Alþýðublaðið - 16.10.1959, Qupperneq 10

Alþýðublaðið - 16.10.1959, Qupperneq 10
Sveinn Sœmundsson segir fréttir af flugsýningunni í Farnborough HIN ÁRLEGA flugsýning í Farnborough í Englandi var opnuð 8. septeniber s.l. og er það í tuttugasta skipti, sem brezkir flugvélaframleiðendur og framleiðendur alls konar tækja viðkomandi flugi hafa heildarsýningu á framleiðslu . sinni. Meðal þeirra, sem sóttu sýn- inguna héðan, voru tveir starfsmenn Flugfélags íslands, þeir Sigurður Matthíasson, fulltrúi, og Hilmar Ó. Sigurðs- son, deildarstjóri innanlands- flugs. Auk farþegaflugvéla og annara flugvéla til friðsam- legra nota, voru sýndar í Farnborough ýmsar gerðir or- ustuflugvéla og vopna. Enn- fremur sýndu mörg fyrirtæki ýmsa flugvélahluti, tæki til staðarákvarðana o.fl. Þær far- þegaflugvélar, sem mesta at- hygli vöktu, voru Fairey Roto- dyne, Vickers-Vanguard, Vis- count 816, Comet B4, flutn- ingaflugvélin Argosy og flug- nökkvinn Hovercraft, sem ekki er talinn til flugvéla, þar sem hann skríður aðeins í þrjátíu sentimetra hæð fár jörðu. FAIREY ROTODYNE: • Þessi flugvél, sem er algjör nýjung á sviði flugvála, sam- einar á margan hátt kosti þyrlu og venjulegrar flugvél- ar. Flugvélasmiðjan Fairey Company Ltd. hóf smíði fyrstu flugvélar af þessu tagi nokkru eftir 1950, en fyrsta flugvélin hóf sig til flugs 6. nóvember 1957. Rotodyne hefur tvo hverfi- hreyfla, mjög tengdar og knýja þær eftir það flugvélina áfram á venjulegan hátt. Fyrsta Rotodyne, sem flaug 6. nóvember 1957, hafði tvo 2800 hestafla Napier Eland hverfihreyfla, og bar 36—40 farþega. Síðar smíðaði verk- smiðjan stærri reynsluflug- vél. Sú er knúin tveim 5000 ha. Roll-Royce Tyne hverfi- hreyflum, ber 57 til 65 far- þega miðað við 400 km. vega- lengd og flýgur með 340 km. hraða. Þessi gerð Rotodyne var fyrst sýnd á Farnborough í fyrra og barst verksmiðjunni þá jafnframt fyrsta pöntunin. Kanadískt flugfélag, Okanag- an 'Helicopter f Vancouver pantaði eina flugvél. Snemma á þessu ári tilkynnti flugfé- lagið New York Airways að það hefði pantað fimm Roto- dyne, sem yrðu afgreiddar vorið 1964 og að félagið hefði hug á fimmtán til viðbótar. Verð hverrar flugvélar er 500 000 sterlingspund, lauslega reiknað 35 milljónir íslenzkra króna, auk nauðsynlegra vara- hluta, þjálfunar áhafna o.fl. Þá eru líkur fyrir, að rekst- ur Rotodyne verði allmiklu kostnaðarsamari en venju- legrar flugvélar af sambæri- legri stærð. Eins og fyrr segir er Roto- dyne knúin tveim hverfi- hreyflum. Þegar flugvélin hef- ur sig á loft, er þrýstilofti frá hreyflunum beint út í gegnum útblástursop, sem eru á þyrlu- skrúfunni ofan á flugvélinni. Flugvélin hefur þannig lóð- rétt flugtak og þarf enga flu- braut. Samkvæmt upplýsing- um frá framleiðanda, hefur hún verið reynd í mjög slæmu flugveðri, roki og rigningu, við erfið lendingarskilyrði. Undir öllum þessum mis- jöfnu skilyrðum hefur Roto- dyne gefið góða raun. Hér er um mjög merkan áfanga í smíði flugvéla að ræða og ef vonir manna rætast mun hún í framtíðinni leysa samgöngu- vandamál ýmissa