Alþýðublaðið - 18.08.1959, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 18.08.1959, Blaðsíða 12
Könnuði 6. var skotið á loft 7. ágúst sl. Hann fer eftir sporbauð, sem er mest 26.400 mílúr frá jörðu en minnst 157 mílur frá jörðu. Hann fer einn liring á 765 mínúíum en búizt er við, að hann verði ár á lofti. Frumherji 1 fór á loft 17. marz 1958. Áætlunartími: 200 ár, Frum- herji 2. 17/2 ‘59, áætlúnartími 10 ár, Könnuður 1. 31/2 ’58, áætlunartími 3—5 ár, Könnuður 4, 26/7 58, áætlun- artínii 1 ár og Snutnik 3. 15/5 ‘58, áætlunartími 15 mán. Jónas Guðmundsson endurkjörinn form. Sambands ísl. sveifast jörna rfélaga SJÖTTA landsþingi Sambands ísl. sveitarfélaga lauk í LIDO ísl. sunnudag. Þingið sóttu, auk 'ittnlendra fulltrúa, gestir frá hinum Norðurlöndunum og i fluttu þeir ávörp í þinglok. — Jómas Guðmundsson var endur- kjörinn formaður sambandsins. Margar ályktanir voru gerð- ar á þinginu. Hér fer á eftir ályktun, er gerð var um Bjarg- ráðasjóð íslands, svo og önnur varðandi endurskoðun sveitar- st j ómarlaganna: „Landsþing Sambands ísl. • sveitarfélaga lýsir samþykki sínu við frumvarp það um Bjargráðasjóð fslands, sem fyrir þinginu liggur og árétt- ar fyrri yfirlýsingar lands- þinga og fulltrúaráðsfunda um að brýn nauðsyn sé á því, að komið verði á fót lánastofn un handa sveitarfélögum, þar sem þeim verði tryggður að- gangur að hæfilegu lánsfé fyr- ir sveitarsjóðina. þeirri endurskoðun verði lokið fyrir n.k. áramót. Verði hins vegar endurskoð- un þessi ekki framkvæmd, fel- ur landsþingið stjórn sam- bandsins að reyna að ná sam- komulagi við stjórn Búnaðar- félags íslands, Fiskifélags fs- lands og-Bjargráðasjóðíslands um þau atriði, sem þeim ber í milli, sé þess kostur, og fá frumvarpið að því búnu flutt á ný á Alþingi.“ ENDURSKOÐUN SVEITAR- STJÓRNARLAGA. „Landsþing Sambands ís- lenzkra sveitarfélaga, fagnar því að ríkisstjórnin hefur nú orðið við margendurteknum áskorunum sambandsins um að skipa nefnd til að endur- skoða sveitarstjórnarlöggjöf- ina og að ný löggjöf yrði sett um tekjuöflun sveitarfélag- Framhald á 2. síðu. Landsþingið skorar á ríkis- stjórnina að láta nú þegar fara fram endurskoðun þá á íögum um Bjrirgráðasjóð ís- lands, sem Efri deild alþingis hefur óskað eftir, og treystir því, að við þá endurskoðun verði tekið fullt tillit til til- lagna þeirra, sem Samband ís- lenzkra sveitarfélaga hefur haft pppi í þessu máli, og að | Heiíí vaín í : SL. laugardag; þegar sfóri I 1 borinn var að hora inni í i \ Smálöndum við Suðurlands- I | braut kom hann niðúir á i : heitt vatn á 1300 m dýpi. En | j það er mesta dýpi, sem borað | j hefur verið niður á hérlendis I | hingað til. | Mlillllilllllllllllllllllflllillllllllllllllllllllllllllllllliiiiiiii Mæðgíur urðu fyrir bifreið LAUST eftir hádegi á sunnu- dag varð umferðarslys á Reykja nesbraut rétt hjá Þóroddsstöð- um. Var það kona ásamt 8 ára dóttur sinni, sem fyrir slysinu