Þjóðólfur


Þjóðólfur - 29.01.1856, Qupperneq 4

Þjóðólfur - 29.01.1856, Qupperneq 4
— 32 — 7 Landsyfirrettardómar. Oss hafa verið sendar til að auglýsa í blaði voru athugasemdir og aðfinnfngar við einn af þeim yfirréttar- dómum sem vér hðfum auglýst; en fyrir höfundi þess- ara aðfinnínga, og svo fyrir hverjum öðrum út í frá sem þykist hafa ástæðu til að finna að dómum hins konúnglega yfirdóms, lýsum vérhérmeð yfir, aðvér tökum alls eng- ar slíkar aðfinníngar inn iblaðið; þvf auk þess, sem þær geta sjaldnast verið á betri rökum byggðar en dóm- arnir sjálfir, þá mundi leiða af slíkum opinberlega aug- lýstum aðfinníngum, að yfirdómendurnir yrði einnig að eiga rétt á, ef þeir vildi, að svara þeim í blaðinu og lirekja þær, en þar af mundi aptur leiða þá blaðakeppni, sem fæstum kaupendum blaðsins gæti orðið til ánægju eða upp- byggíngar. En þar sem vér að eins getum gefið aðalinntak dómanna í sakamálum, eptir því sem oss tekst að ná og muna aðalatriði þeirra dóma þegar þeir eru kveðnir upp, þá leyfum vér oss að skora á hina háttvirtu yfirdóm- endur, að þeir riti um það athugasemdir til vor, hvenær sem vér rángfærum þá dóina i nokkru, og skulum vér tafarlaust auglýsa þær ókcypis. En á meðan engar slíkar athugasemdír koma frá yfirdómendunum þykjumst vér liafa rétt til að állta, að skýrslur vorar um dóma yfirdómsins í sakamálunum, séu réttar og áreiðanlegar. I. í málinu: Símon Bjarnason í Gröf gegn Jóni Bjarnasyni (nú á Varmá). (Kveðinn upp 19. nóvembermán. 1855). „Bóndinn §ímon Bjarnason á Gröf í Mosfellssveit hefir skotið til landsyfirréttarins pólitíréttardómi gengnum af sýslumanninum í Gullbringusýslu, Baumann, í máli milli hans og hins stefnda Jóns Bjarnasonar, út af þvf að áfri- jandinn hafði tekið kindur hans og rckið út úr nýbýlisins Klapparholts landí, hvar téður Jón þóktist hafa rétt til að láta þær vera; krafðist téður Jón við pólitíréttinn, að nefndur Símon yrði, fyrir þetta tiltæki, sektaður með of- rikisbótum 0. s. frv., og sömuleiðis dæmdur eptir laganna stránglcika fyrir það, að hann hefði kallað sig þjóf að landinu; mundu þau orð nema því, að það bæri að dærna hann fyrir þau cptir 6—21—2, eður f hið minnsta eptir 6—21—4; en við áminnstan dóm pólitfréttarins var áfrf- jandinn sektaður um 5 rdl. til fátækra fyrir reksturinn á kindunum, en að öðru leyti dæmdnr sýkn fyrir ákærum klagandans, auk þess varhann sektaður um 4 rdl. til dónis- málasjóðarins fyrir það, að hann ckki hafði mætt sjálfur fyrsta daginn er þlngað var í málinu, en málskostnaður látinn falla niður. — Aðalréttarkrafa áfríjandans hér fyrir réttinum er: að dómur þessi verði dæmdur ómerkur, þar eð málið hafi ekki verið fyrir sættanefndinni, en hinn stefndi hafi þó vfð undirréttinn krafiz.t æruleysisdóms yfir sér“. „það leiðir nú beinlinis af boðum tilskipunarinnar 20. janúar 1796, § 13ogl4 (sem hér á landi gildir, sjá með- nl annars tilsk. 