Alþýðublaðið - 03.09.1959, Síða 2
‘VEÐRIÐ: Suðvestan kaldi;
skúrir.
☆
LISTASAFN Einars Jónsson-
ar, Hnitbjörgum, er opiö á
sunnudögum og miðviku-
dögum frá- kl. 1.30—3,30.
MINJASAFN bæjarins. Safn
deildin Skúlatúni 2 er opin
daglega kl. 2—4. Árbæjar-
safn opið daglega frá kl. 2
.—6. Báðar safndeildir eru
lokaðar á mánudögum.
☆
SAMTÍÐIN, septemberblaðið,
er komið út, fróðlegt og fjöl
breytt. Forustugreinin nefn
ist: Kvikmyndir í þágu
heilsuverndar, og er þar
sagt frá mjög merkum
framkvæmdum erlendis í
þessum efnum. — Ýmislegt
annað efni er í blaðinu: —
teridgeþájtu.r, Skákþáttur,
. Kvennaþáttur, Framhalds-
sagan, gamansaga, vinsæl-
ir dægurlagatextar, drauma
ráðningar bréfaskóli á ísl.,
skopsögur og skapgerðar-
próf, o. fl. Kápumynd: Ava
Oardner og Clark Gable í
nýrri kvikmynd.
☆
ÚTVARPIÐ t DAG: — 12.50
„Á frívaktinni“. 19.00 Tón-
leikar. 20.00 Fréttir. 20.30
Samfelld dagskrá í tilefni
40 ára afmælis flugs á ís-
landi. (Sigurður Magnús-
son fulltr. undirbýr dag-
skrána). 22.00 Fréttir. —
22.10 Kvöldsagan: „Sveita-
sæla“ eftir Lars Dilling í
þýðingu Málfríðar Einars-
dóttur. Fyrri lestur. (Edda
Kvaran leikkona les). 22.30
Sinfónískir tónleikar. 23.00
Dagskrárlok.
☆
HÚSMÆÐRAFÉLAG Rvíkur
fer í berjaferð sunnudag-
inn 6. sept. Upplýsingar í
síma 14442 og 15236.
Bændaffokkur
Framhald af 5. síðn.
umbótastefnu, samstarfs á
jafnréttisgrundvelli, án nokk-
urra valdahjámiða, eins og
alltaf hefur gætf hjá Fram-
sóknarflokknum fram að
þessu. Og alveg sérstaklega
verður flokkurinn að gefa
samvinnuhreyfinguna og kaup
félögin frjáls undan flokks-
klafa sínum. Þar á fulikomið
jafnrétti að ráða, hvað sem
pólitískum skoðunum líður,
og atvinnu- og skoðanakúgun
á ekki að þekkjast né þá líð-
ast á vegum hennar né þeirra.
Hér er það sem Framsókn-
arflokkurinn velur milli
iauða og lífs á næstunni. Það
var nefnilega alger misskiln-
ingur hans, að hann væri að
berjast fyrir lífi sínu í vor
meo andstöðunni gegn réttlát-
ari Kjördæmaskipan. Líf hans
er kornið undir því, að hann
hagi séi eins og siðaður flokk-
ur gagnvart samvinnuhreyf-
ingunni og gagnvart þeim
flokkum eða flokk, sem vildu
þá með honurn gjarnan hafa
samstarf.
i (Alþýðumaðurinn).
Lík bílstjórans borið í sjúkrabifreiðina,
Slysið við
Faxagarð
Framhald af 1. síðu.
ENGIN BREMSUFÖR.
Ljósmvndari og fréttamaður
frá Alþýðublaðinu fóru þegar
á staðinn og fylgdust með björg
unarstarfinu. Fer hér á eftir
frásögn þeirra:
Ekki var að sjá á bryggjunni
nein bremsuför eða önnur för
eftir hiól bifreiðarinnar. Lög-
reglumenn komu strax á vett-
vang, en ekki sáu þeir nein
merki eftir bílinn á bryggjunni.
Voru þegar gerðar ráðstafanir
til að fá kafara til þess að kafa
niður að bílnum og stóran krana
til þess að ná bílnum upp. Tók
þetta nokkurn tíma. Stór krni
frá Reykjavíkurhöfn kom fljótt
á staðinn og kafari var kominn
á vettvang kl. 1.45. Var það
Andri Heiðberg.
12 METRA í SJÓ FRAM.
um, svo að rnannfjöldinn, er
safnazt hafði saman, sæi það
ekki áður en ættingjar hins
látna fengju fréttina.
