Alþýðublaðið - 29.10.1959, Qupperneq 6
œD£S£ö>
gefur hér lesend-
um sínum sýnis-
4 horn úr einum
fréttamánuði fyrir 20 árurn. Fyrirsagnir og
texti er óbreyttur.
Þetta gerðist í júnímánuði árið 1939:
Nýr hæsfaréffarmála-
flutningsmaður.
GUÐMUNDUR í. GUÐ-
MUNDSSON hefur nýlega lok-
ið prófi, sem veitir honum rétt
indi til þess að flytja og verja
mál fyrir hæstarétti.
Japanir halda alþjððahverfinu þar í
LONDON í gærkvöldi. FÚ.
OPINBER tilkynning um ástandið í Tientsin var
gefin út í London síðdegis í dag. í þessari tilkynningu
er gefið í skyn, að jákvæðar ráðstafanir muni nú verða
gerðar þegar í stað til þess að vernda hagsmuni
brezkra þegna í Tientsin, ef Japanir haldi áfram hafn-
banni sínu og hernaðarlegri einangrun á forréttinda-
svæði Breta og Frakka þar í borginni.
í tilkynningunni segir, að
tilboð Breta um það að ræða
málefni hinna fjögra Kínverja,
sem Japanir krefjast, að fram-
seldir verði, standi ennþá, en
á meðan ekki fáist frekari [
lausn á því máli, álíti brezka
stjórnin ástandið mjög alvar-
legt.
Japanskir embættismenn
hafa þegar gefið út opinberar
yfirlýsingar þar sem, því er
hótað að hafa samningsbundin
1 réttindi annarra útlendra
ríkja að engu, og segir í Lund-
únatilkynningunni, að ekki
verði annað séð en að þetta
! framferði hinna japönsku emb
ættismanua njóti fyllsta stuðn
ings stjórnarinnar í Tokíó.
Hinni opinberu tilkynningu
lýkur á þann hátt, að látin er
í Ijós von um það, að japanska
stjórnin færist ekki undan því
að ræða um vandamálin eins
og þau eru, en ef hún hins veg
Japanskir herforingjar í Norður-Kína.
LONDON í gairkveldi. FÚ.
FARLEY, póstmálaráðherra
Bandaríkjanna, sem jafnframt
er framkvæmdastjóri demó-
krataflokksins, hefur nýlega
lokið ferðalagi um allmcirg ríki
Bandaríkjanna. Við heimkom-
una úr þessu ferðalagi sagði
hann, að FrankJín D. Roosevelt
gæti fengið útnefningu sem
forsetaefni demókrata í næstu
kosningum, ef hann vildi talca
við henni.
Annars er það hefðbundin
venja í Bandaríkjunum; að eng-
inn forseti starfi meira en tvö
kjörtímabil. Er þetta mál nú
| mikið rætt í Bandaríkjunum,
! • Til þess er þó ekki taiið
munu koma, að demókratar
j leggi mjög fast að Roosevelt að
gefa kost á sér sem forsetaefni
; í þriðja sinn, en það er vitað,
að hann hefur sjálfur hugleitt
þetta mál mikið, en ekkert lát-
ið í ljósi ennþá.
Þegar heimsókn brezku kon-
ungshjónanna í Bandaríkjunum
er lokið; fer Roosevelt í ferða-
lag um ýms vesturríkin og til
Alaska og mun þá fá mjög aukin
persónuleg kynni af skoðunum
manna á, því, hvort heppilegt
muni vera, að hann verði enn
á ný í kjöri sem forsetaefni.
ar færist undan því, þá.sjái
brezka stjórnin sig til þess
neydda, að gera þegar í stað
ráðstafanir til þess að vernda
brezka hagsmuni.
JAPANIR HINDRA MAT-
VÆLAFLUTNINGA INN í
ALÞJÓÐAHVERFIÐ.
