Alþýðublaðið - 31.12.1959, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 31.12.1959, Blaðsíða 2
Otgefandl: Alþý8uflofckurmn. — Framkvœmdastjórl: Ingólfur Krtaqtnm. — Ritstjórar: Benedlkt Grötidal. Gísll J. Ástþórsson og Helgi SæmundMO* (éb.). — Fulltrúl ritstjómar: Sit'valdi Hjálmarsson. — Fréttastjórl: Bjoíj, Wn GutSmundssoa. — Simar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903 Aug»< tngaslml 14 90S. — AOsetur: Alþyðuhúsið. — PrentsmlOie Alþýhubiaóaœ Hverfisgata 8—10. Áramót ENN eitt ár er liðið. 1959 reyndist íslendingum að flestu leyti hag stætt ár. Þrátt fyrir þung áföll í mannskaðaveðr- um, verður dkki annað sagt, ,en árferði hafi verið gott. Aflabrögð voru með bezta móti og grasspretta víð- ast viðunandi. Vinnufriður hélzt að heita má allt árið, og skortur var á vinnuafli í mörgum greinum atvinnulífsins. Dýrtíð var haldið í skef jum eftir al- varlega hættu á óðaverðbólgu í byrjun ársins. Árangurinn varð sá, að íslenzka þjóðin mun aldrei á einu ári hafa framleitt meiri verðmæti. Tekjur landsmanna voru því meiri en fyrr, og með stöðugu verðlagi varð afkoma landsmanna betri en nokkru sinni. Þrátt fyrir þetta blasa við a'lvarlegar þjóðfé- lagsmeinsemdir, sem ekki verður komizt hjá að lækn^. Þeirri staðreynd verður ekki haggað, að þjóðin í heild eyðir meiru en hún aflar og hefur bjargað sér á miklum erlendum lántökum. Styrkja- kerfi ti'l útflutningsatvinnuvega hefur haldið áfram og enn reynzt meingallað. Alvarlegur gjaldeyris- skortur hefur valdið truflunum í viðskiptalífi og skapað þjóðinni geigvænlegt öryggisleysi, sem getur, ef ekki verður að gert, stofnað sjálfstæði þjóðarinnar í hættu. Íslendingar hafa á árinu gert miikilvægar breyt ingar á kjördæmaskipan sinni i áttina til jafnrétt- is borgaranna um áhrif á stjórn landsins. Eftir þessa breytingu og tvennar kosningar, sem leiddu til nýrrar ríkisstjórnar, verður nú að taka hin alvar- legu efnahagsvandamál föstum tökum og freista þess að losna úr sjálfheldu bráðabirgðaaðgerða um hver áramót. Jafnframt verður þjóðin að tryggja sem bezt afkomu hinna efnaminni heimila, að ekki sé minnzt á barnafjölskyldur, aldrað fólk og .sjúkt. Vandkvæði íslenzka lýðveldisins hafa verið kölluð velgengnissjúkdómar. Vissulega er þjóðin f jölmennari og heilbrigðari líkamlega en fyrr. Hún hefur meira að bíta og brenna og lifir hinu ríku- legasta menningarlífi. Allt þetta verður að meta að verðleikum — og þakka fyrir það. Einmitt vegna þess, að íslenzka þjóðin er í höf uðatriðum heilbrigð og hugsandi menningarþjóð, verður hún að sýna festu og vizku í leiðréttingu þeirra meinsemda, sem henni er mest áhugamál að lækna. Það mun henni vonandi takast í næstu fram tíð. Auglýsingasími Alþyðublaðsins )• er 14906 — 31. des. 1959 — Aljþýðublaðið Helgi Sæmundsson læfuí’ af ntstjórn Alhýðublaósins HELGI Sæmundsson lætur um þessi áramót af ritstjórn Alþýðublaðsins og hverfur til starfs sem ritstjóri tímaritsins And- vara og bókmenntaráðu- nautur Menningarsjóðs. Á fundi í miðstjórn Alþýðu- flokksins í gær notaði formað- ur flokksins, Emil Jónsson, tækifærið til þess að færa Helga þakkir fyrir langan starfsferil hans við blaðið og ágætt starf hans um langt ára- b 1, síðustu fimm árin sem rit- stjóra Alþýðublaðsins. Helgi hóf blaðamannsstarf sitt við blaðið fyrir 16 árum, og hefur á þeim tíma unnið flest þ_au störf, sem til falla á ritstjórn eins dagblaðs, frá fréttaöflun og prófarkalestri til I