Alþýðublaðið - 09.01.1960, Page 7

Alþýðublaðið - 09.01.1960, Page 7
NÚ um helgina er væntanleg hingað til lands ameríska messó sópransöngkonan Miss Betty AHen og mun hún halda hér tvo tónleika fyrir stýrktarmeðlimi Tónlistarfélagsins, hinn fyrri mánudaginn 11. janúar kl. 7 e. h. í Austurbæjarbíói, og hinn síðari daginn eftir, þriðjudag, á sama tíma. Ekki er enn ákveð ið hvort Miss Allen heldur nokkra opinbera tónleika með- an hún stendur hér við. Söngkonan Betty Allen, sem er ung að aldri, hefur á síðustu árum hlotið einstaklega rnikið lof og góða dóma kunnústu gagnrýnenda fyrir list sína. Einkum hefur hún komið fram sem konsertsöngkona, bæði ein með píanóundirleik og einnig Sem einsöngvari með sinfóníu- ihljómsveitum. Meðal þeirra hljómsveita, sem hún hefur sungið með, má nefna fílharm- óníuhljómsveitina í New York undir stjórn Leonard Bern- steins, og sinfóníuhljómsveitina í Boston undir stjórn Charles Munch. Miss Allen hefur hald- ið tónleika víðs vegar um Bandaríkin, en einnig hefur hún ferðazt víða um Suður-Am- eríku og Evrópu til þess að halda tónleika. Hún er nú að Málfundur FYRSTI málfundur Félags ungra jafnaðarmanna í Reykja- vík á þessu ári verður næstkom andi þriðjudagskvöld í Ingólfs- kaffi (uppi) og hefst kl. 8.30 stundvíslega. Fundarefni verður: Aðskiln- aður ríkis og kirkju. Tveir fram sögumenn reifa málið að vanda. Félagar eru hvattir til að mæta vel. Nýir þátttakendur geta bætzt við. hefja aðra tónleikaför sína um Evrópu og er ísland fyrsti við- komustaður hennar,en alls mun þessi ferð hennar standa yfir í þrjá mánuði. í þessari ferð mun hún m. a. syngja með sinfóníu- hljómsveitinni í Berlín í upp- færslu hennar á ,,Alto Rhapso- dy“ eftir Brahms og „Requiem“ . eftir Verdi. | VERÐLAUNUB Fyrir sex árum síðan hlaut Miss Betty Allen tvenn verð- laun fyrir söng sinn, John Hay Whitney verðlaunin og Marian Anderson verðlaunin, en þau eru aðeins veitt ungum söngv- urum, sem þykja mjög efnileg- ix og líklegir til þess að skara fram úr í list sinni. Enginn vafi er á því, að það er mikill fengur að komu Betty Allens fyrri tónlistarunnendur hér, en eins og áður segir mun hún halda tvenna tónleika fyrir styrktarmeðlimi Tónlistarfélags ins nk. mánudag og þriðjudag kl. 7 e. h. í Austurbæjarbíó. Æflar Kassem í stríð? BAGDAD, 8. jan. (NTB- AFP). Þegar Sýrlendingar frelsa land sitt, geta þeir sam- einast írak á grundvelli gagn- kvæms skilnings og bræðra- lags, sagði Kassem, forsætis- ráðherra, í ræðu í dag. „íraks búar geta ekki setið með hend ur í skauti og horft á órétt- læti það, sem er hlutskipti hinna sýrlenzku bræðra okk- ar. Við munum verja frelsið, ekki aðeins í írak, heldur í öllum nágrannalöndunum. - Land okkar er samþykkt hverri þeirri sameiningu Ár- aba, er byggist á vilja fólks- ins,“ sagði Kassem. AUÐUR AUÐUNS, borgarsíjóri mennta- og félagsmála, opnaði í gær sýningu í Tómstunda- heimilinu að Lindargötu 50. Sýningin á að kynna helztu þætti og gefa nokkra' hugmynd úm kristnisögu. Séra Bragi Friðriksson ávarpaði gesti við opúun sýningarinnar. Gat hann þess að til sköpunar sýn- ingarinnar hefði hug- myndaflug ungs fólks fengið að njóta sín. Tveir ungir, erlendir listamenn, sem hérlendis dveljast, Juan Casadesus frá Spáni og Salvatore Tola frá ítaliu, áttu mestan þátt í og stjórnuðu upp- setningu sýningarinnar. Með þeim hafa starfað nokkrir unglingar síðan um jól og sýnir myndin unga fólkið við þá vinnu. Sýningin verður opin kl. 2—6 og 7,30—10 dag- ana .9. — 18. þ. m. Skýr- ingar og hljómlist verðúr flutt af segulbandi öðru hvoru. VERR FA EIMÁ SETIÐ Rannsók á Oberlander BONN, 8. jan. (REUTER). — Theodor