staða, sem ekki eiga þess kost, að byggja flugvelli. Þá mun Rotodyne væntan- lega verða vinsæl til styttri ferða út úr og til stórborg- anna, þar sem hún getur lent á húsþaki í miðri borginni, en ferðir frá flugvöllum margra borga taka oft eins langan tíma og flugferðirnar sjálfar. VISCOUNT 816: Óþarft er að lýsa Viscount- flugvél fyrir íslendingum, svo vel þekktar og vinsælar sem Viscountflugvélar Flugfélags íslands, „Gullfaxi“ og „Hrím- faxi“, eru. Viscount 816 er þó nokkuð stærri en þær flugvélar. Vis- count 816 er knúin fjórum Rolls-Royce Dart hverfihreyfl um, sem hver fyrir sig er um 2 þúsund hestöfl. Hún getur flutt um 70 farþega. VICKERS VANGUARD. Þegar fyrsta Viscountflug- vélin hóf sig á loft í ágúst- mánuði 1948, fór þar jafn- framt fyrsta þrýstiloftsknúna farþegaflugvélin. Þessi flug- vél, sem var minni en þær Viscountflugvélar, sem við þekkjum hér, hóf reglulega farþegaflutninga 1950 og má þar með segja, að brotið sé blað í sögu farþegaflugsins. Þrýstiloftsöldin gengin í garð. Síðan hafa 'Viscountflugvél- arnar átt vaxandi vinsældum að fagna og eru n,í,syfir fjög- ur hundruð þeirra í notkun víðs vegar um heim. Vickers-Armstrong, sem smíðar Viscount hóf fyrir fjórum árum smíði nýrrar og stærri flugvélar, sem byggð var á hinni góðu reynslu Vis- countflugvélanna. Þessi nýja flugvél hlaut nafnið Vickers- Vanguard og flaug sú fyrsta þeirra 20. janúar s.l. Um þess- ar mundir eru þrjár flugvélar af þessari gerð fullsmíðaðar og notar verksmiðjan þær allar til reynsluflugs. Einnig hafa þær heimsótt nærliggjandi borgir á meginlandinu og fyr- ir nokkru lenti ein, sem var á leið til Kanada, á Keflavík- urflugvelli. Vanguard er knúin fjórum Rolls-Royce Tyne hverfi- hreyflum, sem gefa flugvél- inni um 700 km. hraða á klst. Samkvæmt þeim upplýsing- um, sem fyrir liggja um ferð- ir Vanguard milli borga í Evrópu, heldur hún fullkom- lega sambærilegum áætlunar- tíma og þoturnar 707 og Com- et. Þá mun reksturskostnaður Vanguard sérlega lítill mið- aður við stærð vélarinnar (hún tekur 130 farþega). Tvö flugfélög, Trans Canada Airlines og B.E.A., hafa þegar gengið frá kaupum á tuttugu flugvélum hvort félag. V ÖRUFLUTNIN G AFLUG- VÉLIN ..ARGOSY“: Þessi flugvél, sem er mjög sérstæð í úthti, er aðallega byggð með vöruflutninga fyr- ir augum, enda mun mjög fljótlegt og auðvelt að hlaða hana og afhlaða. Hún er fram- leidd af fyrirtækinu Sir W.G. Armstrong Withworth Air- craft Ltd., er knúin fjórum Rolls-Royce Dart hverfihreyfl I um. Þessi flugvél, s^m sýnd var á flugsýningunni í Farn- borough, mun einnig verða út- búin sem farþegaflugvél, sem rúmar 83 farþega. FLUGNÖKKVINN „HOVERCRAFT“: Hovercraft, sem nýlega „skreið“ yfir Ermarsund, hef- ur ennþá ekki verið viður- kenndur sem flugvél, og ein- faldlega vegna þess, að hann flýgur aðeins í ca. 30 sentí- metra hæð. Samt er hér talin merk uppfinning á ferðinni, sem að öllum líkindum verð- ur fullkomnuð á komandi árum. Á Farnborough sýning- unni var líkan og teikningar af stórum flugnökkva, sem hugsanlegt er að nota til flutn inga