Alþýðublaðið - 15.12.1959, Page 5
MAÐUR kom á lögreglustöð-
ina skömmu fyrir miðnætti s.I.
laugardag og kærði árás, sem
piltur hafði gert á hann. Mað-
urinn var mjög blóðugur eftir
áv.erka sem hann hafði hlotið í
andliti.
Tveir lögregluþjónar fóru
með honum til þess að leita ár-
ásarmannsins. Þeir fundu hann
í Aðalstræti. Hann neitaði að
fara með þeim á lögreglustöð-
ina og tók á rás undan þeim.
Lögregluþjónarnir náðu honum
brátt, en hann snerist þá hat-
rammlega til varnar. Lögreglu-
þjónunum tókst þó eftir nokkr-
ar stympingar að setja á hann
handjárn.
HIN NÝJA Cloudmaster-f]ug
vél Loftleiða var afhent við há-
tií^ega athöfn á Miajníi-flug-
vellinum fyrra mánudag-
Flugvélin tekur 80 manns í
sæti, er taúin öllum nýtízku ör-
yggistækjum, svo sem ratsjá.
Starfsmenn Loftleiða hafa dval
izt vestra að undanförnu og
þjálf-að sig í að fljúga hinum
nýju flugvélum. Fljúga Loftleið
armenn vélinni heim, fullset-
inni, og er hún væntanleg til
Reykjavíkur n. k. mánudag. —
Verður þá móttökuathöfn á
flugvellinum hér.
| Pilturinn tók þá að öskra á
hjálp og hr.ópaði að verið væri
að pína sig. Dreif þá að fjölda
, unglinga, esm veittust að lög-
regluþjónunum. Þeir urðu fyr-
' ir svo miklu aðkasti, að þeir
j neyddust fljótlega til þess, að
beita kylfum sínum. Þeim tókst
: að lokum að ryðja sér braut út
úr hópnum.
Lögregluþjónarnir drógu pilt
inn með sér, en á leiðinni á lög-
reglustöðina tókst honum aþ
krækja fótunum utan um um-
ferðaskilti og veitti hann all-
1 an þan nmótþróa, sem hann
mátti. Lögregluþjónarnir urðu
að berja á fótleggi hans til þes§
að iosa hann við skiltið. Tókst
þeim loks að koma honum á
lögreglustöðina, þar sem hami
var settur, í varðhald.
Mannfjöldi hafði fylgt lög-
regluþjónunum eftir og safnað-
ist-nú fyrir framan lögreglustöð
ina og gerði hróp að lögregtT
unni. Voru sprengdir kínvex j-
ar og rúða brotin í húsinu.
Mannfjöldinn þreyttist smátt
og smátt á ólátunum og dreifð-
ist.
GÖTULÖGREGLAN veitíi
athygli á aðfararnótt sunnudags
tveim mönnum, sem báru nokkr
ar yfirhafnir. Lögreglunni þótti
þetta grunsamlegt og handtók
þá og flutti á lögreglustöðina.
Mennirnir sögðust hafa fund-
ið yfirhafnirnar á bak við Vetr-
argarðinn. Þeir sögðust hafa
verið þar á dansleik, en settir
út vegna ölvunar. Fóru þeir þá
að athuga, hvort möguleikar
væru á því að komast inn aft-
ur og fóru því bak við húsið. —
Rákust þeir þar á yfirhafnirn-
■
ALÞÝÐUBLAÐIÐ skýrði frá
því fyrir nokkrum dögum, að
togarinn Keilir hefði tekið ís-
varða síld í Hafnarfirði, sem
seljast skyldi í Þýzkalandi ái-
samt afla skipsins. Togarinn
tók 40,6 tonn af glænýrri síld
af bátunum og var hún ísuð í
lest.
Keilir seldi afla sinn í Brem- j
erhaven í gærmorgun. Seldust
þessi 40,6 tonn af síld fyrir 38
þúsund mörk. Auk þess var tog-
arinn með 110,9 tonn af ísvörð- .
um fiski, sem seldist fyrir 70
þúsund mörk. Heildarsalan er
því 108.000 mörk.
Þetta er í fyrsta skipti um
árabil, sem ísvarin síld er seld
á erlendum markaði. Það vek-
ur athygli, hversu vel tilraun
þessi hefur tekizt og gott verð
fengizt fyrir síldina.
í dag munu væntanlega tveir
aðrir Hafnarfjarðartogarar, —
Júní og Röðull, selja í Þýzka-
landi. Þeir eru einnig með ís-
varða síld sem þar verður seld.
Sími 2-37-37.
Alþýðublaðið — 15. des. 1959 !|