Alþýðublaðið - 09.01.1960, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 09.01.1960, Blaðsíða 14
Kveðjuorð Framhald af 13. síðu. auka skyldi gleði, heldur líka !til að mýkja sorg. Vökull andi, vinsterk hendi var í standi í bróðurþörf. Leystist vandi, leiðir kenndi lífsvekjandi hugsun djörf. Sum þessara spjalda eru geymd innrömmuð sem helgi- dómur. Munu falda minnisspjöldin mörg um aldir fagurskreytt. Listarvaldið — vænstu gjöldin viðkvæmt baldið geðið heitt. Því að: Lundin ör til leiftur svara Ijóðahjör í glensi ef brá, augnafjörið fyndnikjara fram á vörum byltist þá. Jafnan mun honum hafa verið eðlilegast, að láta stefin fljúga eins og þau fæddust fyrst í hug hans og bera ýms Ijóð hans þess merki og þó að hann vissi oft vel sjálfur, að aðrir vildu hafa hann eða eitt hvað hans einhvern veginn öðruvísi, þá hafði hann kjark í því sem öðru tij að reyna aldrei að vera neitt annað en hann sjálfur og lét sér í léttu rúmi liggja hvað hver sagði, svo sem þessi svarstaka hans ber bezt með sér: Leitis-Gróu frænkum frá fékk ég nóg af dómum. Hugans lóa léttfleyg þá ljóða hló á blómum. Svo kvað Húnfjörð og hló. Af Ijóðaritum Jóseps, sem út komu, var ljóðabókin „Hlíð in mín“ 5. og síðasta 1940, svo sem siá má í Húnvetningaljóð um (Um höfunda) og auk ljóða í þeim Birtust oft eftir hann greinar og ljóð í blöðum, einn ig fékk hann oft verðlaun fyr- ir lióð sín í ljóðasamkeppni. Eigi var það með öllu ólíkt um þessar Súluvallakempur, Húnfjörð og Hvítserk, báðir hafa kosið sér stöðu í fremstu 'línu, bjóðandi bvrgin köldum bárum og þó ekki sjái kalsár á Hvítserk, hafa þó fætur hans ilúðst svo, að um varð að bæta svo að öruggur gæti hann um langa framtíð staöið, en svo auðveldlega fáum við okkur ekki um aldir endurnýjaða. Húnfjörð gafst að kalla mátti, sem hann og mjög þráði, hreysti til að standa allstyrk- Ur á eigin fótum fram á þetta ár, en löngum ævidegi lauk 27. nóvember sl. Við þökkum öll, er nutum hans samfylgdar og verka. Endurvakin minning hverrar gleðistundar slær ávallt Ijós- glampa fram á veginn. Samúð okkar vottum við syrgjendum og að endingu, Jósep, ég veit að þú hefur átt vini til að taka á móti þér handan línunnar þar sem ég 9. janúar 1980 vona að þér bætist það, er þér þotli á skorta hérna megm. Hörpustrenginn hljóms með angan hefur fengið nýjan þinn. Stakan, genginn grætur strangan góða drenginn, vininn sinn. Ingþór Sigurbjs. Kveðjuorð Jósef Húnfjörð VININN kveður vinafjöldinn víst er horfinn bak við tjöldin. Upp í hæð til herrans genginn hljóðir kveðja góða drenginn. En minningarnar mætar lifa, minningar, sem ætti að skrifa. Áfram líða ár og áldir unz allra dagar eru taldir. Engum vægir tímans tönnin telst þó misjöfn lífsins hrönnin. í anda varst þú ávallt ungur þó ættir leið um hraun og klungur. Því lundin var svo létt sem - fiður. lífsins bjó þar ró og friður. Þótti flytja þrungnar ræður, þínir minnast félagsbræður. Skemmti títt á skálda-þingi, skeyti flugu að andstæðingi. Með andans þrótti og vfir- burðum að ýmsir íæstu