Þjóðólfur - 22.11.1848, Side 2

Þjóðólfur - 22.11.1848, Side 2
6 þakklæti við forsjónina, og láta oss svo vinna það fyrir, að vjer missum vel()óknun liennar. Vjer vitum j)að sjálfir, að engum húsbónda getur líkað við f>au hjú, sem allt af eru að nöldra um, að allir hlutir á lieimilinu sjeu af svo skornum skamti. Skyldum vjer þá ætl- ast til, að hinum mikla húsföður heimsins geti líkað við þá landsbúa, sem einlægt eru að telja sjer tölur, (>ykir landið vera svo gæðalítið, og eru því allt af að berja sjer um fátækt? Nei, eins og guð elskar glaðan og greiðvikinn gjafara, svo elskar hann lika glaðan og (>akklátan (liggjauda. Og þetta er ekki einungis sagt í tilliti til einstakra manna, heldur líka til lieilla ()jóða. Jað væri nú sök sjer, þó oss væri skip- að, að gæta þess, að landið væri fátæklega úr garði gjört, ef það væri satt, að svo væri. En |)ví máli er ekki að gegna; þaö er ósatt, að Island sje fátæklega úr garði gjört. Eins og hvert annað land ber það órækan vott um drottins milda örlæti. Jeg get að vísu ekki bent yður, Islendingar! á neina leynda kosti landsins, sem þjer þekkið ekki áður; og má þó vel vera, að þeir sjeu margir til. En jeg þarfekki heldur að grafa niður i innvfli þess, til að leita uppi gull og gersemar, til að sýna yður og sanna með sögu mína. Jeg bendi yðui’ einungis á aðal-bjargræðisvegi landsins, fiskiaflann og fjárræktina; og hversu marg- falt meira mætti þetta þó ekki vera, efþeir aðburðir væru við hafðir, sem vera mættu. Jeg spyr yður, sveitabændur! er nú búskap- ur yðar þegar kominn í þann hlóma, sem orð- ið getur? Getur jaröarræktin hjá yður eng- um bótum tekið framar? Jeg spyr yður, sjávarbændur! er nú sjávarútvegur yðar orð- inn svo ágætur, sem unnt er? Geta vertið- irnar í veiðistöðunum ekki orðið arðmeiri? Og þá er að benda á hin önnur gæðin, sem minnakveöurað: æðarfuglinn á eyjunum, lax- inn í ánum, silunginn í vötnunum, selinu á skerjunum, fuglinn í björgunum, grösin á heiðunum, og garðstæðin fyrir jarðeplin. Er þetta allt hirt og stundað með því lagi og þeim dugnaði, sem orðið getur? Jegar litið er á allt þetta, á alla þá gæðakosti, meiri og minni, sem land vort er búið með, þá er sann- arlega synd að segja, að það sje fátæklega úr garði gjört, og að vjer, innbúar þess, þurf- um þess vegna að vera aumir og vesalir. Jað er þó máltak, að hvert land bjargist með sjnum gæðum. Jþetta á víst. ekki svo að skilja, að hverjir landsbúar fyrir sig geti komizt af eingöngu með þau gæði, sem landið hefur sjálftfram að færa. Jeg heldj að engin þjóð geti það, sein nokkra upplýsingu og mennt- un hefur fengið; og þá er ekki von til, að vjer, IsJendingar, getum það. Hvar ættum vjer að taka hjá sjálfum oss t. a. m. járn í Ijáina, hamp í netin? 3>að mun lieldur vera svo, að hvert Iand sje svo úr garði gjört af skaparanum, að landshúar hafi nægileg og yfirfljótanleg gæði til þess, að geta aflað sjer fyrir allra lífsins nauösynja, og þar að auki geta staðiö straum af öllum stofnuiium, sem þjóðin þarf með til andlegra og líkamlegra framfara, þegar hún að eins hefur kunnáttu og dugnað til að hagiiýta sjer kostilandsins, og hún þar að auki á frjálst að skipta gnægtum sínum og gæðum haganlega við aðrar þjóðir. Á þennan hátt skal það líka samiast á Islandi, að það ekki einungis getur hjargazt, heldur og lifað góðu lífi af sínum gæðum. Jeg get ekki heldur trúað því, að drottinn hafi ætlazt til jiess, að nokkur lieil þjóð skyldi vera ómagi aimara landa. j>að er ekki eptir gæzku Iians; og að vilja telja þjóðiiini trú um það, það er mikill ábyrgðarliluti. 3>að er rjett eins, og ef einhver tæki sig til að brýna það fyrir bóndanum í sveitinni, sem sæti á magurri jörð, að hann skyldi sjá það sjálfur, er jörð hans væri svo rýrlega úr garði gjörð, að hann bæði mætti og ætti að byggja upp á hina bændurna, sem sætu á hetri jöröunum. Hvernig færi, ef bóndinn og allt hans heimafólk trj’ði þessu? Ætli það færi ekki að hægja á sjer að vinna í sveita síns andlitis? Ætli það yrði ekki lítið um fjör og framkvæmd á því heimili? Og allt eins hlyti að verða fyrir hverri þeirri þjóð, sein Ijeti telja sjer trú nm það, að hún væri ósjálfhjarga eptir ráði for- sjónarinnar; hún vendist á að skoða sig eins og hapdbendi, er heimsins stýrir liefði í frá upphafi ætlazt til, að auðugri löndin skyldu annazt. Og það yröi á endanum laglegur þjóðarandinn í landinu þvi! En það er svo guði fyrir þakkandi, að engin þjóð þarf þess, að skoða sig þannig, og Island ekki heldur. Guð hefur lagt of mikið til lands vors,

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.