Alþýðublaðið - 28.01.1921, Side 1
Alþýðublaðið
Oefið dit af A.lþýduflokkBniae
1921
Föstudaginn 28. janúar.
22. tölubl.
Jfýr C-listafnnðnr.
C listinn hé!t almennan kjósenda-
fund í gærkvöldi, Og var húsið
troðfult og nokkuð af öllum flokk-
um, en þó mest af B listEmönnum,
þrátt íyrir það þó samtímis væri
f Gooötemplarahúsinu fjölmennur
Dagsbrúnarfundur og uppi þar
fundur í verkakvennafélaginu.
Fyrstur talaði Magnús Jónsson
sem efstur er á lista íslandsbanka-
Vísis Talaði hsnn í hálfan annan
tfma, og var sú éndemislokleysa
óverðskulduð hegning á fundar-
menn. Þá talaði Jón Ólafsson, en
taíaði svo stutt, að enginn sofnaði
— nema bróðir hans, sem var
ifundarstjóri, sem svaf að því er
virtist eftir það út fundinn, og
rumskaðist ekkert, hvernig sem
einkavinir Jskobs Möiler — hinn
svokallaði Vísisskríll — öskraði
og stsppaði undir ræðum A, B-
og D listamanna. Þó ræða Jóns
Ól. væri stutt og hann stamaði
voðaiega og heyktist á hverri
setningu, þá var hún nógu iöng
til þess, að vekja víðbjóð þeirra
sjómanna er á hann hlustuðu og
allra annara samviskusamra manna.
Næst honum talaði fiskhringsmað-
urinn Þórður Bjarnason, en þá
sements- og þakjárnskaupmaður
Jón Þorláksson, sem fræddi fund
armenn á þvf, að hann væri með
járnbraut. En mönnum þóttu það
engin tfðindi, því allir Reykvík-
ingar viija járnbraut, en þeir'vilja
ekki að „heili heilanna" reikni
hana útr eða að hún sé rekin með
því íyrirkomulagi sem hann hefir
stungið upp á.
Af alþýðuflokksins hálfu töluðu
Ingimar Jónsson, Agúst Jósefsson
og Ólafur Friðriksson. Hröktu þeir
þessar venjulegu, gömlu, marg-
upptugðu fjarstæður andstæðing-
anna um alþýðuflokkinn og stefnu
hans.
Aðrir sem töluðu voru þessir:
ólafur Thors, Sigurður Jónsson,
.Sigurður Eggeiz, Þórður Thorodd-
sen og Jakob MöHer. Talaði hinn
síðastnefodi tvisvar, og lá við að
hann argaði f fyrri ræðunni (eins
og gamlir samherjar hans vita að
honutn hættir til), en það var nú
ksnnske von, því hann var að
tala 11 m hvernig Alþýðublaðið
hefði flett ofsn af honum í ís-
landsbankamálinu
Þegar klukkan var hálf eitt,
stóðu fuadarmenn upp og tóku
að ganga út, en Ólafur Thors
lýsti því yfir að fundi væri slitið,
þvf fundarstjóri var þá enn ekki
vaknaður.
^
Crlesi simskeyti.
(Loftskeyti)
Khöfn, 24. jan.
Bandamenn og örikkir.
Simað er frá Locdon að banda-
menn hafi bannað Grikkjum að
breyta stjórnarskrá sinni, samkv.
Lundúnasamningnum 1863.
Khöfn, 25. jan.
Fjárniál Tyrklands.
Símað er frá Konstantinopel,
að ráðherraráðið hafi samþykt að
bandamenn haíi eftirlit með fjár-
málum Tyrklands.
Pjóðverjar eg Bandamenn.
Símað er frá París, að Fcch og
Wilson leggi til, að Þjóðverjum
verði veittur frestur til 1. maí til
þess að leggja niður héraðavarð-
liðið. Þýzka stjórnin er á báðum
áttum, því hún býzt við bolsivíka-
innrás ef þetta veröur framkvæmt,
Þegar fundi bandamanna verð-
ur slitið í næstu viku, er Þjóð
verjum boðið á fund, þar sem
uppástunga bandamanna verður
lögð fyrir þá.
Morð í Moskva?
Símað ar frá Helsingfors, að
Isvestia segi frá því, að við morð-
tilraun andstæðinga bolsivíka hafi
20 særst og 6 dáið. Lenin komst
ómeiddur undan.
[Skeyti sem dagsett er 24 jan.,
eða degi á undan þessu skeyti,
þó það kæmi hingað á eftir, seg-
ir Lenin dauðan, en það mun hafa
verið borið til baka, fyrst þ«*tta
skeyti kemst svo að orði. Annars
er það kunnugt, að fregnir frá
Helsingfors eru rojög óáreiðanleg-
ar, og margoft hefir það komið
upp, að þær rru algerður upp-
spuni, jafnvel þó sagt sé að þær
séu eftir rússneskum blöðum. Lyga-
fréttastofan, sem sagt var frá í
blöðunum í sumar, hefir þar eina
bækistöð sína.j
Frá sama stað er símað, að
finskir bolsivíkar mæli mjög með
nýrri byltingu þar í landi.
Þeir eru sér að grafa gröf
— á grafarbanninum skjálfa.
„Hamarirm" verður þeim hefndar-
gjöf.
Hann hittir aðeins — þá sjálfa.
G.
Skríti# atvik. A fundinum í
gærkvöldi vitnaði Jakob Möller i
Alþýðublaðið, og hrópaði þá einm
af fylgifiskum hans: „Eg les það
aldrei." Þegar sami Jakob svo rétt
á eftir sagði, að það hefði staðið
í Alþýðublaðinu, sem aldrei hefir
þar staðið (meðmæli með innflutn-
ingshöftum), og sagði: „Þið hafið
lesið það þar", hrópaði maðurinn
sem aldrei hafði lesið blaðið: „Já,
jái" — Það má nú segja, að fé
sé jafnan fóstra likt, og liðsmenn-
irnir líkir Jakob.
Alþýðnflokksfnndur verður
annað kvöld f Bárunni.