varð, og meiddust báðar, en móðirin þó alvarlegar. Mæðgurnar voru að koma í bæinn með Keflavíkurvagnin- um. Fóru þær úr hjá Þórodds- stöðum og gengu aftur fyrir bíl- inn á leið yfir götuna. í sama bili kemur bifreið eftir vegin- um á leið suðureftir, og lendir konan með barnið fyrir henni. Skullu mæðgurnar báðar í göt- una og marðist konan talsvert, en dóttir hennar skrámaðist eitthvað. Konan heitir Júlíana Jóns- dóttir til heimilis að Garðavegi 11 Reykjavík, en dóttir hennar Sigfríður. Yalsmenn á Siglufirði Fregn til Alþýðublaðsins. SIGLUFIRÐI í gær. ÞRIÐJI og fjórði flokkur frá Knaltspyimufélgainu Val hafa verið hér í heimsókn síðan á laugardág þangað til í dag, en þá var förinni heitið til Akur- eyrar. Á laugardaginn lék 3. flokk- ur Vals við KS og tapaði með 0:3 og 4. flokkur tapaði fyrir KS með 1:2. Á sunnudaginn kom 1. og 4. flokkur frá Sauð- árkróki í heimsókn hingað. KS vann 4. flokk með 8;0 og i. f]. með 10:2. Þá lék KS einnig við 3. flokk Vals á sunnudag og sigr aði með 4:3, en Valur vann KS í 4. flokki með 1:0. J.M. 'jfc' MILANO: Lögreglan hand- tók 300 unglinga í herferð sl. tvær nætur. Margir þéirra voru vopnaðir byssum og hníf um. 30 var haldið í varðhaldi. Hver vill kaupa fíunda hlula úr bifreið? Á nauðungaruppboði, sem haldið verður í Reykjavík á morgun verða seldar 18 bif- reiðar og tíundi hlutinn úr þeirri nítjándu. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Sjá auglýsingu frá Borg- arfógetanum í Opnunni. AÐFARANÓTT síðastliðins sunnudags varð maður fyrir bif reið á Laugarnesvegi og hlaut mjög alvarleg mieiðsl. Atvik voru þau, að kl. rúm- lega hálf 4 á sunnudagsnóttina ók bíll norður eftir Laugarnes- vegi. Sky.ndilega sér bílstjórinn að maður gengur í veg fyrir bif reiðina, og fær hann ekki stöðv að bílinn fyrr en maðurinn lend ir framan á honum vinstra meg in. Skipti það engum togum, að hann kastast upp á vélarhús, framan á framrúðu, upp á þak bílsins og að lokum niður á göt- una aftan við vinstri afturhurð. Maður þesgi heitir Þorberg- ur Skagfjörð Gíslason. Talið er, ,að hann hafi verið eitthvað und ir áhrifum áfengis, þegar slysið varð. Þorbergur er maður á miðum aldri. Á samri stundu og slysið varð missti Þorbergur meðvitund og hefur síðan aldrei komizt fylli- lega til sjálfs sín. Hann var þeg- ar í stað fluttur á Landakots- spítalann og liggur þar síðan þungt haldinn. Bíllinn skemmdist mikið, en bílstjórinn kvaddi þegar til lög reglu og gaf skýrslu um málið. Blémadrotfning Hvergerðinga kosin um belgina BLÖMABALLIÐ í Hver:a- gerði var á laugardagskvöldið og var kosin blómadrottning Unnur Jónsdóttir frá Vest- mannaeyjum. Hún varð stúd- ent frá Menntaskólanum að Laugarvatni í vor og starfar við Ljósafoss. Nánar um hana í blaðinu á morgun. Kjalíarinn' yíir- Brunabófafélagið hefur end- 2.3 millj. sl. 3 ár AÐALFUNDUR fulltrúaráðs I og efla brunavarnir og fækka Brunabótafélags fslands var eldsvoðum, svo