Alþýðublaðið - 26.07.1959, Síða 12
:: >
Svona daui-
ans
!
ÞETTA var eina stúlkan
þarna á planinu á Siglufirði,
sem var með barnavagn, svo
að við hlutum að taka af
henni Alþýðublaðsmynd. —
Við tókum tvær myndir til
vonar og vara, og á þeim
báðutn var hún svona dauð'
ans róleg og heimsdömuleg,
rétt eins og það gerist á
hverjum degi að maður finni
faliega stúlku með barn í
vagni á síldarplani. En kann
ski það sé einmjtt daglegt
brauð norður á Siglufirði.
Við erum með fleiri
myndir úr síldinni.
Próf. Carlo Schmid
hélf heimleiiis í gær
PRÓF Carlo Schmid hélt
heimleiðis með flugvél í gær-
morgun, eftir vel heppnaða og
ánægjulega komu hingað, að
því er hann sagði í stuttu sam-
lali við tíðindamann blaðsins.
EA CAMBRE. — Jumbo, fíll-
inn, sem er að fara yfir Alpa-
fjöíl, var urn það bil hálfnað-
Ur ferðina í gær.
Það er vísindaleiðangur, sem
ff^rir hinn tveggja tonna þunga
ifi út, og er tilgangurinn að
kanna leiðina, sem foringi leið-
angursmanna, brezkur prófes-
Sor, telur Hannibal hafa valið,
þegar hann fyrir nærri 2.200
árum liélt nieð stríþsfíla sína
yfir Alpana.
Ef allt gengur að óskum
mun ferðalagið taka Jurnbo
tólf daga.
HANNYRÐASKÓLINN að
Voss í Noregi, Voss Husflids-
skule, hefur sent biskupi ís-
lands forkunnarfagurt altaris-
klæði (antipendium), sem er
gjöf til Skálholtskirkju.
OPINBER MALS-
HÖFDUN VEGNA
SMART KESTON
DÓMSMÁLASTJORNIN hef-
ur ákveðið opinbera málshöfð-
un vegna auglýsingar á Smart
Keston-peysunni, sem mjög
hefur komið við sögu hér í blað-
inu, og mun hér um metaf-
greiðslu að ræða.
Málið var fyrst tekið upp 17.
þessa mánaðar til rannsóknar
í Sjó- og Verzlunardómi Reykja
víkur, og sem sendi niðurstöð-
ur sínar til Dómsmálaráðuneyt
isins, sem ákvað á fimmtudag-
inn 23. þ. m. að mál skyldi
höfða vegna brota á lögum um
varnir gegn óréttmætum verzl-
unarháttum.
Það hefur því tekið 5 daga
að ranrisaka málið.
Slíkur hraði um gang mála
mun vera algert einsdæmi á
landi voru. Málið verður tekið
til dóms eftir réttarhlé í sept-
ember.
40. árg. — Sunnudagur 26. júlí 1959 — 157. tbl.
í FYRRINÓTT var veiði síld
veiðiflotans heldur lítil. Meiri-
hluti flotans var að veiðum
skammt norður af Siglufirði, en
veiði var rýr þar. Hins vegar
fengu allmörg skip, sem voru
að veiðum á Húnaflóa, allgóðan
nn aans i
verzlunarm.-helgi
ALLTAF er yfirfullt og pant-
að langt fram í tímann á hó-
telinu í Bifröst, að því er hó-
telstjórinn, Þorsteinn Viggós-
son, tjáði blaðinu í gær. Ekki
værður danssamkoma að þessu
sinni í Bifröst um verzlunar-
mannahelgina.
Dvalargestafjöldi að Bifröst
getur orðið um 70 manns og
dvelur þar nú yfirleitt sá
fjöldi. Er þá bæði um að ræða
dvalargesti fyrir lengri tíma
Eldri maður
fyrír bíl
A ELLEFTA tímanum á
laugardagsmorgun var umferð-
arslys á Hafnarfjarðarvegi rétt
hjá Þóroddsstöðum. Eldri mað-
ur varð fyrir vörubifreiðinni
G-1429 og hlaut hann nokkur
meiðsli.
Maðurinn stökk út á Hafnar-
fjarðarveginn allt í einu og gat
bifreiðarstjórinn ekki forðað
slysinu. Við áreksturinn kast-
aðist maðurinn út fyrir veg-
inn. Var hann þegar fluttur á
slysavarðstofuna. Ekki var vit-
að hversu alvarleg meiðsl hans
voru í gærdag, en nokkuð
blæddi úr honum á slysstað.
og eins næturgesti í nokkrar
nætur. Algengt er það, að fólk
dvelji að Bifröst í sumarleyfi
sínu,
Á Bifröst eru 8 „hjónaher-
bergi“ með sérstöku baði, sal-
erni og síma. Er leiga þeirra
130 kr. á sólarhring,' en þar
geta hjón verið með tvö eða
jafnvel fleiri börn. Hin her-
bergin geta verið bæði tveggja-
eða eins manns herbergi. Er
sérstakur vaskur og vatn fyrir
hvert herbergi, en sameigin-
legt bað og salerni fyrir fleiri
saman. Enn ber að geta svefn-
pláss, þar sem hópar geta feng-
ið gistingu eða annað það fólk,
sem það kýs, en rúm eru full-
búin í svefnplássi þessu og ger-
ist ekki þörf að hafa með sér
svefnpoka eða annan slíkan út
búnað. Svefnplássaleiga er 30
kr. á nótt, ,en venjuleg her-
bergjaleiga 70 kr. á eins manns-
Framhald á 2. síðu.