ritstjórnar. Mestan þátt hefur hann þó tekið í hinni pól tísku blaðamennsku, og hefur hann mikið skrifað um stjórnmálin í ritstjórnargreinum og utan lega þó bækur, og er í hópi hinna viðurkenndustu bóka- gagnrýnenda þjóðarinnar. Mun hann í hinu nýja starfi snúa sér sérstaklega að því sviði, þar sem áhugi hans er hvað mestur og þekking mikil. Á þessum tímamótum færa samstarfsmenn Helga við Al- þýðublaðið, eldri og yngri, hon- um bakkir fyrir langa og á- nægiulega samfylgd í störfum og óska honum heilla í hinu nýia starfi. Enda þótt Helgi hverfi frá störfum við Alþýðublaðið mun hinn skarpi nenni hans ekki hverfa úr síðum blaðsins, því Helgi hefur lofað að reynast hiálnaamur lesandi os senda blaðinu öðru hverju pistla til birtingar. Helgi Sæmundsson þeirra. Þá hefur Helgi í mikl- um og vaxandi mæli skrifað um hvers konar listir, sérstak- UM LEIÐ og ég hætti störf- um við Aiþýðublaðið nú um áramótin bið ég það fyrir kæra kveðju til alli'a þeirra, sem ég hef unnið með þessi sextán ár, samverkamannanna við rit- Framhald á 11. síðu ýý Hátíðleg skrif um áramót. ýý Erfiðleikarnir og á- tökin við þá. Tvær sögur um gell- ur, saltfisk og upp- bætur. ýý Þökk fyrir gamla árið Gleðilegt nýtt ár. annes h o r n i n u vildu hafa gert, en enginn gat gert. Og það varð til þess að traustið óx á stjórninni og flokknum, sein lagði hana til, með hverjum degi. Ef til vill dregur það úr trausti á núver- andi stjórn, að annar flokkur skyldi koma til — og er það út af fyrir sig furðulegt þegar tillit er tekið til kjósendafylgis þeirra flokka, sem að stjórninni standa. EN AF ÞVI að allir munu verða svo hátíðlegir í dag, þá verð ég að sýna minn öfugugga- hátt eins og stundum áður. Ég ætla að skrifa nokkur orð um gellur og saltfisk. — Ásýnd hlut anna er margvísleg. Varla getur auðvirðilegri fæðu en gellur, samt geta þær verið góðar. Mað- ur skyldi ekki ætla að gellur gætu varpað birtu skilnings og upplýsingar á ástand í þjóðfé- lagi. Ég læt ykkur alveg um það að draga ykkar ályktanir. En gelluskrifin eru ekki ótímabær ef það er satt, að ýmsir helztu fyrirmenn þjóðarinnar liggi undir feldi núna um hátíðirnar. MAÐUR ÁTTI eina smálest af gellum. Hann gat ekki borðað þær allar og vildi því selja þær til fisksala. Honum gekk illa sal an. Að lokum rakst hann þó á fisksala, sem vildi kaupa gell- urnar fyrir fimm þúsund krónur Framhald á 5. síðu. I DAG eru allir skriffinnar ákaflega hástemmdir. Þeir skrifa um það blessaða ár, sem er að líða — og reyna að sjá um næsta ár. Við erum öll yfirleitt ánægð með liðið ár, þó að margt mis- jafnt hafi mætt okkur. Eigum við ekki um stund að rifja npp fyrir okkur þá erfiðleika, sem hafa mætt okkur á árinu, sem við höfum tekizt á við og sigrað? Ef til vill veitir það okkur nokkr ar ángæjustundir — og hvetur okkur til manndóms og átaka á því ári, sem byrjar á morgun. í daglegri önn veitum við því ef til vili ekki athygli hvers við erum megnug, en þegar við hugsum um það veitir það okkur hugrekki og bjartsýni. Við er- nm ef til vill alis ekki eins smá og við héldum. VIÐ SlÐUSTU ÁRAMÓT var spáð heldur illa fyrir okkur. Ein lit flokksstjórn minnsta flokks- ins settist við stýrisvölinn og fáir spáðu miklum afrekum. En allir sannfærðust um, að henni hefði tekizt að gera það, sem allir eg ^jéSleikíiúskja!Isr!nn s MáGNÚS JÖHSSON Kgl. óperasöngvari syngar. Borðpantanir í síma 35936 — 19636 S S s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.