Alþýðublaðið - 29.11.1959, Side 10
Verkamannafélagið
Dagsbrún.
Félagsf undur
verður haldinn í Iðnó mánud. 30. þ. m. kl. 8,30
s. d.
Dagskrá:
1. Félagsmál.
2. Kosið í uppstillingarnefnd og kjörstjórn.
3. Samningamálin.
Fjölmennið og sýnið skírteini við inngang-
inn.
Stjórnin.
Hjarkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir
JÓSEP HÚNFJÖRÐ
lézt í Landakotsspítala föstudaginn 27. þ. m.
Katrín Vilhjálmsdóttir og Sigríður Húnfjörð.
frá Sálarrannsóknaféfagi íslands
Sálaffrannsóknafélag fslands hefur ákveðið að stofna til
bókaútgáfu, með það fyrir augum að gefa út merkar
bækur um sálarrannsóknir, dulræn efni og andleg mál,
ýmist frumsamdar eða þýddar, fyrst um sinn eina bók
á ári, en síðar fleiri, ef útgáfan fær góðar viðtökur al-
mennings.
Fyrsta bókin, sem Bókafélag S.R F.f. (en svo nefnist út-
gáfan) gefur út, verðui' úrval af erindum og ritgerðum
eftir Einar H. Kvaran um sálræn efni, og heitir bókin:
„EITT VEIT ÉG“.
Þessi bók er gefin út í tilefni af aldarafmæli skáldsins
hinn 6. desemjber n. k. í bókinni, sem verður um 400 bls.
í sama broti og „Morgunn“, tímarit Sálarrannsóknarfé-
lagsins, verða prentaðar um 20 meiri háttar ritgerðir og
fyrirlestrar, sem ibirzt hafa á víð og dreif í tímaritum á
árunum 1905—1938, eða verið gefnar út sérprentaðar, og
flestar ’ löngu ófáanlegar. Auk þess nokkurt efni, sem
aldrei hefur verið prentað.
Bæbur þær, sem Bókafélag S.R.F.f. gefur út, verða seldar
skráðum félagsmönnum þess allmiklu ódýrari, en hægt
verður að selja bækurnar á almennum bókamarkaði. —
Verð á þessari fyrstu bók félagsins verður þannig aðeins
80 kr. hft. en 115 k*. innb., send burðargjaldsfrítt gegn
póstkröfu beint til félagsmanna (en á almennum bóka-
markaði verður bókin seld á 150 kr. hft. en 195. kr. innb).
J>eir, sem óska að verða félagsmenn í Bókafélagi S.R.F.f.,
og þannig verða aðnjótandi þeirria sérstöku kjara, sem
hér er um að ræða, og jafnframt stuðla að útgáfu bóka
um þessi efni, eru beðnir að rita naín sitt og heimilis-
fang á meðfylgjandi seðil, klippa hann út, og senda seðil-
inn ófrímerktan og án þess að láta hann í umslag, í pósti
til Bókafélags S.R.F.Í., Pósthólf 433, Reykjavík.
Til Bókafélags S.R-F.f.,
Pósthólf 433, Reykjavík.
Undirrit ...... óskar að gerast félagf í Bókafélagi S.R.
F.í. Óska ég að fá félagsbók þessa árs senda burðargjalds-
frítt gegn póstkröfu hefta á 80 kr. innb. á 115 kr.
(strikið út það sem ekki á við).
Nafn ...........................
Má ieggja
ófrímerkt
í póst.
Nýjar jólabækur - kjömar gjafabækur
LANDHELGIS-BÓKIN, sem er í tveim
hlutum, nær yfir 550 ára tímabil og rekur
einn stórbrotnasta þátt í sögu landsmanna,
sókn og vörn kynslóðanna fyrir réttindum
sínufn gegn yfirgangi erlendra þjóða í land-
helgi íslands. Fyrri hlutinn nær frá árinu
1400 til 1958. Þar er rakinn hinn sögulegi
þráður á skýran og skemmtilegan hótt.
