Alþýðublaðið - 30.12.1959, Qupperneq 14
I
Sig. Einarsson
Framhald af 2. síðu.
för. Að henni loklnni átti
þetta ríki dýpstu samúð mína.
Mér er engin launung á því,
að ég fylltist aðdáun á því
menningarstarfi, sem verið er
að vinna í Israel, og hef ekki
hirt um að leyna henni í köfl-
unum hér á undan. ísrael er
útvörður vestræns lýðræðis
og menningar í nálægum Aust
urlöndum. Það er yfirlýstur
vilji Arabaríkjanna að afmá
þetta ríki og varpa Gyðingun-
um í sjóinn. 'Vera má, að það
takist. En það verða engin
gleðitíðindi á Vesturlöndum,
ef þeir atburðir skyldu gerast
einhvern dag. Það eru gífur-
leg óleyst vandamál í sambúð
þessara þjóða, og þar á með-
al hið síviðkvæma og stór-
hættulega flóttamannamál.
En þau vandamál munu enn
bíða óleyst, þó að nágrönn-
unum tækist að ráða niður-
Iögum ísraels, aðeins hafa þok
azt drjúgum áfanga nær vor-
um eigin bæjarvegg“. Þessi
afstaða er Sigurði Einarssyni
lík og honum til sóma. Gyð-
ingahatrið á Vesturlöndum
ætti að hafa farið í gröfina
með Hitler og Göbbels. Ævin-
týrið, sem gerzt hefur í ísra-
el á örfáum árum, telst vissu-
lega aðdáunarlegt afrek lítill-
ar þjóðar, sem er nú loksins
komin heim úr mestu herleið-
ingu mannkynssögunnar. Og
hér sýnir og sannar Sigurður,
að hann fór suðurgönguna
með opin skynfæri — til þess
að verða reynslunni ríkari. —
Þess vegna hefur honum tek-
izt að skrifa snjalla bók og
fróðlega og gera okkur, sem
heima sátum, að förunautum
sínum um sögustaðí og helgi-
slóðir biblíunnar og ísraels-
ríki nútímans, sem grær og
dafnar með eyðimörk haturs
og ofstækis allt um kring.
Myndirnar eru góður skiln-
ingsauki, og búningur bókar-
innar allur er látlaus en vand-
aður. Svona ferðasögur þurf-
um við íslendingar að 'eignast
margar í framtíðinni.
Helgi Sæmundsson.
Biskupinn i
Görðum
Framhald af 13. síðu.
Sveinbjarnar Egilssonar
rektors og Gríms Thomsens
skálds, auk fjölmargra ann-
arra.
Það er mik'ð verk og harla
gott, sem Finnur Sigmunds-
son landsbókavörður hefur
unnið undanfarin ár með út-
gáfu bréfasafna sinna. Má
segja, að þar hafi hvert gagn-
merkilegt verkið komið á
fætur öðru, og' öll unnin aí
þeirri smekkvísi. og gleggni,
sem þessum kyrrláta fræði-
manni er lagin. Hann ein-
kennlr hvert bréf með klausu
úr því sjálfu, þannig valinni,
að hún bregður svip og Ijósi
yfir bréfið allt, og atburða-
rásina fram og aftur. Eða þá
hugarástand bréfritarans og
persónulegt viðhorf. Þá kem-
ur að jafnaði skýringargrein
og síðan bréfið sjálft. Að lok-
um hvers bréfs eru svo skýr-
ingar og upplýsingar þær,
sem útgefanda hefur þótt,
sem ekki mætti án vera. Allt
er þetta þann veg af hendi
leyst, að Finnur Sigmundsson
hlýtur að hafa lagt mikla al-
úð og vinnu í það. Og heiður
og þökk sé honum fyrir það.
Hinu get ég ekki neitað, að ég
hefði kosið að skýringar
Finns hefðu verið nokkru
meiri og ýtarlegri, finnst
hánn hafa verið full sparsam-
ur þar. En að sjálfsögðu er
það fáfræði mín, sem því veld
ur, og kunna aðrir að sakna
þess minna.
Bókfellsútgáfan gefur bók
þessa út, og gerir það smekk-
lega og vandlega svo sem
hæfir. Það er sannarlega gleði
efni, þegar útgáfufyrirtæki
vor sýna afdráttarlausa menn
ingarlega viðleitni, og Bók-
fellsútgáfan hefur í þeim efn-
um fremur verið_ forbrjótur
en eftirbátur. Ég vona að
Biskupinn í Görðum nái þeim
vinsældum, að útgáfan verði
skaðlaus af fyrirtækinu og
sjái sér fært að halda áfram
á sömu braut. Og að Finni
endist aldur og heilsa til að
gefa út fleiri bréfasöfn.
Sigurður Einarsson
í Holti.
Þjóðleikhúsið
FramhaW af 4. síðu.
