Þjóðólfur - 02.12.1854, Side 4
— 16 —
eptir því, hvemin hann er ah öllu vel úr garfci
gerÖur.
(Aðsenf).
Sjón er sögii rikari.
3>að er engin menntuð þjóð til og hefur
aldrei verið, sem ekki hefur þókzt þurfa sjón-
arleika við. Frá hinum elztu tímum, sem ver
höfum sögur af, heyrum vér úr fjarska þessar
sögur; vér höfum og ágæta sjónarleiki enn til
eptir Forngrikki og Rómverja. Jað er auðséð,
að þjóðirnar hafa snemma fundið til þess, að
þetta er ein af hinum gagnlegustu og ágætustu
skemmtunum, sem gleðja mannlegan anda; þær
hafa fundið það, að sjónarleikirnír voru bezt
lagðaðir af öllum hlutum til þess, að hreinsa
andann og sýna honum lífið; hin margvíslegu
og undarlegu hlutföll þess, sameinuð með skáld-
legum búníngi á einn stað og tínia, en þó ekki
bundin við það svið eða þá stund, sem þau eru
sýnd á. Og svo rík og sterk hefur þessi hugs-
un þjóðanna verið á öllum tímum og í öllum
löndum, að þær hafa ekki hlífzt við og horft í
að byggja dýrölegar byggíngar á opinberan
kostnað til þess, að halda í sjónarleiki. Vér
teljum engin dæmi upp á þetta, því allir vita
það og öll sagan sýnir það. Norðurlönd voru
lengst á eptir í þessu eins og öðru, og í sögu
Sigurðar Jórsalafara er talað um sjónarleikinn
á Paðreimi eins og einhver undur, framin með
forneskju og Ijölkýngi. En það er okkur ekki
láandi, Islendíngum, þó vér séum allralengst á
eptir, því hagir vorir leyfa oss ekki enn að
hugsa um þessa hluti eins og eitt af aðalmál-
um landsins; og — það er ekki hlæilegt, eða
sagt í spaugi — það ætti þó að vera eitt af aðal-
málum vorum, því andinn þarf eins fæðu, einsog
líkaminn. I öðrum lönduin eru opinber leikhús,
að ótöldum öllum þeim fjölda, sem einstakir
menn eiga; en þar eru líka allir leikir, sem
nokkuð kveður að, opinber málefni og álitnir
umvarðandi fyrir lýðinn; það er talað um þá í
öllum blöðum, og aldrei vantar fólk til þess að
horfa á þá. Af þessari orsök vonum vér, að
menn furði sig ekki á því, þó vér nú látum
prenta grein þessa í þjóðblaði voru; vér erum
hvort sem er, að ceyna til að laga oss eptir því
fagra og góð, sem vér sjáum hjá öðrum, eins
og ekki er tiltökurnál; en þótt aldrei vanti
menn til að hlæja að því og hæðast að því —
það eru þeir sem standa í stað, og bíða, þáng-
að til þeir deyja af ýldu.
Jað hefir þegar fyrir góðum tíma hreift
sér laungun hjá fólki hér til sjónarleika, og er
það eðlilegt, að það yrði helzt hér í Reykja-
vík, þar sem flest er fólk á einum stað í landi
hér; og þar af leiðir aptur, að hér ætti að finnast
bezt fólk i þessu tilliti, — það er: hæfilegast
til að leika og taka þátt í sjónarleiknum —,
eins og eðlilegt er, þar sem um svo marga er
að velja, karla og konur á ýmsum aldri. Jó
hefir enginn sjónarleikiyr verið haldinn hérhíng-
að til, nema af einstökum mönnum fyrir ein-
staka menn — það er að skilja, það kostaði
ekkert að borfa á hann, þvi þeir, sem stóðu
fyrir honum eða léku, buðu hverjum þeim sem
þeiin þóknaðist, en þeir útilokuðu líka hvern
sem þeim þóknaðist. I fyrra var haldinn sá
fyrsti sjónarleikur, þar sem allir máttu koma
og horfa á, sem vildu; það var sjálfsagt, að
það kostaði penínga; en ekki varð vart við, að
fólki þætti fyrir út af því —; með því létu leik-
endurnir lausan þann Ijóta einræðisrétt, sem er
á þessum tímum eins og ónefnandi óvættur, að
bægja þeim frá gleðinni, sem þeim þóknaðist,
og það er einmitt þetta, sem gerir sjónarleik-
inn í fyrra líkan því, sem títt er í öðrum lönd-
um. Enginn stenz't það, að hafa við slíkan við-
búning og fyrirhöfn, og allan þann kostnað sem
til þess krefst, nema kostnaðurinn fáist end-
urgoldinn —, og þó fæst ómakið kannske ablrei
endurgoldið. 5eir, sem trúa því, sem vér höf-
um ritað fremst í grein þessari, þeir munu sjá
það og trúa því, að þeir eiga þó þakkir skilið,
sem leitast við, að veita fólki þessa andlegu
skemmtun (þó penínga kosti); og yfir höfuð
hefur fólk ekki látið í ljósi óánægju sína yfir
þvi, nema kannske fáeinir, sem þá án efa hafa
séð eða þókzt sjá betur en aðrir — þeir hafa
líklega setið á innstu bekkjunum næst leiksvið-
inu; bara að ljósaröðin hafi ekki sett glýju í
augun á þeiin.
Nú er verið að tala um að balda sjónarleik
á ný í vetur. $að eru þrir hlutir, sein eru aðal-
stoðir sjónarleiksins; það er hús til þess að fremja
leikinn í og leiksviðið; í öðru lagi leikurinn sjálf-
ur eða orðin; og í þriðja lagi fólkið, sem þarf
til að leika.
Vér vonum, að húsið fáist; því þó að gilda-
skálinn nýi sé eins og hanu er, þá er hann þó eina
húsið, sem kostúr erátil slíkra hluta; og væri
það illa gert af stjórn hans, ef fyrirstaða yrði frá
hennar hendi, svo að hann fengist ekki; því það
væri einmitt það einræði, sem mundi fyrirmuna
bæjarmönnuin að njóta þessarar gleði, sem er