Alþýðublaðið - 04.09.1959, Page 4

Alþýðublaðið - 04.09.1959, Page 4
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson. — Ritstjórar: Benedikt Gröndal, Gísli J. Ástþórsson og Helgi Sæmundsson (áþ.). — Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björg- Vin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýs- ingasími 14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgata 8—10. Vinstri og hœgri SVO er nú komið, að varla ræðast tveir menn við um stjórnmál án þess að orðin „vinstri” og „hægri“ séu nefnd. Þessi orð hafa í hugum manna óljósa merkingu, og virðast sósíalistískir verka- lýðsflokkar vera taldir til vinstri, en íhaldssamir fjármagnsflokkar til hægri, og svo er reynt að koma pólitízkum viðrinum eins og Framsókn fyr- ir einhvers staðar á skálanum. Sannleikurinn er sá, að þessi hugtök eru allt- of mikið notuð af þeirri einföldu ástæðu, að þau eru orðin harla óljós.Þessvegna getur það gerzt, að íhaldið segist ekki vera neinn „hægri flokkur“ í rauninni, framsókn þykist vera eini sanni „vinstri flokkurinn“ og svo framvegis. Allt mótast þetta af þeirri staðreynd, að hér á landi er almennt talið að vænlegra þyki til pólitísks fylgis að geta kallað sig „vinstriflokk“ af einhverri gráðu. Högíökin um „vinstri“ og „hægri“ í stjórn málum eru upprunnin í byrjun frönsku stjórn- arbyltingarinnar. Þá sátu byltingarmenn, þeir sem börðust fyrir „frelsi, jafnrétti og bræðra- lagi“, vinstra megin í sal, en aðallinn, sem barð- ist við að halda í sérréttindi sín, hægra megin. Ef fylgt er hinni upprunalegu merkingu orð- anna verður flokkur að styðja ,frelsi, jafnrétti og bræðralag“ til að geta kallazt sannur vinstri- flokkur. Kommúnistar eru á móti frelsi, afnema það, þegar þeir koma til valda, setja á akæði öreig- anna. Þeir eru því ekki sannur vinstriflokkur. Framsókn berst gegn jafnrétti með hinni stein- runnu afturhaldsstefnu sinni í kjördæmamálinu. Hún vill ekki, að borgaramir njóti jafnréttis við kjörborðið. Hún er því fjarri því að geta kallað sig vinstriflokk. Loks er íhaldið á móti sönnu bræðralagi, því grundvallarkenning þess er taumlaus samkeppni einstaklinganna um gróða og gæði, svo að ekki verður það kallað vinstri flokkur. Alþýðuflokkurinn einn stenzt þetta próf um hina upprunalegu skiptingu í „vinstri“ og „hægri“ flokkur hér á landi, enda hafa hugsjónirnar um í stjórnmálum og hann einn er sannur vinstri frelsi, jafnrétti og bræðralag frá öndverðu verið leiðarstjörnur jafnaðarmanna um heim allan. lapkápyr Kaupið regnkápu í rigningunni. MARKAÐURINN Laugavegi 89 SÍÐASTLIÐINN fimmtudag hélt de Daulle forseti Frakk- lands til Alsír til þess persónu lega að gera sér grein fyrir á standinu þar og möguleik- unum á að koma á friði í land inu. Undanfarið hefur forset- inn snúið sér af alefli að lausn vandans og fyrir tveim vikum bað hann alla ráðherra í ráðu- neyti sínu að leggja fram skrifleg svör við eftirfarandi spurningum: Hvernig verður bundinn endir á Alsírstyrjöld- ina? Hver á að vera þjóðrétt- arstaða Alsír? Hvaða afleið- ingar hefur styrjöldin í Alsír á efnahag og stjórnmál Frakk- lands? Svörin voru á ríkis- ráðsfundf rædd í byrjun vik- unnar og talið er að stjórnin sé þríklofin í málinu. Síðustu vikurnar hefur æ betur komið ljós. að banda- menn Frakka eru þeim and- vígir í flestum þýðingarmeiri innan- og utanríkismálum. Ýmsir atburðir í Alsír hafa vakið megna andúð á aðferð- um hersins. E, H, •INAR efnahagslegu afleið ingar styrjaldarinnar fyrir Frakka eru margar og flókn- ar, og franska þjóðin getur ekki vænzt þess að kjör henn- ar batni meðan það stendur. Áhrifin á innanlandsmálin eru greinileg. Áhrifin á viðskipti Frakka við aðrar þjóðir og þá fyrst og fremst bandalagsþjóð- ir sínar austan hafs og vestan eru mikil. Frakkar verða að eiga á hættu að standa uppi einangraðir ef þeir halda til streytu að ræða ekki við upp- reisnarmenn í Alsír fyrr en þeir eru gjörsigraðir, og spurt er í fullri alvöru hvort franska stjórnin hafi í hyggju að segja sig úr Sameinuðu þjóðunum og Atlantshafsbandalaginu, ef sjónarmið Frakka verða í minnihluta á þingi Sameinuðu þjóðanna í haust. Soustelle er talinn fylgjandi þeirri afstöðu og jafnvel Debré forsætisráð- herra. Aðrir, svo sem Pinay, fjármálaráðherra, Soudrau, ráðherra uppbyggingarmála, og Malraux, sem fer með menningarmál, eru hlyntir samningum við uppreisnar- menn og lausn deilunnar á frjálslyndum grundvelli. Herinn er algerlega and- stæður öllum samningum og frönsku blöðin ræða feimnis- -ENNÞÁ virðist ekki hafa dregið úr því trausti, sem de Gaulle nýtur