
að vera Ijóst, en halda samt vöku
okkar, gera aðeins það, sem okk
ur þy.kir skynsamlegast, án til-
, lits til nokkurs lygaáróðurs eða
tjlrauna til þess að framkalla
voðaverk.
Ilannes á horninu.
10. maí 1959 — Alþýðublaðið