Alþýðublaðið - 07.10.1959, Side 1
. . . þegar ég sá forsíðu
Þjóðviljans í gær. Ég hélt
það væri búið að aflysa
kosningunum. Það var
ekki ein einasta áróðurs-
frétt framan á blaðinu og
það var ekki" einn einasti
maður kallaður þorpari,
lygari og þrjótur. En svo
áttaði ég mig. Rússar voru
aftur búnir að skjóta á
tunglið — og hitt komst
bara ekki fyrir á forsíð-
unni.
Andvaka f 40. ir, bi*. 3
Hefur >|óna8 tyelm herrum, blt 6
ÓpiS bréf ' Hánnaar i UndirftlU,
bl». $
íþróttlr, bl$. 10
samyinnu cg tramfarir,
bls. 7
Reykjavik. þriðjudaginn 6. október 1959.
43. árgangur.
Innheimta beinna skatta bitnar mjög rang
lega og illa á mörgum skattgreiðendum
I (!! 11111111111II11111111111111111II1111111111111111111i11111111111r
Hverjir væru
skaliarnir í
| föiunni 270!
1 Sjá 5, síðu
ríur á
MIKILL skortur er nú á
stúlkum í frystihúsunum í
Reykjavík, þar eð undanfarið
hafa frystihúsin misst fjölmarg
ar stúlkur, er unnið hafa við
flökun í sumar, en þær hverfa
nú að 'skólanámi.
í Fiskiðjuveri Bæjarútgerðar
Reykjavíkur vantar t. d. um 30
stúlkur. Er þetta mjög baga-
legt fyrir Eiskiðjuverið, þar eð
togarar Bæjarútgerðarinnar
hafa komið inn í einni kös nú
undanfarna daga.
í gær voru t. d. 4 togarar
Bæjarútgerðar Reykjavíkur
inni. í fyrradag komu þrír tog-
arar, Hallveig Fróðadóttir með
um 200 lestjr, Þorkell máni með
268 lestir, Ingólfur Arnarson
með 228 lestir og í gær kom
Þorsteinn Ingólfsson inn með
fullfermi eða um 320 tonn. All-
ir voru þessir togarar að veið-
um við Vestur-Grænland. Var
það mestmegnis karfi, er tog-
ararnir komu með.
Mikil vinna var í Fiskiðju-
veri Bæjarútgerðarinnar í gær
við vinnslu á karfa þessara
togara. Ekki gat Fiskiðjuverið
þó unnið allan aflann úr þess-
um togurum heldur varð einnig
að láta fisk í önnur frystihús
bæjarins.
Brotizf inn
BROTIZT var inn í Verka-
mannaskýlið í Reykjavík í
fyrrinótt. Stolið var útvarps-
tæki af gerðinni Telefunken-
Consertino, í brúnum hnotu-
kassa. Þeir, sem gætu gefið
einhverjar upplýsingar um
þjófnað þennan, eru vinsamleg-
ast- béðnir að láta rannsóknar-
lögregluna vita tafarlaust.
Hellaóskir
LO.NDON. — Nikita
Krústjov hefur sent heilla-
óskaskeyti til Austur-
þýzku kommúnistastjórnar
innar á 10 ára afmæli henn
ar.
í Kópavogi
40. árg. — Miðvikudagur 7. okt. 1959 — 216. tbl.
Vaknaðu, Skúli!
aði við vondan draum í gær)
Fyrirsögnin hérna neðra
var klippt úr Tímanum í
gærdag.
Reykvískir kjósendur
(og skattgreiðendur) trúi
því ef þeim sýnist, en Tím
inn lætur sem hann sé að
rumska!
Þessvegna kalfeir Alþýðublað
ið nú á framsóknarmanninn
Skúla Guðrriundsson, þingmann
Vestiir-Húnvetninga, og biður
hann í guðanna bæiium að
vakna. Eða rumska. EÐA AÐ
MINNSTA KOSTI AÐ GEFA
FRÁ SÉR HLJÓÐ.
Skúli hefur nefniléga staðið
í fylkingarbrjósti framsóknar-
manna í ákafri — og árangurs-
ríkiri — baráttu þeirra GEGN
því, að beinu skattarnir væru
teknir til fræðilegrar athugun-
ar,
1 akið nú eftir.
í mars í f yrra flutti þingflokk
uir Alþýðuflokksins um það til-
lögu á sameinuðu þingi, að o-ann
sókn færi frami á því, hvort
bægt væri að afnema beinu
skattana.
SKÚLI GUÐMUNDSSON,
FLOKKSBRÆÐUR HANS —
OG KOMMARNIR — LÖGÐ-
UST GEGN ÞESSU,
Alþýðuflokkurinn fékk því
framgengt, að milliþinganefnd
var kosin í málið.
En takið nú enn eftir.
NEFNDIN VARÐ FYRIR
ÞVÍ ÁFALLI AÐ SKÚLI VAR
KOSIN FORMAÐUR HENNAR
— OG HEFUR SÍDAN AF
STAKRI SAMVIZKUSEMI
GÆTT ÞESS, AÐ OFÞYNGJA
EKKI NEFNDARMÖNNUM
MEÐ FUNDUM.
Það er ekki að ástæðulausu
sem Alþýðublaðið reynír að
vekja Skúla.
Það er einstætt, að HANN cr
maðurinn sem Tímafyirirsögn-
in 'hrópar á!
Hitt er annað mál, að eín fyr-
irsögn haggar ekki þeirri stað-
reynd, að framsóknarmenn eru
einmitt ólmustu andstæðingar
þeú'rar stefnu, að hróflað sé
við beinu sköttunum.
SEX ára gamall. drengur
varð fyrir bifreið á Kópavogs-
hálsi í gær, skammt frá bið-
skýlinu. Slysið vildi til um kl.
3,45. Mun drengurinn, Kjartan
Örn Sigurðsson, Þinghólsbraut
34, hafa hlaupið út á akbraut-
ina án þess að huga að umferð-
inni. í sömu svifum bar þarna
að leigubifreið úr Kópavogi af
Volga-gerð. Leriti drengurinn
framan á bifreiðinni og kastað-
ist í götuna. Leið yfir hann við
áreksturinn. Var drengurinn
fluttur í Slysavarðstofuna, þar
sem gert var að meiðslum hans,
sem voru aðallega skrámur á
höfði. Talið er, að bifreiðin
hafi ekki verið á mikilli ferð.
4000 sláfrai
á Ffaleyri
Fregn til Alþýðublaðsins.
Flateyri í gær.
HÉRNA er nóg að gera til
sjávar og sveita, en votviðra-
siamt eins og annars staðar. —
Slátrun stendur sem hæst, en
mun ljúka kringum næstu helgi
— Alls mun verða slátrað hér
um 4000 fjár.
Hingað kom vöruflutninga-
bíll frá Reykjavík daginn, sem
umferð var leyfð um nýja Vest
fjarðaveginn og annar í dag.
Er mikil bót að þessu akvega-
samþandi, eins og nærri má
geta.
Togarinn Gyllir hefur verið
í slypp í Reykjavík að undan-
förnu: brotnaði spilkoppur í
honum. Guðmundur Júní hefur
verið að veiðum undanfarið. —
S. 1. laugarlag kom hann inn
með óvenjulegan afla á bilfari,
þ. e. tundurdufl. Reyndist það
óvirkt, er að var gætt. — H-H.