Brezki aðalræðismaðurinn í
Tientsin hefur með mjög hörð-
um orðum mótmælt því við yf
irvöld Japana, að bannað væri
að flytja matvæli inn á forrétt
indasvæði Breta í Tientsin.
Þessum mótmælum svara
japönsk yfirvöld á þá leið, að
þau hafi aldrei bannað innflutn
ing á nauðsynlegum matvæl-
um, en þau geti ekki sætt sig
við brezka íhlutun um það,
hvernig Japanir fara að því að
halda uppi ró og reglu á svæð-
um, sem þeir hafa unnið í hern
aði.
PRESTS-
KOSNING
PRESTSKOSNING í Breiða-
bólsstaðaprestakalli á Skógar-
strönd í Snæfellsnessprófasts-
dæmi fór fram sunnudaginn
21. maí. Hinn setti sóknarprest
ur þar, séra Sigurbjörn Ein-
arsson, var einn í kjöri. Á kjör-
skrá voru 104 kjósendur og af
þeim kusu 64. 2 seðlar voru ó-
glidir og einn auður. Umsækj-
andi fékk þannig 61 atkvæði og
var kosningin því lögmæt.
F.Ú.
HÖFN í gærkveldi. FÚ.
Bæjarstjórn Stokkhólmsborg
ar hefur ákveðið að byggja í.
miðjum Stokkhólmi tvö skot-
og sprengjuheld neðanjarðar-
byrgi fyrir almenning.
Er áætlað, að þau kosti hálfa
aðra milljón króna.
SÚÐIN
var á Siglufirði í gær.
Elsa Sigfúss
UNGFRÚ Elsa Sigfúss hefur
verið ráðin til að syngja á hljóm
leikum miklum í Tívólí í Kaup-
mannahöfn. FÚ.
r - u-•.
ifíSSSSS
Kafbáfsslys M England
NÝJUSTU fregnir af tilraun
um til að ná upp enska kaf-
bátnum „Thetis“, sem sökk á
dögunum við norðúrströnd
Wales með um 100 manna á-
höfn, herma, að enskir kafbáta
sérfræðingar séu komnir á þá
skoðun, að ómögulegt muni
verða iað ná honum upp.
Á myndinni sést aðstaða kaf.
bátsins fyrst eftir slysið. Hann
sökk á 60 metra dýpi, en stóð.
lóðrétt upp í sjónum, þannig að
skuturinn náði upp á yfirborð
sjávarins við fjöru. En stefnið
grófst 22 metra niður í leðjuna
á sjávarbotninum. Eftir fyrsta
flóðið sökk skuturinn einnig
og skaut aldrei upp aftur.
Tölurnar á myndinni sýna
hin einstöku hólf kafbátsins.
1) Olíugeymar. 2) Vélarrúm. 3)
Dælurúm, þar sem vatni er
ARGENTÍNU-
SKÁKMÓTIÐ
í FYRRAKVÖLD var ákveð
ið hvaða skákmenn skyldu
mæt’a vegna íslands á alþjóða-
skákmótinu í Buenos Aires í
sumar.
Þessir f ara: Ásmundur Ás-
geirsson, Baldur Möller, Jón
Guðmundsson, Guðmundur
Arnlaugsson og Einar Þorvalds
son.
dælt út úr kafbátnum. 4)
Geymslurúm fyrir samanþjapp
að loft. 5) Eftirlitsherbergi. 6)
Skipstjórnarherbergi. 7) Út-
sýnisútbúnaðurinn. 8) Raf-
mangsgeymarnir, sem við inn
streymí saltvatnsins fram-
leiddu hið eitraða klórgas, en
það er talið að áhöfnin hafi
kafnað af. því, 9) Björgunar-
herbergið. Útgöngudyr úr því
eru eins og myndin sýnir, niðri
í leðjunni, —• en um þær björg
uðust þó með björgunarvestum
þeir fjórir, sem af komust. 10)
Tundurskeytahlaupið.
mwmmmwwwmwimmmw
MMMMMMMMMMMMMMW
6 29- okt- 1959. — Alþýðublaðið