Þjóðólfur - 13.03.1867, Side 2

Þjóðólfur - 13.03.1867, Side 2
— 74 — og árarnar fleiri, — en þá sáu eigendr þeirra sig um hönd aptr, þótti kostbært að halda úti slíkum skipum einúngis fyrir sömu tvo hluti, en hitt þótti ekki vinsælt að auka þá. V;irð svo niðrstaðan, að róa heldr vænum bát með fjóra á, og taka þar eptir tvo hluti, sem heldr leiðst betr, en eru þó aldeilis eins rángindi og ekki síðr en að taka ekki nema tvo hluti eptir áttróið skip sem fer með 8, 9 eða 10 manns. Og þessi eigingirni og ósann- girni er það sem gjörir það að verkun að svo lítið er gjört að því að byggja hin stærri skipin svo sem átta- og tíræðínga, sem þó í öllu falli væri miklu nanðsynlegri. J>að er styzlr tími hér sunn- anlands sem íiskr er svo á grunnmiðum að smá- bátarnir sé fiskisælli, en hinn tíminn lángtum optar, sem fiskr er einhverstaðar svo innanbugtar að mögulegt væri að sækja hann á vel útreiddum vænum skipum með liðlegri menníng. Með því líka að oss finst það færast nær því að fiska á þiljuskipum, sem lengi hefir verið um rætt og væri víst farsælla fyrir Íslendínga, sem daglega eru líka að kvarta yfir útlendra fiskiveið- um á þessháttar skipum — já, oss finnst það stefna heldr í þá áttina að fjölga stœrri en ekki smærri skipum, sem menn geta ekki bjargað sér á, nema í blíðu veðri inn á grunnmiðum. Eins eru hin stærri skipin æðimikið rúmbetri og traust- ari í flutnínga- og milliferðum sem hér verða að vera svo tíðum; í annan stað má vel stunda há- kallaveiðar og aðrar leguferðir á þeim, sem litt er mögulegt á flestum þessum 6 og 8 rónu róðrar- skipum er nú tíðkast. En það virðist líka van- tekið að skipta ekki nema tveimur hlutum (af 10 eða 12 hlutum) til þvílíkra skipa, og ætti ekki sú óvenja að standa fyrir þeim framförum skipastóls- ins er vér höfum minst á; og þessari óvenju vilj- um vér að sé breytt og að það sé ekki umtals- rnál, það sem öll sannsýni mælir líka með : að skipt sé þremur hlutum dauðum af öllum þeim skipum er átta manns og þaðanaf fleiri geta not- að til að vera á til fiskidráttar, með hvaða veiðar- færi sem er og fyrir hvaða fisk sem er. Af sex- mannaförum, er ýrnist 5, 6 eða 7 geta bjargast á, ætti að takast tveir hlutir; af fjögramannaförum einn og hálfr, og af bátum með 2 menn eða 8 einn hlutr. Sömu skipti geta einnig átt við þó netaveiði sé viðhöfð, því þá skal nela-útgjörðin til skipsins svara sömu hluttekníngu. |>ó kemr oss önnur regla til hugar sem virð- ist óneitanlega sannsýn og bygð á en nú fastari grundvelli, það er: af hverjn skipi eða bát, stóru eða smáu, sem er vel útreitt til hverra veiða sem vera skal (utan að beita er frá skilin, því þar verðr hver að sorga fyrir sjálfum sér) skiptist einn fjórði partr af allri veiði er aflast, hvort heldr fleiri eða færri eru á. Og ef að sú regla kæmist á, sjáum við ekkert misklíðarefni milli skipseiganda og há- seta útaf of- eða vanteknum dauðu hlutuuum; og heldr ekki neina orsök til að stærri skipin fjölg- uðu ekki eins og hin smærri, nema ef það er, að sem flestir vilja vera formenn, því hin viðbár- an hverfr, að betra sé að eiga þrjá báta enn eitt skip upp á hlutina. Yér viljum því að endíngu skora á alla útvegsbændr í áminstum veiðistöðum, að þeir taki nú þegar allir eina almenna reglu um skipti, aðrahvora þeirra er vér höfum minst á, eða einhverja þá er þeim gæti þókt en nú geðfeldari, svo að þær umkvartanir er eiga sér stað ýmist af hásetum eða skipseigendum hverfi, og eins mis- munr sá, er viðgeingst sinn í hverri vik og veiði- slöðu hvernig skiptin eru höfð, verði ekki framar til, heldr verði þar ein lög og almenn regla. Nokhrir útvegsbœndr við Faxaflóa. SKÝRSLA um fjárhag bræðrasjóðs Ileykjavíkr latínuskóla frá 5. Jan. 18G6 til s. d. 1867. hjágjaldk. áleiga Eptir seinustu skýrslu (sjá J>jóð- rá. sk. rd. ólfs 18. ár, nr. 17 —18 átti sjóðrinn 56 45 2998 Síðan hefir inn komið: 1. rentur: o) ársrenta til 11. Júní 1866 af inn- stæðu sjóðsins (1538 rd.) í jarða- bókarsjóði á 3'/2% og skuldabréf- unum nr. 365 og Litr. A nr. 8650 á 4%...........................61 79 ö)ársrenta til 11. Júní 1866 af 1160 rd. sem innistanda á ieigu hjá ein- stökum mönnum á 4% og í móti veði........................... 46 38 c) ársrenta til 26. Sept. 1866 af gjafa- bréfi Jóns Guðmundssonar, mála- flutníngsm. í Iteykjavík og konu hans á 4%.................... 4 » 2. gjafir 0. fl. a) gjöf Einars J>órðarsonar forstöðu- manns prentsmiðjunnar . . 5 90 — G. Lambertsens kaupmanns í Reykjavík................ 1 » b) seldar 2 andlitsmyndir Ejörns yfir- kennara Gunnlaugssonar ... 2 » flyt 177 60 2998

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.