Alþýðublaðið - 17.07.1959, Síða 3
Genf, 16. júlí (Reuter).
SELWYN LLOYD utanríkis-
ráðherra Breta og Gromyko,
utanríkisráðherra Sovétríkj-
Ljmuiden, 16. júlí (Reuter).
ÓTTAST er að taugaveiki
ihafi brotist út í sumarbúðum
kanadiskra drengja í Hollandi.
Drengirnir eru synir kanadisk-
ra hermanna í Evrópu og dvelj-
ast í sumarbúðum í Ljmuiden.
Hafa þær verið settar í sóttkví.
Hefur verið skorað á íbúanna
í nærliggjandi borgum að sjóða
vandlega mat sinn famvegis,
þar sem hætta sé á taugaveiki.
Dublin.
í NÆSTU VIKU verður gef-
xð út frímerki í írlandi til að'
minnast þess að þá verða 200
ár liðin frá því, að Arthur
Guiinnes hóf bruggiun hins
heimsþekkta bjórs, sem enn
ber nafn hans.
anna, snæddu saman hádcgis-
verð í dag- og ræddust síðan við
einslega í tvær klukkustundir.
Þetta er fyrsti einkafundur ráð
herranna síðan Genfarráðstefn
an hófst að nýju.
Tilkynnt var að Herter ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna
muni snæða með Gromyko á
laugardag í villu þeirri, sem
rússneski fulltrúinn hefur til
umráða. Þessir einkafundir ráð
herranna koma í stað hinna
lokuðu funda, sem Þeir héldu
áður, en nú strönduðu þeir á
þeirri kröfu Rússa að fulltrúar
beggja hluta Þýzkalands yrðu
viðstaddir þá leynifundi ráð-
herranna.
Opinn fundur ráðherranna
var haldinn síðar í dag. Herter
var aðalræðumaðurinn. Selwyn
Lloyd neitaði að veita nokkrar
upplýsingar til blaðamanna
varðandi samræður hans og
Gromykos í morgun. Fyrr um
daginn gekk Dag Hammar-
skjöld á fund Gromykos og
ræddi við hann um hríð.
ir i sam
i
: A VEGUM sænska út-
■
jj varpsins voru fyrir
!“ skömmu valdar 10 beztu
ástarsögur heimsbók-
menntanna. Gunnlaugs-
saga Ormstungu var með-
al þeirra, sem flest at-
]; kvæði hlutu og var hún
nr. 3, en í fyrsta sæti var
ijj sagan af Tristan og ísoldc
ij — Verðlaunasögurnar
« hafa að undanförnu verið
* lesnar í sænska útvarpið
■ og meðal þeirra að sjálf-
sögðu Gunnlaugssaga, en
í þar segir frá óstum Gunn-
Iaugs Ormstungu og
* Helgu hinnar fögru.
p ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■. ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•
Genf, 16. júlí (Reuter).
FULLTRÚI Sovétríkjanna á
ráðstefnunni um bann við kjarn
orkuvopnum Iagði í dag fram
skilyrðisbundna yfirlýsingu
varðandi afstöðu Rússa til fast-
ra efíirl.itsstöðva, sem fylgjast
e,iga með því að banni við kjarn
orkutilraunum verði framfylgt.
Sagðr Sovétfu'Strúinn, að
stjórn sín væri tilleiðanleg til
þess að falla frá þeirri afstöðu
að stórveldin hafi neitunarvald
í þessum málum ef tryggt verði
fyrirfram samkomíflag eftirlits-
nefndanna og viðkomandi ríkis
stjórna.
Fulltrúi Bandaríkjanna sagði
að í tillögum vesturveldanna
væru ákvæði, sem tryggðu
þetta atriði.
Öruggar heimildir í Genf
telja, að vænlega horfi með ár-
angur af ráðstefnu þessari og
búast mætti við samkomulagi
um fastar eftirlitsstöðvar og
rannsóknarflug á næstunni.
Ríkin eru ekki lenpr ríki
einnar
Á FUNDI Alþjóðasambands
jafnaðarmanna í Hamborg í
gær ræddi Oskar Pollak rit-
Stjóri í Vínarborg um þróun og
Stöðu verkalýðsstéttarinnar í
þjóðfélaginu í dag. Það, sem
hefur gerzt frá fyrstu áratug-
um aldarinnar er það, sagði
hann, að ríkið er ekki lengur
ríki borgarastéttarinnar einnar,
að verkalýðsstéttin er ekki eins
og áður fyrir utan ríkið og
þjóðfélagið, en hefur í ríkum
mæli yfirtekið völdin í ríkinu
Og forustu í þjóðfélaginu. Þetta
hefur leitt til þess, að Alþýðu-
flokkarnir í hinum einstöku
löndum hafa orðið stei’kari en
Alþjóðasambandið ekki að
sama skapi.
Það er vert að veita því at-
hygli, sagði Pollak, að jafnað-
armannaflokkarnir eru sterk-
astir í löndum, þar sem áhrif
verkalýðsins á þjóðlífið eru
mest, þar sem flokkarnir 1
stjórnaraðstöðu hafa haldið
fast sínum sérkennum sem full
trúar fyrir hinar vinnandi
síéttir, eða þar sem flokkarnir
í stjórnarandstöðu koma fram
sem umbótasinnaðir flokkar.
Pollak nefndi sem dæmi brezka
flokkinn og Alþýðuflokkana á
Norðurlöndum og jafnaðar-
mannaflokkinn í Austurríki.
