Alþýðublaðið - 25.11.1959, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 25.11.1959, Qupperneq 4
£ Otgefandi: AlþýSuflokkurlnn. — Framkvœmdastjórl: Ingólfur Krlatjánason. — Kltstjórar: Benedlkt Gröndal, Gísli J. Ástþórsson og Helgi Sæmundsson (ifo.). — Fulltrúl ritstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Bjðrg- Vin GuSmundsson. — Slmar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýa- Ingasími 14 906. — ASsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsina, j'. Hverfisgata 8—10. Fyrirogeftir SJALDAN eða aldrei hefur það átt sér stað, : að kjósendur hafi verið blekktir jafn fullkomlega ■ fyrir kosningar sem nú, sagði Tíminn í sorgar- ramma á forsíðu í gær. Blekkingin mikla á að vera þessi: 1 ! r { Fyrir kosningar var sagt: Hagur útflutnings- : sjóðs og ríkissjóðs með blóma. Eftir kosningar var sagt: 250 milljón króna : halli á ríkissjóði og útflutningssjóði á næsta ári. Hvortveggja þetta var og er rétt, að því bezt verður séð af þeim upplýsingum, er fyrir liggja. Hins vegar reynir Tíminn að blekkja les endur sína með því, að rugla saman árinu í ár og næsta ári. Sannleikurinn í málinu er þessi: Þegar fjár- i lög voru afgreidd síðastliðið vor, h^ldu Framsókn- armenn fram, að þau mundu aldrei standast, held ur mundu safnast upp óreiðuvíxlar á þessu ári, : sem þjóðin yrði að greiða eftir kosningar. Alþýðuflokksmenn mótmæltu þessu. Þeir héldu : fram, að f járhagur ríkisins á þessu ári mundi stand . ast þanhig, að það stæði við allar skuldbindingar sínar án þess að til yrðu neinir óreiðuvíxlar. Þetta hefur reynzt rétt. Hagur útflutningssjóðs og ríkis- . sjóðs hefur á þessu ári verið góður, enda er Tím- inn með öllu hættur að tala um óreiðuvíxla. Hins vegar sögðu Alþýðuflokksmenn skýrt hvað eftir annað í kosningabaráttunni, að vandi framtíðarinnar væri ekki leystur, þótt Alþýðu- flokksstjórninni tækist að stöðva dýrtíðina þetta ár og forða þjóðinni frá nýju dýrtíðarflóði. Kjósendur muna vafalaust eftir ræðum eins og þeim, er Emil Jónsson og Gylfi Þ. Gísla son fluttu í útvarpsumræðunum. Þar var á full- komnlega heiðarlegan hátt skýrt frá þeim vanda málum, sem blasa við þjóðinni, svo að enginn getur ásakað Alþýðuflokkinn um blekkingar í þeim efnum. Framsóknarmenn töldu þjóðinni trú um, að Alþýðuflokksstjórnin mundi reka hállabúskap og safna óreiðuskuldum, sem greiða yrði eftir kosn- ingar. Þetta var blekking, enda er Framsókn mú hætt að tala um slíka óreiðuvíxla, en grípur til þess örþrifaráðs og rugla saman árinu í ár og næsta ári. Landsmenn láta ekki blekkjast á svo einfald- an hátt. Ný verzlun Opnum spegla og snyrtivörubúð á SKÓLAVÖRÐUSTÍG 22A. Komið og reynið viðskiptin. Gleriðjan s.f. Sími 11-386. hefsl l dag x-A-lisf- inn. STJÓRNARKJÖRIÐ í Sjó- mannafélagi Reykjavíkur hefst í dag í skrifstofu félagsins í Al- þýðuhúsinu við Hverfisgötu. Listi stjórnar og trúnaðar- mannaráðs er A-Iisti, en listi kommúnista er B-listi. Upplýsingar Alþýðublaðsins um aðstandendur B-listans virð ast hafa farið fyrir hjartað á þeim kommúnistum, er standa að listanum, þar eð í gær barst Alþýðublaðinu bréf frá Guð- birni Jenssyni, þar sem hann kvartar sáran yfir skrifum Al- þýðublaðsins. Hann segir m. a.: „Það er mikill misskilning- ur, sem flram kemur í áður- nefndum blaðagreinum, að listi þeirra sé borinn fram af einhverjum pólitískum flokk- um.