Þjóðólfur - 23.09.1869, Page 6
— 190 —
2. gr.
Til flutnings í póstsekknum mun skip þetta
veita viðtöku :
bréfum,
blöðum og öðrum prentuðum ritum,
peningum
og bögglum öilum, sem eigi vega meira
en 10 merkur.
Til flutnings verðr eigi tekið við chemiske brenni-
steinsspítum, púðri, skeiðvatni, brennisteinssýru,
saltsýru né öðrum málmefnum eða sýruefnum, sem
um sig éta.
3. gr.
Fyrir þær sendingar, sem áðr eru nefndar,
stendr hverjum frjálst, að greiða borgun fyrir fram
eða eptir á, nema bréf þau, sem öðrum eru á
hendr falin, og þess konar sendingar sem kross-
band er um, fyrir það hvorltveggja skal borgun
ávallt greidd fyrir fram. Sömuleiðis skal borgun
greidd fyrir fram fyrir allar sendingar til yfirvalda
í Danmörku og til annara landa. Iíonungleg em-
bættismál verða flutt kauplaust.
4. gr.
8 skildingar er ákveðinn flutningseyrir fyrir
einföld bréf, sem eigi vega meira en 3 kvint, ef
full borgun er greidd fyrir fram, en sé eigi full
borgun greidd fyrir fram, er borgunin 12 skild.
Fyrir bréf þau, er vega yflr 3 kvint og allt
upp að 50 kvintum, er flutningseyrir tvöfaldr. Ekk-
ert bréf má þyngra vera en 1 mörk (50 kvint).
Fyrir þau bréf sem á er ritað »anbefales,
rekommenderes, Nb. eða því um líkt, skulu goldn-
ir 8 skildingar auk flutningseyris.
Fyrir þau bréf, sem enginn móttökumaðr
finnst að og beðin eru endrsend, skal að eins
goldinn sá flutningseyrir, sem að upphafi var áskil-
inn.
Ef eitthvert það bréf skyldi glatast, sem ein-
hverjum er á hendr falið, greiðir póstmálastjórnin
10 rd. í skaðabælr, en fyrir önnur bréf verða eng-
ar skaðabætr goldnar.
5. gr.
Flutningseyrir fyrir blöð og önnur prentuð
rit, sem send eru að eins með krossbandi um og
annað er eigi skrifað í en nafn móttökumannsins
og þess er sendir, hvaðan þau séu send og hve
nær, er ákveðinn þannig:
fyrir allt að 8 kvint. þunga 4 skildingar
— meir en 8 ogalltað 50 kvint. þunga 8 sk.
6. gr.
Flutningseyrir fyrir peninga og aðra dýra muni
verðr ákveðinn sumpart eplir þunga og sumpart
eptir verði hinna sendu niuna. Að svo miklu leyti
slíkt er sent í bréfum, verðr flutningseyrir eptir
þtmga talinn samkvæmt 4. gr.; sé þessir munir
aptr á móti sendir í poka, bögli eða kassa, verðr
flutningseyrir reiknaðr eptir 7. grein. Skuliborg-
un greiða eptir verði munanna, verðr flutningseyrir:
fyrir allt að 50 rd.............. 8 sk.
fyrir meira en 50 rd. og allt að lOOrd. 16sk.
fyrir meir en lOOrd. . . . 16 sk.
fyrir hverja 100 rd., og að tiltölu fyrir það,
sem eigi nemur 100 rd.
Póstmálastjórnin ábyrgist allar sendingar þannig,
að hún skuldbindr sig til, að afhenda þær með ó-
skemmdum umbúðum og innsigli. Aptr á móti
tekr hún enga ábyrgð á tjóni því, sem á kann að
verða við óböpp á sjó, rán eða þess konar.
7. gr.
Flutningseyrir fyrir böggla er ákveðinn þannig:
fyrir böggul, sein vegur eigi yfir 1 pund. 16sk.
Fyrir tilvísunarbréf (Adressebreve) , sem fylgir
bögglum, skal enga borgun greiða, en þau mega
eigi þyngri vera en 3 kvint.
Nú er sagt, hversu mikils virði sendingin sé,
og skal þá greiða borgun samkvæmt því, sem áðr
er sagt í 6. grein um flutningseyri eptir verði
munanna.
Sé eigi sagt, hvers virði munirnir sé, bætir
póstmálastjórnin að eins 48 sk. fyrir hvert pund
hinna nefndu smáböggla, ef þeir glatast.
8. gr.
Flutningseyri má leysa með borgunarmerkjum
(Frimærker), sem hljóða upp á 2, 3, 4, 8 eða 16
sk., og sem verða til kaups hjá póstafgreiðslu-
manni í Reykjavík og fmrshöfn, annaðhvort hvert
einstakt, eða svo hundruðum skiptir fyrir 2, 3, 4,
8 eða 16 rd. hvort hundrað.
9. gr.
Skaðabótaskylda póstmálastjórnarinnar fyrir
sendingar, sem henni er trúað fyrir, eráenda, þá
er sá, er það er sent, heflr gefið viðrkenningu fyr-
ir móttökunni, eða ef skaðabóta eigi er krafizt áðr
ár sé liðið frá því sendingin kom í hendr póst-
afgreiðslurnönuum.
10. gr.
J>að mun síðar verða ákveðið, hvort og að hve
miklu leyti, og ef svo verðr, með hvaða skilyrðum
peningum verðr víxlað gegn ávísunum, þannig að
þeir verði eigi sendir yfir hafið.