Alþýðublaðið - 26.08.1959, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 26.08.1959, Blaðsíða 12
 hlauf bílinn í GÆE var liappdrættis- bíll Alþýðuflokksins af- hentur hinum nýja eig- aisda. Sá heppni er Ágúst G. Hróbjartsson, 23 ára gamall togarasjómaður, til heimilis að Miklubrauf 42. Réttur mánuður er nú liðinn síðan dregið var í happdrættinu, en enginn hafðf gefið sig fram með vinningsmiðann fyrr en í fyrradag að Ágúst kom með hann. Voru Iiðnir margir mánuðir síðan hann keypti miðann og var satt að segja búinn að gleyma honum, en rakst svo óvænt á hann niðri í skúffu hjá sér og fór að bera saman við vinnings- númerið. Kunni hann sér vart læti þegar hann sá að númerið stemmdi, því liann hefur Iengi dreymt um að eignast bíl þótt ekki væri svona glæsilegur. Samt er Ágúst ákveðinn í að selja bílinn og kaupa heldur íbúð.. Hann er að vísu ólofaður enn, en hver veit. .. Ágúst hefur stundað sjómennsku á togurum s. 1. 8 ár og er ákveðinn í að gera það framvegis. Hann lýkur prófi úr Sjó- mánnaskólanum næsta Fregn til Alþýðublaðsins. ÓLAFSVÍK í gær. STÖÐUGT er unnið að hafn- Lrframkvæmdum hér. Er veirið ið lengja hafnargarðinn um 31 netra með því að bæta við iann tveim steinkerum, er teypt voru í fyrra. Hefur veirk ietta þó gengið nokkuð erfið- ega undanfarið. Næsta ár er ætlunin að ;ngja hafnargarðinn enn um 4 metra, svo að alls á garður- m að lengjast um 55 metra. dlt fer þetta þó eftir því hvern l gengur að útvega fjármagn :l framkvæmdanna. lUKIN útgerð Útlit er nú fyrir, að Ólafsvík ; að verða vaxandi útgerðar- ær. Tveir nýir bátar eru Þégar omnir til Ólafsvíkur og vona xenn hér, að þeir haldist kyrr- EKKI stunda neinir Akranes fcptar reknetaveiðar í Faxaflóa |»iessa stundina. En í ráði er, að Syeinn Guðmundsson, eign Haraldar Böðvarssonar hefji leit innan skamms. ir. En auk þess standa vonir til þess, að staðnum bætist enn tveir nýir bátar. Eru þá orðnir 16 stórir bátar í Ólafsvík. ' TREG REKNETAVEIÐI Undanfarið hefur rekneta- veiðin gengið treglega. Heíur hún nær því legið niðii undan- farið. Vonir standa til, að hún glæðist á ný. Dráflarbrauf í SAMRÁÐI við vitamála- stjóra hefur hafnícnefnd Akur ej'rar falið Þorbirni Karlssyni, verkfræðingi ihjá vitamála- stjóra, að gera útboð á 1600 tonna dráttarhraut með hliðar- færslu fyrir Akureyrarhöfn. Jafnframt á verkfræðingur- inn að gera kostnaðar- og rekstr aráætlun fyrir slíka braut. Þá hefur hafnarnefndin beð- ið Magnús Konráðsson, verk- fræðing vitamálalskriifstofunn- ar, að vinna áfram að áætlun, er varðar þá hlið málsins, sem snertir byggingaframkvæmdir tæknilega. * NÝJU DELHI: Ayub Khan, forseti Pakistan, og Nehru, forsætisiáðherra Indlands, munu halda með sér sinn fyrsta fund, hér 1. septem- ber. Verður fundur þeirra á flugvellinum hér, er Ayub stanzar hér á leið sinni frá Karachi til Dacca í Austur- Pakistan. 40. árg. — Miðvikudagur 26. ágúst 1959 — 180. tbl. NOKKUR skip köstuðu á svæðinu 42 sjómílur SAA af Seley í fyrrinótt. Aðeins einn bátur hafði tilkynnt síldarleit- inni á Raufarhöfn komu sína til lands, Áskeli með 800 tunnur. Veður var lygnt. Heyrzt hafði um eft’ctalda báta, sem höfðu fengið afla: Helga RE 400 tunn- ur, Snæfell 800 mál, Fagriklett ur 300 mál, Pétur Jónsson 600 FRÉTTIN um að brezkum vísindamanni hafi tekizt að framleiða orku á nýjan hátt hefur vakið gífiirlega athýgli. Brezku blöðin velta þessum tíð indum fyrir sér í ritstjórnar- greinum í dag og margir láta í Ijós ótta um, að Bretar„tapi foir ustunni á þessu syiði vegna ó- nógs stuðnings við vísindi í landinu. Talið er að Bandaríkja menn muni taka forustuna í notkun þessa nýja orkutækis. Tæki þetta er eins konar raf- hlaða og myndast rafrnagn í henni er vetni blandast súrefni eftir vissum leiðum. Töfrakassi þessi lltur út eins og 30 þuml- unga langur kassi, sem troðið er í grammófónplötum. Francis Bacon, sem fann tæk ið upp, hefur unnið að uppgötv un sinni í 20 ár. Telur hann að með aðstoð þess .verði hægt að knýja bíla. skip og flugvélar. Bislet-Seikirnirí Siif ar þriðjii 1500mh!