Alþýðublaðið - 17.07.1959, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 17.07.1959, Blaðsíða 2
V e ð r i ð : S.-A.-ggla; skýjað. BENZÍNAFGREIÐSLUR í Reykjavík eru opnar í júlí- mánuði sem hér segir: virka daga kl. 7.30—23. Sunnu- daga kl. 9.30—11.30 og 13 —23. RáðsfafsnJr gerðar lil ☆ .iLISTASAFN Einars Jónsson ar, að Hnitbjörgum, er opið daglega kl. 1.30—3.30. ☆ BÆJARBÓKASAFN; LokaS vegna sumarleyfa il þriðju- dagsins 4. ágúst. FRÁ Æskulýðsráði Reykja- víkur. Skátaheimilið opið í kvöld frá kl. 7.30 til 11 e. h. . Árni Jónsson tenórsöngv- ari syngur kl. 9 með undir- leik Fritz Weisshappel. All- ir velkomnir á meðan hús- rúm leyfir. Ókeypis aðgang ur. ☆ ÚTVARPIÐ: 20.30 Tónleikar. 20.45 Þýtt o gendursagt: Af drif orustuskipsins „Tir- pitz“, konungs Norðurhafa . (Jónas St. Lúðvíksson). 21.15 Kórsöngur: Karla- .raddir úr Robert Shaw kórnum syngja (plötur). 21.25 Þáttur af músíklífinu (Leifur Þórarinsson). 22.10 öpplestur: ,,Hefðarmærin skiptir u mham“, III., sögu- lok. 22.30 íslenzk dægurlög. Stúlka slasasi Framhald af 1. síðu. slysinu og veit því enginn með fuliri vissu hvernig þetta gerð- ist. Elísabet var flutt á Slysa- varðstofuna og síðan á Landa- 'kotsspítalann. Var líðan henn- ar í gærkvöldi eftir atvikum. BLAÐíNU hefur borizt frétta- tilkynning frá Þingvailancfnd. Þar se mhún fjallar um mál, sem hafa verið mikið rædd að undanförnu, biríir blaðið hana í heild og fer hún hér á eftir: Fundur var haldinn í Þing- vallanefnd 1 bústað forsætis- ráðherra á Þingvöllum mánu- daginn þann 13. júlí s. 1. Gerði Þingvallanefnd þá eftirfarandi samþykktir: 1) Samþykkt var að banna varnarliðsmönnum að tjalda í Þjó’ðgarðinum. Var þetta talin óhjákvæmileg ráðstöfun í ljósi þeirrar reynslu, sem fengin er af dvöl þeirra hér á þessu vori. Hins vegar er þeim af Þing- vallanefnd ekki bannað að fara hér um fremur en öðrum mönn um. Ennfremur var samþykkt að banna þeim íslendingum að tjalda í Þjóðgarðinum, sem al-| varlega brjóta reglur þær, sem þar gilda. 2) Samþykkt var að auka löggæzlu, einnig að nóttu til, þar sem sannað þykir að flest brot á lögum Þjóðgarðsins eru framin að kvöldi og nóttu. Um síðustu helgi hafði löggæzla verið aukin verulega, enda var þá góð regla hér á staðnum. 3) Þá var einnig samþykkt að smávægileg greiðsla skuli koma fyrir tjaldleyfi í Þjóð- garðinum þar sem dvöl og um- íerð tjaldafólks leiðir til tals- verðra útgjalda. Börn innan FERÐAÞJÓNUSTA stúdenta Siyggzí efna til ferðar um helg- ina. Verður farið um Biskups- iungur og Hreppa. Áætlaðar eru fleiri ferðir ferðaþjónust- xmnar á sumrinu. KI. 2 e. h. á .laugardaginn, verður lagt af stað, farin verð- ur Þingvallaleið og ekið austur að Sogsvirkjun og hún skoðuð. Síðan verður haldið til GuIIfoss og Geysis, en endastöðin am kvöldið er í Hreppum. Verður þar slegið upp tjaldíbúð. Á sunnudag verður ekið um Hreppa og niður Skeið og yfir Hellisheiði til Reykjavíkúr. — Þangað verður komið um kvÖId matarieyti á sunnudagskvöld. Ferðaáætlun síðsumarsins er fjölbreytt og verður hennar síð ar getið, en því aðeins kemur !hún til framkvæmda, að stúd- antar sýni áhuga og fjölmenni í þessa ferð með gesti sína. Þátttöku í ferðina á laugar- daginn skal tilkynna í skrif- stofu Stúdentaráðs kl. 5—6 í dag og milli kl. 6 og 8 á föstu- dagskvöld. SkákeinWgi 14 ára greiða þó ekki leyfis- gjald fyrir tjöld sín. 4) Gjald fyrir stangveiðileyfi í landi Þjóðgsrðsins skal fram- vegis vera kr. 30,00 á d.ag fyr- ir hverja stöng. 