21. des. 1831, III), að mál þetta er þess eðlis, að ekki inátti gánga dómur f þvf, nema áður hefði verið leitað f þvf um sættir fyrir sættancfndinni, hvað þó ekki hefir verið gjörl, sem og af hoðuin DL. 1—5—19, sbr. tilsk. frá 3. júni 1796 § 24 og 36, að sýslumaðurinn eptir þeirri við pólitíréttinn gjörðu réttarkröfu sækjandans þar, ekki inátti eínn dæina í málinu, lieldur átti að taka sér meðdúmsmenn til þess, og verður undirréttarins dómur i málinu, þessara galla vegna, að dæmast ómerkur“. „því dæmist rétt að vera“: „Undirréttarins dómur á ómerkur að vera“. B. Réttvíain: gegn Guömundi Péturssyni og Magnúsi Einarssyni í Reykjavík. Með aukaréttardómi Reykjavíkurkaiipstaðar 26. nóbr. f. árs er Guðmundur Pétursson, sem komin er yfir saka- lögaldur en aldrei hefir fyr sætt lögsókn eða hegníngu fyrir nokkurt lagabrot, dæindur til þrisvar sinnum 5 daga vatns- og brauðs-hegníngar fyrir j^msan smáþjófnað og fleiri smáafbrot er hann var orðinn sannur að bæði fyrir sjálfs hans játníngu og aðrar krfngnmstæður, en Magnús Einarsson, sem með honum var saksóklur, fyrir hluttekn- íngu i órélegri meðferð á fundnum munum, og sem fyllti 15. ár sitt 26. ág. f. ár, var með sama dómi dæmdur sýkn af „réttvfsinnar“ ákærum í málinu; en báðir voru þeir dæmdir í málskostnað, hver að því leiti er honuin bæri. llinn sakfelldi Guðniundur skaut þessum dómi að sínu leyti tll yfirdóinsins; en háyfirvaldið fyrir liönd hins ákærða Magnúsar. Guðinundur varð i þessu máli uppvís að því, að haan hafði stolið á næstliðnu hausti frá ferðamanni nokkru af haustull og inör f malsekk, og f fyrra vetur kvennkraga og duggarapeisu, og var allt þetta virt til samans á rúma 2 rddl.; enn fremur var hann fyrir 4 árum liðnum staðinn að lítilfjörlcgum ullarþjófnaði, og var sú ull virt á 8 sk.; þar að auki liafði hann reynt til að stela frá ferðamanní kistli með matvælum f, og var kistillinn virtur á 2 rdl.; í fyrra vetnr hafði hann og fundið og hand- samað niðrá bryggju 5 eða 6 saltfiska blauta og snjóuga, og liafði haun þá sér til matar án þess að lýsa þeiin; að síðustu varð Guðniundur sannur að, að hafa lagt dulur á beizli ineð koparstaungum, er liann fann i sumar er leið hér inn á mýrnm, boðið það öðrum til kaups, og selt það um sfðir liinum ákærða Magnúsi Einarssyni fyrir 2rdl. 32 sk. Fyrir þessi misbrot áleit yfirdómurinn að undirdómarinn hefði ákveðið hæfilega, að Guðmundur ætti að sæta þrisvar 5 daga vatns-og brauðs-hegníngu. —Hinn ákærði Magnús Einarsson var nú að vísu sannur að þvf, að bann hafði keypt hið áminnsta beizli af Guðmundi fyrir 2rdl. 32 sk., en þetta hafði hann gjört með vitund og ráði föður sfns, og vissu þó báðir, að beizlið var fundið. En auk annara atvika er máttu leiða með sér að Magnús yrði sýkn dæind- ur, þá varð það ekki staðhæft upp á neinn vissan dag, hvenær hann keypti beizlið af Giiðmundi, heldur sannaðist að eins hér um, að kaupin gjörðust eiuhvern daganna 16. ágúst til 3. septbr. f. ár, og var því engin vissa fram koinin fyrir þvf, að liinu ákærði hafi verið búinn að ná sakalögaldri, þegnr hann keypti beizlið. því áleít yfir- dómurinn að M. bæri að dæma sýknan af sóknar-ákærnm í þessu niáli og jafnframt lausan við allan málskostnað.— Samkvæmt þessum ástæðum dæmdi þvf yfirdömurinn, .7. þ. mán. rétt að vera: að undirréttardómurinn yfir Guðmnndi Péturssyni skyldi óraskaður standa, og skyldi liann að auk greiða */, af inálskostnaði; en Magnús Einarsson skyldi vera sýku af sóknarákærum, en */, málíkostnaðarins skyldi greiða úr opinberum sjóði.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.