yfir Ermarsund. Þessi nýi Hovercraft á að geta borið um áttahundruð manns í ferð og farið með 60 mílna hraða. FRAMTÍÐARFLUGVÉLAR: Auk þeirra flugvéla til far- þegaflugs, sem að framan eru taldar, eru nokkrar, sem enn- þá eru ekki fullsmíðaðar. Má þar nefna þotuna Airco H H 121, en líkan af henni var á sýningunni. Þesái flugvél, sem er byggð til flugs á styttri vegalengdum og mun bera 75 ■—97 farþega. Þessi flugvél verður knúin þrem Rolls- Royce R.B. 163 þrýstilofts- hreyflum, sem komið er fyrir aftaýLega á flugvélaskrokkn- um Tveir hreyflanna eru sinn á hvorri hlið, en sá þriðji ofan á og flytjast því hliðar- og hæðarstýri upp. Framleiðandi þessarar flug- vélar er De Havilland verk- smiðjurnar o.fl. Þá eru starfsmenn Vickers Armstrong verksmiðjanna önnum kafnar við teikningar af nýrri framtíðarflugvél, Vickers V.C. 10. Þessi flugvél á það sameig- inlegt með Airco D.H. 121, að hreyfiunum, sem verða fjórir Rolls Royce Conways, verður komið fyrir aftast á flugvél- inni. 10 1®- okt- 1959- — Alþýðublaðið Búið er að smíða líkan af þessari flugvél í fullri stærð og þegar hafa verið búin til þrjátíu líkön til reynslu í sér- stökum loftgöngum, þar sem eiginleikar flugvélanna á flugi eru reyndir. Áætlað er, að fyrsta flugvélin af gerðinni Vickers V.C. 10 fari í reynslu- flug 1961 og að Flugfélagið B.O.A.C. fái fyrstu flugvélina af þeim 35, sem félagið hefur pantað árið 1963. FYRIR OKKUR HÉR: Þá voru á Farnborough sýndar ýmsar flugvélar, sem áður voru kunnar og sem ætl- aðar eru fyrir styttri vega- lengdir: Flugvélin Handley Page Dart Herald, sem hefur tvo Rolls Royce Dart hreyfla og tekur fjörutíu farþega; fjög urra hreyfla De Havilland Heron, sem ber 17 farþega. Þá er ný tveggja hreyfla flug- vél í uppsiglingu, Avro 748, og er áætlað, að hún fljúgi í febrúar næstkomandi. Með tilliti til innanlands- flugs hér á landi, má segja, að engin flugvél, sem sýnd var á Farnborough-sýning- unni, henti íslenzkum aðstæð- um eins vel og Dakota flug- vélarnar, sem hér hafa verið í notkun um ífrabil. Fairey Rotodyne er nýjung, sem eins og áður er sagt, mun líkleg til þess að leysa sam- gönguvandamál þeirra staða, sem ekki $iga þess kost, að byggja flugvöll. Hins vegar mun kostnaðar- hliðin lítt árennileg, því að ein slík flugvél ásamt vara- hlutum og þjálfun áhafna og vélamanna mun kosta álíka mikið og, báðar Viscountflug- vélar Flugfélags íslands „Gull faxi“ og „Hrímfaxi“. Spilavítlð Framhald af 12. síðu. hléið 1954 batt enda á styrj- öldina í Lrdókína og þá varð Dai The Dioi eins konar op- inber móttökustaður ríkis- stjórnarinnar og síðar var hin mikla bygging gerð að höfuðbækistöð herliðsins. En nú um þriggja ára skeið hafa þessar glæsilegu byggingar verið auðar, tákn baktjalda- makks og spillingar. Stjórnin í Vietnam hefur nú ákveðið að stofna þarna mikið íþróttasvæði og spila- vítið gamla verður gert að í- þróttahöll. Sfjémmálsséknln (Framhald af 4. síðu). feller yrði forseti, þá hefðu þau verið skiljanleg, en svo var ekki. Zhukov sagði nefni- lega um svipað leyti, að út- nefning