meðal almenn- ings í Frakklandi og á áhrifa- svæðum Frakka. Állir, nema einangraðir og ráðlausir post- ular „front populaire“, hafa enn von um, að hann finni lausn á vandamálum þjóðar- innar. Andstæðingar eiga þá ósk heitasta, að hann kollsigli sig og komi engu í verk, en fylgismenn hans vilja að hann beri einn ábyrgðina, hvort heldur sem er á að slíta sam- vinnunni við vesturveldin eða efna til uppgjörs við franska herinn í Alsír. laust um nýja uppreisn hers- ins í Alsír, ef gengið verður . „ ,. -. Sey“”stf<ll£óðfreIsls' & Feiagslsf FRÁ Ferðaiélagi 1; E, ■N HVER ER afstaða de Gaulle? Hann lítur á sig sem sáttasemjara og tekur ekki af- stöðu fyrr en hann hefur at- hugað málið frá öllum hliðum. Helzta erindi hans til Alsír núna er að kynnast hugarfari hersins og ráðamanna hans. Eftir helgina kemur Eisen- hower til Parísar og þá mun de Gaulle gera honum grein fyrir ástandinu. 10. septem- ber verður haldinn fundur í framkvæmdaráði fransk-afrík anska ráðsins og kannaðir möguleikarnir á áframhald- andi pólitískum áhrifum Frakka í Afríku. Þess er ekki að vænta að de Gaulle taki ákvörðun varðandi Alsír fyrr en að loknum þessum fund- um og ráðstefnum. Styrkur hans er fólginn í að taka ekki afstöðu fyrr en að vandlega íhuguðu máli. Ferðafélag íslands fer tvær ferðir um næstu helgi, í Þórs- mörk og á Hveravelli og Kerl- ingafjöll. Lagt verður af stað frá Austurvelli kl. 2 á laugar- dag. Bifreiðar til sýnis og sölu daglega. ávallt mikið úrval. Bíla og húvélasalan Baldurgötu 8. Sími 23136. H a n n es á h o r n i n u ★ Hrollvekja við Árbæ. ★ Burt með ísbirnina. i< Hafmeyju höggvin úr Hornbjargi. ie Hún hefur aldrei geíað synt. MÉR varð kalt. Það fór um mig hrollur, þegar ég gekk um hliðið á Árbæ í fyrradag. Ég hef sannfærsí um það, að varla hefði Gunnar Thoroddsen get- að valið betri minjavörð Reykja- víkur en Lárus Sigurbjörnsson. Lárus er svo áhugasamur um minjar höfuðstaðarins að óvenju iegt er um menn í starfi, og sjálf ur er hann eins og talandi al- fræðiorðabók um allt, sem snert- ir fortíð Reykjavíkur. EN mér þykir honum hafa orð ið áí messunni. Þessir svakalegu ísbirnir sitt hvoru megin við hliðið heim á Árbæ' eiga þar alls ekki heima. Þessar fígúrur voru settar upp við íshús við Tjörn- ina og áttu að merkja nafn þess og hlutverk, enda var því gefið nafnið „ísbjörninn“. Þeir koma ekki nokkurn skapaðan hlut við sögu Reykjavíkur, og auk þess gefa þeir alranga hugmynd um safnið eða tilganginn með því. ÍSBIKNIRNIR tveir eru settir saman af trésmið eða einhverj- um klambrara, enda aldrei ætl- að annað hlutverk en að merkja nafn íshúss, síðan voru þeir mál aðir eða kalkaðir. — Þeir eiga þarna ekki heima. Þeir merkja ekki nokkurn skapaðan hlut, — geta meira að segja gefið erlend- um gestum alranga hugmynd um ætlun okkar með þessum vísi að safni, sem þarna er — og eru loks frámunalega ljótir. — Ég bið Lárus Sigurbjörnsson að láta taka þá burt. Hann þarf ekki að gera það alveg strax. Það mega gjarna líða nokkrir mánuðir frá þessum áskorunum niínum, að- alatriðið er, að ísbirnirnir hverfi innan tíðar. ÞAÐ er venja fólks að lýsa yfir aðdáun sinni á hverju því listaverki, sem sett er upp í bæn um. Skúli Magnússon Guðmund ar frá Miðdal er alger undan- tekning. Ég verð að segja það, að undarleg þykir mér hafmeyj- an í Tjörninni. Það er eins og hún hafi verið höggvin út úr Hornbjargi, svo stíf er hún og stirðnuð. Ég trúi því ekki að þessi hafmeyja hafi nokkurn- tíma kunnað að synda. HAFMEYJAN er eins og hún sé liöggvin úr blágrýti. Hreyf- ing er ekki í myndinni. Haf- meyjar hljóta að hafa mjúkar línur. Hinar grjóthörðu línur hennar hljóta að sanna manni, að sjáif hugmyndin hafi farið forgörðum í smíðinni, en aðeins orðið eftir monumentalt verk, — nokkurskonar stöpull, sem ekkjl gefur neina hugmynd um mey, se msyndir í mjúkurn djúpum og jafnvel á það til að seiða íil sín sveina. Hafmeyjan er stíf og stirnuð. REYKJAVÍK á íistaverka- nefnd og hún er vel skipuð, á- gætum mönnum, en henni getur skjátlazt eins og öðrum, og ég hygg að hún hafi miséð sig á haf- meyjunni. Ég ásaka hana ekki fyrir það, en vel skal að gæta þegar valin eru listaverk sem standa eiga um aldur og ævi. —■ Það er ef til vill ótrúlegt, en samt er það rétt, að listaverk, sem gefa ranga hugmynd valda ruglingi og skemmdum. — Þeg- ar maður hugsar til Móðurástsr listakonunnar, þá á maður bágt með að trúa því að þessi grjót- kona í Tjörninni sé gjörð af sömu höndum og sköpuð af sama huga. Hannes á liorninu. S 4 4. sept. 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.