skála-hurðum. Ljóðin þín sem list má kalla leitaði upp úr dal til fjalla. Lítil mær þig létt nam styðja Ijóða sem að heitir gyðja. Flaug hún til þín hátt úr hæðum himinborin miðlar gæðum. Þið hafið drjúgum drukkið saman dýrar veigar og hlotið framann. Þið létuð ávallt gamminn geisa götuna frarn og makkann reisa. Um gróna velli, grjót og hóla nú gangið þið bæði í æðri skóla. Lengi mun þinn lifa hróður lista-drengur félags-bróður. Tugir ára telst samleiðin ■traust var bandið lífsins skeiðin. En þó hér slitni bræðraböndin blessuð er sú líknarhöndin. Er safnar vinum saman aftur sífellt hefur Drottins kraftur. Lifðu heill á ljóssins safni, lifðu sæll í Drottins nafni. Genginn ertu Guðs á fund, gladdi marga hlynur, göfug sál með létta lund, lífsins tryggðavinur. Ljúft er þegar losna bönd láðs við kaldar strendur, að mega leggja lúna önd lausnarans í hendur. Hér þó slíti bræðrabönd bitur dauðans kraftur, þá mun síðar herrans hönd hnýta saman aftur. Ei þarf fella tregatár þó tyfti oss reynsluskólinn, við oss blasa eilíf ár indæl gleðisólin. Mig þinn vantar mála geir minni að halda vöku, við sjáumst aftur síðar meir saman kveða stöku. Þú eygðir í fjarska Guðs eilífðar strönd, sem aldregi lokuð er, nei. Þú sagðir: Þér, faðir, ég fel mína önd, í frelsarans nafni ég dey. ísleikur Þorsteinsson. Alþjóðamál Framhald af 16. síðu. kvæm, þar eð málfræðin er ó- Ijósari og merking orðanna ekki eins föst. Túlkarnir við Sameinuðu þjóðirnar segja að auðveldara sé að þýða á rúss- nesku af ensku, frönsku, spænsku og kínversku, held- ur en að þýða ensku á sömu mál. Piron bendir einnig á eftir- farandi staðreyndir varðandi tungumálaástandið í dag. — Hin þjóðernissinnuðu nýju ríki í Afríku og Asíu halda fram þjóðtungum sín- um á kostnað frönsku og ensku, oft á tíðum getur þetta leitt til þess að þau ein- angrist í menningarlegum efn um. — Arabiska hefur öðlast antnq þýðingu o? er eina málið, sem er hálfopinbert hjá Sameinuðu þjóðunum. — Þýzka er aftur í sókn í Mið-Evrópu, og eins sem verzlunarmál í mörgum Af- ríku- os Asíuríkjum. En hún hefur elatað þeirri þýðingu, sem hún hafði á vísindasvið- inu í unphafi aldarinnar. — Snænska vinnur á, eink- um í þeim löndum. sem hafa mikil viðskipti við Suður- Ameríku. — Kínverska (mandarín) er eitt mikilvægasta tungumál heimsins. Hálfur milljarður manna talar hana eða skilur. Alþýðublaðið Flugfélag íslands. .... Millilandaflug: Gullfaxi er vænt !>. W M anlegur til Rvík kl. 16.10 í if dag frá Khöfn ■*’ og Glasgow. — Millilandaflug- W.V.V.V vélin Hrímfaxi fer til Oslóar, Khafnar og Ham borgar kl. 8.30 í dag. Vænt- anleg aftur til Rvíkur kl. 15.40 á morgun. Innanlands- flug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar, Blönduóss, Eg- ilsstaða, ísafjarðar, Sauðár- króks og Vestmannaeyja. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, Húsavíkur og Vestmannaeyja. Loftleiðir. Saga er væntanleg kl. 7.15 frá New York. Fer til Glas- gow og Amsterdam kl. 8.45. Leiguflugvél Loftleiða er væntanleg kl. 19 frá Khöfn og Oslo. Fer til New York kl. 20.30. Ríkisskip. Hekla fer frá R.