Það gekk fljótt fyrir sig að
ná bílnum upp. Er bíllinn var
kominn upp úr sjónum og hékk
þarna í lausu lofti, sáu menn
greinilega, að þakið hafði fall-
ið mjög saman. rúður voru
skrúfaðar niður og framrúðan
mölbrotin. Bíllinn var nú tek-
inn inn á bryggjuna og athug-
aður nánar. Það fyrsta, er lög-
reglumenn urðu varir við, var
það, að allar hurðir voru harð-
læstar. í framsætinu var hattur
bilstjórans, en svisslyklarnir
fundust ekki.
STALLUR Á BRYGGJU-
ENDANUM.
Ólíklegt er talið, að bíllinn
hafi getað farið þarna fram af
bryggjonni af slysi. Á bryggju-
20—30 em. hár, og það þarf
nokkra ferð til þess að fara yfir
hann. Geta má þess, að bíll Sig-
urjóns heitins í Ræsi fór þarna
fram af á sama stað.
LÍFGUNARTILRAUNIR
ÁRANGURSLAUSAR.
Gerðar voru lífgunartilraunii'
á bílstjóranum en þær báru eng
an árangur enda langt liðið frá
því að bíllinn fór fram af
bryggjunni.
KVÆNTUR OG ÁTTI
4 BÖRN.
Alþýðublaðið var beðið að
birta ekki nafn bílstjórans að
svo stöddu, þar eð allir ætt-
ingjar þans >ifðu ekki fengið
fregnina um atburð þennan, en
bílstjórinn var kvæntur og átti
fjögur börn, sem öll munu upp
ko,min að því er Alþýðublaðið
bezt veit.
Starf kafara gekk mjög greið-
lega. Hann kom eftir skamma
stund upp með líkið. Var því
fljótlega náð upp á bryggju og
komið í sjúkrabifreið hið snar-
asta. Ekki sá neitt að ráði á
líkinu, utan hvað svo virtist
sem hendurnar hefðu skorizt,
er framrúðan í bílnum hafði
sprungið. Bíllinn var um það
bil 12 metra frá bryggjunni og
virtist það benda til þess, að
nokkur ferð hefði verið á hon-
um, er hann fór fram af.
RÚÐUR SKRÚFAÐAR
NIÐUR.
Nú var hafizt handa um það
að ná bílnum upp. Kafarinn fór
niður, sló vír um bílinn og tók
jafnframt númerið af hon-
PÓLSK stjórnarvöld hafa
boðizt til að veita fslendingi
styrk til náms í Póllandi skóla-
árið 1959 og 1960.
Kemur til greina að veita
styrk til háskólanáms, vísinda-
legs framhaldsnáms, rannsókn-
arstarfa og náms við listahá-
skóla.
Umsóknir þurfa að hafa bor-
izt Menntamálaráðurteytinu f.yr
ir 20. september næstk.
svipfur þingsæti sinu
ÓSKAR JÓNSSON í Vík, sem
sat á sumarþinginu fyrir Fram-
sóknarfíokkinn eftir sigur í kjör
dæmi sínu, hefur nú verið gerð-
ur afturreka, sendur heim, og
fær ekki að skipa eitt af þremur
eístu sætum listans í Suðurlands
kjördæmi, en Framsókn getur
i mesta lagi gert sér vonir um
að hreppa þrjá þingmenn í hér-
aðinu.
Þesi málalok harðrar innan-
flokksdeilu gegna mikilli furðu,
þar sem flokkurinn átti á sumar
þinginu þrjá þingmenn af svæð-
inu, og töldu flestir eðlilegast,
að þeir væru áfram í þremur
efstu sætunum. En hvorki Ágúst
Þorvaldsson á Brúnastöðum 1.
þingmaður Árnesinga né heldur
Björn sýslumaður Björnsson, 2.
þingmaður Rangæinga, vildu
víkja úr efri sætunum tveimur
og taka á sig áhættuna af því
að vera í þriðja sætinu og þá
töldu Vesm.eyingar ekkj væn-
legt til kjörfylgis í Eyjum, að
hafa Skaftfelling í baráttusætinu
Héldu þeir fast fram frambjóð-
anda sínum frá í vor, Helga
Bergs, verkfræðingi úr Reykja-
VÍka
Þannig hafa Framsóknarmenn
svipt Skaftfellinga með öllu
þingmanni sínum, því ekki þyk-
ir líklegt, að Sjálfstæðismenn
eigi á lausu vonarsæti á sínum
l lista.
