Alþýðublaðið - 13.10.1959, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 13.10.1959, Blaðsíða 11
8. dagur ur eins og áður fyrr. Eins og áður en ég vissi, að þú elsk- aðir mig.“ ,,Við getum alltaf reynt.“ Þau heyrðu, að gengið var um ganginn, og eftir augna- blik birtist Adele í gættinni „Te?“ „Ungfrú Faulkner færir mér alltaf te áður en ég fer í vitjanir." „Ég skal gera það framveg- is Leigh. Ég vil það gjarnan. Ungfrú Faulkner hefur víst nóg annað að gera. Annars hefði ég haldið, að þetta væri í verkahring Florrie.“ „Florrie veit ekki, hvenær síðasti sjúklingurinn fer,“ sagði Leigh hvasst. „Ég er að fara.“ . en á þriðjudaginn. Konan hans hjálpaði honum.“ „Það var gott. Skemmtu þér vel, -elskan. Ég bið að heilsa Jane.“ Jill flýtti sér inn á braut- arpallinn, hún var fegin að hafa átylíu til að vera að heim an í nokkra daga. Það var hálfur mánuður liðinn síðan kona Leigh kom heim. í hálf- an mánuð hafði hún reynt að ákveða sig. Stundum fannst henni, að hún gæti ekki verið deginum lengur, en stundum að hún gæti ekki farið fyrst hún hefði lofað að hlaupast ekki á brott. En svona gat það ekki geng-' ið. Hún óskaði þess oft, að hann hefði aldrei sagzt elska hana. Að þau hefðu aldrei not- það.“ Pat gaut hornauga til Jill. „Ég hef heyrt, að hún hafi hlaupizt brott með málara.“ „Er það?“ ..Já. vissirðu bað ekki? Manni, sem heitir Ronald Ad- amson. Ég skil ekki, hvernig nokkur getur hlaupizt brott frá Sanders lækni. Mér finnst hann svo fallegur.“ Og eftir smá þögn. „Varst þú eitthvað skotin í honum?“ Jill roðnaði. „Ertu genginn af göflun- um?“ „Vertu ekki svona móðguð.“ „Ég er ekkert móðguð, en ég vinn hjá honum.“ „Hvaða máli skiptir það?“ „Það hefði gert allt svo flÓikið.‘,‘ „Já, þegar konan hans var RENÉSHANN: „Án tesins, sem ungfrú Faulkner hafði fyrir að laga handa þér?“ Adele hellti í bolla og rétti' honum og hann drakk það í einum teig. „Hér er listinn yfir sjúk- lingana, læknir,“ sagði Jill. „Þakka þér fyrir/1 augu þeirra mættust. „Það er kalt í dag, Leigh,“ sagði Adele. „Klæddu þig vel.“ Hann fór fram og tó.k frakk- ann sinn. ,,'Vertu með trefil,“ sagði Adel<>, sem elti hann. „Ég þarf hana ekki með“. Jill heyrði, að útidyrnar lok- uðust og skömmu seinna lagði bíllinn af stað. Hún heyrði, að Adele sönglaði fjörugt lag. Hún var ánægð með lífið. Hún var komin heim og Leigh hafði tekið við henni. Jill vissi ekki, hvort hún skyldi, að allt var ekki sem fyrr. 4. Jill kyssti móður sína í kveðjuskyni og sagðist koma ■ aftur á mánudag. „Áttu frí á mánudaginn?“ „Já, Sanders læknir sagði, að ég þyrfti ekki að koma fýrr. .... @psrið yður hlaup & milli mnrgra verzlana.1- DCkUOöL 4 ÖUöM «E«! - Austiu'stxseö. AST06 ÁNDSTREYMI ið hamingjunnar í nokkrar vikur og haldið, að þau gætu brátt gifzt. Það var svo sárt að rrf'ssa af hamingjunni, þeg- ar hún var alveg við hendina. Hún heyrði, að kallað var á hana með nafni, þar sem hún beið á pallinum og hún sá, að Pat Ansley brosti til hennar. Þær Pat voru vinkonur. Pat var líka að fara til London. „Þetta var skemmtilegt, Jill. Við verðum samferða." Og um leið og lestin ók af pall- inum: „Mig hefur langað svo til að hitta þig. Segðu mér eitt, hvernig er frú Sanders?11 Jill óskaði, að Pat hefði far- ið með annarri lest. Það var klukkutíma ferð til London og henni hafði alltaf þótt g3m- an að tala. „Hún er ágæt. Ég hef ekki séð hana oft.