Alþýðublaðið - 15.12.1959, Qupperneq 1
40. árg. —
í dag eru tímamót í
SÖGU ALÞÝÐUBLAÐSINS.
ÞAÐ ER ORÐH> SEXTÁN
SÍÐUR, ANNAÐ STÆRSTA
DAGBLAÐH) Á ÍSLANDI.
Um leið breytir það búningi
sínum nokkuð: Það er nýtt blað
með nýju sniði.
Við tökum líka í notkun nýja
fyrirsagnavél og nýtt fyrir-
sagnaletur. Við munum nota
það ásamt gamla letrinu fyrsta
kastið; útrýmia eldri gerðinni
smámsaman.
Við erum með nýtt efni að
sjálfsögðu, og það leiðir af
sjálfu sér, að við getum gefið
lesendum okkar meira efni, —
meira lesmál. En jólin nálgast
og blaðaheimurinn ér á auglýs-
ingaendanum, og það eru fyrir-
sjáanleg þrengsli hjá okkur
fram að jólum þrátt fyrir stækk
unina.
Við vonum að lesendum líki
nýja sniðið. Það er orðið vin-
sælt erlendis.
Fyrir ofckur vakir að gefa
lesendmn okkar fallegra blað
um leið og við berum fyrir þá
aukið og fjölbreyttara efni.
Þriðjuáagur 15. desember 1959 — 268. tbl.
* /6 SH>UR
ALYÐUBLAÐIÐ
hleypir í dag af stað
stærsta happdrættinu,
sem íslenzkt dagblað hef-
ur efnt til.
, Það eru sex Volkswagen
bílar meðal vinninga.
Það er líka sérstakur jóla-
glaðningur fyrir þá, sem kaupa
miða fyrir jólin og um þá
vinninga — 25.000 króna virði
— verður dregið á aðfangadag.
En ekki nóg með það!
Auk bílánna býður happ-
drættið upp á fjölda annarra
vinninga, sem samtals eru tug-
þúsunda virði,
Langar þig út í heim?
Einn miði í Alþýðublaðs-
happdrættinu getur orðið þér
farseðill til útlanda.
Vantar þig eitthvað af hús-
gögnum eða heimilisvélum?
Einn miði í Alþýðublaðshapp-
drættinu getur leyst þann
vanda fyrir þig.
Alþýðublaðshappdrættið er
afborgunarhappdrætti — það
fj'rsta sinnar tegundar hér á
landi.
OG ÞAÐ VERÐA AÐEINS
5,000 MIÐAR GEFNIR ÚT,
SVO AÐ VINNINGSMÖGU-
LEIKARNIR ERU MARG-
FALT MEIRI EN í VEN.HJ-
LEGUM HAPPDRÆTTUM.
tísSíS
SIOGA VIGGAi
„ ÍCr ER AÐ L£SA AL- '
ÞÝbUBLAÐí-Ð/ iK ÉCr LÍS
ÞAÐ AÐ STAÐALDRI/ 4
ÞAV £R 0SEXTÁN
síðvr! nei, és- Fm
AD KOMA AO OPNUNN//j