“ Þá vita menn það. List- inn er sem sagt ópólitískur. Eins og venjulega kalla kom- múnistar lista sinn lista „starf- andi sjómanna“- Alþýðublaðið hefui' áður skýrt frá því, að Guðbjörn Jensson, helzti mál- svari listans, hafi undanfarið verið önnum kafinn við að snatta fyrir kommúnista í landi og því ekki haft tíma til að stunda sjóinn, og formannsefni kommúnista, Jón Timotheusar- son, vinnur hjá KRON, svo að ekki er þarna eingöngu um starfandi sjómenn að ræða. ERFITT AÐ LEYNA HINU RÉTTA Alþýðublaðið getur vei skilið viðleitni kommúnista til þess að leyna hinu rétta um B-list- ann. Sjómenn vita Það, að kom múnistar hafa engu góðu komið fram fyrir sjómenn og þess vegna er eflaust bezt fyrir að- standendur B-listans að sem fæstir viti, að það ei'u kommún- istar og engir aðrir, sem bera fram B-listann. En hætt er við, að þessi viðleitni kommúnista verði árangurslaus. Sjómenn þekkja pilta eins og Guðbjörn Jensson og vita hverra erinda hann gengur. A-listann skipa hins vegar þeir menn, er haft hafa forustu í Sjómannafélagi Reykjavíkur undanfarin ár og þekktir eru fyrir góð störf í þágu sjómanna. Allir andstæðingar kommún- ista í Sjómannafélagi Rvíkur munu fylkja sér um þann lista og gera sigur hans sem mestan. Ágóði af hvalreka lil kirkfubyggingar Fregn til Alþýðublaðsins. DALVÍK f gær. MARSVÍN þau, er rekin voru á land hér nýlega, hafa nú öll verið skorin og er megnið af kjötinu komið í frystihús. Á- kveðið hafið verið að frysta það til útflutnings, en óvíst mun níi um hvort það er fært, Því að eitthvað af því hefur skemmzt áður en því varð komið í frysti- húsið. 35 tonn af kjöti voru flutt til Akureyrar, en búizt er við að það verði allt að fara í mjöl- verksmiðju. Spikið hefur verið flutt til Akureyrar, jafnótt og hægt hef- ur verið að taka á móti því þar. Er það brætt þar. Ákveðið mun vera, að allur ágóði af hvalreka þessum renni til kirkjubyggingar á Dalvík. Hefur kirkjan lengi verið í byggingu og vonast menn nú ti^ að sjá fyrir endann á henni. K.I. Með ungy fólki KL. 18.30 Útvarps saga barnanna. KI. 18.55 Framburðar- kennsla í ensku. Kl. 19 Þingfréttýr. Kl. 20.30 Daglegt mál. Kl. 20.35 Með ungu fólki (Jónas Jónasson). Kl. 21 Samleikur á kné- fiðlu og píanó (Er- ling Blöndal Bengt son og Árni Krist- jánsson leika són- ötu op. 102 nr. 2 eftir Beethov- en). Kl. 21.20 Umhverfis jörð- ina á 80 dögum, IV. kafli. Kl. 22.10 Frá Vejle — háborg nor- rænna íþrótta (Sigurður Sig- urðsson). Kl. 22.30 Svavar Gests kynnir íslenzk dægurlög. Kl. 23 Dagskrái'lok. jfip) Hannes * á h o r n i n u Heimilin eru aðalat- riðin. ^ Ekki skólar, kirkjur, bíó verzlanir eða iðjuver. -fc Hvað dvelur ríkis- stjórnina? ýV Hver dagur er kvöl. MENN SEGJA aff það sé of- vöxutr í byggingaiðnaðinum“, segir Stefán Jónatansson í bréfi til mín, og heldur áfram: — „Meðan húsnæðlsvandræði eru og næstum ókleyft að fá íbúðir á leigu er ekki híægt að halda því fram, að ofvöxtur sé í bygg- ingu íbúðarhúsnæðis, því að ég verð að álíta, að það sé frum- skilyrði fyrir