“ „Það kom öllum á óvart, að hann skyldi taka við henni aftur. Þekktirðu hana áður en hún fór frá lækninum?“ „Nei, við vorum ekki komn- ar hingað.“ „Við ekki heldur, en fólk, sem þekkti til þeirra, segir, að hann hafi verið blindur af ást.“ „Hvernig veit fólk það?“ „Það hefur sjálfsagt séð komin heim.“ Pat leit íbygg- in á Jill. Hún efaðist um, að hún hefði sagt satt. „Heldurðu að hann sé feginn, að fá hana aftur heim?“ „Elsku Pat mín, hvernig ætti ég að vita það?“ „Þú ert oft í sama húsi og þau.“ „Aðeins sem vinnandi kona“. „Ég þori að veðja,“ hélt Pat áfram, „að hann hefur að- eins tekið hana í sátt vegna Bunty. Það er betra fyrir hana að 'hafa móður sína heima. Það segja samt allir að hún hlaupi að heim- an um leið og einhver sætur maður lítur á hana. Ja, hún hefur svo sannarlega vakið iumtal.“ „,Það versta i við - sveitár bæi,“ sagði Jill reiðilega, „er það að þar hefur enginn frið fyrir kjaftagangi. Hverjum kemur það við hvort kona Sanders læknis fer frá honum eða er hjá honum?“ „Engum býst ég við. En það er skiljanlegt, að fólk tali um það. Hann er þó læknirinn okkar og við sjúklingarnir hans. ’Vitanlega höfum við á- huga fyrir því sem hann gerir“. Jill opnaði tímaritið sem hún var með. „Er þér sama þó ég lesi?“ „Vi*anlega“, sagði Pat móðguð. Jill gladdist þegar þær komu til London. „Hvenær ferðu heim?“ spurði Pat. „Á mánudaginn“. „Guð, hvað þú átt gott! Ég verð að fara heim á sunnu- daginn“. Þær kvöddust við járnbraut arstöðina. Jill fór í neðan- jarðarbrautina og kom aftur út í Hampstead skömmu seinna. Hún flýtti sér heim til Jane, sem bió þar rétt hjá. Jane var eina manneskjan sem hún gat hugsað sér að tala við. Hún hafði verið mikil vin- kona hennar í gagnfræðaskóla — Jane var þrem árum eldri en Jill og Ji-11 hafði alltaf þótt vænt um hana og dáðst að henni um leið. Henni datt oft I í hug að Jane hefði meira vit I í litla fingri en Jill i öllum líkamanum. Kannski var það vinnan sem 3/tti þar undir. — Hún var frétt aritari við Daily Sun og hitti alls konar fólk, en Jill sjálf hafði verið í hjúkr- unarkvennaskóla og unnið úti á landi. Hún vann m.ikið og liún hafði alltaf vitað að hverju hún stefndi og hún hafði náð sínu marki. — Jill fannst oft að Jane væri miklu eldri en hún, þó aldusrmunur- inn væri aðeins þrjú ár. Senni lega var það vegna þess að Jane var reyndari. En þrátt fyrir heimsborgarahátt sinn og glæsileika var hún ekki hörð. Jill vissi að hún vTar eini vinurinn sem hún gat leitað til í vandræðum sínum. Jane opnaði dyrnar og þrýsti henni fast að sér. „Elsku vina en hvað er gam an iað sjá þig aftur“. „Það er yndislegt að vera komin hingað“. „Flýttu þér inn og segðu mér allt um sjálfa þig. Ég ætlaði að taka á móti þér, en ég gat það ekki. Hvílíkur vinnutími“. „Hefurðu alltaf jafn mikið að gera?“ „Allt of mikið“. Jill leit yfir fallega hvít- málaða stofuna með skemmti- legu gluggatjöldunum og fal- legu húsgögnunum og hún öf- undaði hana. Ibúðin var svo skemmtileg, svo lík henni sjálfri. Hún var sjálfri sér nóg — Hjarta hennar réði ekki yf- ir lífi hennar. Vitanlega höfðu verið menn í lífi hennar en Jill vissi að hún lét það ekki ónáða sig um of. Einhvern tím ann giftist hún sjálfsagt en eins og hún alltaf sagði: „Mér liggur ekkert á“. Hún var of ánægð yfir að vera fi'jáls, of hrifin af starfi sínu. „Ég hugsa mig oft um Jill“, hafði hún sagt síðast þegar þær hittust“, áður en ég bind mig. Kannski er ég fædd piparmev. Ég bý ein og kann vel við það“. Og það fannst Jill aðalmun- urinn. Því hana langaði um- fram allt til að giftast Leigh, til að eignast heimili og börn. Litla bræðúr og sýstur fyrir Bunty. Síðast þegar hún hitti Jane átti hún sína drauma og vonir en nú — „Sherry?