Alþýðublaðið - 03.09.1959, Síða 9

Alþýðublaðið - 03.09.1959, Síða 9
( ÍÞráftir »3 NÆST síðasti leikur íslands- mótsins í I. deild fc'ir fram á LaugardalsiVel^inum á þriðju- dagskvöldið var. Þróttur og Ak- urnesingar áttust við. Sigruöu hinir síðarnefndu, svo sem við var búist með yfirburðum. — Skcruðu alls finim mörk gegn engu. Þrátt fyrir mikla sókn Ak- urnesinga í fyrri hálfleiknum og ótal tækifæri, tókst þeim ekki að skora nema aðeins einu sinni. Kom mark þeirra uppúr þvælings-sókn og þvögu. Það var Þórður Jónsson, sem renndi knettinum í markið. Markvörð- ur Þróttar, Þórður Ásgeirsson, bjargaði oft vel, eins og t. d. er Helgi Björgvinsson var kominn innfyrir og í opið færi, en hann snaraðist fram gegn honum, — | lokaði markinu, en skot Helga ! sendi knöttinn í hann og hi’ökk síðan út fyrir endamörkin, —- Eins er Ríkharður, Helgi og Þóiður J., sóttu skipulega fram, og Þórður skaut úr sena- I ingu Helga föstu skoti. Það skot, j var örugglega varið. Um mið- | bik hálfleiksins fengu Þróttar- j ar hornspyrnu, sem var vel tek- j in og skotið úr hsnni af lofti, ' að markinu, en knötturinn : flaug rétt utan við stöng. — ! Qverjandi ef á markið hefði komið. — Var þetta eitt bezta tækifæri Þróttar í leiknum, til að skora úr. Þrátt fyrir það, þé Þróttur ^ gildi mikið afhroð í mörkum, , í síðari hálfleiknum og ætti [ mjög í vök að verjast, var bar- Framhald á 10. síðu Enska knattspyrnan: ArsenaS Wolves 3 gegn 3 DEILDARMEISTARARNIR, Wolverhampton urðu að láta sér nægja jafntefli -gegn Arsen- al á laugardaginn, 3:3. „Úlfarn- iir“ höfðu yfir í hálfleik, 1:0, það var Mike LiII, sem skoraði. — Arsenal gaf sig ekki og átti á- gætan leik eftir hlé, tóku tvi- vegis forystuna, 2:1 og 3:2, áð- ur en Úlfunum tókst að jafna 5 mín. fyrir leikslok. David Herd skoraði tvisvar fyrir Airsenal og Danny Clompton, h. úth., gerði þriðja markið. Normann Deelcy var bezti maður Úlfanna og gerði tvö mörk, annað með á- gætum skalla. Blackburn og Notthingham Forest gerðu einnig jafntefli og West Ham vann Burnley ó- vænt með 3:1. Mesti áhorfenda skari dagsins, 53,275 sáu Manch Utd. sigra Newcastle með 3:2. Það er fyrsti sigur M. U. á keppnistímabilinu. Landsliðs- maður M. U. Dennis Violett hafði skorað tvívegis er 13 mín. voru af leik, en miðherji New- castle Len White skoraði á 25. mín. Nokkru síðar bætti Bobby Charlton þriðja markinu við fyrir M.U. Á síðustu mín, sótti Newcastle ákaft og rétt fyrir leikslok skoraði Allchurch. — Newcastle er nú eina 1. deildar- liðið, sem ekki hefur hlotið stig. Chelsea var óheppið, mið- framvörðurinn John Mortimore varð að fara út af eftir 25 mír.. og liðið tapaði 1:3 fyrir Leieest- er. Mortimore varð að fara á sjúkrahús, en meiðslin voru ekki eins alvarleg og haldið var. Nýju liðin í 