einstaklingana og þjóðfélagið að hægt sé að stofna heimili og halda þeim við líði. ÉG VIL minna á það, að hér í bænum er nú verið að byggja eftir Því sem ég kemst næst, um fimm nýja skóla. Skólar eru sjálfsagðir og nauðsynlegir fyr- ir einstaklingana og þjóðfélag- ið, en ég vil segja, að þeir séu ekki nauðsynlegri en heimilin, íbúðirnar. Því aðeins geta börn- m náð í'kamlegum og andlegum þroska, að þau eigi þak yfir höf- uðið hjá foreldrum sínum. Það er því nauðsynlegra að eiga ein- hversstrðar höfði sínu að halla en að ijólga skólum og stækka þá. ÉG VIL ennfremur benda á það, að hér í bænum eru nú í byggingu að minnsta kosti fjór- ar kirkjur. Ég er ekki andvígur kirkjum, það er langt frá því, og ég vildi óska að fólk gengi oftar í guðshús en raun er á. — En ég vil segja: nauðsynlegra er heimilið en kirkjan. Ekki er lík- legt að það fólk leyti fremur til kirkjunnar, se mhvergi á höfði sínu að halla en það sem á skjól til að skríða í, heimilisarin til þess að ylja sér við. ÉG VIL benda á þá staðreynd, að öðru megin við Suðurlands- Piaut er verið að byggja verzl- unar- og iðnaðarhús fyrir hundr að milljóna króna, alla leiðina frá Nóatúni og austur að Soga- mýri. Ef til vill er það nauðsyn- legt, en ekki er það nauðsyn- iegra en íbúðabyggmgar fyrir fólkið. Loks vil ég minna á það, að nú er verið að byggja tvö geysistór kvikmyndahús í borg- inni. Þó að gaman sé að horfa á skemmtilega kvikmyr.d í glæsi- legum húsakynnum, þá er nauð synlegra að eiga þak yfir höfuð- ið eða hafa aðgang að skúta til að eiga heimili í. ÞAÐ eru ekki íbúðabygging- arnar, sem draga fólkið frá fram ieiðsluatvinnuvegunum eða setja gjaldeyrisgetu þjóðarinnar á hausinn. Fjármagnið fer ekki f; rst og fremst í íbúðabygging- ar. — Þetta hlýtur öllum að vera Ijóst. — Furöuleg tregða hcfur verið á því íyrir þá, sem eru af frábærum dugnaði að reyna að koma sér upp húsnæði íyrir sig og fjölskýldu sína, að *á iin tilbygginganna. Mánuðum s- rnan hafa þeir nú staðið í von um lán eisn og þeir haía rétt til sumkvæmt lögum og reglugerð- un,, en svo erfiðiega viröist gauga að fá fáð í sjóöinn. að enginn fær neitt. 1-ARNA er verið að kasta íé á glæ. Húsnæ iið stendur ófull- bú.'ð. Það er e.í't> hægt að flytja i'm. Sumir standa á götunni vcgna þess að beu; hafa sagt upp £c,mla húsnæðiíiu, aðrir þrauka og vegna þess hvað mikið er ó- fnijgert er næslum ókieyft að fa ibúðir á leig i þrátt fyrir allt það, sem reis hefur verið. ALÞÝÐUFLOKKSSTJÓRN- INNI tókst ekki að íeysa þeíta vandamál eins og vonast var eft- ir. Ef til vill stóðu bankarnir í vegi. En hvað nú? Hvað veldur drættinum? Hver dagur sem líð ur er kvöl fyrir þá sem standa með tvær ehndur tómar og þurfa þó aðeins herslumuninn til þess að geta flutt inn“. ÞETTA bréf nægir í dag. Ég vil þakka bréfritaranum fyrir tilskrifið. Hann bendir á atriði, sem eru byggð á staðreyndum. Þetta mál þarf að leysa þegar í stað. Opnum möguleika fyrir fólkið til að flytja í eigið hús- næði. Stöðvum um sinn stór- byggingar, sem ekki bæta úr brýnustu húsnæðisþörf heimil- ana í borginni. Við komum aft- ur að þessu máli næstu daga. Hannes á liorninu. 4 25. nóv. 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.