Þjóðólfur - 24.11.1863, Qupperneq 1
16. ár.
Reykjavík, 24. Nóvember 1S63.
3.-4.
Minni
konúng's..
Súngil á konúngs hátíl&inni í skólauum 6. okt. 1863.
Lag: „Sitter i högeu,,.
Ástheitra arfa
eyunnar köldu
svifhraðr andi
svífr til þín,
fólkvaldr frægi,
fylkir hinn góði,
faðir hins forna
frostkalda lands.
Ileill sé þér, hilmir,
hróðr þinn mæri
fjalleyan forna,
frostböndum reirð;
gullstöfum riti
gljáan á jökul,
mildíngr mæri,
máni þitt nafn.
Fagnaðar fagrar.
færi þér óskir
brimkaldar bárur
bratta við strönd;
glymjandi gýgju
ginntrilldir slái
fallandi fossar
fjalldöluin í.
Lengi mun lifa
Ijúfum í brjóstum
minníng þín, mæti
mildíngr vor;
eins munu aldir
ókomnar blessa
f r i ð m i 1 d a F r i ð r i k s
fæðíngar stund.
Ileill sé þér, hilmir,
heill sé þér, faðir;
alvöld þig efli
almættis hönd.
Garðarsey gamla
gleymir þér eigi,
meðan hin gullna
glóir þar sól.
________ Kr. Jónsson.
— Póst-gufuskipií) Arcturus hsfnsbi sig k£r nndir sól-
arlag 20. þ. mán., eptir 17 daga ferí) frá Khófn, og haf&i
hla&fermi af ýinslim vörum til kaupmanna. Meí) því koinu
eigi a&rir fer&amenn en kand. med. og chirurg. M a g n ú s
Pétrsson) Stephensen, oger honnm veitt héra&slæknis-
ambættib í Vestmaneyum.
— Skipströnd. — 24. f. mán. barst inn á skipa-
leguna að Stapa á Snæfellsnesi mastrslaus »Slup«
skipið «Karen Jóhanna« frá Kristjania í Noregi,
skipherra Chr. Nielsen, með 3 undirmönnum, og
gáfust þar upp og seldu skip og góz fram til strand-
reks; þeir voru á heimleið fVá Akreyri, en hittu
ofveðr hér fyrir framan Faxaflóa eða í honum ut-
anverðum, svo mikið, að jpeir urðu að kubba mastrið
niðr við þilfar til þess að bjarga lífi, og bárust
síðan inn að Stapa. Skipið var þar selt, með rá
og reiða fyrir 600 rd. við opinbert uppboð, og
hrepti það boð Jón llergsson, skipstjóri, sá er hér
var fyrir félags-hákarlaskipinu f hitteð fyrra; annar
farmr og góz af skipinu er mælt að hafi selst á
samtals 100 rd. og þar á meðal hver lýsistunna á
15 rd. — 12.—13. þ. mán. bar uppá Kirkjubólsreka á
Suðrnesjum »Skonort«skipið »Katharína«, skipherra
Binas, frá Kaupmannahöfn; P. L. Henderson í Gla-
skow átti; það kom út á Seyðisfirði í Ágústmán.
þ. á., fór þaðan til Grafaróss, og svo híngað, og
átti að taka við verzlun hans hér ýmsa vöru, en
hitti fyrir ofveðrin 11. — 13. þ. mán. hér í Faxa-
flóa, laskaðist mjög og bar svo uppá sker og grynn-
íngar fyrir framan Miðnesin, og fór þar allr botn-
inn undan skipinu. Einn skipverjanna af 7 tók
þá út, en hinum var bjargað. Skipstrand þetta
var selt að uppboði 20. þ. mán., með öllu gózi
fyrir samtals á 7 þúsund rd.
— þegar miðað er við 2 hinar síðustu burt-
ferðir póstskipsins héðan frá staðnum: 27. Ágúst
(í stað 14. Ágúst) og aptr 13.0kt. (í stað 21. Septbr.)
þá verðr eigi sagt, að þess hafl nú verið fyr von
heldren það nú kom, sízt með þeim stormviðrum
og illviðrum, er gengið hafa allan þenna mánuð.
En í þessum 2 síðustu milliferðum liefir burlfarar