Þjóðólfur - 04.07.1865, Side 3
141 —
byggir alian boðskap um kærleikann á föðurkær-
leika guðs, kennir að allr manniegr kærleikr eigi
að styðjast á, og heigast af því, að guð liefir elsk-
að oss að fyrra bragði? innibindr þessi lærdómr
ekki hina hreinustu og háleitustu, kröptugustu og
alvarlegustu áminníngu til mannanna um, að fyll-
ast barnlegri auðmýkt og þakklæti við föðrinn á
himnum, og gagntakast af kærleikanum til guðs
föður allrar miskunar? og M. E. veit þó að minsta
kosti af hinum guðspjöllunum og l.bréfi Jóhann-
esar, að kærleikrinn til guðs innibindr í sér og
er óaðgrcinanlegr frá kærleikanum til náúngans,
og sýnir sig í honum, því I. Jóh. 4, 20 segir:
i) ef einhver segist elska guð, og liatar bróðrsinn,
sá er lygari«; þess vegna er líka í guðspjalli Jó-
hahnesar eins skýrt tekinn fram og brýndr fyrir
mönnum kærleikrinn til náúngans, eins og kær-
leikrinn til guðs; þó M. E. finni hvorugs getið í
guðspjallinu, þá hefði hann þó átt að muna eptir
orðum Iírists, Jóh. 13, 35 »af því munu allir sjá,
að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér elskizt inn-
byrðis«; er hér ekki áminníng um elsku til ná-
ungans? og þó segir M. E, »að ekki sé í ræðum
Krists í Jóhannesar guðspjalli sagt eitt einasta orð
til að innprenta lærisveinunum eða öðrum kær-
leikann til náúngans«. M. E. þykist ekki heldr
nokkurstaðar finna í Jóhannesar guðspjalli bent á
kærleikann til óvina, og telr orð Krists lijá Jóh.
15, 13: »meiri elsku hefir engi en þá, að hann
láti líf sitt fyrir vini sína«, ósamþýðanleg og í
fullkominni mótsögn við orð l’áls postula Róm.
5, 6, 8: »að Kristr sé dáinn fyrir rángláta synd-
ara». llér er ekki ómerkilegt sýnishorn af biflíu-
þýðingu höfundarins, hve djúpsett hún er, og hve
samrýmdr hann er anda ritníngarinnar, eins og
hér líka sannast á honum orð postulans: »að
holdlega sinnaðr maðr skilr ekki það sem guðs
anda tilheyrir, því það er heimska fyrir honum«.
Skilr þá ekki M. E., að sá kærleikr, sem Páll talar
um að komið hafi Iíristi til að deya fyrir alla synd-
l'ga menn, er sá sanii kærleikr, sem snéri læri-
SVeinunum til eisku við Jesú, og gjörði þá að vin-
l'ui hans? skilr hann ekki, að lærisveinarnir voru
,'ka l’reyskir og syndugir menn, sem drottinn dó
"*r °g var kominn lil að endrleysa eins og alla
a.'a^ hann ekki, að þeir innibindast líka í
lölu hinna mörgu, sem verið höfðu ránglátir, frá-
hverfn guði, 0„ iiærieiksiausir, en að guðdómlegt
vald Kiists kærleika vann íijörtu þeirra, vakti í
þeim líf kærleikans, og gjörði þá að vinum liins guð-
dómiega fræðara þeirra og endrlau^nara? og er
það ekki þessi sami kærleikr, sem síðan hefir
alstaðar um víða veröld, þar sem lærdómrinn um
krossinn hefir verið boðaðr, gjört mennina að vin-
um Krists, snúið þeim, sem áðr voru óvinirguðs,
til vináttu við guð, og vakið líf kærleikans þar sem
áðr var drottnandi hatrið? Finnr M. E. enga
bendíngu um kærleikann til óvina bjá Jóh. 10., í
samlíkingunni um hinn góða hirði, sem gefr líf
sitt út fyrir sauðina? eru ekki sauðirnir í samlík-
íngunni liinir syndugu menn víðsvegar um heim-
inn, sem lifa í ránglætisins ástandi og í óvináttu
við guð, sem eru, eins og Páll segir, óvinir guðs?
og gefr Jesús ekki af kærleika út líf sitt fyrir þá,
og gjörir þá með því að vinum? er hér ekki sett
fyrir sjónir og til fyrirmyndar í skýrustu mynd hin
háleitasta sjálfsafneitun kærleikans, og hið dýrð-
legasta dæmi uppá kærleikann til óvina? og þó
er þetta allt hulið fyrir augum M. E.
(Framhald síðar).
Útlendar frcttir dags. Khöfn 17. Júní 18G5.
— Nú er lokið allri vörn af hendi sunnanmanna
bæði á sjó og iandi, er nú ekki um annaö að tala
en með hverjum kostum þeir skuli gánga aptr inn
í sambandið. Griðum er lýst við alla alþýðu manna,
og þeir einir sæta hörðum kostum, erbundizthafa
fyrir landráðunum. En þeir geta orðið æði margir;
því að allir sem eiga lendur, sem nemi meira verði
en 20,000 spesíur (dollars) eru grunaðir um að hafa
bundiztfyrir svikum við sambandið, verða þeir þvíhver
um sig að biðja sig í grið, og má þá stjórnin láta
prófa, hvernig þeir hafa farið með sínum ráðum,
áðren hún iýsir yfir griðum við þá. Fer þelta
mjög að maklegleikum, því að það voru þessir
auðmenn, sem áttu mergð þræla, er berasta sy'ndu
sig að fjandskap við norðanmenn, og mundu enn,
nema þeir kendi nokkurs ólta. það veldr mjög ó-
samþykki, hvort ráð s.kuli npptaka um þrælana,
sem voru í Suðrfylkjunum; nú eru þeir allir frjáls-
ir, en vilja nú láta forna eigendr sína ala sig, en
vinna það eitt er sjálfum þeim líkar; forseti fylkj-
anna Johnson hefir varað þá við slíku athæfi,seg-
ir að frelsið hafi lagt á þáábyrgð mikla, nú verði
þeir að fara að sjá sjálfum sér farborða. í norðr-
fylkjunum er og deila um það, hve réttháir blá-
menn skuli vera, vilja sumir þegar í stað gefa
þeim kosníngarrétt, en sumir mæla fastlega á móti,
þykir óhæfa að gefa þeim borgararéttindi, jafn-
rniklum óaldarlýð, segja þeim sé góð biðin, þáng-
að til þeir hafi lært nokkra manna siðu; það ætla
menn og að vandræði muni úr því verða, að láta