- vík á hádegi í dag austur um land í hringferð. Esja kom til Rvíkur í ,gær að austan frá Akureyri. Herðubreið er á Austfjörðum. Skjaldbreið fer frá Akureyri í dag vestur um land til Reykjavíkur. Þyrill kom til Fredrikstad í gær. Herjólfur fer frá Vestmanna- eyjum kl. 21 í kvöld til Rvík- ur. Skipadeild SÍS. Hvassafell átti að fara 7. þ. m. frá Stettin áleiðis til Rvík- ur. Arnarfell fer 11. þ. m. frá Kristiansand áleiðis til Siglu- fjarðar, Akureyrar og Rvík- ur. Jökulfell lestar á Aust- fjarðahöfnum. Dísarfell losar á Húnaflóahöfnum. Litlafell er á leið til Rvíkur frá Aust- íjörðum. Helgafell fer vænt- anlega 12. þ. m. frá Ibiza á- leiðis til Vestmannaeyja og Faxaflóahafna. Hamrafell er væntanlegt til Batum 13. þ. m. frá Reykjavík. Eimskip. Dettifoss kom til Hull 7/1, fer þaðan til Grimsby, Am- sterdam, Rostock, Swine- miinde, Gdynia, Ábo og Kot- ka. Fjallfoss kom til Hamborg ar 7/1, fer þaðan til Khafnar, Stettin og Rostock. Goðafoss kom til Antwerpen í gær, fer þaðan til Rotterdam og Rvík- ur. Gullfoss fór frá Leith í gær til Thorshavn og Rvíkur. Lagarfoss er í Rvík. Reykja- foss fór frá Akureyri 7/1 til Flateyrar, Grundarfjarðar, Faxaflóahafna og Rvíkur. Sel foss fór frá Ventspils 4/1, væntanlegur til Rvíkur árdeg is í dag. Tröllafoss kom til Bremerhaven í gær, fer það- an til Hamborgar og Rvíkur. Tungufoss kom til Rvíkur í gær frá Stykkishólmi. Hf. Jöklar. n"^| Drangajökull verður í Gi- braltar í nótt. Langjökull er í Reykjavík. Vatnajökull fór frá Rostock 5. þ. m. á leið tii. Reykjavíkur. Veðrið: S og SV stinningskaldi — skúrir. laugardagur Slysavarðstofan er opin all- an sólarhringinn. Læknavörð ur LR fyrir vitjanir er á sama stað kl. 18—8. Sími 15030. -o- Listasafn Einars Jónssonar, Hnitbjcrgum, er lokað um óákveðinn tíma. -o- Er til viðtals í Hallgríms- kirkju daglega kl. 6—7 e. h. Á öðrum tímum í síma 15937. Séra Lárus Halldórs- son. -o- Bréfaskipti: — Hver vill skrii ast á við: Mitsumasa Iwao, Farukawa Ojin-Village, Tokashima-Presecture. Japan. -o- Kvenfélag Óháða safnaðar- ins. Munið jólafundinn í Kirkjubæ á mánudagskvöldið kl. 8.30. Takið með ykkur gesti. -o- Stofnfundur Garðasóknar verður haldinn í samkomu- húsinu á Garðaholti á morg- un (sunnudga) kl. 2 sd. Kosn- ir verða starfsmenn fyrir hina nýju sókn og rætt um áfram- haldandi endurbætur á Garða kirkju. -o- 12.50 Óskalög sjúklinga. 14.00 Ljaugardagslög- in. 17.00 Bridge- þáttur (Eiríkur Baldvinsson). 17.20 Skákþátt- ur (Guðm. Arn- laugsson). 18.00 Tónleikar: Child. rens Corner (í barnaherberg- inu), sex píánó- lög eftir Debus- sy (Rudolf Fir- kusny leikur). 18.30 Utvarpssaga barnanna. 18.55 Frægir söngvarar: Ben- jamino Gigli syngur. 20.30 Leikrit: ,,Farðu ekkj til EL Kuhwet“ eftir Gúnther Eich, í þýðingu Áslaugar Árnadótt- ur. — Leikstjóri: Baldvin Halldórsson. 22.10 Danslög. 24.00 Dagskrárlok. -o- LAUSN HEILABRJÓTS: Hj. 6, Hj. 5, Hj. 9, Hj. 8, Hj.7.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.