ð Yrðu slík farartæki algerlega hljóðlaus og reyklaus. Banda- ríkjamenn eru sagðir va?nta mikils af Þessum orkugjafa, einkum til þess að sjá fyrir raf magni í eldflaugum og gervj- tunglum og geimförum, og einn Framhald á 2. síðu. Mikil áta er á mið- unum og veður gott mál og Sigurður Bjarnason 450 mál. Eskifirði í gær. — í gær- kvöldi varð allvíða vart við tals verða síld, Þæði út af Gerpi, Tangaflaki og sunnan við Beyð arfjarðardýpi. Nokkrir bátar fengu ágæta köst, en illt var að eiga við síldina. Veður var dá- gott, en heldur slæmt sjólag. Útlitið er því heldur gott. Talsvei'ð síld hefur mælzt á as- dic-tæki og eru sjómenn bjart- sýnir á veiðina, ef veður helzt gott, enda er mikil áta í sjón- um. í dag er vitað um að Hólma- nes, Jón Kjartansson, Heimir (Stöðvarfirði) og Svanur (Rvík) hafa fengið afla, en ekki hve mikið. Annar eru mörg skip hætt og virðast hafa farið óþarf lega snemma. Nokkur skip eru væntanleg hingað í kvöld með síld til sölt- unar. Alls hafa verið brædd hér nær 20 þúsund mál, en saltaS hefur verið í 5500 tunnur. A.J. Á BISLET-leikjunum, sem háðir voru í gærkvöldi í sum- arliita og örlítilli golu, varð Svavar Markússon þriðji í 1500 m. hlaupi á 3:50,8 mín., sem er bezti tími, sem hann hefur náð í vegalengdinni f ár, en met hans er 3:47,8. Fyrstur í hlaupinu varð Hamarsland, Noregi 3:49,4 og annar Stam- nes, Noregi 3:49,8. Svavar sleppti 800 en fór í 1500 í stað- inn. Kristleifur tók ekki þátt í 5 km. hl. vegna meiðslanna frá Karlstad. f langstökki setti Roar Bertelsen nýtt norskt met, stökk 7,62 m. NORÐURLANDAMET UNGLINGA. Annar árangur mótsins var sem hér segir; 100 m.: Bunæs, Noregi, 10,5 sek., Radford, Eng landi, 10,7, Bamper, V-Þýzkal., 10,8 og Jarzemborski, Póllandi 10,8. í sleggjukasti sigraði Evrópumeistarinn Rut, Pól- landi, 63,76 m., annar varð norski methafinn Krogh 58,54 m. 800 m.: Moens, Belgíu, 1:49, 8 mín., Paul Schmidt, V-Þ. 1: 50,4 mín., Rawson, Englandi, 1:51,1, Makomaski, Póllandi, 1:51,1, Bertil Lund, Noregi, 1: 51,4, Bentzon, Noregi, 1:51,7 (Norðurlandamet unglinga), Svavar Markússon átti gamla metið, sem var 1:51,8. í 400 m. hlaupi sigraðj Evrópumeistár- inn Wrighton á 47,0 sek„ en snnar varð Kinder, V-Þ. 48,7. í 5000 m. hlaupinu sigraði Gill- igan, Englandi á 14:17,8, en annar Ernst Larsen, Noregi 14: 18,6 mín. LONDON, 25. ág. (REUTER). Radarmerki hafa verið send frá Englandi, látin endurkastast af tunglinu og náðst aftur í Texas, scgir í tilkynningu hér í kvöld. Merkin voru send snemma í morgun frá radíó-stjörnukík- inum í Malvern, sem notaður hefur verið til að fylgjast með gervitunglum Rússa og til að gera tilraunir með bergmál frá tunglinu. Mei'kin náðust dreift í Mal- vernkíkinn Og annan nokkru minnj í háskólanum í Texas, eftir að hafa farið um 750 000 km leið fram og til baka. Þetta afrek var sameiginleg tilraun meðlima radíóstjarn- fræðihóps á radarstöðinni og rafmagnsverkfræðideildar Tex as-háskóla í Austin. Með því að i bera saman merkin, er náðust á báðum stöðum, er vonast til, að | fá megi frekari upplýsingar um ! yfirborð tuiwlsins. Þá geta merkin einnig sýnt hvernig nota megi tunglið til endur- varps, er senda skal radíó- og sjónvarpssendingar um langa vegu hér á jörð. au.-þýzkur sendiherra BERLÍN, 25. ág. (REUTER). Rudolf Dölling hershöfðingi, fyrrverandi vara-landvarnaráð herra Austur-iÞýzkalands, hef- ur verið skipaður sendiherra í Moskvu, segir ADN í dag. Táragas j gegn konum ! NAPOLI, 25. ág. (REUTER). Italska lögreglan beitti í dag táragasi í baráttu við 200 kon- ur, sem eru í verkfalli í niður- suðuverksmiðju í Mugnano hér í £i;-enndinni. Er sagt, að kon- urnar hafi verið að reyna að brjótast inn í verksmiðjuna til að reyna að neyða starfssystur sínar, er ekki höfðu gert vark- fall, til að hætta vinnu. Einn lö{,r:-eglumaður mun hafa særzt af steini. TAIPAEI: Fallbyssur þjóð- emissinna og kommúnista þögðu í dag á Amoy-Quemoy svæðinu, en í gær var fyrsti af- mælisdagur vandamálanna á Formósusundi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.