Alþýðublaðið - 12.11.1959, Síða 10
Kreisky
F'ramhald af 12. siou.
Jafnaðarmaður ætti heldur
ekki að vekja neina undrun
eftir það, sem hér hefur verið
rakið. Faðir hans var ákaf-
lega íhaldssamur og hann
leit hinar róttæku tilhneig-
ingar sonarins óhýru auga. Á
tímum Dolfuss-Schusnigg sat
hann samtals 18 mánuði í
fangabúðum en flýði til Sví-
þjóðar er nazistar tóku völd-
in í landinu. Á stríðsárunum
vann hann hjá sænsku sam-
vinnuhreyfingunni.
Kreisky er fæddur 1911 og
lás- lögfræði. Eftir frelsun
Austurríkis varð hann fyrsti
sendifulltrúi lands síns í Sví-
þjóð og 1951 var hann skip-
aður aðstoðarráðuneytisstjóri
í 'Vín.
Áf sérstökum ástæðum hafði
Austurríki engan utanríkis-
ráðherra frá 1923 þar til
Kreisky var skipaður í það
embætti á þessu ári. Af sparn
aðarástæðum var innanríkis-,
utanríkis- og dómsmálaráðu-
neytið látið heyra beint undir
fersætisráðherrann, en eftir
1945 tók þessi skipan aðeins
til utanríkisráðuneytisins.
Upp úr 1955 varð þörfin fyrir
sérstakt utanríkisráðuneyti æ
brýnni og þegar Kreisky var
á síðastliðnu vori boðið að
taka að sér embætti utanrík-
isráðherra gerði hann það með
því skilyrði, að utanríkisráðu
neytið yrði algerlega sjálf-
stætt eins og önnur ráðuneyti.
Kreisky var sjálfkjörinn í
þetta embætti, þar eð hann
hafði verið forstjóri þessa
ráðuneytis frá 1951 og hafði
m. a. tekið þátt í viðræðunum
um friðarsamning Austurrík-
is og Sovétríkjanna í Moskvu
1955.
Bruno Kreisky er sagður
gæddur frábærum gáfum og
þekkingu á þeim málum, er
að utanríkismálum lúta. Hann
er góður samningamaður og
heldur fast á sínu máli.
Kreisky er kvæntur sænskri
konu og þekkir Norðurlönd út
og inn eftir margra ára dvöl
í Svíþjóð. Hann er eins konar
Willy Brandt Austurríkis og
einn fremsti forustumaður
Jafnaðarmanna.
Hæsfi vinning-
ur á fjórðungs-
miða
í GÆR var dregið í 11. flokki
Happdrættis Háskóla fslands.
Vinningar voru alls 1102 og
voru að upphæð 1 405 000 kr.
Hæsti vinningurinn, 100 þús-
und krónmr, kom á nr. 24938,
sem eru fjórðungsmiðar, seldir
hjá Valdimar Long í Hafnar-
firðr.
5(1 þúsund króna vinningur-
inn kom á nr. 13646, einnig
fjórðungsmiða. Tveir voru seld
ir á Hvammstanga, einn á Akur
eyri og einn í Reykjavík.
10 þúsund króna vinningarn-
ir komu á nr. 8746, 13329,
17866, 17991, 21835, 31192,
31703, 39930, 40447, 42528,
49545.
5 þúsund króna vinningarnir
komu á nr. 10947 16831 20343
20583 21260 24432 24937 24939
26527 29341 33835 36896 47172
47212. (Birt án ábyrgðar.)
FYRIR skemmtu héldu
íbúar þýzku borgarinnar
Bremen hátíðlega viku,
sem þeir kölluðu „Frei-
markt 1919“. Var þar mik-
ið um dýrðir, eins og sjá
má á niyndinni, skrúð-
göngur, tónlistarhátíðir
og síðast en ekki sízt sung
ið og dansað á götum úti.
uiiiiiiiiiiiiii ii iiiiuiii iii iiiiiiinitiiií iii tiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiui 11111111 iiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiimiiiiiiiiiuitt
Skepnueigendur í Nesja-
hreoci misstu af arfi
HÆSTIRETTUR hefui;- kveð-
ið upp dóm í málinu hrepps-
nefnd Nesjahrepps f. h. hrepps-
ins gegn skiptaráðandanum í
Skaftafellssýslu og Sigurborgu
Þórarinsdóttur. Staðfesti hæsti
réttur þann úrskuirð skiptarétt-
ar Skaftafellssýslu ,að „upp-
kast“ að erfðaskrá Sigurðar
heitins Þórarinssonar frá Stcim
lág í Nesjahreppi, Austur-
Skaftafellssýslu, sé ógilt sem
erfðaskrá, enda uppfylli það
ekki hið lögboðna erfðaskrár-
form.
