Alþýðublaðið - 15.12.1959, Blaðsíða 3
: :
■' ; ■ -■ ■-
ÞEIR segja sumir, a® hún
sé einhver snaggaraleg-
asta amman í veröldinni.
Hvað um það, hún er vissu
lega tápmikil amma. —
Marlene Dietrich (komin
á sjötta tuginn) treður upp
í París um þessar mundir.
Myndin var tekin þar fyr-
ir fáeinum dögum. Ekkja
Aga Khan er að rítbba við
leikkonuna að lokinni sýn-
ingu.
lögmæti kauptilboðsins. Lauk
þeim með sigri Jóhannesar,
eins og kunnugt er.
Hinir nýju eigendur Hótel
Borgar munu hafa fullan hug
á því, að hafa rekstur hússins
í góðu lagi, eins og verið hefur,
atik þess sem talið er líklegt,
að með tímanum hyggi þeir á
einhverjar breytingar á rekstr-
inum.
H L ERAÐ
Blaðið hefur hlerað
Að John Muccio, sendiherra
Bandaríkjanna, sé á förum
héðan alfarinn.
Að rjúpur — þá sjaldan þær
eru fáanlegar — gangi á
45 krónur stykkið.
SÍLDARBÁTARNIR við Eyjar drógu fána
að hún og flautuðu í ákafa, þegar „Herjólf-
ur“ kom þangað síðastliðinn laugardag. —
„Herjólfur“ er mesta myndarskip — 500
iestir brúttó og gekk 13,6 mílur í reynslu-
ferð. Hann var byggður í Hollandi og kost-
aði 11 miljónir. í honum eru tveir salir fyr-
ir farþega, rúm handa tuttugu í tíu tveggja
manna klefum — og að auki geta 12 sofið
í borðsal. Þá er í skipinu sérstölc kælilest
fyrir mjólk. Tryggvi Blöndal er skipstjóri
„Herjólfs“. (Ljósm.: Sigurg. Jónasson).
Ný bráðabirgða-
í DAG verða gefin út bráða-
birgðalög um meðferð verð-
lagningar á framleiosluvörum
landbúnaðarins. — Samkvæmt
þeim lögum verður komið á fót
nýrri sex-mannanefnd, er f jalli
um verðlag landbúnaðarafurða
í framtíðinni. Mun sú nefnd
ékki aðeins ákveða verðlags-
grundvöll Iandbúnaðarafurða
og heildsöluverð heldur einnig
smásöluverð.
Bráðabirgðalög þau er ríltis-
stjórn Alþýðuflokksins gaf út
15, september s. 1. um verðlag
landbúnaðarafurða runnu út á
miðnætti s- 1. nótt. Munu hin
nýju bráðabirgða1ög' taka við
af þeim.
samkomulag um með-
FERÐ MÁLANNA.
A-lþýðublaðinu barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
landbúnaðarráðuneytinu:
„Undanfarna 10 daga hafa
staðið yfir samningaviðræður
milli fulltrúa Stéttarsambands
foænda annars vegar og hins
vegar fulltrúa neytendasam-
taka, Alþýðusambands Islands,
Landssambands iðnaðarmanna
og Sjómannafélags Reykjavík-
ur, um það, hvernig haga skuli
verðlagningu landbúnaðaraf-
urða. Landbúnaðarráðherra, •—
Ingólfur Jónsson og Gunnlaug-
ur Briem, ráðuneytisstjóri, —
tóku þátt í viðræðum þessum.
S. 1. nótt náðist samkomulag
milli þessara aðila um það,
hvernig með þessi mál skuli
farið framvegis.
Aðal breytingar frá fyrra
skipulagi eru sem liér segir:
1. Svokölluð sexmannanefnd,
sem skipuð er tveim mönn-
um frá Stéttarsambandi
bænda, einum frá Fram-
leiðsluráð’i landbúnaðarins
og þremur mönnum frá
framangreindum neytenda-
samtökum, slcal skipuð að
nýju þegar í stað.
Höfuðverkefni sexmanna
nefndar verður að ákveða
verðlagsgrundvöll til
bænda og verð á búvörum í
heildsölu og smásölu. Gildir
þessi skipan fyrst og fremst
um verðlagningu að hausti
til og aðrar verðbreytingar,
er verulegu máli skipta.
2. Söluverð landbúnaðarvara
á erlendum markaði skal
ekki bætt upp með því að
hækka söluverð búvara á
innlendum markaði. Hins
vegar er bændum tryggt að
fá innlenda verðið fyrir út-
fluttar búvörur.
3. Verðlagsgrundvöllur sá, —
sem sexmannanefnd ákveð-
ur, skal gjlda frá 1. sept-
emiber s. l.“
fJóhannesar-
Borgá seld
FYRIR helgi voru undirrit-
aðir samningar um sölu á Hótel
Borg. Taka hinir nýju eigend-
ur við rekstri gistihússins frá
og með 1. janúar 1960. Um leið
lætur Jóhannes Jósefsson af
stjórn Borgarinnar, sem hann
hefur átt og rekið um nær 30
ára skeið.
Veitingamennirnir Pétur
Daníelsson og Ragnar Guð-
laugsson hafa staðið í samn-
ingum um kaupin á Borginni
og munu þeir stofna hlutafélag,
ásamt fleiri aðilum, nú um ára-
mótin til reksturs hússins.
Fengu þeir á sínum tíma rík-
isábyrgð fyrir hluta kaupverðs-
ins, sem er samkvæmt tilboði
því, sem Jóhannes gaf á dögun-
um, eða 18,2 milljónir króna.
Hins vegar hefur alllengi
dregizt að gengið yrði að fullu
frá kaupunum sökum umfangs-
mikilla málaferla milli Jóhann-
esar og Karólínu konu hans um
WWWWWMWWWMWWMWWMWMWWWWMWWWWWMWWWMWWWWtWWWWWW
Alþýðublaðið — 15. des. 1959 J