Rockefellers mundi skaða sambúð Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Aðspurður sagði Zukov þetta stafa af því, að aukning rússneskra áhrifa í hinum olíuauðugu löndum Mið-Aust urlanda, væri skaðleg fyrir verzlunarhagsmuni Rocke- feller-fjölskyldunnar. Þar af leiðandi mundi útnefning Rockefellers slæm fyrir sam- búð ríkjanna. AÐ, sem gerir þetta furðu- lega álit á bandarískum stjórn málum enn furðulegra er, að rússneskir stjórnmálamenn hafa hingað til komist betur af við hægri sinnaða stjórn- málamenn en vinstri menn. Krústjov hefur tvisvar lent í hörkustælum við vestræna leiðtoga. Fyrst við foringja Verkamannaflokksins í Bret- landi er hann kom þangað á- samt Búlganin og nú í veizl- unni með bandarísku verka- lýðsleiðtogunum. RÁTT fyrir allar tilraunir vestrænna stjórnmálamanna til að sýna að það sé góð póli- tík heimafyrir að komast vel af við ráðamennina í Sovét- ríkjunum, þá eru litlar líkur fyrir því, að Kremlherrarnir skipti sér nokkuð að því hvern ig kosningabaráttan í Banda- ríkjunum fer. Krústjov féll vel við Eisenhower, sem um- gekkst hann eins og jafningja en hann virtist ekki hafa neinn áhuga á væntanlegum eftirmönnum hans, nema þá helzt Stevenson. Stjórnmálatæknin breytist en hér eftir eins og hingað til, er líklegt að valdið ráði þar úrslitum, en ekki persónuleiki frambjóðenda eða herbrögð þeirra. Músagildran Framhald af 2. síðu. erfiðlega að átta sig á leik Jó- hanns, en eftir því sem líður á leikinn hættir maður að efast um skilning hans. Um túlkun hans á einstökum atriðum má deila, en í heild sinni má hann þó vel við árangurinn una. Það veldur furðu, að leikhúsin í Reykjavík hafa lítt fært sér í nyt starfskrafta hans til þessa. Það sem mestu máli skintir í þessu tilfelli er að spenna fáist í leikinn, annars er allt uhnið fyrir gýg. Þetta hefur tekizt hér, það varð m'eð ö'llu ljóst á undirtektum áhorfenda frum- sýningarkvöldið. Það verður að sjálfsögðu tal- ið leikstjóranum, Klemenz Jónssyni tij tekna, en sér við bhð hefur hann Magnús Páls- son, sem hefur gert leiktjöldin, sem eru hin þokkalegusu að allri gerð. Þýðing Halldórs Stef ánssonar var gerð á góðu máli, sem vænta mátti, en þó þó'ttist ég heyra har setningar, sem hvergi ganga aftur nema í þýðingum úr enskri tungu: — aðalsetning, finnst yður ekki; - aðalsetning, býst ég við. — Við orðum þetta öðruvísi í daglegu tali okkar bæði í Kópavogi og Reykjavík. Mér finnst Leikfélag Kópa- vogs hafa betur af stað farið en heima setið með þessa sýningu sína. Það er ungt félag enn og hefur á að skipa óvönum kröft- um. En Róm var ekki byggð á ein'um degi, og meðan við bíð- um er ekki ástæða til að óska því annars en góðs geng'S og meiri þroska með hverju nýju verkefni. Sveinn Einarsson. Herðubreið í viðgerð. 12 ÁRA flokkunarviðgerð fer nú fram á strandferðaskip- inu Herðubreið á slipp í Reykja vík. Átti viðgerðinni að vera lokið hinn 20. þ. m., en sam- kvæmt uppl. útgerðarinnar mun það dragast fram undir lok mánaðarins. jtf’j i i ; i • ^ a

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.