Þjóðólfur - 25.10.1866, Page 3
18? —
eða garðafjárhús eitt eðr tvö fullbreið og há1 2,
er taki að minsta kosti 60 fjár á garða, með hey-
hlöðu fyrir bakgatli, og se innangengt í af garða og
taki 60 hesta heys að minsta kosti;
eða heyhlöðu vandaða að veggjum, viðum og
tróði, er taki að minsta kosti 120 hesta heys.
|>að er áskilið við hverja þessa húsabyggíngu
fyrir sig: 1. að vandaðr stöpull, grundvöllr eðr
undirstaða úr einu saman grjóti sé fyrirfram og
sérstaklega lögð undir bæarhúsið og sjálfa veggi
þess, hvort heldr það er haft úr einu saman timbri
eðr með torfþaki, og grjótveggjum eða úr góðri
veltu, svo að hún taki vel 1/2 alia eðr fet innaf
innri hleðslu veggjarins, og hvíla fótstykki húss-
ins á því þrepi, en '/4 al. að minsta kosti út fyrir
ytri hleðslu; undirstaðan skal grafin að minsta
kosti 1 - 1 Va al. í jörðu, ef eigi er fasta klöpp
undir, eðr mýrlendi, því sé svo, verðr stöpullinn
að vera þeim mun hærri ofanjarðar, til þess að
gjöra við sígi og sökkvanda; en þar sem hús-
stæðið er þurlent og hálent mun nægja að undir-
staðan taki 3/A til 1V2 al. uppyflr jarðveg, og má
hún eigi skeika úr láréttu að yfirborðinu neinstað-
ar. 2. Veggir hvers hússins fyrir sig skulu vera
sem vandaðastir að efni og hleðslu, úr völdu og
vönduðu sléttu eða höggnu grjóti, að minsta kosti
innanveggja uppúr gegn, ef þessleiðis grjóts er
með nokkru móti kostr, eða ef það er eigi, þá úr
ársgömlum strengjum eða mýrarhnaus vandlega
þtirkuðum; heyhlöðuveggir verða að vera úr einu-
saman grjóti að innanverðu, og fjárhúsveggir víst
3 kvartil frá gólfi, og garðrinn allr grjóthlaðinn.
3, bæarhúsið, að því leyti það er eigi með timbr-
þaki eðr allt úr timbri, á að vera með vönduðu
tróði af hellu, ársgömlu þurru smáhrísi, eðr árs-
gömlum mel, tyrft þar utanyfir með þurru góðu
heytorfi, en yzt með sniddu eða krínglutorfi.
Hlaða og fjárhús annaðhvort með vellagðri hellu
1) Noriianlands og annarstaiar þar sem gariafjárhús tíÍk-
ast mun algengast mál á þeim þannig: veggir á hæÍ l*/4 —
2 aln.; breldd hússins 12 fet milli veggja, þar af tekr gari-
inn yflr 3’/»—S*/4 föt, en krúin sín hvornvegin vii gariann
liiug 4 fet„ en 4’/*—5 fet höfi frá innra dyrakampi ai
fremsta enda garians, þ. e. gariinn er hafir nálægt 5 fetum
styttri heldren húsii er á lengd. Mei þessari breidd hússins
og bili frá garia ai dyrum er hverri kynd ætlab 1 fet af
garianum svo ai vii 30 feta garia geta etii 30 fjár full-
erbii hvornmegin, eíir samtals 60 í húsinu, og geta einnig
jafn margar kiudr legil) þar þegar broidd þess og öibru er
hagaíi eins og fyr er sagt. Risiþ á húsinu ver&r al) vera þal)
fram yflr krossreist, sjálfsagt her á suíírlandi, af) fullkominn
meíialmallr geti gengií) uppréttr og moí) hatt á hölþi, eptir
garl&anum án þess hann reki sig uppundir vaglbita.
fyrir tróð, eða velsúðuðu og bikuðu timbrþaki ó-
tyrft.
5. Tvenn verðlaun fyrir útvalin róðr-
arskip, heitið til samans 40 rd. Annað skipið
skal vera sem bezt lagað til sjósóknar í Vest-
mannaeyjum eða austanfjaUs allt að Garðskaga,
og að öllu vandað og útbúið sem skip það undir
Eyafjöllum, er verðlaunin fékkánæstl. Janúar-fundi
félags vors; en hitt skipið skal ætlað til sjósóknar
í Faxa/lóa, þ. e. frá Garðskaga í Gullbríngusýslu
og vestr að Hvítá í Borgarfirði. Hvort skipið fyrir
sig áskilr félagið að sé áttæríngr eða áttróið, og
hvað hið síðarnefnda sérílagi snertir, að það sé
þannig að unimáli:
lengd á borð....................15 Va al*
kjölr...........................9 — 18 þuml.
breidd um miðju innan hástokka 3—2 —
dýpt við fremstu þóptu þvert upp 1 — 67j —
með tilsvarandi breidd að neðan eptir lengd og
hreidd skipsins að ofan. Skipin eiga að vera sem
bezt vönduð að efni og allri smíð, allri reiðslu og
öllum útbúnaði. Skipin skulu vera alsmíðuð og
reidd að öllu fyrir byrjun Júlímán. 1868, og fé-
lagsfnlltrúa skýrt frá því; en hann skal síðangángast
fyrir skoðun skipsins, einsog íþjóðóifi 1863, bls. 182.
Enir heiðruðu sýslufulltrúar félagsins og aðr-
ir, er kvaddir verða til að skoða jarðabótaverk
þau, byggíngarverk og vöruverkun og smíði sem
til verðlauna skulu ná eptir framansögðu, verða
að hafa hugfast og iáta sér hugarhaldið, að laga
svo þær skýrslur sínar og vottorð, að þar með fram-
leiðist sönnun fyrir því, að allra þeirra skilyrða
sem í skýrslu þessari eru sett fyrir sig, hafi ver-
ið nákvæmlega gætt og verðlauna verkin þannig af
hendi leyst.
Stjórn húss- og bústjórnarfélags Suðramtsins,
Reykjavík 22. Október 1866.
Ó. Pálsson. Páll Melsteð. Jón Guðmundsson.
(Alssent).
»BarnsIega einatt börnum fer«.
þetta sannast á oss Ísiendíngum i mörgu til-
liti og einatt sýnum vér það, að vér erum börn í
skilníngi þótt vér séim það ekki í sakleysi, því
nógu kænir eru margir í viðskiptum við landa sína.
En eg ætla ekki að tala um bernsku vora yfir höf-
uð, heldr um eina grein hennar. Er það ekki
bernskulegt af oss, að láta svo mikinn og góðan
mat fara útúr landinu, þar sem um sauðfé vort
er að ræða, sem menn nú leggja svo þúsundum
skiptir inn í kaupstöðunum, já eru farnir að panta