Alþýðublaðið - 01.12.1959, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 01.12.1959, Blaðsíða 9
ÍR sigraði í 2. og 4. flokk MEISTARAMÓTI Reykja- vikur í körfuknattleik lauk að Hálogalandi á sunnudagskvöld- ið og þá var keppt til úrslita í 2. flokki karla og kvennaflokki. Úrslit mótisins hafa orðið þau, að Körfuknattleikfélag Reykja víkur var Rvíkurmeistari í karlaflokki, en Glímufélagið Ár manna í kvennaflokki. — í 2. flokki karla sigraði ÍR og einnig í 4. flokki karla, en það er í fyrsta sinn, sem keppt er í þeim flokki á Rvíkurmóti í körfu- knattleik. í 3. flokki er keppni enn ekki útkljáð. Þrjú félög, KR, Ármann og ÍR urðu jöfn að stigum og verða að leika aftur. 2. FL, KARLA: ÁRMANN (A) VANN KR OG ÍR KFR f ÚRSLITALEIK Tveir leikir voru háðir í 2. flokki karla á sunnudagskvöld- ið og þeir voru vel leiknir. Fyrri leikurinn milli Ár- manns (a) og KR var nokkuð jafn í fyrri hálfleik (18:12), en í þeim síðari gekk KR-ingum illa að hitta í körfuna, en Ármanns- liðið sýndi ágæta leikkaíla. Lið ið er samt mun lakara en í fyrra vetur, enda beztu menn þess annaðhvort ekki í æfingu eða utanbæjar. — Leik þessum lauk með sigri Ármanns 35:17. Bezt- ir í Ármannsliðinu voru Birgir Birgis 8 stig, Sigurjón Yngva- son 12 stig og Sigurður Guð- mundsson 7 stig. KR-liðið er nokkuð jafnt, en flest stig skor- uðu Einar Gunnlaugsson og Rúnar Elíasson, 4 hvor. Síðari leikurinn í 2. flokki milli ÍR og KFR var mun betur leikinn og skemmtilegri, enda var hér um hreinan úrslita- leik að ræða. Hinir ungu ÍR-ing ar, sem allir leika áfram í 2. flokki næst ár, sýndu mjög góð- an leik á köflum og í þessum flokki hefur félagið fengið ágæt an kjarna í framtíðar meistara- fiokk. — Bezti maðui'inn í liði ÍR er Þorsteinn Hallgrímsson, f-ljótur, laginn, sterkur og hefur ágætt auga fyrir samleik. Hann skoraði oft fallega í upphafi leiksins og í fyrri hálfleik sá- ust 6:0, 12:4 og 18:9, en þannig endaði hálfleikurinn fyrir ÍR. Lið KFR er nokkuð misjafnt með Einar Matthíasson sem langbezta mann, hann myndi njóta sín enn betur með betri mönnum. Einar ásamt Þorsteini Hallgrímssyni er einn okkar efnilegasti körfknattleiksmað- ur. Mikill hraði og skemmtileg augnablik voru í síðari hálfleik. Sigri ÍR var aldrei ógnað, Þó að KFR kæmist bezt í 24:15, en leiknum lauk með sigii ÍR 39:21 Lið IR er nokkuð jafnt, en bezt- ir eru Þorsteinn Hallgrímsso.n (8 stig), Guðmundur Aðalsteins- son (8 stig), Guðmundur Þor- steinsson (7 stig) og hinn kornl ungi Einar Bollason (11 stig). I liði KFR var Einar langbeztur eins og fyrr segir (11 stig), Marinó Sveinsson og Sigurður Helgason (2,07 m á hæð) með 4 stig hvor. ÍSLAND mun taka þátt í Norðurlandameistaramóti kvenna í handknattleik sem háð verður í Vasterás í Svíþjóð í júní næsta ár. ★ SVÍAR sigruðu Dani í hand- knattleik á fimmtudaginn með 25 mörkum gegn 17. í hálfleik var staðan 9—5 fyrir Svía. Það voru 3000 áhorfendur í Mass- hallen í Gautaborg en venju- lega hefur verið fullsetið áður, er þessi lönd hafa keppt, en húsið tekur 4500 manns. Leik- urínn var sýndur í sjónvarpi að þessu sinni. ★ Á SUNNUDAGINN kepptu hriú utanhæjarlið í handknatt leik á Akranesi, FH frá Hafn- arfirði, Afturelding, Mosfells- sveit og ÍA, Akranesi. Úrslit urðu þau, að FH sigraði, hlaut 4 stig, ÍA 2 stiof og Afturelding ekkert. — Úrslit einstakra leikja urðu þessi: FH Akranes 25—17, FH Afturelding 27—26 og Akranes Afturelding 22—21. ★ ÁRSÞING KSÍ var háð um helgina og var aðalstjórn sam- bandsins öll endurkjörin, en formaður er Björgvin Schram. Akveðnir eru landsleikir gegn írum og V-Þjóðverjum næsta sumar. Nánar á morgun. MFL. KVENNA; ÁRMANN OG KR 26:3 Mikill munur var á getu Ár- manns og KR í kvennaflokki, fyrri hálfleik lauk með sigri Ármanns 15:3 og leiknum í heild með 26:3. — íslenzkar stúlkur hafa lítið æft körfu- knattleik sérstaklega, þetta eru mest handknattleiksstúlkur, sem