Alþýðublaðið - 18.08.1959, Blaðsíða 11
Reneé Shann:
32. dagur
„En við hefðum skemmt
okkur svo vel“, sagði ég. En
svo gleymdi 'ég hví aftuf. Ég
var í sjöunda himni. Mér var
alveg sama um Kit Harker.
Það eina sem máli skipti var
að Steve var alveg sama um
hana lika“.
„Það, sem mér finnst verst
er að hú heettir hér“, sagði
Caroline. „Ég veit ekki hvern
ig ég fer að án þín“.
Ég leit undrandi á hana.
„En ég hætti alls ekki,
Caroline! Ef frú Connor kem-
ur ekki aftur, fæ ég mér bara
aðra. Vitanlega he.ld ég áfram
að vinna hér. Auk þess þurf-
um við peninganna með.
Steve fær áreiðanlega eitt-
hvað að gera, en hann fær
sjálfsagt ekki jafn gott kaup“.
„Bíddu bara við. En mundu
að ef þú af einhverri ástæðu
getur ekki haldið áfram að
vinna, þá mðgastjég ekkert.“
Hún hló, „Ég býst satt að
segja við því að þú verðir
ófrísk bráðléga.“
Ég fékk hjartslátt. Það var
ekkert, sem ég vildi fremur.
Værurn við heppin fengi.
Nicky litla systur. Við höfð-
um alitaf ‘sagt að við vildum
eiga mörg börn.
Susy kom inn með kaffið
og setti það á skrifborðið hjá
Caroline.
„Ég þarf að fara út, Susy,“
sagði Caroline. „Taktu við
öllum skilaboðum. Ég veit
ekki hvað ég verð lengi, en
komist ég ekki fyrir lokun
hringi ég.“
Hún komst ekki fyrir lok-
un. Hún hjálpaði mér að laga
allt til. Nicky var frá sér af
gleði yfir að sjá mig og kom-
ast aftur heim.
„Hugsaðu þig tvisvar um
áður en þú átt fleiri,“ muidr-
aði Caroline eftir að hann
hafði dottið niður allan stig-
ann með miklum gný og stað-
ið á fætur án þess að segja
orð og með heimspekilegri ró
í svipnum. „Hann er hrein-
asti engill, en guð'veit að
hann eyðilégði í mér taugarn-
ar
i“
Ég tók hann upp.
„>Nicky, ástin mín, passaðu
þig-V
„Ég hrasaði.“
„Ég veit Það, En þú vilt
ekki vera búinn að fót- eða
handleggsbrjóta þig, þegar
pabbi kemur heim?“
„Hvenær kemur pabbi
heim?“
„Klukkan hálfátta. Og þá
áttu að vera háttaður og bú-
inn að borða eins og venju-
lega.“
„En þetta er ekki eins og
venjulega! Við vorum að
koma heim og pabbi liefur
ekki séð okkur svo lengi.“
„Ég veit það, en það á al'.t
að vera eins og við höfurn
aldrei farið neitt og pabbi sé
að kom.a heim frá verksmiðj-
unni.“
„Af hverju?“
„Gefstu bara upp!“ sagði
Caroline. „Á ég að skræla
kartöflurnar?“
„Vitanlega ekki. Það er svo
leiðinlegt.“
„Já, en tíminn er að verða
útrunninn.“
Ég leit á klukkuna. Hún var
að verða hálfsjö.
„Nicky, vertu góður og
komdu að hátta.“
Nicky leit á mig. „Það er
svo snemmt, mamma.“
„Ekki mjög, Nicky minn.“
„Af hverju verð ég að vera
háttaður, þegar pabbi kem-
ur?“
„Af því — af því —.af' þvl
að mér datt í hug að hann
yrði svo feginn ef hann kæmi
heim o'g þú værir háttaður og
ég að 'búa til matinn.“
„Af hverju býr frú Connor
ekki til matinn?“
„Hún fór til systur sinnar,
sem er veik„ manstu það
ekki?“
„Var það þess vegna, sem
ég fór til Patsyjar fre|nku?“
„Já,_vinur minn.“
KÍukkan sjö sagðist Caro-
line varð að fara.