1. deild, Fulham og Sheffield Wed., sigruðu á laugardaginn. Fulham vann Blaekpool 1:0, þrátt fyrir meiðsli landsliðsmannsins J. Haynes, sem var haltur mestall an leikinn. Sheff. Wed. sigraði Manch. City með 1:0. Eftir þrjár umferðir hefur engu af hinum 22 liðum í 1. deild tekizt að sigra í ölium leikjum. Wolves, Blackburn og West Ham hafa öll 5 stig, en Blackburn er efst vegna hag- stæðrar markatölu. Eina liðið, sem hefur þrjá sigra að loknum þrem leikjum i ensku keppninni er 2. deildar- liðið Hudders'field, sem sigraði Scunthorpe með 2:0. Framhald á 10. síðu. Þessi mynd er frá lOOm. hlaupinu í Málmey á dög- unum, sigurvegari varð Zielinski, Póllandi, — en annar er Hilmar Þor- björnsson. Þeir hlutu báð- ir sama tíma, 10,5 sek. A eftir þeim eru beztu spretthlauparar Svía, Ove Johnsson, Bertil Nord- beck, S.Á. Lövgren og Björn Malmroos. Það var svolítið línu- brengl hjá okkur í gær í greininni um Unglinga- meistaramótið, en von- andi hafa lesendur kom- izt fram úr því. Nú birt- um við fleiri myndir frá Unglingamótipu, sú stóra sýnir Brynjólf Ingólfs- son afhenda verðlaun fyr- ir spjótkast, en þar sigr- aði Sigmundur Hermunds son, annar varð Kristján Stefánsson og þriðji Ægir Þorgilsson. Kúluvarpar- inn er Arthúr Olafsson, UMSK, sem varpaði kúl- unni lengst eða 13,19 m., en þriðja myndin er af hinum bráðefnilega Ak- ureyring, — Ingólfi Her- mannssyni, sem sigraði bæði í 110 m. grind og stangarstökki og stökk stökk 1,70 í hástökki. Ljósm.: Þorv. Óskarsson WWWWVWWWWWWWWWMWWWWWWWWWW SyÍARNIR byrjuðu síðari dag landskeppninnar gegn Finn um af miklum glæsibrag og sænsku áhorfendurnjr voru farnir að eygja sænskan sigur, en sterkur finnskur endasprett- ur kollvarpaði þeim hugmynd- um. 400 mL grindahlaup: Trollsás, S, 51,9, Rintamáki, F, 52,2, Lind gren, S, 53,5, Karlsson, S, 53,9, Mildh, F, 53,9, Silvennoinen, F, 54,2. Trollet, eins og hann er kallaður í Svíþjóð tók strax forystuna og fór geyst. — Rinta máki nálgaðist litla Svíann á endasprettinum, en ekki nóg. — Mildh er ekki í æfingu og sænska íþróttablaðið sagði t.d. að hann hefði virkað eins og þungavigtarhnefaleikari, en hann barðist eins og Ijón. 1500 m. hlaup: — Waérn S. 3:45,4, Salonen F. 3:46,6, Jons- son S. 3:46,8, Holmstrand S. 3:48,2, Hákkinen F. 3:49,6, Vu- orisalo F. 3:51,6. Waern sigraði létt, en mest kom á óvart frammistaða landa hans, sér- staklega Sten Jonsson, sem varð þriðji. 200 m. hlaup: — Strand F. 21,6, Malmroos S. 21,6, Rekola F. 21,6, Hellsten F. 21,6, West- lund S. 21,7, Jonsson S. 21,7. — Úff! þarna var barizt upp á líf og dauða og ekki var hægt að úrskurða röðina fyrr en fhoto- finish mynd hafði verið skoðuð. Svíarnir hlupu beygjuna vel, én finnski endaspretturinn var of sterkur, aðens Malmroos tókst að halda í við Finnana. 