“ „Já þakka þér fyrir“. „Ég er búin að elda mat fyr ir þig“. „Þú ert indæl en þú hefur alltof mikið fyrir mér“. „Vitleysa. Mig langaði til a.ð bjóða þér út að borða, en okk- ur líður betur hér“. „Miklu betur. Er þetta ekki ný mynd?“ Jill leit á fallega landslags- mynd í mjúkum litum sem hékk yfir arninum. „Jú. Hvei'nig finnst þér hún?“ „Mjög falleg“. „Hún er eftir Ronald Ad- amson“. Jill starði á hana. emangrun- argler er ómissandi í húsið. eU&OGL£R HF Áttatíu ára er í dag frú Þóra Gísla- dóttir, Kirkjuvegi 18, Hafn- arfirði. Ilallgrímsprestakall. Séra Lórus Halldórsson er til viðtals í kirkjunni kl. 6— 7 e. h. alla virka daga nema laugardaga. Á öðrum tíma eftir samkomulagi. W. Fíugfélag íslands. Millilandaflug: Hrímfaxi er væntanlegur til Reykjavikur kl. 17.10 í dag frá Khöfn og Glas- gow. Flugvélin fer til Glasgow og Kaupmanna- hafnar kl. 9.30 í Millilandaflug- vélin Gullfaxi er væntanleg til Reykjavíkur kl. 18.05 í dag frá Lundúnum. Innan- landsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar, Blöndu- óss, Egilsstaða, Flateyrar, Sauðárkróks, Vestmannaeyja og Þingeyrar. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyr- ar. Húsavíkur, ísafjarðar og Vestmannaeyja. fyrramálið. Loftleiðir. Leiguvélin ' er væntanleg frá London og Glasgow kl. 21 í dag. Fer til New York kl. 22.30. Hekla er væntanleg frá New York kl. 8.15 í fyrra- málið. Fer til Osló og Staf- angurs kl. 9.45. dPan American flugvél kom til Keflavíkurflugvall ar í morgun fró New York og hélt áleiðis til Norðurlanda. Flugvélin er. væntanleg ann- , að kvöld og fer þá til New York. Ríkisskip. Hekla er á Aust- fjörðum á suður- , leið. Esja kom til Rvíkur í gær að vestan úr hring- ferð. Herðubreið er í Ryejkavík. Skjaldbreið fer frá Reykjavík í dag vest- ur um land til Akureyrar. Þyrill kom til Reykjavíkur í nótt frá Vestfjörðum. Skipadeild SÍS. Hvassaíell fer í dag frá Gufunesi áleiðis til Svalbarðs eyrar og Húsavíkur. Arnar- fell er í Þorlákshöfn. Jökul- fell ,er í Reykjavík. Dísarfell fer í dag frá Akureyri áleiðis til Antwerpen. Litlafell losar á Norðurlandshöfnum. Helga fell es í Óskarshöfn. Hamra- fell fór frá Reykjavík 1. þ. m. áleiðis til Batum. Eimskip. Dettifoss kom til Kaup- mannahafnar 9/10, fer þaðan til Rostock, Gdynia, Hull og Reykjavikur. Fjallfoss kom til Reykjavíkur 10/10 frá Antwerpen. Goðafoss fór frá Reykjavík í gærkvöldi til Ól- afsfjarðar, Akureyrar, Aust- fjarðahafna, Vestmannaeyja og Faxaflóahafna. GuIIfoss... fór frá Reykjavík 10/10 til Leith og Kaupmannahafnar. Lagarfoss kom til Reykjavík- ur 3/10 frá Keflavík. Reykjá foss fór frá Húsavík í gær til Reykjavíkur. Selfoss fór frá Hamborg 10/10 til Malm.ö; Rússlands og Kotka. Trölla- foss fór frá Hafnarfirði 11/10 til Rotterdam og Hamborgar. Tungufoss kom til Reykjavik ur 4/10 frá Riga. Alþýðublaðið. — 13. okt. 1959

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.