„Steve gæti komið of
snemma og ég vil ekki eyði-
leggja allt fyrir þér.“
„Ö, Caro'line!11
„Hvað er að?“
„Mér er illt.“
„Það er spenningurinn."
Cárolíne brosti til mín. „Vertu
róleg, Jenny. Við kyssist og
allt verður gott og indælt á
ný.“
„En ef fasaninn brennur
við?“
„Það gerir hann áreiðan-
„Ég ætlaði nú upphaflega að skreyta
vegginn í mínu herbergi, en ég ætla að
reyna fyrst liérna og sjá, hvernig þetta tekur sig út“.
lega. Það er langt síðan þú
hefur eldað mat.“
„Frú Connor bjó til svo
góðan mat. Kannske hann
vildi að hún væri hér?“
„Það gerir hann ekki. Ég
hugsa að honum sé alveg
sama þó fasaninn brenni við.“
„En mér er ekki sama! Ég
vil að hann fái góðan mat.“
„Eáttu ekki svona! Farðu
og málaðu þig, það er þýðing-
armeira. Nefið á þér glampar
eins og viti og Þú ert varalits-
laus.“ Hún flissaði. „Annars
er þér víst óhætt að sleppa
varalitnum!“
Ég brosti. „Ég á kossekta
lit.“
„Hefurðu reynt hann?“
„Það hefur ekkert tækifæri
gefizt til þess.“
„Hittirðu ekki Richard í
gær?“
Ég svaraði ekki, en kyssti
hana í kveðjuskyni. Á morg-
un, hugsaði ég þegar hún ók
af stað, á morgun skrifa ég
Richard. Það verður ekki auð
velt að skrifa það bréf. Og ég
vissi að það yrði ekki auðvelt
fyrir hann.að lesa það heldur.
En hélt hann virkilega að ég
hefði gifzt honum ef ég heíði
skilið? Hafði ég sjálf haldið
það? Ef ég hafði halclið það,
hafði ég skilið að það var ekki
rétt þegar hann kyssti núg í
gær. Ég hefði aldrei gifzt hon-
um. Eða hefði ég gert það?
Það var svo erfitt að ákveða
það núna, þegar ég vissi að
allt yrði gott milli okkar Stev
es. Og óg gat heldur ekki hugs
að skýrt í kvöld. Ég leit oft á
klukkuna og velti því fyrir
mér hvenær Steve styngi lykl
inum í skrána.
Það var allt tilbúið þegar
klukkan var að verða hálf-
átta. Húsið var eins og alltaf
áður. Eldurinn skíðlogaði á
arninum í dagstofunni. Það
voru blóm í öllum vösum og
á borðinu voru tvö glös. Það
var ilmandi matarlykt, sem
Steve fyndi um leið og hann
opnaði dyrnar. Svo heyrði. ég
fótatak uppi á lofti og skildi
að Nicky hafði staðið úti í
glugganum og séð pabba sinn
.koma. Nú hallaði hann sér yf-
ir handriðið, andlitið ljómaði
af eftirvæntingu.
„Mamma, hann er að koma.
Hann gengur. Hvar er bíll-
inn?“
„Ég — ég veit það ekki;
vinur. Farðu í rúmið.“
Hann hvarf og ég fó fram í
eldhúsið og lét dyrnar standa
hálfopnar svo Steve gæti séð
að þar -/ar ljós og einhver
inni. Ég heyrði lyklinum snú-
ið í skránni. Ég opnaði ofn-
dyrnar og beygði mig til að
hella sósu yfir fasaninn. Ég
hafði svo mikinn hjartslátt
að ég heyrði ekki fótatak
hans. En ég heyrði undrunar-
óp og dyrnar voru galopnað-
ar.