sem frekast er lialdinn í Reykjavík 13. ágúst s.I. Fulltrúaráðið skipa fulltrú- ar frá öllum kaupstöðum lands- ins utan Reykjavíkur og full- trúar frá öllum sýslum lands- ins. Fundarstjórar voru kjörnir Guðbrandur ísberg, sýslumað- ur, Blönduósi, og Birgir Finns- son, framkvæmdastjóri, ísa- firði, en ritarar Kristinn Júlí- usson, bankastjóri, Eskifirði, og Leifur Einarsson, kennari frá Raufarhöfn. ENDURGREIÐSLUR 23 MILLJÓNIR. Formaður framkvæmdastjórn arinnar, Jón G. Sólnes, banka- fulltrúi, Akureyri, flutti skýrslu stjórnarinnar og forstjóri fé- lagsins, Ásgeir Ólafsson. flutti skýrslu um starfsemi, rekstur og hag félagsins. Hagurinn er mjög góður og rekstur þess hef- ur gengið vel. — Allur hagnað- ur af sjálfri tryggingarstarf- semi s.l. vátryggingarárs var endurgreiddur til félagsmanna og deilda eða alls kr. 965.195.87, en á undanförnum 3 árum hafa endurgreiðslur numið 2.3 mill- jónum. Hrein eign félagsins er rúmar 30 milljónir. Á fundinum mætti forstöðu rnaður brunavarnaeftirlits rík- isins, Erlendur Halldórsson, og flutti skýrslu um brunavarna- málin. Kom fram mikill áhugi fulltrúanna fyrir því, að auka unnt, en Brunabótafélagið hef- ur stutt mjög og eflt bruna- varnir í landinu með beinum fjárframlögum og lánveiting- um, svo o£ útvegun og smíði hentugra slökkvitækja. Stjórn félagsins var endur- kjörin, en hana skipa: Jón G. Sólnes, bankafulltrúi, Akur- eyri, Emil Jónsson, forsætis- ráðherra, Hafnarfirði, og Jón Steingrímsson, sýslumaður, Borgarnesi. í varastjórn eru Sigurður Óli Ólafsson, alþm.., Selfossi, Björgvin Bjarnason, sýslumaður, Hólmavík, og Ólaf- ur Ragnars, kaupmaður, Siglu- firði. ic UPPSALA: Fimm daga ráð- stefna 600 eðlisfræðinga hófst hér í dag. Á dagskrá eru um það bil 250 fyrirlestrar. fullur í gær SAMKVÆMT frásögn lög- reglunnar Vat óvenjumikið um ölvun í gærdag. í gærkvöldi snemma var „kjallarinn“ þegaff yfirfullur. Höfðu menn gerzt heldur stór tækir til flöskunnar til lafrétt- ingar eftir helgina. ■jjf VARSJÁ: Bandaríkjamaður- inn dr. Ralph Bunche, aðstoð- ar-framkvæmdastjóri Samein uðu þjóðanna, er kominn hing að í heimsókn í boði Rapacki, utanríkisráðherra. Fundur Alþýðu- flokksfélags Kópavogs FUNDUR verður haldinn í Alþýðuflokksféla-gi Kópa- vogs í kvöld kl. 8.30 í Al- Þýðuhúsinu við Hverfisgötu, gengið inn frá Ingólfsstræti. Óhreyttur hermaður lézt vera liðsforingi', var handtekinn SÁ ATBURÐUR gerðist suður á Keflavíkurflugvelli í gær- kvöld, að óbreyttur varnar- liðsmaður villti á sér heim- ildir til þess að fá að^ang að liðsforingjaklúbbi hersins. — Légt maður þessi vera liðsfor- ingi, en þegar í Ijós kom, að svo var ekki, var hann hand- tekinn og settur í varðhald. MISSIR TIGNARMERKI. Agi er strangur í her og mun maður þessi missa þau ti.gnarmerki, er hann hafði öðlazt. Verið getur einnig, að við háttalagj sem þessu séu þyngri viðurlög.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.