skipa Ármannsliðið, en þær geta orðið snjallar í þessari í- þrótt í framtíðinni, og körfuknattleikur er ekki síður skemmtilegur fyrir stúlkur en handknattleikur. Það er ósköp lítið um þennan leik að segja, lið Ármanns sýndi sennilega bað bezta, sem kvennalið hefur sýnt í körfuknattleik og áfram á þessari braut. I iiðinu voru beztar Sigríður Lúthersdóttir og Rut Guðmundsdóttir, en ann ars er liðið jafnt. * VERÐI.AUNAAFHENDING OG MÓTSSLIT Áð mótinu loknu gengu sig- urvegarar í hinum einstöku flokkum inn í salinn og Sigur- veir Guðmann=son, fram- kvæmdastjóri ÍBR, afhenti verðlaun og sleit mótinu með ^tuttri ræðu. — KFR vann nú í fvrsta sinn fagran bikar gefinn af Samvinnutrygaingum, en áð ur höfðu ÍS og ÍR unnið hann einu sinni hvort félag. Kvenna- fokkur Ármanns vann fallega styttu. sem Verzlunin Rima hef ur aefið. I 2. flokki karla vann ÍR bikar aefinn af J. B. Péturs- son og 4. flokkur ÍR vann bikar gefinn af KFR. I ræðu sinni saaði Sieurgeir m. a., að körfu- knattleikurinn værii í sókn, bæði hvað snerti þátttöku í mót um og aðsókn áhorfenda og að lokum bað hann alla viðstadda að hrópa ferfalt húrra fyrir körfuknattleiksíþróttinni og var það gert kröftuglega. Ný bók: Rit kvenna. Ritstjóri Halldóra B. Bjömsson. 11 sögur eftir 11 höfunda. Við leyfum okkur að beina athygli yðar að þessari bók, sem á margan hátt er nýstárleg og mun koma lesendum á óvart m.a. vegna hins f jölbreytta og á ýmsan hátt óvænta efnisvals höfundanna. Bókin sýnir líka að íslenzkar konur kunna að segja skemmtilega sögu svo sem verið hefir fyrr og síðar hér á landi. Meðal höfundanna eru konur, sem þegar eru þjóðkunnar fyrir ritverk sín, en aðrar eru nýjar í hópi rithöfunda cg Höfundar: Arnfríður Jónatansdóttir ! Guðfinna Þorsteinsdóttir (Erla). Halldóra B. Björnsson Líney Jóhannesdóttir Oddný Guðmundsdóttir Rósa B, Blöndals Sigríður Einars frá Munaðamesi. Steingerður Guðmundsdóttir Steinunn Eyjólfsdóttir Valborg Bentsdóttir Vilborg Dagbiartsdóttir í eftirmála segir ritstjóri m. á.: „Það var mér mikið ánægjuefni, þegar mér bárust handiit- in, að sjá, hve viðfangsefni höfundanna voru fjölbreytt cg óskyld. Sagan um kramda hjartað og ástarsorgin er alger- lega horfin úr penna þeirra, og mátti missa sig og sömu leiðina virðist hafa farið eilífðarsagan um fátæklinginn hjartahreina og vonda kaupmanninn, stjúpan farin veg allrar veraldar. Þesstr höfundar láta sér fátt mannlegt óvið_ komandi allt frá leynistígum barnshugans til himinbraut framtíðarinnar. Allt er þetta eðlileg og sjálfsögð þróun cg að sumu leyti tákn um breytta tíma, meiri möguleika cg fjölbreyttara starfssvið, það er ekki lengur eina úrræði ungra stúlkna að sitja bróderandi og bíða m'anna". Kynnið yður þetta sérstæðá jólahefti kvenna. HlaðbúS. Auglýsing um umferð í Reykjavík. Samkvæmt ályktun bæjarstjórnar Reykjavíkur hafa verið sett upp stöðvunarmerki samkvæmt 5. gr. B J3 í reglugerð um umferðarmerki o. fl. á eftirtölduirw gatnamótum: Miklubraut við Suðurlandsbraut. Grensásvegi við Miklubraut. Háaleitisvegi við Miklubraut. Seljalandsvegi við Miklubraut. Njarðargötu við Hringbraut. Hofsvallagötu við Hringbraut. Bræðraborgarstíg við Holtsgötu. Bræðraborgarstíg við Vesturgötu. Ægisgötu við Vesturgötu, norðanmegin. Frakkastíg við Hverfisgötu, sunnanmegin. Laugarnesvegi við Borgartún og Sundlaugavú Laugalæk við Sundlaugaveg. Njarðargötu við Laufásveg, norðanmegin. Njarðargötu við Sóleyjargötu, norðanmegin. Vonarstræti við Suðurgötu. Þar sem sett hefur verið stöðvunarmerki, ber ökni- manni skilyrðislaust að nema staðar. Þegar ekið er iS stað aftur, er skylt að sýna ýtrustu varúð og víkjaí fyrir umferð frá báðum hliðum, hvort sem um aðál» braut er að ræða eða ekki. Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 30. nóvember 1959. Sigurjón Sigurðsson. Alþýðuhlaðið — 1. des. 1959 £

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.