Alþýðublaðið - 13.10.1959, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 13.10.1959, Blaðsíða 12
sýnir leið Luniks III. um- hverfis tunglið og jörðina. Það, sem athygli vekur er að Lunik III. var skotið á loft í gegn facstefnu jarð- ar. Rússar hafa jjannig notfært sér þá hraðaaukn- ingu, sem þannig fæst vegna snúnings jarðar. snimings i Þegar Lunik fór framhjá i tunglinu (staða 2), rann Það undan henni. Með þessu móti var komið í ;veg fyrir að Lunik steypt- ist niður á tunglið. Núna mun Lunik fara á spor baug umhverfis jörð og mána Fer hún framhjá tunglinu um það bil einu sinni í mánuði hverjum- Hallo, Mao Ertu þú ekki OK? i Sjá 4. síðu. r--------------------------------- Ég bara bi'osti og veifaði - Hún er mér einskis virði. EKKI er talið útilokaS, að fransk-hollenzkur leiðangur, sem Iagður er af stað til þess að kanna áður óþekkt land svæði á Nýju Guíneu, finni þar óþekkta kynflokka. Fyrst munu leiðangursmenn kanna hinn lítt þekkta Asmat þjóð- flokk, en halda síðan yfir 9000—14000 feta fjallshryggi pg komast í dali, sem liggja þar að fjallabaki. Hafa þessi svæði aðeins sést úr lofti, en búist er við, að það fólk, sem þar býr stundi einhvers kon- ar landbúnað, þar eð sést hef- ur úr flugvélum ræktaðir stallar í fjallshlíðunum og myndir hafa verið teknar af þorpum með skínandi rauðum þökum. -------3. Brauf ÞESSI teikning*var birt i Mnskvn fi. fkcr Gífurlegir frumskógar og fenjasvæði, þar sem hitasóttin bíður ferðalangsins, hafa til þessa lokað öllum leiðum til þessara ókunnu dala. Á Nýju Guíneu, stóru eyjunni norður af Ástralíu er að finna síðustu svæðin, sem landkönnuðir hafa enn ekki komist til. Miklar sögur eru sagðar af þessum svæðum. Þar eiga að vera fjöll afi gulli og gim- steinabjörg. Sagt er að þarna dýrki menn svínin og stundi mannát. Landkönnuður á Nýju Guí- neu, Frank Hurley, fann þar kynflokk ,sem aldrei hafði séð hvítan mann. Þeir söfnuðu hausum. Hurley tók margar myndir af þessu fólki og vöktu þær gífurlega athygli vegna þess hve menn þarna minntu á myndir af konungum í Ass- ýríu og Fönikíu. Hurley hreifst einkum af fegurð kvennanna. í höfðingjabústað einum fánn hann 36 hauskúpur af mönnum, enginri innfæddra hafði nokkru sinni séð málma (Frambald á !•». sí2m 40. árg. — Þriðjudagur 13. okt. 1959 — 221. tbl. HMMWWMMWWWMWWMMMMWWMWMMWWMWWtWWWI Börn vaxa hœg ar í vanþró- uðum löndum í VANÞRÖUÐUM löndum vaxa börn hægar en í þeim löndum, sem búa við efna- hagslega velsæld. í Banda- ríkjunum voru rarinsökuð 1000 börn, sem fædd voru og uppalin af japönskum for- eldrum í Bandaríkjunum og önnur 1000, fædd og uppalin í Japan. Það kom í ljós, að í öllum aldursflokkum frá 6 upp í 19 ára voru bandarísku börnin hávaxnari. En það, sem kom á óvart við þessar rannsóknir var, að hæðarmun- urinn var vegna þess að banda rísku börnin voru lappa- lengri. Málning, sem drepur öll skordyr BANDARÍKJAMENN munu brátt senda á markaðinn máln ingu, sem eyðir skordýrum. Verður hún algerlega óskað- leg fyrir menn en drepur öll skordýr, sem á henni skríða. Pétur fljótfæri PÉTUR Sigurðsson, sem Mbl. kallar Pétur sjómann, er frændi séra Bjarna Jóns- sonar. Fyrir nokkrum dög- um var Pétur látinn lesa skörulega