Alþýðublaðið - 28.07.1959, Side 9

Alþýðublaðið - 28.07.1959, Side 9
( ÍÞróttir ) Handknattleiksinótið: FH íslandsmeistari - Sigraði keppi- nauta sína með miklum yfirburðum SÍÐ'USTU leikir handknatí- leiksmeistaramóts íslands ut- anhúss fyrir karla, þess 12. í röðinni voru háðir um helgina. ÍR sigraði Ármann á laugar- •daginn með töluverðum yfir- burðum eðá 21:10 og FH sigraði Fram með 22:10. Á sunnudaginn fóru fram tveir leikir, og þá léku Fram og ÍR og FH — Afturelding. + FRAM — ÍR 15:14. Leikurinn var jafn mestallan leiktímann, en þó hafði Fram yfirhöndina meiri hluta leiktím ans, Fram skoraði þrjú fyrstu mörkin, annað markið, sem Rúnar skoraði, var snoturlega gert. ÍRingar jafna metin og skora tvívegis, og síðan Fram tvisvar og ÍR þrisvar, jafnt 5:5. Leikurinn var nú nokkuð harð- ur og tók dómarinn, Ragnar Ásbjörn Sigurjónsson formað- ur HSÍ afhendir Birgi Björns- syni, fyrirliða FH, hinn fagra verðlaunagrip. Jónsson, alltof vægt á brotun- um. Síðustu tvö mörk fyrri hálf leiks voru bæði gerð úr víta- köstum, staðan í hálfleik var 6:6. Leikur þessi var nokkuð ró lega leikinn úti á vellinum og fyrir framanjmörkin, en þegar markmennirnir fengu knöttinn var stundum mikið kapphlaup um hann fram völlinn og ekki voru handknattleiksmennirnir spretthlauparalegir í tilburðum. lí upphafi síðari hálfleiks léku liðsmenn Fram frísklega og náðu fljótt 4 marka forskoti, 12:8, síðan sóttu ÍR-ingar sig mjög og sex sinnum í röð hafn- aði knötturinn í Fram-markinu, staðan var því 14:12 ca. 3—4 mínútur fyrir leikslok. Taktik ÍR-inganna þessar síðustu mín- útur var mjög klaufaleg, þeir léku af kæruleysi að því er virt ist, en Framarar voru ákveðnir í að vinna og skoruðu þrjú s.íð- ustu mörkin og sigruðu með 15: 14 í þessum jafn leik. Var sig- ur Fram verðskuldaður, þeir voru ákveðnari, en leikni þeirra var samt ekki alltaf upp á marga fiska. ÍR-liðið vantaði Gunnlaug og munaði mikið um hann. Hinir ungu leikmenn liðs ins lofa góðu. ic FH AFTURELDING 30:11 Síðasti leikur mótsins mi'lli aftureldingar og hinna snjöllu FH-inga virtist ætla að verða spennandi eftir fyrstu tíu mín- útunum að dæma. Liðin skipt- ust á að skora og hraði var gif- urlega mikill. Sum mörkin voru mjög vel gerð, sérstaklega þriðja mark FH (Sig. Júlíusson) og fjögur, sem Helgi Jónsson skoraði fyrir Aftureldingu. En þegar fyrri hálfleikur var tæplega hálfnaður var eins og botninn dytti úr tunninnj hvað viðkemur Aftureldingu, það var um algeran einstefnuakstur knattarins að ræða í mark þeirra eða 14 sinnum í röð. Stað an í hálfleik var hins vegar 17: 7. Var leikur FH glæsilegur á köflum, vel hugsuð útköst Hjalta í markinu og mikiil hraði í upphlaupunum, þannig að FH ruglaði alveg vörri Aft- ureldingar, sem var bæði sein og óskipuleg. Rétt fyrir leikslok var staðan 29:8, en leikurinn endaði með sigri FH 30 gegn 11. Lið FH virtist vera eina liðið á mótinu, sem er í æfingu, enda sigraði það með yfrburðum. Leikmenn eru allir frískir cg taktiskir og var gaman að fylgj ast með leik þeirra. * MÓTSSLIT OG VERÐ- LAUNAAFHENDING Að mótinu loknu afhenti Ás- björn Sigurjónsson, formaður handknattleikssambandsins, fyrirliða FH, forkunnarfagran bikar, sem hann sjálfur hefur gefið og hlýtur