Málavextir eru þeir, að 21.
sept. 19.57 andaðist í Landsspít-
alanum í Reykjavík Sigurður
Þórarinsson, sem fyrr er nefnd-
ur. Lét hann eftir sig skriflegt
uppkast, þar sem hann kveður
það vilja sinn, að stofnaður
verði minningarsjóður af eftir-
látnum eignum sínum, er beri
nafn hans. Sé tilgangur sjóðs-
ins að verja árlegum vöxtum til
áð verðlauna skepnueigendur í
Nesjahreppi eftir því sem nán-
ar greinir í skjalinu, og að
stjórn sjóðsins sé bezt komin í
höndum hreppsnefndar Nesja-
hrepps.
Skjal þetta var ódagse+t, auð
kennt með eiginhandar nafni
Sigurðar, neðailega vinstra
megin, en bar ekki með sér að
það væri undirritað í viðurvist
notarii publici eða tveggja til-
kvaddra votta, en óvéfengt var,
að það hafi verið með rithönd
Sigurðar.
Sigurborg Þórarinsdóttir,
systir hins látna, mótmælti
gildi þessa skjals sem löglegri
erfðaskrá og taldi efni þess ékki
vera síðasta viljá arflátans. Tvö
vitni, abuendur á Storulag,
báru að þau hefðu séð Sigurð
rita undir skjalið að morgni 28.
ágúst 1957, en þann dag fór
hann til Reykjavíkur til lækn-
inga. Virtist þeim hann vera
heill heilsu og með fullu ráði og
rænu. Héraðslæknirinn á Höfn,
Kjartan Árnason, vottaði að
hafa skoðað Sigurð 22. ágúst
1957 og hafi sér virzt hann vera
eins og hann átti að sér
Sem fyrr segir úrskurðaði
skiptaréttur Skaftafellssýslu
skjalið ógilt sem erfðaskrá og
staðfesti hæstiréttur þann úr-
skurð. Hreppsnefnd Nesja-
hrepps var og gert að greiða
Sigurborgu Þórarinsdóttur 5G00
kr. í málskostnað fyrir hæsta-
rétti.
Freðmýrar
Framhald af 12. síðu.
ari hugmynd í framkvæmd.
Hann telur að ailar þjóðir
muni njóta góðs af þessum
framkvæmdum, fyrst og
fremst Kanada, Sovétríkin,
Norðurlöndin, Þýzkaland,
Pólland, Kína og Japan.
Þessi hugmynd er ekki ný
og hafa margir mælt bæði
með henni og mótl. Frægur
bandarískur vérkfræðingur
heldur því t. d. fram, að hlýn-
andi loftslag á norðurskauts-
svæðinu muni hafa í för með
sér aukna úrko'mu svo hætta
verði á nýrri ísöld, eða að á-
hrifin mur.i verða þveröfug
við það, sem Borisov heldur
fram.
10 12. nóv. 1959 — Alþýðublaðið
Framhald af 12. síðu.
olympíuleikunum! í Stokk-
hólmi 1912 og hlaut verðlaun
í 1500 metra hlaupi á tvenn-
um olympíuleikum. Vegna trú
ar sinnar neitaði hann að bera
vopn í fyrri heimsstyrjöldinni
en gekk í þess stað í hjúkrun-
arsveitir og hlaut heiðurs-
merki fyrir frábært starf á
því sviði, og ítalir veittu hon-
um æðsta styrjaldarheiðurs-
merki ítalíu fyrir starf hans
í þágu sjúkra og særðra á víg-
stöðvum þar í landi.
FaÐIR Noel-Baker var í hin-
um róttækari armi Frjáls-
lynda flokksins en sonurinn
tók skrefið til fulls og gekk
í Verkamannaflokkinn, og bar
áttan fyrir sósíalisma og friði
hefur frá því haldist í hendur
hjá Noel-Baker. Hann var
kjörinn á þing 1929 og hefur
síðan verið endurkjörinn við
allar kosningar nema 1931—
1935.
Eftir fyrra stríðið hóf hann
starf sitt í þágu Þjóðabanda-
lagsins. Hann áleit að koma
þyrfti á allsherjareftirlits-
kerfi með afvopnun áður en
hafist yrði handa um afnám
herja og útrýmingu vopna. —
Vegna sérfræðiþekkingar sinn
ar í alþjóðarétti varð hann
fastur starfsmaður í miðstjórn
Þjóðabandalagsins og þar
komst hann fyrst í kynni við
Friðþjóf Nansen.
Það var Noel-Baker, sem
átti frumkvæðið að því, að
Þjóðabandalagið útnefndi
framkvæmdastjóra til að ann-
ast skipti á stríðsföngutn. —
Hann réð því líka að Friðþjófi
Nansen var falið það starf og
fór sjálfur til Osloar til að
ræða við Nansen um þessi mál
og fá hann tij að taka starfið
að sér. Þar með hófst sam-
starf þessara tveggja manna,
sem átti eftir að standa árum
saman.