ræðu á kjósenda- fundi í Sjálfstæðishúsinu. Pétur þótti lesa vel, og var gerður góður rómur að ræðú hans, sem aðallega voru skammir um Alþýðuflokk- inn, það þótti þó lýta ræð- una, að hann vitnaði oft til ræðu, sem haldin var næst á undan af Birgi Kjaran, en í þeirri ræðu voru ennþá meiri skammir um Alþýðu- flokkinn, þóttust menn kenna sama handbragðið á báðum ræðunum. Séra Bjarni var einn áheyrenda og blöskraði munnsöfnuður- inn. Sagði hann stundarhátt, þegar Pétur hafði lokið lestri sínum • • • „að hann Pétur skyldi ekki heldur koma til mín en láta hann Birgi Kjaran vera að sjóða þetta saman“. Og svo bætti hann við eftir stundarþögn: „Hann hefur alltaf verið fljótfær, hann Pétur“. Sér grefur gröf Alþýðubandalagsmenn eru sorgmæddir um þessar rnundir. Epéfhirðingamiað- ur bandalagsins, Sigurður Sigmundsson, hefur verið rekinn úr húsnæðismála- stjórn, ákærður af sjálfum sér fyrir afbrot í starfi. Hafði hann reitt öxlina hátt á loft og hugðist höggva Hannes á Undirfelli í herð- ar niður, enda taldi hann, að Hannes lægi vel við höggi eftir að hafa rannsakað skjalatösku Hannesar. Hann es var þó skeinuhættari en Sigurður bjóst við, því að hann snerist hart til varnar, og fóru svo leikar, að Sig- urður liggur nú óvígur í valnum eftir bardagann. Hannes er að vísu bæði sár og ákaflega móður, en mun nú gefast hvíld til- þess að fægja sárin á meðan saka- dómari yfirheyrir bréfhirð- ingamanninn. Á undanförnum árum hafa nauðstaddir húsnæðis- leysingjar leitað til þessara manna í nauðum sínum, en flestir gengið hónleiðir til búðar. Nú hafa Sigurður og Hannes upplýst þjóðina um vinnubrögð sín, pólitískar lánveitingar voru uppistað- an, en ívafið hrossakaup, svo þokkaleg var voðin, sem þeir ófu á skrifstofu hús- næðismálastjórnar. Munu mi hinir húsnæðis- lausu þakka kommuxn og Fram^óknarmönnum fyrir sig við kosningarnar, og mun það svar verða framámönn- um þessara fíökka til lítill* ar gleði. Brynjólfsmenn í A1 þýðubandalaginu segja þó* að við þessu hafi alltaf mátt búast, flokknum hafi ævin- lega stafað ógæfa af HannÞ bal og fylgihnöttum hans, en Sigurður Sigmundsson er, sem kunnugt er, einn að- al „spútnikk“ Hannibals. En austur á Selfossi reik- ar Gunnar Álfur um pláss- ið, gneypur og raunamædd- ur, enda ósvinnur fyrir flokksmerkingarnar fyrir Hannes. Mundi hann sjálfsagt glaður vilja taka Þráin Valdimarsson sömu tökunx og Skarphéðinn forð- um Þráin Sigfússon, en nú er önnur öld í landi. Gunnar Álfur á nú í vök að verjast, og er raun- ar talið, að hann muni hrökklast á brott úr sýsl- unni, svo sem Fjalla-Ey- vindur á sinni tíð, hvort sem útlegðin varir í lang- an tíma eða skamman. En á Sigurði Sigmunds- syni sannast hið fornkveðna — „sér grefur gröf, þótt grafi“. n m leikkona og þokka- gyðja Gloria Swanson, sem var upp á sitt bezta í fyrstu talmynd- unum, er kunn fyrir rit sín um stjörnufræði? að Gina Lollobrigida vinn- ur að stórri myndabók um Hollywoód. Hún tekur sjálf myndirnar og skrifar textann? að fjölhæfasti leikari Eng- lendinga, maðurinn með þúsund andlitin, Alec Guinness, hefur skrifað leikrit, sem heitir West End? að hin þekkta kvikmynda-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.