nafnið „Álafoss bikarinn“. Bikr/’inn vinnst. aldrei til eignar, en keppa skal u mhann í 50 ár og nafn sigur- vegarans skal grafið á hann í hvert sinp. Einnig fengu áiíir liðsmenn FH meistarapening. Að þessu loknu sleit Ásbjörn mótinu og áhorfendur hrópuðu ferfalt húrra fyrir handknatt- leiksíþróttinni. Hallsteinn Hin- riksson mælti nokkur orð að lokum, þakkaði liðum þeim, sem þátt tóku í mótinu, fyrir komuna og ekki síður hinum mörgu áhorfendum fyrir áhug- ann, en ávallt fylgdust margir með keppninni hverju sinni, þrátt fyrir frekar óhagstætt veður. Mót þetta var í alla staði hið ánægjule;|asta og fram- kvæmdin, sem var í höndum FH, til fyrirmyndar. 'ú Iþróftir erlendis MÖRG frábær afrek voru unnin erlendis um helgina, hér koma þau hélztu. Skýrt var frá úrslitum landskeppninnar milli USA og Japan í sundi í blaðinu á sunnudaginn, en Japan sigraði með 3 stigum. Frábær árangur náðist í mörg- um greinum, t. d. bætti Banda- ríkjamaðurinn Frank Mac Kinney sitt nýsetta heimsmet í 200 m. baksundi um 1/10 úr sek., synti á 2:17,8. Annars var það lítt þekktur bandarískur skriðsundsmaður, sem vakti mesta athyglj. í 1500 m. skrið- sundi, en hann sigraði á bezta heimstímanum í ár, synti á 17: 44,4 mín. Heimsmet Jons Kon-1 rads er hins vegar 17:28,7. ' □ Enska sundstúlkan Anita Lonsbrough setti heimsmet í 200 m. bringusundi, náði 2:50,3 mín., en gamla metið átti Ada den Haans og það var 2:51,3 mín. □- Bandaríkjamaðurinn Ray Norton náði 10,2 sek. í 100 m. hiaupi á móti í Borlanger í Svíþjóð um helgina, það er bezti tími, sem náðst hefur í 100 m. hlaupi í Svíþjóð. Asp- lund sigraði í sleggjukasti með 63,10 m. og Thygersen í 3000 m. hlaupi með 8:20,8 mín. □ Nýr rússneskur spretthlaup- ari, kornungur, vann athyglis- vert afrek í 100 m. hlaupi í Minsk á föstudaginn. Hann heitir Sergj Solntsev og hljóp á 10,5 sek. Akureyringar sigursælir á Róðrarmófi fslands RQÐRARMÓT íslands var iháð í Skerjafirði um síðustu helgi og báru Akureyringar sig lur úr býtum í þrem flokkum af fjórum. Var það Róðradeild Æsku- lýðsfélags Akureyrarkirkju, sem stóð sig með slíkum ágæt- um, en félagið hefur haft róður á stefnuskrá sinni um árabil og orðið svo vel ágengt, sem fram kom í þetta sinn. Keppt var í 500 í 500, -000 og 2000 m róðri, og sigruðu Akureyringar í öll- um þeim greinun^, en í 1000 m róðri drengja sigraði sveit frá Róðrarfélagi Reykjavíku. □ Það ætlar að verða langlíft met Jesse Owens í langstökki, en næsta sumar eru 25 ár síð- an það var sett. Sá, sem talinn er líklegastur að bæta það, er hinn 29 ára gamli Greg Bell, sem stökk 8,10 m. á USA-USSR keppninni a dögunum. Bell hefur fimm sínum stokkið lengra en 8 metra. Hann er mjög spretthraður, hefur hlaup ið 100 m. á 10,5 sek. fslandsmeistarar FH í útihandknattleik karla 1959: Fremsi röð talið frá vinstri: Jón Óskarsson, Bergþór Jónsson, Birgir Björnsson, Hörður Jónsson og Örn Hallsteins. Aftari röð frá vinstri: Hallsteinn Hinriksson, þjálfari, Sigurðut Júlíusson, Ragnar Jónsjson, Pétur Antonsson, GJlafupr1 Thorlaeius og Hjalti Einarsson. Á myndina vantar Einar Sigurðss. — Ljósr myndari: Oddur Ólafsson. HINN 14. júní sl. varð Bene- dikt G. Waage, forseti ÍSÍ, sjö- tugur. Hann var þá staddur er- lendis á