Alþýðublaðið - 31.12.1959, Side 16

Alþýðublaðið - 31.12.1959, Side 16
HVAÐ ENGINN veit sína ævina fyrr en öll er. Enginri veit, hvað með að gereyða fiskistofnum gerast muni næsta áratuginn, 1960 til 1970, en margir hafa gaman af að spá um framtíðina eða velta vöngum yfir þ\'í, sem ókomið er. Ritstjórn Alþýðublaðsins hefur tekið saman eins konar spádóm tim þann áratug, sem hefst á miðnætti í kvöld. Hér er ekki spáð í spil eða stjörnur, heldur aðeins rejmt að ráða af líkum. Við munum, þegar þar að kemur, hafa það, sftm sannara reynist. Þangað til gc)ia lesendur nejjnð þennan spádóm sem grundvöll að umhugsun eða umræðum. harða valdabaráttu meðal arf takanna í sumum flokkunum. ■Jc Mannfjölgun. Þegar ára- tugnum lýkur um áramótin 1969—’70, verða íslendingar orðnir rúmlega 200.000, og hef ur þá fjölgað um helming á tæplega hálfri öld. Sennilega munu 110—120 þúsundir búa á Suð-vesturhorni landsins. 'jt Stjórnmálin. Hið nýbyrj- aða samstarf Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins um stjórn landsins hefur mikla möguleika til að verða lang- líft og setja höfuðsvip á a. m. k. fyrri hluta áratugsins. Verði stjórnin langlíf, má búast við manna- og stólabreytingum í hénni á tímabilinu, til dæmis við kosningar. Stefnan. íslendingar munu á áratugnum 1960—’70 leitast við að þurrka út þann óhagstæða mismun, sem er á verðiagi og vöruvali hér og er- lendis, og öðlast léttari og haftaminni samskipti við önn- ur lönd í ferðalögum, -viðskipt um o. fj. íslendingar munu með breytingum á efnahags- málum sínum feta í fótspor Frakka, Spánverja og Tyrkja, sem síðastir hafa komizt „í takt“ við umheiminn efnahags lega. Flokkarnir. Flokkaskipt- ing mun haldast að nafninu •til óbreytt áratuginn á enda. Þó verða vaxandi róstur inn- an flokkanna og munu máttar- viðir sumra þeirra skjálfa. — Leiðtogarnir, sem komu fram á sjónarsviðið 1934 og árin þar á undan, og stjórnað hafa landinu síðan (Hermann, Ein- ■ar, Ólafur, Eysteinn, Brynjólf- mr o. fl.) munu eiga í vök að verjast fyrir yngri mönnum, sem hugsa meira um að sam- ræma stefnu flokkanna nú- tíma aðstæðum og nýrri kyn- slóð en að fara troðnar slóðir. Þetta mun hafa í för með sér . Menning. íslendingár . munu halda áfram að vera „mesta bókaþjóð heims“, enda þótt 50% af því, sem þeir gefa út, mundi ekki komast á prent - hjá „minni bókaþjóðum“. ís- lendingar munu engin Nóbels- verðlaun vinna þennan áratugj en munu veita sjálfum sér fleiri og stærri verðlaun fyrir bókmenntaafrek. Vaxandi snobberí verður fyrir abstrakt málaralist, en beztu málararn- ir þrevtast á henni og þokast aftur til einhverra forma nat- uralisma. Byrjað. verður á byggingum listasafns og bóka- safns, en sennilega hvorugri stórbygginu lokið fyrir 1970. Haldið verður áfram byggingu Hallgrímskirkju og ákveðið að vígja hana á þúsund ára af- mæli kristintökunnar. Annars verða þokkalegar framfarir í byggingalist og tónlist. ■Jc Þjóðarsálin. Dryklíju- skapur, lauslæti og afbrot rót- lausra unglinga verða hraðvax andi vandamál næsta áratug- inn. Hins vegar mun „fyrsta nýríka kynslóðin“, sem mótað hefur svip þjóðlífsins síðan á stríðsárunum, sýna veruleg þroskamerki, meiri ráðdeild í meðferð fjármuna, verða alvar legar þenkjandi og auka kirkiusókn, gera meiri kröfur til skóla, kvikmynda, útvarps og blaða. Byrjað verður í smá um stíl á íslenzku sjónvarp', þrátt fyrir harða andstöðu. milljónir (nú 209) og Banda- ríkin 204 milljónir (nú 179). 