Alþýðublaðið - 15.12.1959, Side 11
Ritstjóri: Örn Eiðsson
SKlÐARAB
I SÍÐUSTU viku var íþrótta-
íréttamönnum boðið í Skíða-
skálann í Hveradölum til skrafs
um skíðamál almennt. Það var
Skíðaráð Reykjavíkur, sem
bauð til þessia mannfagnaðar, en
formaður þess er frú Ellen Sig-
hvatsson.
Um þessar mundir er skíða-
ráðið að selja Skíðafélagi Rvik-
ur- skíðalyftuna í Hveradölum
með öllu tilheyrandi, en eðli-
legt er að húsráðandinn í Hvera
dölum sé eigandi íyftunnar.
Skipt hefur verið um húsráð-
endur í Skíðadölum. Tveir ung-
ir menn, Ólafur Ólafsson og
RUSSAR ætla að senda 79
keppendur til Squaw Valley og
með þeim fara 41 farastjóri,
læknar, þjólfarar, nuddarar o.
s. frv
★
JÚGÓSLAVAR hafa ákveðið
:að taka ekki þátt í vetrarleik-
unum vegna lélegs árangurs í-
þróttamanna sl, vetur. Aftur á
móti er ákveðið að senda 120
keppendur til Rómar.
BELGÍA ætlar að senda 125
keppendur og 25 fararstjóra til
Olympíuleikanna í Róm. íþrótta
samtök landsins hafa fengið lof
orð um miklar fjárfúlgur til
styrktar Olympíuförunum.
AUSTUR-ÞJOÐVERJAR liafa
sent skíðastökkmenn sína til
sérstakra æfinga í Zell am See
næstu fjórar vikurnár. Reck-
nagel og Lesser geta þó ekki
farið, sá fyrrnefndi vegna veik-
inda, en Lesser af heimilisá-
stæðum.
Sverrir Þorsteinsson, sjá nú um
rekstur skálans og ekki ber á
öðru en að þeir muni vei færir
til þess, ef dæma skal ef tir þeim
kræsingum, sem á borð voru
bornar og fréttamennirnir
höfðu góða lyst á!
Nokkrir íslenzkir skíðamenn
dvelja nú erlendis við æíingar
og keppni og fleiri fara utan
strax eftir áramótin. Kristinn
Benediktsson frá Isafirði fer til
Austurríkis í haust'og Eysteinn
Þórðarson, ÍR hélt einnig til
Austurríkis um síðustu mánaða
mót. Þeir félagar taka báðir
þátt í vetrarleikunum og æfa, af
fullum krafti með olympíuliði
Austurríkis. — Þrír reykvískir
skíðamenn fara til Svíþjóðar
um áramótin: Úlfar Andrésson, ■
ÍR, Þórir Lárusson, ÍR og Þórð- |
ut Jónsson, Ármanni. •— Til
Aspen, Colorado, fara: Skarp- i
héðann Guðmundsson, stökk-
maður, Siglufirði, Leifur Gísla-
son, KR og Jóhann Vilbergsson,
Siglufirði. — Hugsanlegt er
einnig að nokkrir skíðamenn úr
KR (4 talsins) fari til A-Þýzka-
lands í janúar og jafnmargir a-
þýzkir komi til Reykjavíkur
næsta vetur.
KNATTSPYRHU-
FRÉTTIR
NÚ hefur verið ákveðið hvaða
]ið leika saman næst í keppn-
inni um Evrópubikarinn, en að-
^eins þrjár umferðir eru eftir.
Þessi lið leika saman: Barcelona
— Wolves, Sparta, Rotterdam
— Glasgow Rangers, Eintracht,
Frankfurt — Wiener Sportclub,
Real Madrid — sigurvegari í
aukaleik Nice gegn Fenerbahoe,
Tyrklandi, en þau lið sigruðu í
sitt hvorum leiknum og marka-
hlutföll voru jöfn. Liðin leika
aftur á hlutlausum velli 23. des
ember, sennilega í Genf, Sviss.
FLORIAN ALBERT er .að-
eins 18 ára gamall ungverskur
knattspyrnusnillingur. Hann er
sérstaklega frægur fyrir skalla-
tækni.
I kappleik með félagi sínu,
Ferencvaros, sem nýlega fór
fram, skoraði hann 4 mörk —
öll með skalla.
Einn félaga hans sagði hlæj-
andi; „Albert hlýtur að hafa
veðjað um það fyrir leikinn, að
nota ekki fæturna til að skora
með.“
Hæfileiki Florian Albert sem
knattspyrnusnillings, er ekki að
eins bundinn því að vera öðrum
snjallari í að senda knöttinn í
netið með snöggum og föstum
kollspyrnum. Við hann eru
miklar framtíðarvonir 'bundnar
sem miðherja ungverska lands-
liðsins og leikmanns, er takast
muni :að þoka ungverskri knatt-
spyrnu á enn hærra stig.
Þegar hinn heimsfr.ægi Fer-
enc Puskas yfirgaf Ungverja-
land, fór til Spánar og hóf að
leika með Real Madrid, svo sem
kunnugt er, var almennt litið
þannig á í Ungverjalandi, að
jafningi hans myndi aldrei fyr-
iríinnast þar í landi.