„Sæll, ástin mín,“ sagði ég.
„Við fáum fasana í kvöld-
mat.“
Á næ$ta augnabliki lá ég í
faðmi hans. Það kraftaverk
skeði að mér tókst að ýta fas-
- aninum inn í ofninn aftur.
„Jenny, Jenny, ég trúi ekki
mínum eigin augum!“
Ég leit brosandi á hann.
„Satt að segja geri ég það
ekki heldur.“
„Ó, Steve.“
Hann kyssti mig aftur.
„Hvar er Ni^ky11 spurði
hann.
„Hann er háttaður. Hvað
aetti hann annað að vera á
þessum tíma dags?“
Ég lét hann fara einan upp
og beið augnablik áðu ren ég
elt.
„Varstu glaður, pabbi?“
spurði Nicky sakleysislega,
þegar ég kom inn.
„Glaðari en nokkru sinni
fyrr vinur minn.“
„Hvar er bíllinn þinn?“
„Ég er búinn að skipta. Við
eigum nýjan bíl.“
„Er hann eins fínn?“
„Mikið fínn.“
„Hvaða tegund er hann?“
„'Franskur bíll.“
„Af hverju fáum við fransk
an bíl?“
„Það skal ég segja Þér á
morgun. Ég segi mömmu það
fyrst.“
„Hvað var þetta með nýjan
bíl?“ spurði ég þegar Nicky
hafði leyft okku rað fara aft-
ur niður.
Steve hellti í glas fyrir mig.
Svo settipt hann við hlið mér
í sófanum.
„Hve mikið veiztu, elskan
mín?“
„Alls ekkert. Ég veit bara
að þú vinnur ekki lengur í
verksmiðjunni. Ég hringdi
þangað til að tala við þig.“
Ég leit í augun á honum.
„Þess vegna er ég hingað
komin, ég lagði saman tvo og
tvo. Ég var á skrifstofunni
þegar þú talaðir við Caroline.
Ég vildi tala við þig, en hún
leyfði mér það ekki. Hún vildi
að Þú fyndir okkur Nicky
hérna.“
Hann tók fasta rutan um
mig.
„Hún hafði á réttu að
standa.11 Hann laut að andlit-
inu á mér.
„Viltu spyrja um eitthvað?
Ég á við annað en bíl ag
stöðu.“
„Nei. Nei, ekkert.“
„Þú veizt víst að ég elska
þig? Að ég get aldrei fyrir-
gefið mér að særa þig.“
Ég kinkaði kolli. „Ég veit
að þú elskar mig, annars
hefðirðu ekki sagt upp.“
„En það er annað, sem ég
þarf að segja þér. Ég kom rétt
eftir að þú fórst.“
Ég sá Steve fyrir mér koma
heim í tómt hús án þess að
vita hvar við værum, hræðslu
hans um að eitthvað hefði
komið fyrir okkur.
„Steve minn! Hvað gerð-
irðu svo?“
„Ég vissi ekki hvað ég átti
að gera. Ég bjóst vað að þú
hefðir ekki þolað þetta lengur
og farið þína leið. Ég fór á
fyllirí.“
„Ástin mín. Ég vona að þú
hafir ekki tekið bílinn?“
„Nei, það gerði ég ekki. Ég
vildi helzt geta skilað honum
í fullkomnu lagi til verksmiðj
unnar næsta dag.“
„En það var ekki von á þér
fyrr en á föstudaginn.“
„Nei. E við Kit rifumst og
þá áttaði ég mig á hlutun-
um.“
„Ég er svo hamingjusöm,“
andvarpaði ég. Svo leit ég
rannsakandi á hann.
