Alþýðublaðið - 21.06.1959, Qupperneq 10
Kerala
Framliald af 5. síðu.
tölum verði á komið. En í
Kerala er öllu snúið við. Ker-
ala er eina landsvæðið í heim-
inum, þar sem kommúnistar
hafa komizt til valda á lýð-
ræðislegan hátt. Stjórnin hef-
ur mjög nauman meirihluta,
af 126 þingmönnum eiga kom-
múnistar 60, en nokkrir „ó-
háðir“ þingmenn fylgja þeim
að málum. í síðustu kosning-
um fengu kommúnistar aðeins
35 af hundraði atkvæða og 60
þingsæti, en kongressflokkur-
inn 37,5 af hundraðí, en aðeins
43 sæti. Jafnaðarmenn fengu
9 þingsæti og múhammeðstrú-
armenn 8. Kommúnistar eru
því í miklum minnihluta með
al íbúa fylkisins og andstaðan
gegn þeim er raunverulega
andstaða meirihluta kjósenda.
En sem sagt kommúnistar
komust þarna til valda eftir
leikreglum lýðræðisins og
hafa fullan rétt til að sitja út
kjörtímabilið. Hinn kommún-
istiski forsætisráðherra, Nam-
budiripad, hefur líka hvað
eftir annað hvatt andstæðinga
síná til þess að halda reglur
lýðræðisins.
FYLKISSTJÓRNIRNAR í
Indlandi hafa takmarkað vald
og ríkisstjórnin í Nýju-Delhi
hefur undir vissum kringum-
stæðum vald til að setja þær
af, annaðhvort ef þær taka
vald, sem þær hafa ekki sam-
kvæmt lögum eða ef þeimmis-
tekst að halda uppi lögum og
reglu. Kommúnistamir í Ker-
ala hafa hingað til starfað í
samræmi við stjórnarskrá
landsins og stjórnin hefur
ekki séð ástæðu til þess að
gagnrýna hina nýju skólalög-
gjöf hans. Nehru forsætisráð-
herra Indlands hefur jafnan
farið varlega í að gagnrýna
eða ræða ástandið í Karela og
kveðst ekki vilja skipta sér af
stjórn fylkisins, þótt pólitísk-
ir andstæðingar sínir séu þar
við völd. Fyrir skömmu réðst
hann meira að segja á þá, sem
standa fyrir kröfugöngunum
í Karela, og hvatti þá til að
fara að öllu með gát. Hann
sagði, að það væri skylda allra
Indverja, að grípa ekki til
valdbeitingar til þess að skipta
um fylkisstjórnir.
Nehru óttast, að kommún-
istum aukist fylgi, ef ríkis-
stjórnin grípur í taumana í
Kerala og sviptir stjórnin þar
völdum.
Um Kína og Rússa
Framhald af 5. síðu.
hátíðaræðanna. 1957 gat að
lesa í kínverskum blöðum
margar árásir á Rússa. Lond
Jun forseti Yunnan-fylkis lét
þá svo ummælt, að Rússar
hefðu skipulagt ránskap í
Mansjúríu. Sjang Po Kjún
samgöngumálaráðherra sagði,
að vinátta Sovétríkjanna væri
Kínverjum dýrari en náttúru-
hamfarir. Lo Long Ki umsjón-
armaður með skógarhöggi
Kínverja skrifaði í opinbert
málgagn, að Rússar væru villi
menn. 'Þessir þremenningar
voru allir sviptir stöðum sín-
um í bili, en fengu fulla upp-
reisn nokkrum mánuðum
seinna.
Andúð Kíríverja á Rússum
á sér ýmsar orsakir. Rússnesk
ir tæknifræðingar, sem eru
fjölmennir í Kína, hafa yfir-
leitt skapað sér óvinsældir,
kínverskir stúdentar í Moskvu
telja þjóðirnar svo óskildar
menningarlega, að ekki sé
hægt að búast við náinni vin-
áttu með þeim.
Samkvæmt áætlun Rússa
áttu Kínverjar að vera háðir
þeim í tæknilegum efnum um
langa framtíð, en Kínverjar
þrá að losna undan „hjálp“
Rússa og líta niður á og eru
gramir rússnesku ráðgjöfun-
um. Mao stofnaði kommúnurn
ar m.a. til þess að reyna að
gera land sitt óháð Rússum.