Fyrsfa bréfið vegna ráðhúsfréftar Aíþýðublaðsins
var aldrei ætlað
Ritstjóri:
f blaði þínu í morgun
(16. jiilí) gat að líta á for-
síðu niynd af ráðhúsi
Stokkhólmsborgar með
yfirskriftinni: Ráðhús við
tjörn, en neðar á sömu
síðu var spurt: Hvað ger-
ir Reykjavík? Mér virð-
ist, að með þessari yfir-
skrift sé verið að læða því
að ófróðum lesendum, að
sú ráðstöfun bæjaryfir-
valdanna í Stokkhólmi á
sínum tíma að staðsetja
meistaraverk Reynars
Östbergs við Löginn sé
eitthvað hliðstætt því
glapræði bæjarfulltrúa
Reykjayíkur að vilja
troða ráðhiísi niður í
Tjörnina. Það er nú alveg
ný merking orðsins tjörn,
að nota það um stöðuvatn
sem er tíu sinnunx stærra
en Þingvallavatn. Jafn
viturlegt og það var að
staðsetja ráðhús við Lög-
inn, jafn misráðið er að
tryggð má þó ofbjóða og
demba ráðhúsi í Tjörnina.
„Þegar þessu var lokið
var lítið eftir af lýðnurn
í borginni Tela“, minnir
mig að standi í fornri á-
letrun. Það tekur mörg ár,
jafnvel áratugi, að byggja
ráðhús, ekki sízt ef byggt
er þar sem jafn óradjúpt
er á öruggan botn og í
Tjörninní. Hvernig held-
ur þú að verði umhorfs
á Tjörninni á meðan á
þeim andskotagangi stend
ur? Ég bý við Miklubraut
ina og veit mínu viti.
Hvað heldurðu að verði
þá um þá íbúa Reykja-
víkur, sem hér bjuggu á
undan Ingólfi og enn
halda tryggð við þessa
borg þvert ofan í öll nátt-
úrulögmál? Ég á auðvitað
við kríurnai’, þessa kvik-
látu, vængfimu vorboða.
Þetta er eina borgin í
heimi sem þær heiðra með
nærveru sinni, en þeirri
henni verður ofboðið. Og
þá má opinberum bygg-
ingum í Reykjavík fara
mikið fram um fegurð, ef
ráðhúsið í Tjörninni vei-ð
ur Reykjavík meiri yndis-
auki en kríurnar í Tjarn-
arhólmanum.
Ég trúi því ekki fyrr exx
ég tek á, að Reykvíkingar
séu svo hundflatir fyrir
yfirborðslegu tildri og
prjáli og svo blindir fyrir
raunverulegum fegurðar-
verðmætum, að 'þeir Iáti
eyðileggja Tjörnina full-
komlega að ástæðulausu.
Þessari tjörn var ætlað að
spegla í skyggðum fleti
sínum á kyrrum kvöldum
örlítið af ósnortnum náít-
úruunaði. En aldrei var
henni ætlað að spegla
bæjarfulltrúa Keykjavík-
Vinsamlegast
Sigurður Þórarinsson.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiliiii iiiii|iiiiiiujiiiiiiitiiiiiiiiiii!iiiiimiifiititiiiimimiuiiiiiiiuiiimiiiitimiiiiimit!iim»o?.i
rúar ffu
ÞING Alþjóðasamibands jafn
aðarmanna stendur yfir í Ham-
borg. Þar eru sanxan komnir
fulltrúa frá 38 Alþýðuflokkum,
sem telja rneira en tíu milljónir
félagsmanna. Mejðal þingfull-
trúa má nefna Ollenhauer og
Carlo Schmid frá Þýzkalandi,
Guy Mollet og Jules Moch frá
Frakklandi, Gaitskel og Bevan
fi’á Englandi og Önnu Ketly frá
Ungverjalandi, og fjölmennar
nefndir eru konmar frá Japan
og Möltu, kvennasendinefndir
frá Asíuþjóðum og Burma, —
Vietnam og Argentína eiga full
trúa á fundinum.
Á fyrsta, fundi þingsins var
Alsing Andersen frá Danmörku
endurkosinn forseti sarntak-
anna og Gaitskell, Ollenhauer
og Mollet varaforsetar.
Borgarstjórinn í Hamborg,—
Max Braue, sem er jafnaðai’-
maður, bauð þingfulitúa vel-
komna til borgarinnar og Oll-
enhauer formaður þýzkji Al-
'þýðuflokksips ræddi um innan-
landsmál Þýzkalands og sagði
Alsing Andersen — endurkos-
inn forseti Alþjóðasambands
jafnaðarmanna.
að unga fólkið hneigðist ákveð-
ið að frelsi og lýðræði.
Alsing Andersen, formaður
— sagði í ávarpsorðum sínum.
að samtök jafnaðarmanna væru
nú alþjóðlegri í eðli sínu heldur
en nokkurn tíma áður og benti
á, að Alþýðuflokkurinn hafi nú
hreinan meiri hluta í Nepal, að
jafnaSarmannaflokkur hafi ver
ið stofnað í Kongo, að for-
maður Alþýðuflokksins á Mad-
agaskar hafi verið kosinn for-
seti landsins og að flokkurinrt
hafi nýlega unnið meirihluta á
eyjunni Mauritius í Indlands-
hafi austan við Afríku.
Eidflaugin tæftlst
Cape Canaveral, 16. júlí.
ELDFLAUG, sem flytja átt.
gervitungl út í geiminn ,sprakl<;.
í dag skömmu eftir að henní,
var skotið upp. Gervitunglið'
var þegar skýrt Könnuður 6 og'
vóg 41 kíló og hafði. inni aS
halda nákvæmustu og fullkomn.
ust rannsóknartæki, sem senc.
hafa verið út í geiminn.
(NTB-Reuter).
Eldflaugin sprakk er hún var
komin örfá fet frá jörðu og féll
niður skammt frá húsj því, semm
vísindamenn þeir, sem fylgjast
Alþýðublaðið — 17. júl£ 1959 3