Olympíuþingi. I tilefni þessara merku tíma- móta efndu vinir hans og fé- lagar innan íþróttahreyfingar- innar til samsætis á fimmtu- dagskvöldið var í Oddfellow- húsinu. Voru þar samankomnir margir meðal helztu forustu- manna á sviði íþróttanna tii þess að hfrlla þenna merka í- þróttaleiðtoga þjóðarinnar. Guðjón Einarsson, varafor- seti ÍSÍ, stjórnaði hófinu og flutti aðalræðuna fyrir minni heiðursgestsins. Rakti hann í stórum dráttum störf hans fyrir íþróttahrey-finguna og þalýkaði hið miklvæga forustuhlutverk hans um áratugi. í lok ræðu sinnar afhenti hann Benedikt mikinn og fagran kristalsvasa frá íþróttasambandinu. Er grip ur þessi gerður suður í Tékkó- slóvakíu og hagleikssmíð hin Hér sést Guðjón Einarsson af- benda Benedikt G. Waage gjöf írá ÍSÍ. Það er fagur kristals- vasi gerður í Tékkóslóvakíu. mesta. Næstur tók til máls Bragi Kristjánsson formaður Olymp- íunefndar íslands Ávarpaði hann heiðursgestinn í nafni í- þróttabandalagsins, félaga og einstaklinga innan samtakanna og afhenti honum í lok ávarps síns nokkra peningaupphæð, sem safnað hafði verið meðal þessara aðila. Þá sagði Erlingur Pálsson nokkur orð og flutti kveðju frá Sundsambandi íslands, um leið og hann þakka/ii Benedikt þann mikla áhuga, sem hann ætíð hefði sýnt sundíþróttinni, bæði sem þátttakandi í þeirri íþrótt samtakanna. Að ávarpi Erlings og sem forustumaður heildar- loknu var heiðursgesturinn hylltur með ferföldu húrra- hrópi. Síðasti ræðumaðurinn var svo heiðursgesturinn, er flutti snjalla ræðu. Þakkaði alla þá vinsemd- sem hann hefði orðið aðnjótandi og þá hlýju, sem til' sín hefði streymt á þessum tímamótum ævinnar. Hann þakkaði og góðar gjafir, em kvaðst vilja minnast þess, sem eitt sinn hefði verið sagt, að góðar þættu sér gjafirnar, en betri þó vináttan. Góður og sannur vinur væri eit't þa.ð bezta, sem hægt væri að öðlast. íþróttahreyfingin stuðlaði , að sannri vináttu milli einstak- linga og þjóða. Hann rakti síðam í stuttu' ogýskýru máli þróun í- þróttanna hérlendis, allt frá aldamótunum síðustu og fram til vorra daga. I lok ræðu sinnar bað hann alla viðstadda hyiia íþróttahreyfinguna, og var það rösklega gert, með fjórföldu húrra. Að ræðu heiðurr||estsins lokinni sleit samkvæmisstjór- inn þessu ánægjulega hófi og flestir gestanna héldu beinustu leið inn á Laugardalsleik.vang- inn til þess að horfa þar á kapp- leik pressuliðsins og B-lands- liðsins. ☆ Benedikt G. Waage er fædd- ur hér í Reykjavík hinn 14. júni 1889. Foreldrar hans voru Þau Guðjón Einarsson prentari og kona hans Guðrún Benedikts- dóttir Waage. Ungur gerðist Benedikt áhugsamur um íþrótt ir, gerðist félagi bæði ÍR og KR. Var hann um skeið formaður beggja þessara félaga. Lagði hann stund á margar greinar í- þrótta og þótti snemma liðtæk- ur. Hann iðkaði knattspyrnu, sund, frjálsar íþróttir og var mikill skautagarpur og fjail- göngumaður Sundíþróttin mun þó hvað mest hafa átt hug hans. Árið 1914 synti hann úr Viðey upp að steinbryggjunni og þótti þetta hið mesta afrek á þeim tíma, enda eitt mesta, þolsur.d, sem framkvæmt hafði verið, þó nú sé slíkt ekki lengur í frásög- Framhald á 2. síðu. Alþý'ðublaðið — 28. júlí 1959 0

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.