'rff' Utanríkismál. Aðrar þjóð ir munu sýna vaxandi óþol-. irimæði við íslendinga og telja, að þeir krefjist alls af öðrum, réttinda, aðstöðu, verðmæta og peninga, og heimti ávallt allt eða ekkert. íslendingum mun skiljast í vaxandi mæli, að þeir hafa í alltof ríkum mæli lifað á náð annarra og reiknað með að fá nauðsynlega hýru án þess að taka á sig telj andi kvaðir. Þetta mun allt koma skýrt fram í viðskipta- málum, þar sem toliabandalög Oa breyttir viðskiptahættir munu sýna, að hlunnindi fást ekki til lengdar í skiptum þjóða, nema eitthvað komi á móti. • ■Jc Landhelgismál. íslend- ingar munu vinna 12 mílna deiluna, en fyrir 1970 mun annað og meira en nokkrar landhelgismílur verða efst á baugi. Þá munu þjóðirnar hafa skilið, að þær eru á góðri leið alls Atlantshafsins, ef þær halda áfram að byggja báta, togara og verksmiðjuskip í sama mæli og nú, Þá munu hefjast langar og erfiðar samn ingaumleitanir til að. skipu- leggja fiskveiðar á öllu hafinu þannig, að stofnarnir haldist við. ■Jc Framfarir. Haldið verð- ur áfram að afla nýrra atvinnu tækja T—2 togara árlega að jafnaði og báta af gersamlega nýjum gerðum, Lögð verður meiri áherzla á hagnýtingu afl ans og reistar fyrstu stóru og fullkomnu niðursuðuverk- smiðjurnar, auk þess sem fryst ingu mun fara ört fram, Hald- ið verður áfram byggingu raf- orkuvera og verksmiðja, til dæmis nýrrar áburðarverk- smiðju. Samgöngur. Kaupskipa- flotinn mun vaxa hægt, og í millilandaflugi verður farið í humátt á eftir stærri þjóðum, en. við vaxandi samkeppni frá erlendum farþegaþotum. — Mesta breytingin: Nýjar flug- vélar til innanlandsflugs, sem þurfa stuttar flugbrautir. Bíl- um mun fjölga statt og stöð- ugt, stórauknar kröfur verða gerðar til gatnagerðar og fyrstu steyntu eða malbikuðu þjóðvegirnir munu koma til sögunnar, þó ekki langir spott ar strax. Jörð/n - og ■Jc Fjölgunin. Hvern sólar- hring fjölgar mannkyninu um 150.000. Ef þessu heldur áfram verður íbúatala jarðarinnar orðin 3.500 milljónir árið 1970 — en er nú 2900 milljónir. — Þessi fjölgun, um 57.0 milljón ir, jafngildir nokkurn veginn öllum núverandi íbúum Norð- ur- og Suður-Ameríku og Sov- étríkjanna samanlágt. Fjölg- unin er langmest í Asíu. Sam- kvæmt þessu verða Kínverjar 1970 orðnir um 800 milljónir (nú 654), Indverjar um 500 milljónir (nú 417), Evrópa ut- an Sovétríkjanna 452 milljón- ir (nú 423), Sovétríkin 254 Friður. Það brýst að öll- um líkindum ekki út heims- styrjöld. Jafnvægi stóirveld- anna í kjarnasprengjum er slíkt, að heimsstyrjöld er þeim alger óvissa og fullkomin hætta. Þó mun ný hætta skap- ast, þegar Kínverjar komast yfir kjarnorkuvopn. Hins keg- ar geta vel brotizt út „lítil stríð“, en stórveldin munu hafa sameiginlega hagsmuni af að hefta útbreiðslu þeirra og stöðva þau Sérstaklega er hætta á að Kínverjar ráðist á Formósu og komi af stað upp- reisnum í Suð-austur-Asíu, en einnig er hættusvæði 1 löndum Araba, milli þeirra og ísraels- manna, eða innbyrðis, t. d. milli íraks og Egyptalands. ■Ar Fyrsta afvopnun. Áratug urinn byrjar 1960 á mörgum fundum æðstu manna, sem munu róa mannkynið nokkuð, en ekki leysa grundvallardeilu mál. Þá má búast við sam- komulagi um einhverja byrjun á afvopnun, sem annars mun taka langan tíma. Vestur- Berlín verður áfram frjáls, en Þýzkaland ekki sameinað þennan áratug. ■^C Ýmislegt. Athygli heims ins mun beinast í vaxandi mæli að Afríku, þar sem blökkumannaríki munu öðlast frelsi og hvítir menn smám saman missa pólitísk forrétt- indi, nema í Suður-Afríku . . . Rússar munu horfa með vax- andi ugg á vöxt Kínaveldis . . . Hinar frumstæðari þjóðir efnahagslega munu fá stór- aukna aðstoð frá auðugri lönd um austan og vestan tj'alds, en þær munu ekki verða eins ginkeyptar fyrir kommún- isma og hingað til vegna árás- ar Kínverja á Indverskt land . . . Efnahagsmál Vestur-Evr- Fólkinu fjölgar um 150.000 á dag. j ópu verða erfið vegna þes3 klofnings, sem þegar er kom- inn til skjalanna, en það murt takast að koma á einhvers konar samkomulági milli hinna „6“ og hinna „7“ . . . Velmiegun Vestur-Evrópu mun vaxa áfram, og kommún- istaríkin munu einnig ná mikl um árangri í baráttunni fyrir baettum lífskjörum og taka aukinn Þátt í alþjóða viðskipt um . . . Ekki verðá frekari uppreisnir í leppríkjunum eft- ir lærdóm Ungverjalands, an þau munu sum sækja fast ái um aukið frelsi . . . Áfram- haldandi uppreisnir verða í Suður-Ameríku, þótt sum ríki (Brazilía, Chile) nái góðumi árangri í föstu, frjálsu stjórn- arfari og efnahagsframförum. Framhald á 11 síðu

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.