Oberlander, ráðherra mála flóttamanna, m,un á morg- un mæta fyrir sérstakri nefnd í Haag, en hún rannsakar nú á- sakanir á hendur honum í sam- foandi við fortíð hans í síðasta stríði, sagði talsmaður ráðu- neytis hans í dag. í nefndinni eiga sæti Hans Cappelen og Ole Björn Kraft frá Danmörku, Flor Peeters, Belgíu, Kurt Schock, Sviss, og van Staal Hollandi. Flugbjörgunar sveitin syðra flutt burt FYRIR nokkru kom opinber starfsmaður útan af landi til Reykjavíkur. Hann fékk sér herbergi á einu af betri hótel- um borgarinnar. Þegar hann var búinn að þvo af sér ferða- rykið, fór hann út. Á götum borgarinnar hitti hann gamlan sýslunga sinn og bauð honum upp á kokteil í hót- elherfoergi sínu. Sátu þeir að drykkju góða stund og þar kom að vínbirgðir þurtu. Þær voru þó endurnýjaðar snarlega. Ferðamaðurinn var þreyttur og illa fyrirkallaður eftir ferð- ina o g gerðist syfjaður af drykkjunni. Hann lagðist því upp í rúm og sofnaði. Þegar hann vaknaði nokkru seinna, var sýslungi hans farinn. Hann tók þá eftir því að allir pen- ingar hans voru horfnir úr vesk inu Og einnig nokkur hluti vín- birgðanna. Hinn opinberi starfsmaður hafði áður um daginn fengið laun sín greidd hjá ríkisféhirði og var því um talsverða f járhæð að ræða. Maðurinn fór Þegar á lögreglustöðina og kærði þjófn- aðinn. Á lögreglustöðinni kom í ljós að þar hafði rekið á fjörur mann einn ofurölvi, sem ekki hafði getað greitt ökugjald fyrir leigu bifreið. Vasar hans voru ÞóaUir fullir af peningum. Hér var köminn sýslungi ferðamanris-. ins. Þannig lauk ævintýrum hins opinbera starfsmanns fyrsta kvöldið í Reykjavík. Hann fékk aftur launin sín, en félagi hans var settur í geymslu í kjallar- anum. FLUGBJÖRGUNAR- SVEITIN á Keflavíkurflugvelli verður flutt burtu en í stað hennar mun varnarliðið sjálft annast nauðsynleg flugbjörg- unarstörf framvegis. Þessi breyting þýðir það, að ekki verður sérstök flug- björgunarsveit á flugvellinum eins og verið hefur, heldur mun varnarliðið leggja til flug vélar og nauðsynlegan útbún- að við flugbjörgunarstörf. — Helikoptervélar verða t. d. eft- ir sem áður til taks á flug- vellinum og á öryggi að verða eins mikið og áður, énda verður flugvöllurinn vegna al- þjóðlegs flugs að uppfylla viss skilyrði hvað öryggi í sam- bandi við björgun við kemur og verður þar hvergi slakað á. KOSNING stjórnar og trúnað arráðs Sjómannafélags Rvík- ur fer fram í skrifstofu félags- ins í Alþýðuhúsinu við Hverf- isgötu. í dag er kosið kl. 2—7 e. h. Og á morgun kl. 2—10 e. h. Sjómenn, munið að listi ykkar er A-listinn! í GÆR var dregið í 9. flokki í Happdrætti Dvalarheiroilis aldraðra sjómanna um 20 v., eins og að venju. 2ja herb. íbúð, Hátúni 4, 5. hæð, kom á nr. 27119, umboð Vesturver. Eig.: Sjöfn Krist- insd., Hringbr. 45. Taunus M.17 Station bifr* kom á nr. 56036, umb. Hafnar- fj. Eig.: Gísli Magnússon, —• Suðurg. 74. Moskvitch fólksbif- reið kom á nr. 15566. Umb. Þingeyri. Eig.: Sigríður Kristj- ánsdóttir. Húsbúnaður eftir eigin vali fyrir 15.000,00 kom á nr. 36126. Umboð Neskaupstacur. Húsbún. fyrir 12000,00 kom á nr. 3806, tíás), 36812, 39829 (Vesturv.). Húsbún. fyrir 10.GOÖ kom á nr. 115 (Vesturv.) 3496 (Akureyri), 16372 (Akureyri) 16680 (Akureyri) 18331 (AkrS- nes), 21236 (Aðalumb.), 25873 (Aðalumb.), 28295, 28917 (AðaJ umboð), 36165 (Neskaupst.), 40848 (Neskaupst.), 42556, 56590 (Aðalumboð). LEIÐRETTING Akranesstogarinn, sem er F smíðum í V-Þýzkalandi, er eiga Síldar- og fiskimjölsverksmiðjtt Akraness, en ekki' Haraklar Böðvarssonar og Co., eins oS sagt var í blaðinu i gær. Alþýðublaðið — 9. janúar 1959

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.