„Það er dálítið, sem mig
langar að spyrja þig að.“
„Gerðu það þá.“
„Hvers vegna sagðist þú búa
á „The Royal Hotel“?“
„Af því að ég hélt að ég ætti
að búa þar. Kit sagðist hafa
pantað herbergi handá mér
þar.“
„Fyrir hana líka?“
„Nei, hún ætlaði að búa á
öðru hóteli.“
„Ég skil og þegar þú komst
þangað komstu að því að hún
hafði pantað handa þér her-
bergi á sama stað.“
„Já, þannig var það.“
Ég komst ekki hjá því að
flug¥éiarsiars
Flugfélag íslands
Millilandaflug: Millilanda-
flugvélin Gullfaxi fer til
Glasgow og Kaupmamjahafn
ar kl. 8 í dag. Væntanleg aft-
ur til Réykjavíkur kl. 22.40 í
kvöld. Millilandaflugvélin
Hrímfaxi fer til Glasgow og
Kaupmannahafnar kl. 8 í
fyrramálið. Innanlandsflug: f
dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar (3 ferðir), Blöndu
óss, Egilsstaða, Flateyrar, ísa
fjarðar, Sauðárkróks, Vest-
mannaeyja (2 ferðir) og Þing
eyrar.
Loftleiðir.
Leiguvélin er væntanleg
frá Stafangri og Osló kl. 19 í
dag. Fer til New York kl.
22.30. Saga er væntanleg frá
NewYork kl. 8.15 í fyrramál-
ið. Fer til Osló og Stafangurs
kl. 9.45.
Pan American flugvél
kom til Keflavíkur í morgun
frá New York og hélt áleiðis
til Norðurlanda. Flugvélin er
væntanleg annað kvöld og fer
áfram til New York.
SklpiPi
Ríkisskip.
Hekla er væntanleg til
Reykjavíkur árdegis á morg-
un frá Norðurlöndum. Esja
fer frá Reykjavík í dag vest-
ur um land í hringferð.
Herðubreið fór frá Reykjavík
í gær austur um land í hring-
ferð. Skjaldbreið er á Húna-
flóa á leið til Reykjavíkur.
Þyrill er á Austfjörðum.
Skaftfellingur fer frá Reykja
vík í kvöld til Vestmeyja.
Skipadeild SÍS.
Hvassafell er væntanlegt
til Stettin í dag. Arnarfell fór
í gær frá Akranesi áleiðis til
Skagastrandar, Sauðárkróks,
Dalvíkur, Ákureyrar, Húsa-
víkur og Siglufjarðar. Jökul-
fell fór 14. þ. m. frá Keflavík
áleiðis til New York. Dísar-
fell losar á Austfjarðahöfn-
um. Litlafell er í olíuflutning-
um í Faxaflóa. Helgafell átti
að fara 15. þ. m. frá Stettin
áleiðis til Reyðarfjarðar.
Hamrafell er væntanlegt til
Reykjavíkur 21. þ. m. frá
Batum.
Eimskip.
Dettifoss fór frá Norðfirði
13/8 til Giasgow, Rotterdam,
Bremen og Leningrad. Fjall-
foss fór frá Vestmannaeyjum
11/8 til Rotterdam, Antwerp-
en, Hamborgar og Hull. Goða
foss fór frá New York 11/8
til Keflavíkur. Gullfoss fór
frá Reykjavík 15/8 til Leth
og Kaupmannahafnar. Lagar
foss fór frá Eskifirði 15/8 til
Fredrikstad, Gautaborgar,
Helsinborg Malmö, Áhus,
Leningrad og Hamborgar.
Reykjafoss fór frá New York
14/8 til Reykjavíkur. Selfoss
fór frá Sandefjord í gær til
Köbenhavn, Rostock, Stock-
holm, Riga, Ventspils og
Gautaborgar. Tröllafoss fór
frá ReykjAVik í gærkvöldi til
Hafnarfjarðar, Akraness og
Reykjavíkur. Tungufoss kom
til Hamborgar 16/8, fer það-
an til Reykjavíkur. Katla fór
frá ísafirðf í gær til Sauðár-
króks, Siglufjarðar, Akureyr
ar og Húsavíkur.
Alþýðublaðið — 18. ágúst 1959