Á fundi á Selfossi á föstu-
daginn var deilan til lykta leidd
eftir hörð átök og á þann veg,
að Reykvíkingurin var settur í
vonarsætið en þingmaður Skaft-
fellinga skör lægra og í von-
laust sæti.
Framisóknarmenn á Suður
landi eru margir sárreiðir yfir
þessum málalokum og segja frá
því, að Reykvíkingar, nokkrir
helztu forustumenn flokksins,
hafi síðustu vikurnár oftsinnis
brugðið sér austur í sveit til að
kynna fyrir bændum Reykvík
inginn, sem á að verða fulltrfxi
þeirra á þingi í stað heima
mannsins í Vík.
LONDON: — Hinn rússneski
fylgihnöttur sólarinnar hefur
nú farið um 310 millj. mílna
vegalengd, síðan honum var
skotið á loft fyrir átta mánuð-
um. Hann fer 14,9 mílur á sek.,
en kringum sólina fer hann á
450 dögum.
Eftir fimm ár verður gervi-
hnötturinn tiltölulega nálægt
jörðu, en þó einkum og sér í
lagi verður hann í nánd við
jörðu í janúarmánuði árin 1975,
2028 og 2044.
BUENOS AIRES: — Til-
kynnt hefxxr vnríS, að Carlos
Toranzo Montero, yfirmaðut’
argentíska hersins hafi verið
leystur frá störfum. Engin skýe
ing er gefin á þessu.
oOo
HONG KONG: — Kanadísk
þingkona, sem nýkomin er úr
10 daga kynningarferðalagi um
Kína, h°íur látið svo uramælt,
að kínverska þjóðin sé algjör-
lega undirokuð af landsstjórn-
inni og sér óaði við því, hví-
lík vinna væri lögð á almenn-
ing í Kína.
oOo
KENYA: — Louis S. B. Leak
ey safnvörður mun halda blaða
mannafund á morgun, þar sem
hann gndr fulla grein fyrir
ævagamalli hauskúpu, sem
kona hans fann í Tanganyika í
júlí s. 1. Leakey hefur látið svo
uxpmælt, að hauskúpa þessi
gæti verið allt að milljón árá
gömul, hún sé ekki geymd á
safninu, en öðrum öruggum
stað.
oOo
RÓM: — Antonio Segni, for-
sæitsráðherra og Giuseppa
Pella, utanríkisráðherra Ítalíu,
fóru flugleiðis í dag til París-
ar á fund Eisenhowers.
Fjarskipfakerfið
Framhald af 12. síSa.
arra fyrirbæra, er gera venju-
legar stuttbylgjur ónothæfar,
og því helzt öruggt radíósam-
band jafnvel við verstu hlust-
unarskilyrði.
Kerfi þetta er, í stórum drátt-
um, fólgið í því að við radar-
stöðvarnar við Keflavík, á
Straumnesi, Langanesi og
Stokkanesi við Hornafjörð, ef
komið fyrir stórum ultrastutt-
bylgjustöðvum til viðskipta við
flugvélar. Þessum stöðvum öll-
um er stjórnað frá flugstjórn-
armiðstöðinni í Reykjavík. Til
þess að hægt sé að stjóma stöðv
unum frá Reykjavík hefur ver-
ið komið á beinu sambandi við
þær með nýjustu tækni. Slík-
um samböndum verður líka
komið á við helztu flugvelli
landsins. Á næsta ári er ákveð-
ið að auka kerfið með sam-
tengdum stöðvum, sem reistar
verða á Vaðlaheiði, Fjarðar-
heiði, Skálafelli við Esju og í
Vestmannaeyj um.
Auk þessa hefur verið komið
upp I.L.S.-bliixdlendingarkerfi
á Keflavíkurfhsgvelli og er það
rekið af íslcnzku flugmála-
stjórninni.
Öll þessi tæki eru fengin að
láni hjá flugmálastjórn Banda-
ríkjanna (United States Feder-
al Avitation Agencys - F.A.A.)
til 15 ára, samkvæmt samkomu-
}agi, sem flugmáiastjóri, Agnar
Kofoed-Hansen, undirritaði í
Washington á s.l. hausti. Nokk-
uð af þessum tækjum hefur ver-
ið afhent Póst- og símamála-
stjórninni og verða þau notuð
til að endurbæta talsímaþjón-
ustuna hér á landi. En Póst- og
símamálastjórnin lætur í stað-
inn fiugmálastjórninni í té tal-
rásir, sem tryggja samböndin
milli flugvallanna. ,
2 3. sept. 1959 — Alþýðublaðið