Þjóðólfur - 27.03.1852, Side 2

Þjóðólfur - 27.03.1852, Side 2
310 að þeir gætu aflokiö á fyrirsettum tima því verki, sem lög gjörðu ráð fyrir; og fulltrúar þeir, sem fjelagið liaföi kosið sjer i hjeruð- unum, til að bera vitni um verkið, höfhu alla aðgæzlu á að þeir, sem verðlauna beiddust, segðu rjett frá tímabili þvi, er þeir heíðu unnið verk- ið á; einnig hafði Qelagið aðgæzlusaman um- sjónarmann, sem hafði gætur á að stofn fje- lagsins gæti aukizt, og sá um að kostnaður þess og útgjöld væru sem minnst; var því á fjelagsfundum nákvæmlega gætt þess af em- bættismönnum Qelagsins, að þeir einir nyti verðlauna, sem maklegastir væru; enda trúðu þeir einungis fulltrúum sinum, hverjir líka, eins og fyrstu skýrslur fjelagsins sýna, hafa fýst nákvæmlega öllu verki þeirra, er kvatt höíðu þá til skoðunar, einnig sagt skilmerki- lega frá tímabili þvi, er verkið var gjört á. Og fyrir þetta varð það almennings álit á út- býtingu á verðlaununum, að þeir cinir nytu þeirra, sem helzt hefðu til þeirra unniö. Nú hefur mönnum borizt til handa Skýrsla af 28. dag jan. 1851 frá tjeðu fjelagi, sem kunnugum mönnum geðjast einhvern veginn siður að, en hinum fyrri skýrslum; og gjörir það þessa skýrslu helzt tortryggilega, að hún fer bæði ofur Ijett yfir lýsingu á verkinu — helzt þeirra sumra, sem taldir eru í verðlauna- flokknum — og fer líka mjög ógreinilega yfir tímahil það, sem verkið hefur fram farið á; og hjer að auki má fullyrða, segir alrangt frá sumu t. a. m. sjá No. 2. „Hann hafði að full- trúa vitni árið 1849 Iilaðið 318 faðma langan tvihlaðinn grjótgarð, 88 faðma traðargarða og skorið 270 faðma langa skurði til vatnsveit- inga; áður hafði hann sljettað 3233 CH faöma“. Iíjer er frásaga fulltrúa svo löguð að ossvirð- ist, að menn geta eigi skilið annað, en þessi dugnaðarmaður hafi 1849 hlaðið bæði grjót- garðinn og traðargarðinn, einnig skorið vatns- veitingaskurðina. Ekkert geta fulltrúar um lögun á neinu af þessu verki, nema einungis um lengdina, og berum vjer eigi brigður á, að hún sje sönn, nema ef vera skyldi eitt- hvað tvírætt um lengd traðargarðanna; þeir gátu þar svo hvergi náð þeirri lengd, sem þeim er eignuð, nema í.það hálfa hefðu verið taldir margra ára gamlir traðargarðar, eða þó heldur traðaryarða brot. Vatnsveitingaskurðunum er ekkert lýst að dýpt nje vídd, svo eigi sjest hve mikið verk hefur verið að gjöra þá; en vitnisburðurinn um þá hefur það þó til að bera, að það er sagt satt, hvenær þeir eru gjörðir nefnil. 1849. En eigi geta menn skilið, hvers vegna sagt erum allt verk þessa manns, að það hafi verið unnið 1849, þar sem þó grjótgarðurinn var allur hlaðinn 1850, en mest- allir traðargarðarnir fyrir bæði hjer greind ár, eins og líka sljettan, sem sagt er að hafi, ver- ið komin áður. Svo stendur i sömu Skýrslu um No. 4. „Hann hefur að fulltrúa vitni mestallt 1849 allsæmilega hlaðið torfgarö 227 faðma og sljettað 2190 cr; faðma. ÍÞetta þykir oss nú fulltrúarnir hafa borið vilhallt og rangt, með öllu, „mestallt 1S49“. 5ví garðlileðsla hjá þess- um manni hefur víst, staðið yfir 8ár, að árinu 1850 meðtöldu; þar að auki er rjett ekkert af garðinum úr torfi, heldur holtsniddu mjög grámosa borinni; lengdin má vera aðnáisjer, þó með þvi móti að mjög gamlir garðstubbar gangi þar líka til; en sljettunin hjá hinum sama hefur staðið yfir óhætt að segja síðan „húss og bústjómarfjelagið“ var stofnað; og er það að likinduin, því maöurinn liefur, lengst af verið einyrki; og til merkis um að vjer segjum satt frá um sljettun mannsins, að hún er eigi öll nýgjörð, þá er það, að 1846beiddi bóndi þessi þá verandi sýslumann í Árness- sýslu, sern rjettan fjelagsfulltrúa, að skoða hjá sjersljettun og garðhleðslu, og setti hann til 2 menn sín vegna að skoða verkið, og náði þá sljettun og garður ekki fullt því til- tekna, og þar að auki liáfði þaðfrani farið á mörg- um áruin; eri nú munu fulltrúarnir hafa látið alla sljettuna vera í einu mælda, þvi ekkert getur skýrían um forna sljettu hjá þessum raanni. Um No.8 í Skýrslunni stendur: „liann liefur að fulltrúa vitni „mestallt“ 1848 og 49 hlaðið 250 faðma torfgarð; 100 faðinar „ekki vel stæðilegir, en umbætast“. Um verkið hjá þessum manni getum vjer raunar eigi sagt vegna ókunnugleika, en það sýnist þó ein- hvern veginn tortryggflega sagt fra, að nokk- uð af verkinu hafi verið vel gott og stæðilegt, þegar 100 faömar af 450 þurftu strax umbótar. ’Fjærri fer því að menn misunni mönnum þessum launa þeirra, er þeim voru veitt af fjelaginu, því vjer vitum að bæði No. 2 og 4

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.