5) Rætt var einnig um hina stórauknu umferð og aðsókn að Þingvöllum hin síðari ár og nauðsyn endurbóta á vegakerf- inu. Samþykkt var einnig að gera þær endurbætur, sem kleift reynist að gera á þessu ári, enda er þegar lítið eitt byrjað á viðgerðum. Mest að- kallandi var talið að breikka veginn um hraunið austari Þingvalla allt að Vellankötlu. Á þessu vori hefur nokkuð verið unnið að skógrækt og landgræðslu. Miklar viðgerðir hafa farið fram á girðingum. Farvegur Öxarár hefur þessa dagana verið lagfærður til að vernda fornleifasvæðið og hólm ana í ánni og varpsvæði fugla. — Ýmis önnur mál voru rædd, en flest þeirra þuífa nánari at- hugunar við áður en auðið verður að hefjast handa um framkvæmdir. somii a Framhald af 12. síðu, Baldur Möller varð skák- meistari Norðurlanda 1948 og vakti það mikla athygli þá. Friðrik vann titilinn 1953 og nú er röðin komin að Inga R. að freista þess. Vonast Skáksam- bandið til, að einvígið við Frið- rik verði honum góð æfing fyrir þá viðureign. UM SKÁKMENNINA. Skákmeistararnir, sem ein- vígið heyja, eru báðir Reyk- víkingar og hafa hlotið skák- uppeldi sitt í Taílfélagi Rvíkur. Ingi R. Jóhannsson er 22 ára, útskrifaður frá Verzlunarskóla íslands 1956. Þrisvar íslands- meistari { skák, 1956, ’58 og ’59. Reykjavíkurmeistari 5 sinnum og margsinnis Hraðskákmeist- ari íslands. Ingi varð 2. í B- flokki í Heimsmeistaramóti stú denta í Amsterdam 1955, tefldi á 2. borði fyrir ísland á Olym- íuskákmótinu í Moskvu 1956 og hlaut þá 52% vinninga. Á 1. borði Olympíumótsins í Mún chen tefldi Ingi 1958 og fékk hann þar 63% vinninga. Friðrik Ólafsson er 24 ára gamall, stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1955. Hann vakti fyrst athygli á sér erlendis.á skákmótinu í Hast- ings í Englandi. Norðurlanda- meistari 1953 sem áður segir og sannaði ótvírætt snilli sína á svæðamótinu í Waageriingen 1957, þar sem hann varð ann- ar. Friðrik varð einn af sex efstu á millisvæðamótinu í Portoroz í fyrra og vann með því rétt til þátttöku í kandí- datamótinu, sem fram fer í Jú- góslavíu í haust. Friðrik hefur teflt við helztu skákmenn heims með góðum árangri. Al- þjóðaskáksambandið (FIDE) sæmdi hann stórmeistaranafn- bót í fyrra. n Frétt til Alþýðublaðsins. SeySisfirði í gær. HER voru góðir gestir í gær- kvöldi. Sinfóníuhljómsveit ís- lands kom og hélt tónleika. Vakti leikur hennar mikla hrifningu og þurfti hljómsveit- in að endurtaka sum verkin hvað eftir annað. Aðsókn á hljómleikana var sæmileg, en að vonum var ekki fullt hús, bar eð allir sem geta, eru að vinna að síldinni. — Þjóðleikhúsið kom hér við með Föðurinn í sumar og heyrzt hefur, að leikflokkur Róberts Arnfinnssonar komi hingað á næstunni. FJÖLDI NORÐMANNA. Um síðustu helgi var hér fjöldi norskra skipa í höfninni. Síldin, sem hingað kemur, er en enri hefur hún ekki reynzt nsegilega feit til þess að salta hana. G. B. Hvar er fiskur ERLEND blöð hafa birt fréttir af afskiptum ís- lenzkra stjórnarvalda af Þipgvallaferðum her- manna, og eru þær yfir- leitt réttar og hlutlausar. Evrópuútgáfa New York Herald Tribune birti tvídálka frétt af þessu í fyrradag. — Hún er frá fréttamanni United Press International. Þar er vik- ið að sögu Þingvalla og lögð á það áherzla, hvílíka helgi staðurinn hefur í augum Islendinga. Slægur afli Hornarfj.bálum Frett til Alþýðublaðsins. Höfn Hornafirði í gær. ÞRÍR Austf jarðarbátar leggja hér upp afla sirin. Hafa þeir fengið dálítinn afla, en þeir hafa einnig eitthvað stundað humarveiðar. Afla sinn hafa þeir lagt upp til frystingar hjá Kaupfélaginu. Fimm heimabátar eru á síld- veiðum fyrir norðan land. — Hefur þeim ekki aflazt vel, — aðeins tveir hafa komizt á afla- skýrslur Fiskifélagsins, en það voru Gissur og Fanney. AÐRAR FRÉTTIR. Heyskapur hefur gengið sæmilega, en undanfarna daga hefur þó verið óþurrkasamt. F. Þ Flugfurninn Keflavík vann Yal 3:2 f GÆR léku Keflavík og Val- ur í I. deildarkeppninni.^Leik- urinn fór fram á grasvellinum í Njarðvík og lauk með sigri Keflvíkinga, 3:2. Framhald af 12. sfðu. verið steypt unp, er fyrst og fremst ætlað að veita húsnæði fyrir starfsemi Flugmálastjórn ar, Revkjavíkurflugvallar og Loftferðaeftirlitsins svo og veð urspádeild Veðurstofunnar á flugvellinum. í glerhjálminum ofan á bygg ingunni verður a.