3000 m. hindrunarhlaup: — Norberg S. 8:48,0 (metjöfnun), Tjörnebo S. 8:48,4, Tedenby S. 8:48,9, Koivunen F. 9:00,4, — Laine F. 9:04,4, Virtanen F. 9:07,6. Þarna kom sænskur stór sigur og Norberg jafnaði met Tjörnebos. Finnarnir voru mun slappari, en búizt hafði verið við. Spjótkast: Fredriksson S. 77,93, Paananen F. 73,77, Kuis- ma F. 72,33, Brandt S. 70,46, Sillanpáá F. 69,47, Lúning F« 68,49. Þó að Fredriksson hafi kastað lengra en Finnarnir í ár bjuggust flestir við finnskum sigri, en Svíinn náði einu góðu kasti, næsta kast hans var 63,82 m.! 10000 írv hlaup: — Saloranta F. 30:05,8, B. Jonsson S. 30:08,2, Rantala F. 30:09,0, Korpi F. 30:09,6, S. Jönsson S. Áhlund S. 30:18,4. — Saloranta sigraði örugglega, en Jönsson var sterk ari en Svíar höfðu reiknað með. Kúluvarp: — Nisula F. 17,07 m., (Norðurlandamet), Udde- bom S. 17,02, Eklund S. 16,41, Kunnas F. 16,27, Mákinen F. 16,17, Wachenfeldt S. 15,65 m. — Uddebom tók forystu í fyrsta kasti og setti sænskt met og Svíar voru bjartsýnir, en í 4. umferð náði Nisula ágætu kasti, 17,07, nýtt Norðurlandamet og Uddebom átti enga möguleika á að bæta sig. Stangarstökk: — Landström F. 4,40, Joriasson F. 4,35, Sutin- en F. 4,30, Lundberg S. 4,20, Rinaldo S. 4,20, Ritzman S. 4,20 — Þarna kom rotfiögg á Svíánn — þrefaldur finnskur sigur, — sem ekki kom á óvart, en gerði út um keppnina. Landström reyndi við 4,58, nýtt Norður- landamet, en átti enga mögu- leika. Þrístökk: Eriksson S. 15,51, Rahkamo F. 15,38, Laitinen F. 15,35, Tamminen F. 15,17, Karl- bom S. 14,80, Norman S. 14,41. Geysispennandi keppni milli kunningja okkar frá í sumar, Sten Eriksson og Rahkamo sem hafði forystu þar til í síðustu umferð að Eriksson undirbjó sig vel og fór fram úr við ó- stjórnleg fagnaðarlæti. 4x400 m. boðhlaup: Finnland, 3:11,1, Svíþjóð, 3:11,8. Úrslit: Finnland 209 og Svíþjóð 200. ■ ■ 7,97 m. í langsl. j ■ UM síðustu helgi hóf- : ust Pan-amerísku leikirn- ; ir svokölluðu í Chicago. • AHs taka 2200 íþrótta- : nienn og konur frá 24 ■ þjóðum þátt í leikjunum • og er keppt í ýmsum í- • þróttagreinum, en hæst : ber frjálsíþróttirnar. ■ Á fyrsta degi mótsins j urðu óvænt úrslit í lang- ; stökki, er Iítt þekktur • Bandaríkjamaður, Irving í Robertson, sigraði glæsi- : lega með 7,95 m., en ? annar varð Greg Bell, : 7,59 m. Ray Norton sigr- ■ aði í 100 m. á 10,3 sek., • en annar varð Agostine, : 10,4 sek. Culbreath sigr- ■ aði í 400 m. grind á 51,2 ■ sek., Dumas í hástökki, : 2,08 m., annar Gardner, ■ 2,03 m. Don Bragg bar ■ sigur úr býtum í stangar- j, stökki með 4,62 og Hall í : sleggjukasti, 58,72 m. — ; Allir þessir sigurvegarar S eru Bandaríkjamenn. : Við birtum meira frá ■ þessu móti á morgun. Alþýðublaðið —- 3, sept. 1959 Q)

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.