Séra Jóhann Hannesson
guðfræðiprófessor.
FORSETI íslands hefur sam-
kvæmt tilnefningu mennta-
málaráðherra skipað séra Jó-
hann Hannesson prófessor í
guðfræði við Háskóla íslands
frá og með 1. ágúst.
Smíðaðir fíeiri lyklar að Blóðbankanum
„ÞAÐ tók aðeins f jórar mm
útur að hafa upp á blóðbanka
lyklinum, sem þið sögðuð að
hefði glatazt,“ sagði yfirhjúkr
unarkonan á handlækninga-
deild Landsspítalans í samtali
við blaðið í gær í tilefni af
hinni umtöluðu frétt okkar,
að eini lykillinn, sem til væri
að blóðbankanum, hefði ekki
fundizt þegar til átti að taka
mjög snarlega. „Svo var mál
með vexti,“ sagði hún, „að
maður frá okkur fór upp í
blóðbanka og þurfti að
skreppa heim til sín í leiðinni.
Hann hafði nýgengið út, þeg-
ar læknanemi frá öðru sjúkra
húsi kom eftir lyklinum. En
okkar maður var ekki frá
nema fjórar mínútur, svo það
var einstök tilviljun að hinn
skyldi koma á meðan,“ sagði
hún. „Okkur þykir að þið hjá
Alþýðublaðinu séuð fljótir
með fréttirnar. — Það er að
vísu satt hjá ykkur, að til sé
aðeins einn lykill að blóðbank
anum, eftir að búið er að loka
á kvöldin, en það stafar af því,
að hin sjúkrahúsin hafa ekki
haft rænu á að fá sér lykil.
En nú vet/a væntanlega
smíðaðir fleiri Iyklar,“ sagði
hún, og það er að vonum, því
spurning um mínútur getur
verið spurning um mannslíf
í þessu tilfelli.
Alþýðublaðinu var í glensi
boðin ein afsteypa af lyklin-
um, en ritstjórnin ákvað að
taka boðinu.
Lesendur blaðsins geta því
verið alls óhræddir þótt slys
beri að höndum.
Alþýðublaðið hefur lykil að
blóðbankanum.
afla. Veður var sæmilegt á mið
unum. AUs höfðu 71 skip til-
kynnt síldarleitinni um' afla
sinn. Var hann samtals 21 000
mál og tunnur.
Vegna þess hvað blöðin fara
snemma í pressuna á laugardög
um, er ekki hægt að birta áreið
anlegar fréttir um, hvernig
afli bátanna skiptist á hafnir.
EFTIRFARANDI skip höfðu
tilkynnt síldarleitinni á Siglu-
firði um afla:
Gunnar SU 500 mál. Hag-
barður 400 mál. Syala 700. Haf-
þór 400. Sigurður Bjarnason
700. Garðar 600. Víðir II 600 tn.
Tjaldur VE 450 tn. Páll Páls-
son 450 mál. Jón Kjartansson
400 tn. Mummi 550 mál. Reykja
nes 500 tn. Fjarðarklettur 470
mál. Hannes lóðs 800 mál. Jónt
Jónsson 650 mál Farsæll 600
mál. Nonni 650 mál. Heilir 400
mál. Helgi SF 500 tn. Gylfi II
400 tn. Merkúr 550 mál. Tálkn-
firðingur 550 tn. Víðir SU 600
tn. Guðm. á Sveinseyri 500 tn.
Kópur 450 mál. Haförn 1450
mál. Bára 400 tn.
Miss
Universe
JAPANSKA stúlkan Aki-
ko Kojima sigraði í feg-
urðarsamkeppninni á
Löngufjöru og hlaut titil-
inn Ungfrú Alheimur.
Hún er fyrsti Asíubúi,
sem hlýtur þennan titil.
Móðir hennar, Toshiko
Koýima, varð yfir sig hrif-
in, er hún heyrði fréttirn-
ar í Tókíó í gærmorgun
og kvaðst vonast til, að
dóttir sín giftist sem fyrst,
„helzt einhverjum hraust
um, japönskum manni“.
Vesfurveldin mundu
grípa fil afómvopna
WASHINGTON. — Lauris
Norstad, yfirmaður Atlants-
hafsherjanna, hefur tjáð Banda
ríkjaþingi, að Vesturveldin
mundu neyðast til að grípa til
atómvopna, ef Rússar reyndu
að herja vestur á bóginn í
Evrópu.
„Það má slá þessu föstu“,
sagði hershöfðinginn.