ðsetur lend- ingarstjórnar vallarins og til- heyrandi tæki, ratsjár og rad- artæki og á efstu hæðinni flug- umferðarstjórn á vegum Al- þj óðaf lugmálastofnunarinnar, sem annast þjónustu fyrir al- þjóðaflug. á Norður-Atlants- hafssvæðinu og yfir íslandi. Á fimmíu hæðinni verða ra- díótæki og tilheyrandi viðgerð- arverkstæði og á neðri hæðun- um verða, samkvæmt upplýs? ingum Gunnars Sigurðssonar, staðgengils flugmálastjóra, skrifstofur Flugmálast j órnar- innar, Loftferðaeftirlitsins, Reykjavíkurflugvallar, Veður- stafunnar, FlugöryggÍsþjónust unnar, sem annast fjarskeyta- sendingar og upplýsingaþjón- ustu við flugmenn. f húsinu munu væntanlegs starfa fimmtíu manns eða meira og má segja, að allt þetta fólk bíði þess með mikilli eft- irvæntingu að geta flutt í hin nýju húsakynni, því öll flug- málastarfsemi á flugvellinum hefur í þrettán ár orðið að kúldrast í bráðabirgða bragga- húsnæði og skúrakumböldum. Gert er ráð fyrir því, að starf- semin flytjist í nýja turninn upp úr næstu áramótum, en, þetta er fyrsta varanlega bygg- ingin, sem reist er á Reykjavík urflúgvelli. Hún kostar fulí- gerð 5,2 milljónir og er fullkom lega tímabær og mikilsverður vísir að stórbyggingum, sem þarna hljóta að rísa í framtíð- inni. Vínarborg. SKÝFALL í Austurríki olll í dag miklum flóðum og eyði- lagðist víða uppskera og vegir skemmdust. * 15 milljón krésiim belur en í fyrra Framliald af 1. síðu. þar sem hér gæti allt eins ver- ið um rússneskan éða franskan togara að ræða. En þá gengust Bretar strax við þjóðerninu og bættu úr fánaleysinu með því að fá lánaðan fána um borð í öðrum brezkum togara. Daginn eftir var Fairtray enn að ólöglegum veiðum við Grimsey, 6,7 sjómílur fyrir inn- an takmörkin og átti skipherr- ann á Þór bá orðaskipti við skip stjórann á togaranum og benti honum á að hann væri að ólög- legum veiðum. Svaraði skip- stjórinn bá: „Getið þér sagt mér, hvar annars staðar er fisk að fá?“ Þessu svaraði Eiríkur skip- herra því til, að það væri ekki hlutverk hans að benda brezk- um landhelgisbrjótum á fiski- mið. BLAÐINU barst í gær frétta- tilkynning frá áfengisvarnar- ráði um sölu áfengis á tíma- bilinu 1. apríl til 30. júrií 1959 og til samanburðar fylgdu töl- ur frá sama tímabili í fyrra. Af þeirri skýrslugerð sást, að heildarsala áfengis á þessu tímabili, hafði aukizt um 7.932.762 kr. frá fyrra ári, en þess ber að gæta, að nokkur verðhækkun hefur orðið á á- fengum drykkjum. Fréttatilkynningin var svo- hljóðandi (tölurnar í svigunum sýna upphæðina á sama tíma árið áður). „Heildarsala, selt í og frá Reykjavík kr. 35.421.619 (27. 864.033). Selt í og frá Akur- eyri kr. 3.300.983 (2. 950.770). Selt í og frá ísafirði 1.208.177 (1.169.900). Selt í og frá Seyð- isfirði 784.025 (711.662). Selt í og frá Siglufirði 912.412 (998. 089). Sala í pósti til héraðsbann- svæðis frá aðalskrifstofu í Reykjavík: Vestmannaeyjar kr. 1.141.946 (933.795). Áfengi selt til veitingahúsa frá aðalskrifstofu kr. 1.126.400 (864.525). • " ÖNNUR TÍMABIL. Frá l._ jan. til 31. marz 1959 nam áfengissalan samtals kr. 34.779.094, en salan samsvar- andi tímabil 1958 var kr. 27. 916.315. Fyrstu sex mánuði þessá árs hefur sala áfengis til neyzlu frá Áfengisverzlun rík- isins numið alls kr. 76.406.310, en á sama tíma í fyrra kr. 61. 610.769. — Það skal tekið fram að nokkur verðhækkun varð 4 áfengum drykkjum á þessu ári, Rétt er að geta þess, að á- fegiskaup vínveitingahúsa (en. þau eru nú 8 og öll í Reykja- vík) fara ekki sérstaklega gegn um bækur áfengisverzlunar- innar, bar sem kaup er að ræða úr vínbúðum. Sala til vínveit- ingahúsa nemur því raunveru- lega allmiklu hærri upphæð, en framanrituð skýrsla ber með sér“. _. J 2 17. júlí 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.