í graut. Brutus er intellektú-
ell hugsjónamaður, en Rúrik
er af annarri manngerð, enda
gerir hann íhygli hans lítil
skil. Hefði mátt reyna Jón Sig
urbjörnsson þarna? Kassíus
er hin síngjarni maður, ego-
istinn (ég fylgi hér skiln'ngi
Gránville-Barkers), og hann
hefur stríða lund. Jón Aðils
lýsir undirróðri hans allskýrt
en þó ekki verulega eftir-
minnilega. Maður skilur vel,
að þessi maður getur ekki tek
ið að sér forystuna (allra sízt
í hernaði). En hvar er skapið?
Helga Skúlasyni er falið hlut
verk Markúsar Antons. —
Meinlætaleg ásjóna hans er
þó ekki í ætt við svallarann
og tækifærissinnann, sem
Shakespeare lýsir, en hér skil
ur þó feigan og ófeigan: hann
nær sambandi við áhorfendur
og hrífur þá með sér. Þetta er
í rauninni leiksigur fyrir hinn
unga le!kara. Sesar er erfið-
asta hlutverkið og það er fal-
ið vönum Shakespeareleikara,
Haraldi Björnssyni. En hvern
ig er það, þetta er ekki gaman
hlutverk, það er alvarlegt, er
það ekki?
Kvenhlutverkin eru aðeins
tvö og lýtalaust leikin af Her-
dísi Þorvaldsdótur og Guð-
björgu Þorbjarnardóttur, en
annars er hlutverkalistinn
lengri en svo að vit sé að
leggja út í upptalningu. Færi
líka betur á að frammistaða
sumra stórleikaranna væri
hulin gleymsku, en nokkur
smáhlutverk voru hins vegar
snoturlega unnin.
Við vitum öll að Júlíus
Sesar er eitt af öndvegisverk-
um heimsbókmenntanna, að
það er í hópi merkustu verka
Shakespeares, vinsælt sviðs-
verk víða um heim, frægt fyr-
ir uppbyggingu og mannlýs-
ingar og hafa verið skrifaðar
um það hundrað bækur.
En hvað eigum við þá að
gera, góðir hálsar og unnend-
ur góðra bókmennta. Senni-
lega verður bið á því, að klass-
iskur harmleikur eða Shake-
speareleikur verði sýndur á
sviði Þjóðleikhússins. Og
mannsaldur þangað til Júlíus
Sesar verður tekinn til með-
ferðar næst. Er þá vert, að
láta tækifærið fara framhjá
sér núna (það má lesa leikinn
líka til samanburðar). Auk
þess er það alkunna, að sýn-
ingar batna oft er frá líður
frumsýningu. Að minnsta
kosti kunnátta leikenda.
Sveinn Einarsson.
Geimför
Framhald af 16. síðu.
í froðuplast umbúðum, sem
mótaðar eru eftir líkaman-
um, eitt mót fyrir hvern
mann. Þannig verður honum
unnt að ráða sér, þótt sveiflu
hraðinn breyti verkunum að-
dráttaraflsins þannig, að
þær verði líkar og vænta
má í geimfari, sem komið er
út fyrir svið jarðarinnar.
Skíðamenn
Framh. af 11 síðu.
því að í janúar eru skíðamót
næstum daglegur viðburður í
Mið-Evrópu, Þeir félagar koma
heim í lok janúar.
Eins og kunnugt er taka fjór-
ir íslendingar þátt í Vetrarleik
unum í Squaw Vall-ey, sem hefj
ast 18. febrúar, en það eru Ey-
steinn Þórðarson, ÍR, Kristinn
Benediktsson, ísafirði og Jó-
hann Vilbergsson, Siglufirði,
sem allir keppa £ Alpagreinun-
um, þ. e svigi, bruni og stór-
svigi og Skarphéðinn Guð-
mundsson, Siglufirði, sem kepp
ir í stökki. Skíðamennirnir
leggja af stað til Bandaríkjanna
í byrjun febrúar. Fararstjórx er
Hermann Stefánsson, formaður
Skíðasambands íslands.
Miðvikudagur,
30. desember:
12.50-14.00 Við
vinnuna. 18.30
Útvarpssaga
barnanna: 18.55
Harmonikulög:
Torolf Tollefsen
leikur. — 20.20
„Séra Matthías í
Odda“, samfelld
dagskrá, sem dr.
Kristján Eldjárn
býr til flutnings.
21.20 Framhalds
leikritið: „Um-
hverfis jörðina á 80 dögurn".
22.10 Leikpistill (SveinnEin-
arsson). — 22.30 Tónaregn:
Svavar Gests kynnir lög eftir
Sigfús Halldórsson. 23.10
Dagskrárlok.