Hefst frásögnin, þegar hinir fyrstu erlendu
menn koma hingað til fiskveiða. Þá er í
bókinni annáll, er greinir frá 200 söguleg-
um atburðum í hálfa sjöttu öld. Síðari hlut-
inn hefst, þegar varðskipafloti íslendinga
leggur úr höfn- aðfaranótt 1. sept. 1958 til
þess að verja hina nýju 12 mílna landhelgi
og lýkur 1. sept. 1959. Gunnar M. Magnúss
tók bókina saman. Hann hefur áður sannað
með „Virkinu í norðri“ o. fl. sögulegum rit-
um, að honum er sérstaklega lagið að vinna
slík ritverk.
í bókinni, sem er prentuð á mjög vand-
aðan pappír, eru 160 myndir efninu til skýr-
ingar, ýmsar þeirra stórsögulegar frá fyrri
tímiim fram á þennan dag.
DÝRKEYPTUR SIGUR er nútíma skáld-
saga, mjög vel rituð, enda vakti bókin
mikla athygli, þegar hún kom út í London
árið 1957, en á frummálinu er heiti bók-
arinnar „Room at the Top“. Kmikmynd,
sem gerð var eftir sögunni, og hlaut margs
konar viðurkenningu á kvikmyndahátíðinni
í Cannes s. 1. vor, verður sýnd í Tjarnarbíói
um næstu áramót. í bókinni eru myndir úr
kvikmyndinni. „Dýrkeyptur sigur“ er ást-
arsaga í orðsins fyllstu merkingu.
EINN Á FLEKA er karlmannleg sjómanna-
bók. í henni segir ameríkumaðurinn Willi-
am Willis frá sjóferð sinni frá Perú til
Brezku Samoa. I misjöfnu veðri og með
ævintýralegri þrautscigju náði hann landi
eftir 115 sólarhringa og 9700 kílómetra sjó-
ferð. William Willis er einn þeirra manna,
sem sleppur frá hinum háskalegustu ævin-
týrum. Bókin er í stóru broti, vönduð að
ytra frágangi, en inni í bókinni eru 40 sér-
prentaðar myndir frá hinni söguríku sjóferð.
KAPPFLUGIÐ UMHVERFIS JÖRÐINA er
bók við drengja hæfi. Þar segir frá kapp-
flugi margra flugvéla kringum hnöttinn,
segir frá hættum þeim og torfærum, sem
mæta flugmönnunum á þessari löngu leið.
Þetta er efni sem tápmiklir unglingar hafa
gaman af að lesa um: flugvélar, flugmenn
og ekki sízt hið spennandi kappflug um-
hverfis jörðina. Freysteinn Gunnarsson ís-
lenzkaði.
ANNA FÍA er skólasaga um heilbrigðar, táp
miklar stúlkur. Freysteinn Gunnarsson,
skólastjóri liefur valið þessa bók til útgáfu
°g þýtt hana á fallegt íslenzkt mál.
HEIÐA, PÉTUR og KLARA er framhald
bókarinnar „Heiða og Pétur“, sem kom út
síðastliðið haust. Nú kemur Klara í heim-
sókn til Heiðu litlu og afa gamla á fjallinu
og ber þá margt til tíðinda. „Heiða, Pétur og
Klara“ er skrifuð á léttu máli, spennandi
bók, og mjög falleg að efni og myndum.
... og fyrír yngsíu lesendurna
er m. a. ný myndskreylt
vísnabólt, sem heitir „Nú
er glatt“. Gyða Ragnars-
dóttir hefur tekið bókina
saman. Þar eru alls konar
íslenzkar vísur og kvæði
við barna hæfi, en með
hverju kvæði er teikning,
sem gerir vísnabókina
ennþá skemmtilegri.
ISLENZKU DÝRIN er litrík myndabók af
íslenzkum dýrum. Bókih er prentuð á harð-
an pappa og því sérlega hentug fyrir ung-
börn. Halldór Pétursson gerði teikningarn-
ar af dýrunum.
SNÖÐUR OG SNÆLDA, fyrstu fjögur
heftin, sem hafa verið með öllu ófáanleg
um lengri tíma, fást nú afíur í bókaverzl-
unum, og eins og áður er litmynd á hverri
blaðsíðu.
Heimilisfang
SETBERG
29. nóv. 1959 — Alþýðublaðið