Noel-Baker var helzti ráð-
gjafi Nansens í málum stríðs
fanga og átti einnig frum-
kvæðið að því, að hann hóf
hjálparstai'fsemi sína við
rússneska flóttamenn. Sam-
vinna þeirra stóð þar til Nan-
sen lézt árið 1930.
Frá ÞVÍ um miðjan þriðja
tug aldarinnar hefur Noel-
Baker helgað sig baráttu fyr-
ir afvopnun, skrifað um það
margar bækur og tók þátt í
afvopnunarráðstefnum Þjóða
bandalagsins.
Noel-Baker var helzti ráð-
herra í stjórn Attlees 1945, —
fyrsti samstarfsmaður Bevins
í utanríkisráðuneytinu og að-
alfulltrúi Breta á fyrsta Alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna. Síðar varð hann flug-
málaráðherra og loks samveld
isráðherra og átti sem slíkur
mikinn þátt í samkomulaginu
sem lei'ddi til stofnunar lýð-
veldisins í Indlandi.
Eftir að Verkamannaflokk-
urinn komst í stjórnarand-
stöðu varð hann einn af helztu
talsmönnum flokksins í utan-
ríkismálumi. Hann lauk m. a.
umræðunum um Súezmálið á
sínum tíma með harðri árás á
stjórn Edens og lagði áherzluá
að með framkomu sinni hefðu
Bretar lent í andstöðu við Sam
einuðu þjóðirnar en á þeirri
stofnun væru vonir mannkyns
ins um frið reistar.
r
A SEINNI' árum hefur Noel-
Baker helgað sig afvopnunar-
málunum á ný. Á síðastliðnu
ári kom út merkasta bók hans
um þau efni; „The Arms Race.
Programme for World Disar-
mament", (Vígbúnaðarkapp-
hlaupið. Áætlun um algera
afvopnun). í þessari bók ræðst
hann gegn þeirri útbreiddu
skoðun, að vígbúnaðarkapp-
hlaupið sé aðeins aflejðing
pólitískra mótsetninga og ógni
ekki friðnum í sjálfu sér. .—•
Hann telur þvet't á móti að
vígbúnaður geti verið orsök
styrjaldar. Enda þótt Noel-
Baker sé mjög andvígur
stefnu Sovétríkjanna og hafi
gagnrýnt þau harðlega og sé
hlynntur Atlantshafsbanda-
laginu, þá gagnrýnir hann
vesturveldin fyrir afstöðuna
til afvopnunarmálanna. Hann
segir að vorið 1955 hafi verið
opnuð leið til samkomulags
um eftirlit með afvopnun. —
Rússar féllust þá á helztu atr-
iðin í afvopnunartillögum vest
urveldanna, sem þá voru
dregnar til baka. Noel-Baker
telur, að vesturveldin eigi nú
að taka upp aftur tillögurnar
frá 1955 og éftir að hafa rætt
við Krústjov forsætisráðherra
Sovétríkjanna á þessu ári seg
ir Noel-Baker, að nú sé að
skapast andrúmsloft fyrir
samningum um algera afvopn
un.
Noel-Baker er vafalaust
einn af merkustu stjórnmála-
mönnum Breta í dag en þrátt
fyrir það hefur hann verið
minna þekktur en ýmsir aðrir,
um hann hafa aldrei skapast
hópar aðdáenda eða dolfall-
inna fylgismanna. Starf hans
hefur verið unnið bak við
tjöldin í fiölmörgum tilfellum,
óþreytandi starf að skipulágn-
ingu og nraktisku starfi vek-
ur oft minni athygli en hávær
ar- ræður. Að öllu samanlögðu
hefur réttur maður fengið
friðarverðlaun Nóbels að
þessu sinni.
Er alls sfaðar
Firamhald af 12. síðu.
yfirbugað þá og bæði nem-
endurnir og kennararnir álíta
Ponzi lífgjafa sinn.
En ítalska lögreglan er ekki
hrifin af Ponzi og telur að
hann fari in ná verksvið sitt.
Starfsaðferðir hans hafa oft
leitt til harkalegra deila við
yfirvöldin og er hann kom
upp um eiturlyfjahring fyrir
skömmu áleit lögreglan að
hann hafi leikið lögreglu-
mann og þannig tekizt verk
sitt. Ponzi telur sig aldrei
hafa notað óheiðarlegar að-
ferðir við uppljóstrun glæpa,
og segist ekki mundu hlífa
skjólstæðing sínum, ef hann
hefði gerzt sekur um glæpi.
Pönzi er aldrei langt í burtu
þegar eitthvað er að gerast,
hvort sem um er að ræða að
stöðva brjálaðan glæpamann
eða 900 punda sirkusfífl.