Alþýðublaðið - 16.10.1959, Page 1
Þorsteinsson vara-
forsetj Álþýðusambandsins:
40. árg. — Föstudagur 16. okt. 1959 — 124. tbl.
ÞAÐ er hægt að græða
á því að jafna hús við
jörðu.
Það er gert svona:
Mjólkurbú Flóamanna borg-
ar Kaupfélagi Árnesinga ár-
lega milljónir króna fyrir við-
gerðir á mjólkurbílum bús-
ins.
Kaupfélag Árnesinga starf-
rækir bifreiðaverkstæði, en
Mjólkurbix Flóamanna ekki.
Þegar nú nýja mjólkurbu-
ið var byggt og öll starfsemin
flutt úr gömlu byggingunum,
kom hagsýnum mönnum til
hugar að spara mætti eitíhvað
af milljónunum, sem nefndar
voru hér á undan, EF MJÓLK
URBÚIÐ SETTI SJÁLFT
UPP BÍLAVERKSTÆÐI í
ÓNOTAÐA HÚSNÆÐINU.
Var farið að ráðum þeirra?
Síður en svo.
Gömlu húsin Mjólkurbús
Flóamanna voru rifin í
skyndi — og Kaupfélag Ár-
nesinga heldur áfram að moka
saman milljónum fyrir við-
gerðum á mjólkurbílum.
Svona, góðir hálsar, er hægt
að græða á því að jafna hús
við jörðu.
Það má meira að segja
stórgræða á fyrirtækinu.
OG NEYTANDINN BORG-
AR BRÚSANN.
TOGARINN Harðbakur, sá
er hugðist selja í Grimsby,
seldi í Cuchaven í gær. Seldi
togarinn*167 lestir fyrir 97.993
mörk. Hefur. togarinn orðið
fyrir miklu tjóni af því að geta
ekki selt í Grimsby, þar eð
verð er þar nú mjög hátt. Sur-
prise seldi einnig í Cuxhaven
í gær 136.5 lestir fyrir 86.571
mark. í fyrradag seldi Brim-
nesið 135 lestir fyrir 90000
mörk.
Ingrid Eergman
afbeni börnin.
RÖM, 15. okt. (REUTER). —
Hin þrjú börn af hjónabandi
Ingri'd Bergman og Roberto
Rossellini voru í dag afhent
móður sinni eftir að ítalskur
réttur hafði úrskurðað, að Ros-
sellini bæri að afhenda þau, en
þau hafa verið hjá honum í
sumarleyfi og langt fram yfir
þann tíma, sem ákveðinn var.
Rossellini undirbýr nýja lög-
sókn til að ná börnunum fyrir
fullt og allt.
ÞRÍR 250 lesta togarar eru
mi farnir að veiða fyrir Þýzka-
landsmarkað. Fram til þessa
hafa Iitlu iaustur-þýzku togar-
arn:i- eingöngu veitt fyrir inn-
anlandsmarkað, enda var þeim
ætlað það hlutverk fyrst og
fremst að skapa vinnu hér inn-
an lands. Hafþór frá Neskaup-
stað er nú á leið út, en að veið-
um eru Guðmundur Pétuirs og
Steingrímur trölli.
Afli hefur verið fremur trek-
ur undanfarið hjá toguninum.
Þessir togarar hafa landað í
Reykjavík undanfarð: Uranus
landaði 220 tonnum 10. þ. m.
Jón Þorláksson landaði 174
Framhal.d á 5. síðu.
Fengu renn-
blaufan pósf
samfökin laus allra
ináSa — Þetta er ai
vörun fil flokkanna
i m lel fil
Fregn til Alþýðublaðsins.
VESTM.EYJUM í gær.
LOKS í dag kom póstur
liingað, margra daga gamall.
En þegar komið var á póst'
húsið að sækja póstinn, var
engu líkara en fló ðhefði verið
þar, svo rennblautur var póst-
urinn og máttu blöð heita ó-
læsileg. Hafði pósturinn komið
með bát. Flugfélagið neitaði að
taka nokkurn annan póst en
verðbréf. Er það ekki í fyrsta
sinn, er slíkí kemur fyrir. Þyk-
ir öllum hér þetta ástand óþol-
andi og unir pósthúsið þessu
mjög illa.
DUBLIN, 15. okt. (REUTER).
Leikarinn Barry Fitzgerald
I liggur nú alvarlega veikur á
I hjúkrunarheimili hér. Hann er
| 72 ára að aldri.
gegn ir^sfjov
Þið munið eflausi
0PNUNA
ÞESSI fjölskylda kaus
frelsið. Hún slapp ýfir
járntjaldið síðastliðinn
miðvikudag eftir ævin-
týralegan flótta frá Pól-
landi. Farkosturinn var
örlítil, opin sportflugvél.
Hún lenti heilu og höldnu
á Borgundarhólmi. Telp-
an litla er {jriggja ára, og
Danir hafa fúslega skotið
yfir hana skjólshúsi og
foreldra hennar.
■ iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Jiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiir jiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiil
I Alþýðubfaðíð minnir Alþýðuflokksmenn
á spilakvöldið í lcvöld. Það hefst í Iðnó kl. 8,30. Það verður spilað, Gylfi Þ. Gísla< |
son flytur ræðu, Karl Guðmundsson skemmtir, verðlaunaveiting og dans.
«TlllllllllMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll|IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIJIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII|||UIUIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlÍlllltir.i|lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllfllllllllllllllllllM||llllllllllllllllllllllSl