Nú er því hins vegar trúað að
Florian Albert muni ekki aff-
eins fylla sæti hins dáða Púsk-
ÍR sigraði með yfirburðum í
hraðkeppninni í körfukanttleik
á sunnudag. Vann Ármann í
úrslitaleik með 52 st. gegn 20.
— Nánar 'á morgun.
ILSA KONRADS háði sína
fyrstu keppni á þessum vetri
nýlega. Mótið var háð í Sydney
og tíminn sem hún náði var
ekk sérstakur. Hún fékk 1:08,3
í 110 yds. og 5:12,1 í 440 yds.
— Bróðir hennar John, fékk
betri tíma eða 4:30,5 mín. á
440 yds.
asar, heldur jafnvel fara fram
úr honum sem leikmaður, er
stundir líða fram.
Ennþá er það svo að Florian
Albert hefur ekki unnið leiki,
eins og Puskas gerði —en hann
hefur þó skorað 7 mörk í sex al-
þjóðakeppnum. Allt frá því að
hann lék sinn fyrstá landsleik,
gegn Svíþjóð, í júní sl., hefur
honum verið veitt óskipt at-
hygli.
Það sem af er þessu keppn-
istímabili hefur hann skorað 50
mörk, í milliríkja- og félaga-
leikjum. Það má teljast hending
éin, ef nafn hans er ekki meðal
þeirra, sem mörk gera, í þeim
leikjum, sem hann tekur þátt í.
AI.lt bendir ótvírætt í þá átt
að af þessum unga manni megi
mikils vænta á knattspyrnu-
sviðinu á næstunni.
Florian Albert er fæddur 15.
septsmber 1941 i smábæ, við
landamæri Ungverjalands og
Júgóslavíu, sem Hercegszanto
heitir. Faðir hans var stórbóndi,
en fluttist með fjölskyldu sína
j til Buda-Pest eftir að jörð hans
hafði verið skipt upp, er fyrsta
landbúnaðaráætlun stjórnarinn
ar kom til framkvæmda.
Skömmu eftir að Florian Al-
bert fluttist til Buda-Pest, hóf
hann að leika knattspyrnu og
aðeins 13 ára gamiall varð hann
félagi hins nafntogaða knatt-
spyrnufélags Ferencvaros, en
þjálfari þess nú er Marton Bu-
, kovi áður framkvæmdastjóri
í ungverska landsliðsins.
Ungverski knattspyrnusnillingurinn F. Albert (nr. 9).
„Albert hefur þegar tekið
meiri framförum í leikni og
skotfimi heldur en Sandor Kos-
is — á hans aldri,“ sagði Bu-
kovi, „en auðvitað á hann langt
í Iiand að verða annar Púskas,“
bætti hann við. „Við vonum
samt að árið 1962 á heimsmeist
arákeppni muni hann láta að
-sér kveða, svo um muni,“ sagði
Bukovi enn fremur.
Albert er um sex fet á hæð og
vegur 79 kíló. Hann líkist því
frekar kröftugum baráttumanni
en vígfimum leikmanni. Hann
hefur eftirtektarverðan styrk-
leika af 18 ára pilti að vera.
Hann er ef ti! vill ekki annað
eins augnayndi áhorfendum
eins og fyrirrennari hans, Nan-
dor Hidegkuti, en hann er eins
góður skot- og knattrekstrar-
maður og hann. Hreyfanleiki og
skotfimi er hans aðall.
Ungverjar munu seint
gleyma öðru markinu, sem
hann gerði í síðasta landsleikn-
um við Þýzkaland, er hann lék
á fjóra Þjóðverja, hvern af öðr-
um, leikandi létt, dró síðan
markvörðinn fram gegn sér og
sendi svo knöttinn í netið; ó-
verjandi, með hörku vinstri
fótar skoti.
Eftir að Albert lauk prófi sl.
vor, hóf hann störf hjá ríkis-
fréttiaþjónustunni í íþrótta-
fréttadeildinni M.T.I.
Húsbændur hans í þessu nýja
starfi eru tveir víðkunnir framá
menn íþróttahreyfingarinnar í
Ungverjalandi, annars vegiar
Sandor Baros og hins vegar Jos-
ep Hoffer.
„Við munum fylgjast vel með
honum, bæði í starfi og leik,“
því hafa þeir Iofað_
ÞÝZKI frjálsíþróttamaðurinn
Martin Lauer er í klípu þessa
dagana. Hann á sem kunmig't
er heimsmet í 110 m. grinclabl.
cg er einnig með beztu tugþraut
armönnum heimsins. — Hann
getur ekki tekið þátt í báðun*
greinunum, því að þær fara
fram á sama tíma. Einnig má
búazt við því, að Lauer verði
valinn í 4x100 m. boðhlaups-
sveitina þýzku.
Andagifiin
FramhalS af 2. síðu.
ekki meira en hann geti um
borið, svo margir sem íslend-
ingar eru orðnir og vonlítið,
að hann hafi þekkt þá alla?
Víst má finna að bókinni,
en hvað um það: Ég mun á-
reiðanlega oft og mörgum.
sinnum opna hana til að virða
fyrir mér myndina af Matt-
híasi Jochumssyni, þegar
hann geysist fram og eys
vatninu og víninu af skálum
mælsku sinnar og andríkis.
Gaman hefði verið að sjá og
heyra þvílíka kempu í Odda
eða á Akurej'ri.
Helgi Sæmundsson.
Alþýðublaðið — 15. des. 1959