Eimskipafélag
íslands h.f.:
Dettifoss fer frá
Flateyri í dag
29.12. til Súg-
andafjarðar, ísa
fjarðar, Ólafsfj.,
Siglufjarðar og Norðfjarðar
og þaðan til Hull, Grimsby,
Amsterdam, Rostock, Gdynia
og Ábo. Fjallfoss kom til Liv
erpool, 25.12. fer þaðan til
Dublin, London, Hamborgar,
Kmh., og Stettin. Goðafoss
fer frá Rvk á hádegi á morg-
un 30.12. til Keflavíkur og
Vestmannaeyja og þaðan til
Hull og Antwerpen. Gullfoss
fór frá Reykjavík 26.12. til
Hamborgar og Kmh. Lagar-
foss fór frá New York 21.12.
væntanlegur til Rvk í fyrra-
málið 20.12. Skipið kerriur að
bryggju um kl. 08.00. Reykja-
foss kom til Rvk kl. 11.30 í
dag 29.12. frá Rotterdam. —
Selfoss kom til Kotka 28.12.
fer þaðan til Ventspils og Rvk
— Tröllafoss fer væntanlega
frá Akranesi í kvöld 29.12.
til Vestmannaeyja og þaðan
til Arhus, Bremen og Ham-
borgar. Tungufoss fer væntan
léga frá Gauiaborg 29.12. til
Reykjavíkur.
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla fer frá Rvk á nýárs-
dag vestur um land til Akur-
eyrar. Esja fer frá Rvk á ný-
ársdag austur um land til Ak-
ureyrar. Herðubreið er í Rvk.
Skjaldbreið er væntanleg til
Rvk í dag frá Breiðafjarðar-
höfnum. Þyrill er á leið frá
Bergen til Hjalteyrar. Hérjólf
ur fer frá Rvk kl. 22 í kvöld
til Vestmannaeyja.
Skipadeild S.Í.S.:
Hvassafell fer í dag frá Abo
til Hangö. Arnarfell kemur til
Kmh. í dag, fer þaðan til
Kristiansands. Jökulfell er
væntanlegt til Rvk á morgun
frá Riga. Dísarfell fór í gær
frá Gufunesi til Húnaflóa-
hafna. Litlafell er í olíuflutn
ingum í Faxaflóa. Helgafell
fór 20. þ .m. frá Klaipeda á-
leiðis til Sete í Frakklandi. —•
Hamrafell fór í gær frá Rvk
áleiðis til Batum.
VeSriðs
Vaxandi N.-A.-átt; hiti
um frostmark.
miðvikiidagiiT
Næturvarzla vikuna 26. des.
til 1. jan. í Laugavegsapó-
teki, sími 2-40-45. Helgidags
varzla á nýársdag verður í
Vesturbæjarapóteki, — sími
22290.
-o-
Leiðrétting. Eigandi hússins
Skipholt 19, þar sem veit-
ingahúsið Röðull er til húsa,
hefur leiðréttingar á fregn
blaðsins um átök, sem ollu,
rúðubroti á 3. dag jóla. —•
Rúðan var ekki stór, heldur
lítil, og tilheyrði ekki veit-
ingahúsinu, heldur hurð
annars staðar í húsinu. Allt
annað í fréttinni stendur ó-
haggað.
-o-
Frá ríkisstjórninni — Ríkis-
stjórnin tekur á móti gest-
um á nýársdag kl. 4—6 í
ráðherrabústaðnum, Tjarn-
argötu 32.
-o-
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Hulda G.
Friðriksdóttir, stud. phil.,
Vífilsgötu 23 og Sigurbjarni
Guðnason, húsasmíðanemi,
Barmahlíð 37. — Ennfrem-
ur ungfrú Jóhanna Gísla-
dóttir, Hlégerði 14 Kópa-
vogi og Trausti Finnboga-
son, prentari, Hofsvallagötu
23. , 1
-o-
Bréfaskipti: — Hver vill skrif
ast á við:
Mitsumasa Iwao,
Farukawa Ojin-Village,
Tokashima-Presecture,
Japan.
-o-
r. "*.*.
$:». **:*.,
•*
Flugfélag
íslands h.f.:
Innanlandsflug:
í dag er áætlað
W .;:*: að fljúga til Ak-
ureyrar, Húsav.,
ætlað að fljúga
mmmm til Akureyrar (2
ferðir), Bíldu-
dals, Egilsstaða, ísaf jarðar, —
Kópaskers, Patreksfjarðar, —
Vestmannaeyja og Þórshafn-
Loftleiðir h.f.:
Hekla er væntanleg kl. 12.
30 frá New York. Fer kl. 14
til Glasgow og Amsterdam. —■
Edda er væntanleg kl. 16.30
frá*New York. Fer kl. 18.00
til Stafanger, Kmh. og Ham-
borgar. Saga ef væntanleg kl.
19.00 frá Stafanger, Kmh.,
Gautaborg og Oslo. Fer tií
New York kl. 20.30.
24 ■— 30. des. 1959 — Alþýðublaðið