Þjóðólfur - 23.04.1853, Page 6
66
ar um stjórnarmálefni landsins og uppá-
stúngur þær, sein um það eru fram komnar.
3. að þíngmenn leitist viö að koma á sam-
gaungum milli sin og um allt land, og það,
ef mögulegt væri, eptir vissum reglum og
á vissum tímum.
4. að nú í sumar verði rituð sem allra Qöl-
mennust bænarskrá að mögulegt er, um
verzlunarfrelsi við allar þjóðir, eptir upp-
átúngum þjúðfundarins í fyrra.
5. að fundir verði haldnir aistaðar í þessu
skyni, og svo jafnframt til að glæða hjá
mönnum áhuga á öðrum mikilvægum mál-
efrtum, svo sem á endurbótum á jarðar-
rækt og öllum greinum landbúnaðarins,
alrnúgaskólum eða bændaskólum, sjó-
mannaskólum, frjálslegri og reglulegri
sveitastjórn og fleira þess konar.
6. Ef mönnuin sýndist, myndi það ekki
spilla, að bænarskrár um stjórnarbótina
yrðu sendar fleiri, einkum úr þeiin sýsl-
um, sem ekki liafa sent í vetur.
7. En fyrst og freinst verðuin við að taka
það fram, að þér gjörið allt til þess að al-
þýða hvorki láti skelfast né hugfallast,
og ekki heldur láti kvikna hjá sér neitt
hatur til stjórnarinnar, eður hinnar dönsku
þjóðar, svo sem þeirra, er með vilja og
af vonsku traðki rétti voruni, því þessu
er víst engan veginn svo varið, ekki held-
ur firtist svo að liún leggi árar í bát, og
ekki heldur trúi neinum lausum og óá-
reiðanlegum fregnum né ágizkunum, eða
láti þær á sig festa hvaðan sem koma,
heldur leiti sannleikans og fylgi fastlega
hinu rétta, með leiðsögn góðra ntanna.
5að höfum við fyrir satt að umbót sú,
sem nú er á komin, að póstskip gángi fjór-
um sinnum á ári til íslands, sé árángur af
margteknum kvörtunum yfir samgönguskorti
og óskum um endurbót á því. — ÍÞannig
inunu smámsaman verða bættar póstgaungur í
landinu sjálfu, verzlaniri og fleira, ef við lát-
um ekki þreytast að halda fram málum vor-
um af öllu afli og með góðu samheldi.
Kaupinannahöfn 15. apríl 1852.
Jún Guðmundsson. Jón Sigurðsson.
S/cýrsla frá héraðsfundunum í Múla-píngi
1850, 1851, 1852.
Vér höfum nýlega lesið í jjjóðólfi, 87.— 88.
blaði, skýrslu um það er gjörðist á Jiórsnes-
fundinum (Sty kkishólmsfundinumV) í
vor er var, og undir eins áskorun frá hinum
lieiðruðu bræðrum vorum í Jórsnesþíngi urn
það að aörir, sem stofnað hafa hjá sér slíka
fundi, lýsi því á prenti er þeir gjöra þar, bæði
til að fyrirbyggja tortryggni, og svo öðrum til
fróðleiks og nytsemi. 3>að liefir reyndar aldrei
verið ætlan vor Múlaþíngsbúa, að koma á prent
sögu um ráðagjörðir vorar og viöburði til fram-
kvæmda á vorþíngum vorum, sem vér höfum
átt með oss í 3 undanfarin ár, því oss hafa
sjálfum ekki þókt þær þess verðar, og vér
höfum ekki þorað að vona, að þær gæti orðið
öðrum til fyrirmyndar; en hvort nokkrir tor-
tryggja oss um, að vér höfum þar um hönd
nokkurskonar óhæfu liggur oss í léttu rúmi,
vér myndum og ekki að öllu leyti geta girt
fyrir það með því að gefa út prentaða skýrslu
um gjörðir vorar. En eins og vér liöfum ekki
neina þesskonar ástæðu til að láta prenta
skýrslu um þær, eins finnum vér og heldur
— (>g.“ 5.). Búnaðartabla
Ömlin. Byggðar jarðir og ltjálcigur. Tala húnfeðr- anna. Fólks- talan öll. Verkfærir karlmenn. Hús- menn. Búsmali allur: nautpeníngur,
Kýr. Kvígur. Naut og uxar. Kálfar.
Suðuramtið . . 2,700 3,394 21,334 3,394 1,521 5,715 2,214 1,622 1,817
Vesturamtið . 1,216 2,373 15,425 3,380 894 3,845 670 354 688
N. - og Austura. 2,296 3,102 23,326 4,659 991 6,290 632 396 474
Ilöfuðtala . . . 6,212 8,869 60,085 11,433 3,406 15,850 3,516 2,379 3,979