En eftir að Liau var kjörinn
forseti Kína hafa Rússar lán-
að Kínverjum þúsundir mill-
jarða til efnahagslegrar upp-
byggingar. Það er sennilega
verð það, sem þeir greíða fyr-
ir „afturhvarf“ Kínverja til
hins klassiska marxisma.
KrÚSTJOV viðurkennir,
að mikill skoðanamunur ríki
með Rússum og Kínverjum.
Hingað til hefur mest verið
um að ræða deilur um aðferð-
ir. Þessar deilur hafa aukizt
upp á síðkastið, en þó er ekki
um vinslit að ræða. Rússneskt
gull hefur brætt í síðustu
brestina um sinn. Það eitt
verður fullyrt, að í heiminum
eru nú tvær tegundir kom-
múnisma, rússnesk og kín-
versk. Sovétstjórnin lofar
þegnum sínum auknum borg-
aralegum þægindum, sniðnum
eftir bandarískum lífsvenjum,
sjónvarp, einkabíll, kavíar í
morgunmat og 30. stunda
vinnuvíka. Mao lofar þégnum
sínum blessun samvinnunnar
og dásemd þess að vera félags-
vera. Hann ætlar að skapa á-
ætlunarborgarann, bónda,
verkamanns-hermanninn.
Enginn veit, hvort nokkurn
tíma kemur til átaka milli
þessara tveggja félagsforma.
Þegar enski þingmaðurinn
Sam Watson sagði við Krú-
stjov nýlega, að ef þröngt yrði
um Kínverja heimafyrir, ættu
þeir ekki um að velja nema
Síberíu og Ástralíu til að
flytja til, svaraði Krústjov, að
hann teldi æskilegra að þeir
færu til Ástralíu.
Kirkjuþáttur.
Framhald af 5. síðu.
þess samt, að biskupinn er
ekki bara „fínn maður“, held-
ur verkstjóri í stofnun, sem
þýðingarmest er allra stofn-
ana landsins, og biskupsdæm-
ið er ekki aðeins gömul menn
ingarleifð, — heldur samnefn
ari allrar kirkjulegrar starf-
semi í landinu, hverju nafni
sem nefnist. Og þó að mikið
velti á embættismönnunum,
þá er hitt ekki þýðingar-
-minna, að hver maður geri
skyldu sína á sínum stað.
Jakob Jónsson.
Kvenstrigaskór
með kvarthæl, ódýrir.
'Laugaveg 63.
Framhald af 4. síðu,
anna Kristínar Jóhannesdóttur
og Magnúsar heitins Bjarna-
sonar. Magnús var öllum eldri
Hafnfirðingum að góðu kunn-
ur, hann sat lengi í niðurjöfn-
undarnefnd, var varabæjarfull-
trúi Alþýðuflokksins og
bryggjuvörður til fleiri ára.
Sigurður er giftur Ástu Jóns-
dóttur frá Bjarnastöðum á
Álftanesi og eiga þau 3 efni-
leg börn.
Það var ekki meiningin að
rita Iangt mál um félaga okk-
ar, en geta verður þess, að
starfsmaður og stærðfræðingur
er Sigurður með afbrigðum og
tölufróður svo af ber.
Sem dæmi um það, hvað Sig-
urður á gott með að muna töl-
ur, mætti segja það til gam-
ans, að hann kann utanað öll
símanúmer í bænum og er það
ekki lítils virði fyrir mann,
sem þarf að hafa jafnmikil við
skipti við fólkið og hann.
Þar sem ég veit að ég skrifa
þetta í óþökk Sigurðar, því eng
inn er sem hann að vilja hvergi
láta sín getið, þá lýk ég þess-
um orðum með því að færa
honum mínar og allra félaga
beztu óskir með afmælið og
framtíðina.
Ég veit að á heimili þeirra
hjóna verður gestkvæmt mjög
og munu þá vinir og vanda-
menn biðja honum og heimil-
inu blessunar Guðs.
Sigurður, lifðu heill í næstu
40 ár!
Hfanarfirði 20. júní ’59.
Kádé.
Símnefni: Cover
Pésthólf : 1412
Símar: 19003 19004
Hevmlffsfang:
Aðalstræfi 6
ngar:
mE&i&r
skip, bátar yfir 100 vörur í flutningi, síldar-
nætur og bátar, farangpi? skipverja o. fl. o. fl.
SJ0TRY6GINGAR
BRUNATRYGGINGAR ABYRŒSRTRYGGINGAR
. jfesí ’
•JS5SSÍ ■
eifið upplýsinga u
|_0 21. júní 1959 — Alþýðublaðið